Fréttir

Fréttir

Breiðablik er handhafi fjögurra stærstu
Breiðablik er handhafi fjögurra stærstu

Breiðablik er handhafi fjögurra stærstu bikaranna sem leikið er um í knattspyrnu kvenna á Íslandi eftir tvo sigurleiki með stuttu millibili.


Áramótakveðja 2025
Áramótakveðja 2025

Forsvarsfólk blikar.is/kvk senda öllum Blikum og öðrum landsmönnum nær og fjær bestu óskir um farsæld og gleði á nýju ári!


Jólakveðja 2025
Jólakveðja 2025

STUÐNINGSMANNAVEFURINN BLIKAR.IS ÓSKAR ÖLLUM STUÐNINGSMÖNNUM BREIÐABLIKS NÆR OG FJÆR GLEÐILEGRAR JÓLAHÁTÍÐAR.


Nej nej nej helvede
Nej nej nej helvede

Nej nej nej helvede Þessi orð ómuðu hjá dönsku þulunum þegar Blikastelpur skoruðu þriðja markið í uppbótartíma til að tryggja sér framlengingu í þessum sögulega leik sem fram fór á Jótlandi í gærkvöld


Einvígið er á lífi
Einvígið er á lífi

Stelpurnar tóku á móti Fortuna Hjorring í nýstingskulda í fyrri viðureign liðanna í þriðju umferð Europa cup á Kópavogsvelli í gær. Það voru nokkrar breytingar sem Nik þurfti að gera t.d. var Katherine Devine ekki með og Herdís Halla Guðbjartsdóttir stóð á milli stanganna í leiknum og átti stórleik. Einnig var AglaMaría ekki í byrjunaliðinu en Hrafnhildur Ása tók hennar stöðu og gerði það með glæsibrag, eins og hún hefur gert í allt sumar þegar hún hefur fengið tækifærið.


Evrópuævintýrið heldur áfram á Kópavogsvelli á miðvikudaginn
Evrópuævintýrið heldur áfram á Kópavogsvelli á miðvikudaginn

Það verður enn einn stórleikurinn hjá stelpunum okkar á miðvikudaginn þegar þær spila fyrri leikinn í 16 liða úrslitum Evrópubikarsins.


Ian Jeffs nýr aðalþjálfari meistaraflokks kvenna!
Ian Jeffs nýr aðalþjálfari meistaraflokks kvenna!

Ian Jeffs hefur verið ráðinn aðalþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Breiðabliki. Þjálfaraferill Ians hófst fyrir rúmum tíu árum síðan þegar hann tók við þjálfun kvennaliðs ÍBV í efstu deild Íslandsmótsins. Á þeim fjórum árum sem hann stýrði ÍBV, kom hann liðinu m.a. tvívegis í bikarúrslit og varð bikarmeistari 2017.


Glæsilegur sigur í glötuðu veðri
Glæsilegur sigur í glötuðu veðri

Stelpurnar tóku á móti Sparta Slobotica í leiðinda veðri í fyrri viðureign liðanna í annarri umferð Europa cup á Kópavogsvelli í gær. Fyrir leikinn var Nik búinn að tala um að það væri mikilvægt að byrja vel og það var nákvæmlega það sem þær gerðu.


Evrópusagan skrifuð á Kópavogsvelli á miðvikudag
Evrópusagan skrifuð á Kópavogsvelli á miðvikudag

Eftir að hafa tryggt Íslandsmeistaratitil númer 20 þá fá stelpurnar okkar ekki langa hvíld því framundan er fyrri leikurinn í annarri umferð Europa Cup sem er ný keppni hjá UEFA. Blikar eru því fyrsta Íslenska liðið til að taka þátt í þessari keppni og fara beint í aðra umferð vegna góðs árangurs í forkeppni meistaradeildar Evrópu.


Íslandsmeistarar já Íslandsmeistarar
Íslandsmeistarar já Íslandsmeistarar

Eins og væntanlega hefur ekki farið framhjá neinum Blika að stelpurnar okkar tryggðu sér 20. Íslandsmeistaratitil liðsins með sigri á Víkingum 3-2.


Áfram gakk nú er næsti leikur- Frítt á völlinn í boði Varðar
Áfram gakk nú er næsti leikur- Frítt á völlinn í boði Varðar

Stelpurnar okkar spila næsta leik sinn á föstudagskvöldið kemur á Kópavogsvelli klukkan 18:00 á móti Víking.


Blikar bíða enn eftir titlinum – Þróttur vann í Laugardalnum
Blikar bíða enn eftir titlinum – Þróttur vann í Laugardalnum

Það var mikið undir þegar Breiðablik heimsótti Þrótt í Laugardalinn í Bestu deild kvenna. Sigur hefði nánast tryggt Íslandsmeistaratitilinn, en að lokum voru það Þróttarar sem fögnuðu 3–2 sigrByrjunarlið i eftir fjörugan leik.


Stelpurnar okkar mæta Þrótti á útivelli á morgun, Þriðjudag,  klukkan 18:00
Stelpurnar okkar mæta Þrótti á útivelli á morgun, Þriðjudag,  klukkan 18:00

Stelpurnar okkar mæta Þrótti á útivelli á morgun, Þriðjudag, klukkan 18:00


Partýinu frestað en ekki aflýst
Partýinu frestað en ekki aflýst

Fyrsti leikur Breiðabliks, eftir skiptingu, fór fram í gær þegar við fengum Stjörnustúlkur í heimsókn.


Berglind með fimm mörk
Berglind með fimm mörk

Í gær fór fram síðasti leikurinn fyrir skiptingu, okkar konur búnar að tryggja sér efsta sætið,með 11 stiga forskot á FH.  


Bestadeild kvenna 2025- síðasti heimaleikur fyrir úrslitakeppnina
Bestadeild kvenna 2025- síðasti heimaleikur fyrir úrslitakeppnina

Stelpurnar okkar mæta Þór/KA á heimavelli næstkomandi laugardag klukkan 14:00.


Bestadeild kvenna 2025- Heimsókn til Austurlands
Bestadeild kvenna 2025- Heimsókn til Austurlands

Stelpurnar okkar halda til austurlands og spila við FHL næstkomandi sunnudag klukkan 14:00.


Björt Birta yfir Breiðabliki!
Björt Birta yfir Breiðabliki!

Í gærkvöld áttust við liðin sem léku einn eftirminnilegasta bikarúrslitaleik sögunnar, þegar okkar konur tóku á móti FH. Fyrir likin var Breiðablik með fimm stiga forystu á FH og því ljóst að þessi leikur skipti gríðarlegu miklu máli fyrir átökin framundan.


Stórleikur hjá stelpunum á fimmtudaginn
Stórleikur hjá stelpunum á fimmtudaginn

Næsti leikur hjá stelpunum okkar er gegn FH næstkomandi fimmtudag klukkan 19:15 á Kópavogsvelli. Þetta er eins og allir vita toppslagur deildarinnar en FH er í 2 sæti aðeins 5 stigum á eftir okkar konum.


Breiðablik í úrslitaleik eftir sigur á Athlone Town
Breiðablik í úrslitaleik eftir sigur á Athlone Town

Breiðablik tryggði sér í dag sæti í úrslitaleik undankeppni Meistaradeildar Evrópu með 3–1 sigri á írsku meisturunum í Athlone Town í Enschede.


Næsti leikur bikarmeistarana á föstudag
Næsti leikur bikarmeistarana á föstudag

Næsti leikur hjá nýkrýndum bikarmeisturum verður á föstudaginn klukkan 19:00 á Kópavogsvelli gegn Tindastól svo að stelpurnar okkar fá nú aðeins fleiri daga á milli leikja sem er gott enda hefur verið mikið álag undanfarið.


Bikarmeistarar, já Bikarmeistarar!
Bikarmeistarar, já Bikarmeistarar!

Það var stór dagur í Laugardalnum í gær þegar Breiðablik og FH áttust við í bikarúrslitum kvenna. Þetta var í 44 sinn sem keppt var um titilinn og í 23 skipti sem við Blikar tókum þátt í honum, sem er í sjálfu sér galinn árangur. Andstæðingur okkar var hins vegar að taka þátt í þessum leik í fyrsta skipti.


Bikarúrslit 16 ágúst - skyldumæting
Bikarúrslit 16 ágúst - skyldumæting

Nú er allt að verða klárt fyrir stórleikinn á laugardaginn þegar Breiðablik mætir FH í bikarúrslitum kvenna í fyrsta skipti í sögunni. Þetta er stór stund fyrir FH sem aldrei áður hefur tekið þátt í bikarúrslitaleik, og ljóst að spennan í Hafnarfirði er gríðarleg


Næsti leikur verður á þriðjudaginn
Næsti leikur verður á þriðjudaginn

Næsti leikur hjá stelpunum okkar er gegn Víking næstkomandi þriðjudag klukkan 18:00 í Víkinni.


Góður sigur á Fram
Góður sigur á Fram

Breiðablik vann sannfærandi 6–1 sigur á Fram í Bestu deild kvenna á Lambhagavellinum í gær og sýndu okkar stelpur nokkra yfirburði alla leikinn.


Gamlar dagbækur gerðu útslagið
Gamlar dagbækur gerðu útslagið

Stórtíðindi! Tólf árum eftir opnun stuðningsmannavefsins Blikar.is/kvk/ hefur vefsíðan fengið í hendur leikmannatölfræði fyrir fyrstu árin í sögu kvennaliðs Breiðabliks. Þessar upplýsingar hafa verið taldar glataðar eða óaðgengilegar og því er þetta ómetanleg tölfræði. Þetta er sögulegt skjal sem Rósa Áslaug Valdimarsdóttir hefur látið okkur í té.


Stutt milli leikja- næsti leikur gegn Fram
Stutt milli leikja- næsti leikur gegn Fram

Næsti leikur okkar Blikakvenna verður á Lambahagavellinum næstkomandi fimmtudag klukkan 18:00.


Upphitun: Valur - Breiðablik, 4. ágúst 2025
Upphitun: Valur - Breiðablik, 4. ágúst 2025

Breiðablik fer í heimsókn á Hlíðarenda þar sem þær mæta Val mánudaginn 4. ágúst kl. 18:00. Blikar eru á góðri siglingu og í toppbaráttunni, en Valur hefur glímt við smá vandræði og sitja nokkuð fast um miðja deild.


Breiðablik í bikarúrslit eftir dramatískan endi gegn ÍBV
Breiðablik í bikarúrslit eftir dramatískan endi gegn ÍBV

Breiðablik tryggði sér sæti í úrslitum Mjólkurbikars kvenna með eftirminnilegum 3-2 sigri á ÍBV í undanúrslitum á Kópavogsvelli. Leikurinn var æsispennandi, fullur af sviptingum, baráttu og dramatík .


Undanúrslit Mjólkurbikars kvenna: Breiðablik – ÍBV | Fimmtudagur kl. 18:00 á Kópavogsvelli
Undanúrslit Mjólkurbikars kvenna: Breiðablik – ÍBV | Fimmtudagur kl. 18:00 á Kópavogsvelli

Það verður bikarstemmning í Kópavogi á fimmtudagskvöld þegar Breiðablik tekur á móti ÍBV í undanúrslitum Mjólkurbikarsins. Flautað verður til leiks kl. 18:00 og sigurliðið tryggir sér sæti í úrslitaleiknum á Laugardalsvelli.


Einar á toppnum í Bestu deildinni
Einar á toppnum í Bestu deildinni

Blikastelpur spiluðu gegn Þrótti á Kópavogsvelli kvöld en um var að ræða toppslaginn í Bestu deildinni.


Besta deild kvenna 2025- Deildin hefst að nýju
Besta deild kvenna 2025- Deildin hefst að nýju

Stelpurnar okkar taka á móti liði Þróttar fimmtudaginn 24. júlí klukkan 19:15 á Kópavogsvelli en hlé hefur verið á deildinni vegna EM kvenna.


Bestadeild kvenna 2025- Síðasti leikur fyrir EM pásu
Bestadeild kvenna 2025- Síðasti leikur fyrir EM pásu

Stelpurnar okkar eiga leik á morgun klukkan 14:00 á Stjörnuvelli. Leikir okkar á móti Stjörnunni hafa í gegnum tíðina verið spennandi. Liðin hafa leikið 52 leiki í efstudeild þar sem Blikakonur hafa unnið 30 leiki, 7 leikir hafa endað i jafntefli og Stjarnan unnið 14.


Bestadeild kvenna 2025- Roadtrip
Bestadeild kvenna 2025- Roadtrip

Stelpurnar okkar munu fara norður á Akureyri næstkomandi mánudag og spila þar við heimakonur í Boganum klukkan 17:00.


Góð úrslit í sögulegum leik
Góð úrslit í sögulegum leik

Það var boðið uppá tímamótaleik á Kópavogsvelli í 8 liða úrslitum bikarkeppninnar hjá stelpunum þetta árið. HK stelpur komu í heimsókn en þetta var í fyrsta sinn sem þessi nágrannafélög mætast í leik í meistaraflokki kvenna.


8 líða úrslit í Mjólkurbikar á fimmtudaginn
8 líða úrslit í Mjólkurbikar á fimmtudaginn

Stelpurnar okkar í Breiðabliki taka á móti HK í 8 liða úrslitum Mjólkurbikarskvenna á fimmtudaginn klukkan 20:00.


6-0 sigur!
6-0 sigur!

Í dag tóku stelpurnar okkar í Breiðabliki á móti Austfjarðarliðinu og nýliðunum FHL. Frábærar aðstæður til knattspyrnuiðkunar.


Bestadeild kvenna 2025- Nýliðar í heimsókn
Bestadeild kvenna 2025- Nýliðar í heimsókn

Stelpurnar okkar taka á móti nýliðunum í Bestu deild kvenna FHL næstkomandi laugardag klukkan 14:00 á Kópavogsvelli.


Bestadeild kvenna 2025 - Grasleikur framundan
Bestadeild kvenna 2025 - Grasleikur framundan

Stelpurnar okkar munu fara til Hafnarfjarðar næstkomandi föstudag og spila þar við heimakonur í FH klukkan 18:00. Reikna má með hörkuleik enda hefur FH farið vel af stað í deildinni í sumar og eru þær nú í 3 sæti.


Bongo og Boom á Kópavogsvelli!
Bongo og Boom á Kópavogsvelli!

Eftir frábæra byrjun Blika í Bestudeildinni þar sem þær eru efstar í spennandi deild með jafnmörg stig og FH og Þróttur, þá var komið að því að bjóða Valskonur velkomnar í Kópavoginn.


Besta deildin 2025: Breiðablik - Valur
Besta deildin 2025: Breiðablik - Valur

Stórleikur á Kópavogsvelli næstkomandi föstudag 16. maí klukkan 18:00!


Blikakonur Lengjubikarmeistarar!
Blikakonur Lengjubikarmeistarar!

Okkar konur eru Lengjubikarmeistarar eftir öruggan 4-1 sigur á Þór/KA í úrslitum Lengjubikarsins 2025.


Kristín Dís framlengir við Blika
Kristín Dís framlengir við Blika

Kristín Dís Árnadóttir hefur skrifað undir nýjan samning við Íslandsmeistara Breiðabliks


Kate Devine í Breiðablik
Kate Devine í Breiðablik

Breiðablik hefur náð samkomulagi við bandaríska markvörðinn Katherine Devine, um að spila með liðinu á komandi leiktíð


Heiðdís Lillýjardóttir semur við Blika
Heiðdís Lillýjardóttir semur við Blika

Varnarmaðurinn öflugi, sem var áður hjá FC Basel í Sviss og Benfica í Portúgal, er komin aftur heim í Kópavoginn.


Vigdís Lilja til Anderlecht
Vigdís Lilja til Anderlecht

Breiðablik og belgíska félagið Anderlecht hafa komist að samkomulagi um sölu á Vigdísi Lilju til belgísku meistaranna


Jakobína til Stjörnunnar
Jakobína til Stjörnunnar

Breiðablik og Stjarnan hafa komist að samkomulagi um að miðjumaðurinn Jakobína Hjörvarsdóttir fari á láni fyrir komandi tímabil til Stjörnunnar


Telma til Glasgow Rangers
Telma til Glasgow Rangers

Íslandsmeistarinn og markmaðurinn heldur á vit nýrra ævintýra í Skotlandi.


Stórsigur á Skaganum!
Stórsigur á Skaganum!

Okkar konur fóru upp á Akranes og spiluðu æfingaleik á móti ÍA sem endaði með 9-1 sigri Breiðabliks!


Valdimar nýr markmannsþjálfari meistaraflokks kvenna
Valdimar nýr markmannsþjálfari meistaraflokks kvenna

Breiðablik og Valdimar hafa undirritað samning þess efnis að hann taki við sem markmannsþjálfari meistaraflokks kvenna.


Guðrún Þórarinsdóttir semur við Breiðablik
Guðrún Þórarinsdóttir semur við Breiðablik

Guðrún er fjölhæfur miðjumaður sem æfir með meistaraflokki Breiðabliks. Hún er fædd árið 2008 og hefur spilað 23 leiki í meistaraflokki Augnabliks


Kristín Sara skrifar undir við Breiðablik
Kristín Sara skrifar undir við Breiðablik

Kristín Sara er fædd árið 2008 og spilar sem miðvörður. Hún æfir með meistaraflokki Breiðabliks, en undanfarin tvö sumur spilaði Kristín Sara með Augnabliki.


Berglind Björg heim í Breiðablik
Berglind Björg heim í Breiðablik

Við byrjum árið 2025 á að segja ykkur þær frábæru fréttir að Berglind Björg Þorvaldsdóttir er búin að semja við Breiðablik


Áramótakveðja 2024
Áramótakveðja 2024

Forsvarsmenn blikar.is senda öllum Blikum og öðrum landsmönnum nær og fjær bestu óskir um farsæld og gleði á nýju ári!


Jólakveðja 2024
Jólakveðja 2024

STUÐNINGSMANNAVEFURINN BLIKAR.IS ÓSKAR ÖLLUM STUÐNINGSMÖNNUM BREIÐABLIKS NÆR OG FJÆR GLEÐILEGRAR JÓLAHÁTÍÐAR


Íslandsmeistarinn Karítas framlengir
Íslandsmeistarinn Karítas framlengir

Hinn reynslumikli leikmaður, Karítas Tómasdóttir, hefur skrifað undir samning við Breiðablik sem gildir út árið 2025


Margrét Lea í Stjörnuna
Margrét Lea í Stjörnuna

Hún hefur komist að samkomulagi um félagaskipti frá Breiðablik yfir í Stjörnuna.


Íslandsmeistarinn Mikaela Nótt áfram hjá Blikum
Íslandsmeistarinn Mikaela Nótt áfram hjá Blikum

Íslandsmeistarinn Mikaela Nótt verður hjá Blikum út árið 2026.


Íslandsmeistarinn Samantha Smith semur við Blika
Íslandsmeistarinn Samantha Smith semur við Blika

Íslandsmeistarinn Samantha Smith semur við Breiðablik út árið 2025


Íslandsmeistarinn Katrín Ásbjörns framlengir
Íslandsmeistarinn Katrín Ásbjörns framlengir

Katrín Ásbjörnsdóttir hefur skrifað undir samning út árið 2025


Helga Rut Einarsdóttir semur við Breiðablik
Helga Rut Einarsdóttir semur við Breiðablik

Helga Rut Einarsdóttir semur við Breiðablik. Hún er 17 ára varnarmaður og kemur frá Grindavík


Íslandsmeistarinn Birta Georgs framlengir
Íslandsmeistarinn Birta Georgs framlengir

Færum ykkur þær frábæru fréttir að Birta Gerorgsdóttir hefur framlengt samning sinn við Breiðablik um 1. ár.


Íslandsmeistarar 2024!
Íslandsmeistarar 2024!

Okkar konur eru Íslandsmeistarar 2024 eftir markalaust jafntefli gegn Val á Hliðarenda fyrir framan fulla stúku. Frábær endir á geggjuðu tímabili og eiga þær þetta svo mikið skilið.


Agla María framlengir við Blika
Agla María framlengir við Blika

Okkar eina sanna Agla María Albertsdóttir hefur framlengt samning sinn við Breiðablik til 2025.


Samantha Smith til Blika
Samantha Smith til Blika

Samantha Smith hjá Breiðablik út tímabilið 2024. Þessi öflugi leikmaður kemur á láni frá FHL og er fædd árið 2001.


Vigdís Lilja framlengir
Vigdís Lilja framlengir

Framherjinn öflugi Vigdís Lilja Kristjánsdóttir framlengir út tímabilið 2025.


Kristín Dís í Breiðablik
Kristín Dís í Breiðablik

Kristín Dís Árnadóttir semur við Breiðablik út tímabilið 2024. Kristín hefur sl. þrjú tímabil spilað með danska félaginu Brøndby en snýr nú aftur á heimaslóðirnar í Kópavogi.


Aníta Dögg semur við Breiðablik
Aníta Dögg semur við Breiðablik

Aníta Dögg Guðmundsdóttir skrifar undir samning við Breiðablik. Aníta er að hefja sitt 3ja tímabil með Breiðablik en hún stundar háskólanám í USA.


Ása Halldórsdóttir framlengir
Ása Halldórsdóttir framlengir

Miðjumaðurinn öflugi sem er fædd árið 2006 framlengdi á dögunum samning sinn við Breiðablik.


Olga framlengir við Breiðablik
Olga framlengir við Breiðablik

Olga Ingibjörg Einarsdóttir framlengir við Breiðablik. Hún er uppalin miðvörður og lék sína fyrstu meistaraflokksleiki með Breiðablik á síðasta ári en þar á undan hafði hún spilað 45 leiki með Augnabliksliðinu.


Elín Helena framlengir
Elín Helena framlengir

Elín er miðvörður sem uppalin er hjá Breiðabliki. Hún lék sinn fyrsta opinbera meistaraflokks leik í meistara meistarana 2019. Síðan þá hefur hún leikið yfir 55 mótsleki í meistaraflokki Breiðabliks og var fastamaður í liðinu á síðasta tímabili.


Margrét Lea framlengir við Breiðablik
Margrét Lea framlengir við Breiðablik

Margrét Lea Gísladóttir framlengir við Breiðablik. Margrét er af miklum Blika ættum. Hún er fjölhæfur miðjumaður. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hún þegar leikið 68 leiki í meistaraflokki. Margrét Lea hefur leikið 15 unglingalandsleiki fyrir Íslands hönd með U16, U17 og U19.


Bingó!
Bingó!

Mfl. kvk ætlar að vera með bingó á morgun, miðvikudaginn 10.apríl, í veislusal Breiðabliks á 2.hæð í Smáranum. Bingó hefst kl 18:30, spjaldið kostar 500 kr og verða einnig pizzur og gos til sölu. Veglegir vinningar í boði!


Nik Chamberlain í viðtali við Blikahornið
Nik Chamberlain í viðtali við Blikahornið

Nik Chamberlain, þjálfari meistaraflokks kvenna, er viðmælandi Blikahornsins að þessu sinni. Eins og flestir vita tók Nik við þjálfun Blika í haust eftir að hafa náð góðum árangri með meistaraflokk kvenna hjá Þrótti undanfarin ár.


Sara framlengir við Breiðablik
Sara framlengir við Breiðablik

Sara Svanhildur Jóhannsdóttir er virkilega spennandi leikmaður sem lék sína fyrstu unglingalandsleiki núna í janúar 2024. Sara lék sinn fyrsta leik í Íslandsmóti í úrslitakeppni haustið 2023 en til þessa hefur hún verið lykilleikmaður undanfarin ár í Augnabliki.


Barbára Sól frá Selfossi í Kópavoginn
Barbára Sól frá Selfossi í Kópavoginn

Barbára Sól er 22 ára gömul, kemur frá Selfossi og er varnarmaður. Hefur spilað 92 leiki í efstu deild og 16 leiki í bikar ásamt því að spila 3 A landsleiki og 36 leiki með yngri landsliðum.


Kvennakvöld og Árgangamót 2024
Kvennakvöld og Árgangamót 2024

Takið laugardaginn 10. febrúar frá kæru Blikakonur. Um daginn frá 12:00-15:00 fer fram Árgangamót í Fífunni með glæsilegum vinningum. Þær sem ætla að mæta á Kvennakvöld fá sjálfkrafa þátttökurétt í Árgangamótinu. Kvennakvöldið fer svo fram í Smáranum um kvöldið. Glæsilegir smáréttir á borðum matreiddir af landsliðskokki og frábær skemmtiatriði. Veislustjóri Kvennakvöldsins er engin önnur en stuðboltinn Eva Ruza.


Heiða Ragney skrifar undir hjá Blikum
Heiða Ragney skrifar undir hjá Blikum

Heiða Ragney Viðarsdóttir kemur frá Akureyri og spilaði sína fyrstu leiki með Þór og síðar Þór/KA. Hún hefur spilað með Stjörnunni síðustu ár, er fædd árið 1995 og er öflugur miðjumaður og leikstjórnandi.


Ólöf Sigríður Kristinsdóttir semur við Breiðablik
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir semur við Breiðablik

Ólöf Sigríður Kristinsdóttir semur við Breiðablik út árið 2026! Hún er fædd árið 2003 og er uppalin hjá Val en hefur spilað með Þrótti síðustu ár. Ólöf á 4 A-landsleiki og skoraði 2 mörk í sínum fyrsta leik.


Karitas framlengir
Karitas framlengir

Færum ykkur fleiri frábærar fréttir á þessum föstudegi en leikmaðurinn öflugi Karitas Tómasdóttir framlengir samning sinn við Breiðablik út árið 2024.


Kristín Magdalena skrifar undir
Kristín Magdalena skrifar undir

Kristín Magdalena Barboza skrifar undir samning við Breiðablik. Þessi ungi og efnilegi leikmaður kemur frá Sindra á Höfn í Hornafirði en hún hefur verið byrjunarliðsmaður þar þrátt fyrir ungan aldur. Hún á einnig að baki landsleiki með yngri landsliðum Íslands.


Hafrún Rakel til Bröndby IF
Hafrún Rakel til Bröndby IF

Hafrún Rakel kom til Breiðabliks frá Aftureldingu fyrir tímabilið 2020 og varð strax fastamaður í Íslandsmeistaraliði Breiðabliks 2020. Hún var ein af lykilmönnum liðsins árið eftir þegar sem tryggði sér Bikarmeistaratitilinn 2021.Árið 2022 reyndist erfitt fyrir Hafrúnu. Hún verður fyrir því óláni að ristarbrotna í fyrsta leik í Bestu deildinni í leik gegn Þór/KA á Kópavogsvelli.


Edda Garðars aðstoðarþjálfari hjá mfl kvenna
Edda Garðars aðstoðarþjálfari hjá mfl kvenna

Edda Garðarsdóttir nýr aðstoðarþjálfari hjá meistaraflokki kvenna. Edda býr yfir mikilli reynslu en hún á að baki yfir 100 leiki með A landsliði Íslands, lék einnig á sínum tíma 60 leiki með Blikum og skoraði í þeim 23 mörk.


Jakobína til Blika
Jakobína til Blika

Jakobína Hjörvarsdóttir semur við Breiðablik út árið 2026. Hún er öflugur vinstri fótar miðvörður sem getur spilað líka leikið sem bakvörður.


Telma og Agla María fengu viðurkenningar frá Bestu deildinni
Telma og Agla María fengu viðurkenningar frá Bestu deildinni

Líkt og á síðasta ári veitti Besta deildin í samstarfi við Nike á Íslandi verðlaun fyrir það fótboltafólk sem skaraði framúr á nýliðnu keppnistímabili. Veitt eru verðlaun fyrir markahæsta- og stoðsendingahæsta leikmann ásamt verðlaunum fyrir Besta markmann, sá sem hefur haldið oftast hreinu. 


Nik Chamberlain verður þjálfari meistaraflokks kvenna.
Nik Chamberlain verður þjálfari meistaraflokks kvenna.

Nik Chamberlain tekur við sem þjálfari hjá meistaraflokki kvenna, samningurinn gildir út árið 2026. Nik þjálfaði áður Þrótt og hafði gert frá árinu 2016, við erum spennt fyrir komandi tímum með þessum öfluga þjálfara sem hefur sýnt á síðustu árum byggt um flottan hóp leikmanna, náð góðum árangri með sitt félag ásamt því að spila skemmtilegan fótbolta.


Meistaradeildarsætið tryggt með sanngjörnum sigri á Valskonum
Meistaradeildarsætið tryggt með sanngjörnum sigri á Valskonum

Blikakonur stigu varla feilspor allan leikinn Telma með á nótunum ef þess þurfti. Það fór svo að Blikarnir unnu 0-1 með þessu draumamarki Katrínar. Sanngjarn sigur og Meistaradeildarsætið tryggt. Til hamingju Blikar!!


Öruggur sigur á FH í baráttunni um Evrópusæti
Öruggur sigur á FH í baráttunni um Evrópusæti

Í dag fór fram síðasti heimaleikur kvennaliðs Breiðabliks þegar FH mætti á svæðið. FH sem hefur komið hvað mest á óvart í sumar og því mátti eiga von á spennandi og skemmtilegum leik. Fyrri leikir liðanna hefur verið hörkuskemmtun, Blikarnir unnu heimaleikinn 3-2 en útileikurinn fór 1-1.


Langþráður sigur á Kópavogsvelli í baráttuleik um 2. sætið
Langþráður sigur á Kópavogsvelli í baráttuleik um 2. sætið

Breiðablik tók á móti Stjörnunni á Kópavogsvelli í dag og ljóst að hörkuleikur væri framundan. Fyrir leikinn var Stjarnan í öðru sæti Bestu deildarinnar með 35 stig og Breiðablik í því þriðja með 34 stig.


Taylor Ziemer seld til FC Twente
Taylor Ziemer seld til FC Twente

Taylor Marie Ziemer hefur skrifað undir samning við FC Twente til ársins 2025. Hún hefur verið í okkar herbúðum síðan 2021, spilaði alls 82 mótsleiki fyrir Breiðablik og skoraði 18 mörk.


Bergþóra Sól skrifar undir hjá Örebro
Bergþóra Sól skrifar undir hjá Örebro

Bergþóra Sól Ásmundsdóttir hefur skrifað undir tveggja og hálfs árs samnin samning við KIF Örebro í Svíþjóð. Hún er fædd 2003 og leikur sem miðjumaður. Begga Sól er uppalin Bliki og hefur spilað 73 mótsleiki með Breiðabliki frá fyrsta leik árið 2018 – það aðeins 15 ára gömul.


Gunnleifur og Kjartan nýir í þjálfarateymið!
Gunnleifur og Kjartan nýir í þjálfarateymið!

Gunnleifur Gunnleifsson og Kjartan Stefánsson koma nýir inn í þjálfarateymið hjá meistaraflokki kvenna hjá Breiðabliki og munu stýra liðinu út leiktíðina ásamt Ólafi Péturssyni og Önu Cate sem fyrir voru í teyminu.


Fréttatilkynning frá knattspyrnudeild Breiðabliks
Fréttatilkynning frá knattspyrnudeild Breiðabliks

Knattspyrnudeild Breiðabliks og Ásmundur Arnarsson, hafa náð samkomulagi um að hann láti af störfum sem þjálfari meistaraflokks kvenna. Árangur liðsins að undanförnu hefur verið undir væntingum og því hafa aðilar komist að þeirri niðurstöðu að breytinga sé þörf.


Of mikil brekka í Laugardalnum
Of mikil brekka í Laugardalnum

Stórleikur var í Laugardalnum í blíðunni í dag þar sem Breiðablik mætti Þrótti Reykjavík sem sitja í 4. sæti deildarinnar. Síðasti leikur liðanna endaði 2-2 og því ljóst að hörkuleikur væri framundan.


Jafntefli niðurstaðan í bragðdaufum leik
Jafntefli niðurstaðan í bragðdaufum leik

Blika konur sóttu án afláts en þetta var svokallað stöngin út leikur og jafntefli því niðurstan. Blikakonur þurfa að ná fókus og hætta að láta vonbrigði ná tökum á sér.


Sjaldan er ein báran stök
Sjaldan er ein báran stök

Fyrri hálfleikurinn var erfiður og óöryggi yfir liðinu, sem líklega er skiljanlegt.  Varnarleikurinn hélt samt ágætlega lengst af og leikmenn voru að leggja sig fram, en takturinn í liðinu var samt hægur og illa gekk að komast upp völlinn og í álitlegar stöður og andstæðingurinn fékk of mikið rými til að athafna sig.


Valgerður til Blika á láni frá FH
Valgerður til Blika á láni frá FH

Valgerður Ósk Valsdóttur, einn besti leikmaður FH í Bestu deildinni í sumar, hefur söðlað um og spilar í grænu Breiðablikstreyjunni út keppnistímabilið 2023. Hún þreytti frumraun sína í Breiðablikstreyjunni á Laugardalsvelli í gær.


Sá fjórtándi lætur bíða eftir sér
Sá fjórtándi lætur bíða eftir sér

Þá var slegið áhorfendamet þar sem 2.531 áhorfendur voru á Laugardalsvelli og hafa aldrei verið fleiri í bikarúrslitum í kvennaflokki. Stuðningur áhorfenda beggja liða var frábær, umgjörðin hjá báðum liðum sömuleiðis og þá er sögulegt að lið utan efstu deildar hampar titlinum.


Leikur tveggja hálfleika!
Leikur tveggja hálfleika!

Það eru augljós sannindi að fótbolti er leikur tveggja hálfleika, en stundum á það meira við en venjulega og þannig var það í dag þegar Blikastúlkur tóku á móti norðanstúlkum í Þór/KA. 


Halla Margrét til Blika
Halla Margrét til Blika

Halla er markvörður og kemur til okkar frá Aftureldingu. Hún hefur áður varið mark Breiðabliks. Halla á að baki 8 mótsleiki með Blikaliðinu á árinu 2014.


Sterk og sannfærandi frammistaða gegn Selfyssingum
Sterk og sannfærandi frammistaða gegn Selfyssingum

Heilt yfir virkilega sterk og sannfærandi frammistaða hjá Blikaliðinu þótt færanýtingin hefði vissulega mátt vera betri. En vissulega ekki hægt að kvarta yfir 4-0 sigri á liði sem Blikum hefur á stundum reynst erfitt að brjóta niður enda gott og vel þjálfað lið. Stutt í næsta leik, Þór/KA kemur í heimsókn á mánudaginn næstkomand.


Hafrún Rakel framlengir hjá Blikum
Hafrún Rakel framlengir hjá Blikum

Við færum ykkar fleiri góðar fréttir úr Smáranum á þessum sólríka mánudegi. Hafrún Rakel hefur skrifað undir samning við Knattspyrnudeild Breiðabliks út árið 2025! 


Sólveig komin heim
Sólveig komin heim

Þær fréttir voru að berast að knattspyrnudeild Breiðabliks og Sólveig Larsen hafi skrifað undir samning sem gildir út árið 2024. Þetta eru mikil gleðitíðindi fyrir okkur og það er tilhlökkunarefni að sjá Sólveigu aftur í grænu Breiðablikstreyjunni. 


Svekkjani jafntefli í Krikanum
Svekkjani jafntefli í Krikanum

Loksins hefst Besta deildin aftur eftir landsleikjahlé. Fyrir hlé voru Blikastelpurnar í mjög góðum takti, komnar á toppinn og voru í feiknaformi. Það var því forvitnilegt að sjá hvernig okkar stelpur myndu tækla spútnik lið FH á útivelli í dag, sem fyrir þessa umferð er í 4. sæti.


Linli skrifar undir hjá Blikum
Linli skrifar undir hjá Blikum

Linli skrifar undir til ársins 2024. Bjóðum hana hjartanlega velkomna í Kópavoginn.


Góður heimasigur í góða veðrinu á Kópavogsvelli
Góður heimasigur í góða veðrinu á Kópavogsvelli

Blikastúlkur tóku á móti Keflavík á Kópavogsvelli í gær á sólríkum laugardegi. Allt til fyrirmyndar á Kópavogsvelli í sólinni.


Golfmót Breiðabliks 2023 - UPPSELT
Golfmót Breiðabliks 2023 - UPPSELT

18. Breiðablik Open golfmót knattspyrnudeildar Breiðabliks verður haldið föstudaginn 18. ágúst n.k. og hefst kl.13:00. Mótið fer að venju fram á golfvellinum að Efra Seli við Flúðir og má reikna með að uppselt verði í mótið eins og undanfarin ár.


Þægilegur heimasigur
Þægilegur heimasigur

Blikastúlkur tóku á móti Tindastól í gær á Kópavogsvelli. Fyrir leikinn voru Blikar á toppnum og þær ætluðu greinilega ekki að láta það af hendi og komu mjög ákveðnar til leiks og byrjuðu af krafti.


Blikakonur í Bikarúrslit!
Blikakonur í Bikarúrslit!

Breiðablik mætti í heimsókn til Störnukvennan á þessum blauta sumardegi, fyrsta dag júlímánaðar.  Undanúrslitaleikur Mjólkurbikarsins og bæði lið ætluðu sér heldur betur sigur úr þessum leik. Sólin lét sjá sig á sömu mínútu og leikurinn hófst. Félögin tóku sig saman og buðu gestum beggja liða frítt á leikinn og var ágætis mæting og þá sérstaklega hjá okkar fólki.


Seiglusigur á Valskonum
Seiglusigur á Valskonum

Í kvöld var sannkallaður stórleikur, Breiðablik tók á móti toppliði deildarinnar Val. Liðin sem verma fyrsta og annað sætið. Mjög mikilvægur leikur fyrir okkar konur til missa Valskonur ekki of langt á undan sér. Með sigri tylla þær sér á toppinn með betri markatölu en Valur.


Jafntefli niðurstaðan á móti Þrótti
Jafntefli niðurstaðan á móti Þrótti

Í kvöld áttust við Breiðablik og Þróttur, liðin í öðru og þriðja sæti deildarinnar þegar átta umferðir eru búnar.  Þróttarar eiga harma að hefna eftir útreiðina í bikarnum. Dúndurgott veður og öll aðstaða til knattspyrnuiðkunnar hreint frábærar.


Stór hindrun úr veginum með bikarþrennu í Laugardal
Stór hindrun úr veginum með bikarþrennu í Laugardal

Aðstæður voru eins og best verður kosið í Laugardalnum í kvöld og hvers vegna ekki að bjóða áhorfendum strax til veislu? Eftir aðeins sex mínútna leik kom Agla María Blikum yfir og það með engu smá marki.


Góður sigur á erfiðum útivelli
Góður sigur á erfiðum útivelli

Blikar léku á móti vindi í fyrri hálfleik og það var ljóst að ÍBV ætlaði að nýta vindinn og láta vaða á markið.  Það gekk þó erfiðlega fyrir þær að finna rammann hjá Blikum.  Á 15.mín áttu Blikar skyndisókn þar sem Andrea átti sendingu inn fyrir vörnina hjá ÍBV og beint fyrir Birtu sem keyrði á vörnina, sneri á tvo varnarmenn og þrumaði honum í markið. 


Hörku jafntefli í nágrannaslag!
Hörku jafntefli í nágrannaslag!

Mikil stemning var fyrir leik og áhorfendur voru byrjaðir að streyma á völlinn klukkutíma áður en flautað var til leiks. Grillaðar pylsur voru í boði fyrir alla sem mættu í einhverju grænu og óhætt að segja að það hafi verið nóg að gera á grillinu.


Þægilegur sigur á glæsilegum grasvelli á Selfossi
Þægilegur sigur á glæsilegum grasvelli á Selfossi

Blikakonur voru mættar í kvöld á Selfoss til að spila við heimakonur. Leikið var á Jáverksvellinum sem virðist vera eini grasvöllur landsins sem hefur komið vel undan vetri. Breiðablik gerði 7 breytingar á liði sínu frá bikarleiknum við Fram sem fram fór um helgina.


Blikar buðu til markaveislu í sólríkum bikarslag
Blikar buðu til markaveislu í sólríkum bikarslag

Breiðablik verður í pottinum þegar dregið verður í 8-liða úrslit Mjólkurbikars kvenna eftir 7-0 sigur á Lengjudeildarliði Fram á Kópavogsvelli í dag. Eftir vætutíð síðustu daga lék sólin við leikmenn og áhorfendur, sem sannarlega var bónus ofan á öruggan sigur. Ásmundur þjálfari gerði átta breytingar frá síðasta deildarleik.


Seiglusigur á móti FH
Seiglusigur á móti FH

Í kvöld fengu Breiðablikskonur FH inga í heimsókn. Fyrir leikinn var Breiðablik í sjötta sæti með 6 stig og með sigri koma sér í efri hlutann eftir slæmt tap í síðustu umferð. FH var í 9. sæti með 4 stig.


Skyggnst undir yfirborðið
Skyggnst undir yfirborðið

Hvenær ertu á heimavelli og hvenær úti? Hvenær ertu á nýjum heimavelli og hvenær á þeim gamla? Þessar hyldjúpu (en um leið yfirborðskenndu) spurningar sóttu að mér ekki bara eftir sigurinn í níu-marka-heima-leiknum á móti Fram uppi í Árbæ heldur líka ...


Súrt tap fyrir Þór/KA í Boganum
Súrt tap fyrir Þór/KA í Boganum

Blikastelpur náðu sér einhvernvegin ekki nógu vel á strik í leiknum og nýttu færin sín frekar illa. Það er þó nóg eftir af mótinu og ljóst að baráttan verður hörð í deildinni í sumar. Næsti leikur er heimaleikur á Kópavogsvelli gegn FH þriðjudaginn 23. maí kl. 19:15! 


Risasigur í spjaldaleik í Keflavík
Risasigur í spjaldaleik í Keflavík

Blikastelpur byrjuðu leikinn heldur betur af krafti og tók það Andreu Rut ekki nema 47 sekúndur að skora fyrsta markið eftir hraða sókn. Keflvíkingar létu ekki deigann síga og áttu nokkur góð færi fyrstu mínúturnar.


Árskort 2023
Árskort 2023

Tryggðu þér þitt sæti á fjölmennasta heimavelli landsins. Fyrsti heimaleikur mfl karla er mánudaginn 10. apríl á móti HK. Fyrsti heimaleikur mfl kvenna er 23. maí. Þú velur um: Árskort ungir 16-26.ára. Árskort. Stuðningsbliki. Afreksbliki.


Naumt tap gegn Val í fyrsta leik
Naumt tap gegn Val í fyrsta leik

Bæði Breiðablik og Val er spáð í efstu sætin í Bestu deildinni í sumar og því var sannarlega von á hörkuleik. Bæði lið hafa verið og eru með leikmenn í meiðslum en það kemur alltaf maður í manns stað og liðin stilltu upp öflugum byrjunarliðum.


Bakhjarlarnir okkar!
Bakhjarlarnir okkar!

Undanfarna mánuði hefur félagið endurnýjað nokkra samninga og bætt einum nýjum við í hópinn. Við stuðningmenn fögnum því að sjálfsögðu að þessi fyrirtæki sýni félaginu okkar þennan stuðning ár eftir ár. Vel á annan tug fyrirtækja fyllir hóp bakhjarla knattspyrnudeildar Breiðabliks.


SÍMAMÓTIÐ 2023 VERÐUR HALDIÐ DAGANA 13. – 16. JÚLÍ 2023
SÍMAMÓTIÐ 2023 VERÐUR HALDIÐ DAGANA 13. – 16. JÚLÍ 2023

Símamótið var fyrst haldið 1985 og verður þetta því 39. mótið í röðinni. Mótið er fyrir 5., 6. og 7. flokk kvenna og í fyrsta skipti 2021 var Litla Símamótið haldið fyrir 8.flokk.


Írena Héðinsdóttir framlengir
Írena Héðinsdóttir framlengir

Hin unga og efnilega Írena Héðinsdóttir Gonzalez hefur gert nýjan samning við knattspyrnudeild Breiðabliks til ársloka 2025! Írena er miðjumaður, fædd árið 2004 og hefur alla tíð leikið fótbolta í Breiðabliki.


Taylor Marie framlengir
Taylor Marie framlengir

Miðjumaðurinn Taylor Marie Ziemer hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild Breiðabliks út komandi tímabil og verður því áfram í grænu treyjunni í sumar.


Fjölmennasta kvennakvöld Breiðabliks frá upphafi
Fjölmennasta kvennakvöld Breiðabliks frá upphafi

Um helgina fór fram gríðarlega vel heppnað árgangamót og Kvennakvöld. Met þátttaka var og frábær stemmning. Sigurvegarar árgangamótsins voru 1988 árgangurinn sem sigraði 1999 árganginn í æsispennandi úrslitaleik.


Kvennakvöld Breiðabliks 18. febrúar
Kvennakvöld Breiðabliks 18. febrúar

Takið laugardaginn 18 febrúar frá kæru Blikakonur. Um daginn frá 14:00-16:00 fer fram Árgangamót í Fífunni með glæsilegum vinningum.


Telma Ívars gerir samning út árið 2025
Telma Ívars gerir samning út árið 2025

Færum ykkur þær gleðifréttir að Telma Ívars hefur skrifað undir framlengingu á samningi. Telma var valin í A landslið Íslands í fyrsta skipti í mars 2021 og hefur hún spilað einn A landslið leik fyrir Íslands hönd.


Kristjana til ÍBV!
Kristjana til ÍBV!

Knattspyrnukonan unga og efnilega Kristjana Kristjánsdóttir Sigurz hefur ákveðið að leika aftur með ÍBV í Bestu deild kvenna.


Heiðdís Lillýardóttir til Basel!
Heiðdís Lillýardóttir til Basel!

Breiðabliks og FC Basel 1893 hafa komist að samkomulagi um að varnarmaðurinn Heiðdís Lillýardóttir leiki með félaginu á komandi tímabili.


Erum við að leita að þér?
Erum við að leita að þér?

Knattspyrnudeild Breiðabliks leitar nú að öflugum einstaklingi til að verða deildarstjóri afrekssviðs deildarinnar. Hér áður fyrr hét starfið framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar en með auknum umsvifum þá er komin meiri sérhæfing í félagið okkar.


Áslaug Munda semur til 2025
Áslaug Munda semur til 2025

Góðar fréttir á mánudegi, Áslaug Munda hefur framlengt samning sinn við Breiðablik. Hún á 112 leiki fyrir Breiðablik og hefur skorað í þeim 21 mark.Áslaug Munda var í landsliðshóp Íslands sem tók þátt á EM sumarið 2022 og hefur spilað 11 landsleiki fyrir Íslands hönd. 


Karitas framlengir út árið 2023
Karitas framlengir út árið 2023

Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að Karitas Tómasdóttir hefur skrifað undir framlengingu á samningi.


Ungar skrifa undir hjá Blikum
Ungar skrifa undir hjá Blikum

Undanfarnar vikur hefur knattspyrnudeildin verið að kynna samninga undirskriftir við þessar ungu og efnilegu framtíðarleikmenn meistaraflokks kvenna.


Fjör í Fífunni á Gamlársdag
Fjör í Fífunni á Gamlársdag

Það var mikið fjör í Fífunni á Gamlársdag þegar rúmlega sextíu knattspyrnumenn og konur spreyttu sig í þessari skemmtilegustu íþrótt í heimi.


Áramótakveðja 2022
Áramótakveðja 2022

Blikar.is/kvk sendir öllum Blikum og öðrum landsmönnum nær og fjær bestu óskir um farsæld og gleði á nýju ári!


Jólakveðja 2022
Jólakveðja 2022

STUÐNINGSMANNAVEFURINN BLIKAR.IS/KVK ÓSKAR ÖLLUM BLIKUM NÆR OG FJÆR GLEÐILEGRAR JÓLAHÁTÍÐAR


Breiðablik semur við Sunnu Kristínu
Breiðablik semur við Sunnu Kristínu

Sunna Kristín Gísladóttir undirritaði á dögunum sinn fyrsta samning við Breiðablik


Mikaela Nótt í Breiðablik
Mikaela Nótt í Breiðablik

Mikaela Nótt Pétursdóttir hefur skrifað undir samning við Knattspyrnudeild Breiðabliks. Mikaela Nótt kemur frá Haukum en hún var á láni hjá Val síðastliðið sumar. Mikaela er 18 ára gömul og er fjölhæfur varnarmaður


Hildur Þóra skrifar undir nýjan samning
Hildur Þóra skrifar undir nýjan samning

Varnarmaðurinn öflugi Hildur Þóra Hákonardóttir hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild Breiðabliks sem gildir út keppnistímabilið 2024


Andrea Rut Bjarnadóttir gengur til liðs við Breiðablik
Andrea Rut Bjarnadóttir gengur til liðs við Breiðablik

Andrea Rut hefur skrifað undir þriggja ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks. Andrea er sóknarsinnaður leikmaður sem getur bæði leikið á miðju sem og á kanti.


Ana Victoria Cate ráðin styrktarþjálfari meistaraflokks kvenna
Ana Victoria Cate ráðin styrktarþjálfari meistaraflokks kvenna

Ana Victoria Cate hefur verið ráðinn styrktarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Breiðablik. Ana er íþróttafræðingur að mennt auk þess sem hún er með einkaþjálfararéttindi og hefur menntað sig töluvert á sviði styrktarþjálfunar.


Katrín Ásbjörnsdóttir gengur til liðs við Breiðablik
Katrín Ásbjörnsdóttir gengur til liðs við Breiðablik

Breiðablik og Stjarnan hafa gert með sér samkomulagi þess efnis að sóknarmaðurinn ölfugi Katrín Ásbjörnsdóttir gangi til liðs við Breiðablik. Í kjölfarið hefur Katrín skrifað undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks.


Nathasha til Brann
Nathasha til Brann

Breiðablik hefur samþykkt tilboð frá Brann í Natöshu Anasi og hefur hún náð samkomulagi við norsku meistarana. Hún mun fomlega ganga til liðs við Brann þann 1.janúar nk.


Ásta Eir framlengir til 2024
Ásta Eir framlengir til 2024

Ásta Eir lék sinni fyrsta meistaraflokksleik fyrir Breiðablik árið 2009, þá 16 ára gömul. Síðan þá hefur hún leikið 226 keppnisleiki og skorað í þeim 12 mörk. Ásta Eir er þrefaldur Íslandsmeistari með Breiðabliki auk þess að verða bikarmeistari í þrígang.


Stoltur af 50 ára samfelldri sögu
Stoltur af 50 ára samfelldri sögu

Þetta finnst mér nauðsynlegur inngangur að umfjöllun um kvennalið Breiðabliks sumarið 2022. Auðvitað er það nýtt fyrir okkur stuðningsfólkinu að ná ekki tilsettum árangri og það eru vonbrigði. Það eru vonbrigði að tapa bikarúrslitaleik og það eru vonbrigði að lenda í þriðja sætinu, utan Evrópukeppni.


Knattspyrna kvenna í 50 ár
Knattspyrna kvenna í 50 ár

Á þessum degi fyrir 50 árum, 26.ágúst 1972 kl.14:00, hófst Íslandsmót í knattspyrnu kvenna með leik Breiðabliks og Fram á Valargerðisvelli í Kópavogi. Með þessum leik hófst, hjá Breiðabliki, mikið vaxtarskeið í knattspyrnu kvenna í Kópavoginum - vöggu kvennaknattspyrnunnar á Íslandi segja margir. 


Birta skrifar undir nýjan samning við Breiðablik
Birta skrifar undir nýjan samning við Breiðablik

Birta Georgsdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við Breiðablik og er nú samningsbundin út tímabilið 2024. Það eru gleðitíðindi að Birta hafi skrifað undir nýjan samning við Breiðablik og við hlökkum til að fylgjast með henni dafna enn frekar í Kópavoginum.


Miklir yfirburðir
Miklir yfirburðir

Þolinmæði er líka dyggð, rétt eins og kappsemi og metnaður og undir blálok uppbótartíma fyrri hálfleiksins bar hún ávöxt. Birta kom sér þá enn einu sinni upp að endamörkunum og í stað þess að renna boltanum út, eins og flestar bjuggust við, renndi hún honum nánast meðfram marklínunni, beint í fæturna á Clöru sem tók þá hlaupalínuna að markinu og smellti honum í netið. 1-0 og flautað til hálfleiks um leið og Keflavíkurkonur tóku miðjuna.


Boltinn í Bestu deild kvenna rúllar á ný
Boltinn í Bestu deild kvenna rúllar á ný

Besta deild kvenna hefst aftur fimmtudaginn 28. júlí eftir rúmlega fimm vikna frí vegna þátttöku íslenska kvennalandsliðsins í úrslitakeppni EM 2021. 11. umferð hefst með tveimur leikjum og í öðrum þeirra mæta okkar stelpur KR. Fyrri leikurinn á KR vellinum endaði 0-4 fyrir okkur en síðan þá hefur KR bætt sig mikið og búast má við hörkuleik.


Nichole Persson semur við Breiðablik
Nichole Persson semur við Breiðablik

Sænski markvörðuinn Nichole Persson hefur skrifað undir samning við Breiðablik út keppnistímabilið.Nichole er 26 ára gömul og kemur frá sænska úrvalsdeildarfélaginu Piteå IF þar sem hún lék 14 deildarleiki í fyrra. Þar á undan lék hún með Djurgården IF og Brommapojkarna í Svíþjóð.


Agla María heim til Breiðabliks
Agla María heim til Breiðabliks

Breiðablik og sænska félagið BK Häcken hafa komist að samkomulagi um að Agla María Albertsdóttir komi á láni til Blika fram að áramótum. Sænska félagið keypti Öglu Maríu í vetur og hefur hún komið við sögu í átta leikjum í sænsku úrvalsdeildinni það sem af er tímabil, en áður hafði hún skorað 97 mörk í 126 leikjum með Breiðabliki.


„Hvað erum við að kenna þeim?“
„Hvað erum við að kenna þeim?“

Undanfari Símamótsins var Gull & Silfur mótið en þessi mót hafa verið haldin óslitið frá árinu 1985 hér í Kópavogi og er núna stærsta knattspyrnumótið sem haldið er á Íslandi. Segja má að hér hafi allar íslenskar knattspyrnustúlkur stigið sín fyrstu skref í keppni hérlendis.


Hildur Antons seld til Hollands
Hildur Antons seld til Hollands

Hildur Antonsdóttir spilaði á laugardag sinn síðasta leik fyrir Breiðablik í bili þegar liðið vann Þór/KA, en hollenska félagið Fortuna Sittard hefur komist að samkomulagi við Breiðablik um að fá Hildi til liðs við sig. Hildur er 26 ára gömul og hefur spilað með Blikum síðastliðin sex ár.


Hrafnhildur Ása semur við Breiðablik
Hrafnhildur Ása semur við Breiðablik

Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur samið við Hrafnhildi Ásu Halldórsdóttur! Hrafnhildur er fjölhæfur miðjumaður fædd árið 2006. Hún er leikin með gott auga fyrir spili, pressar vel og leggur sig alltaf 100% fram.


Stórgóður sigur á Selfyssingum
Stórgóður sigur á Selfyssingum

Það var dauðafæri fyrir Breiðablikskonur nú í kvöld að sanna úr hverju þær væru gerðar og sýna hvort þær ætluðu að vera á heimaslóðum í efstu sætum Bestu deildarinnar eða vera á úti á einhverjum öðrum túnum þetta sumarið. Gestkomandi í blíðviðrið í Smáranum voru Selfossstúlkur.


Sólskinsdagur á Austurlandi
Sólskinsdagur á Austurlandi

Mjólkurbikarinn er skemmtilegur með þeim mótherjum og ferðalögum sem keppnin býður upp á. Í 16 liða úrslitum dróst Breiðablik á móti sameinuðu liði á Austurlandi sem keppir undir því þjála nafni Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir. FHL (sem er skammstöfunin sem þau nota) kom fyrr upp úr pottinum og fékk því heimaleik.


Súrt tap
Súrt tap

Við höfum átt svolítið erfitt með það í vor, kannski vegna mikilla breytinga á liðinu, að finna góðan takt. Eftir markið fór hann hinsvegar alveg og með því að Eyjakonum hafði hlaupið kapp í kinn og þær héldu áfram skipulagi, varð leikurinn afar erfiður.


Ungar skrifa undir hjá Breiðabliki
Ungar skrifa undir hjá Breiðabliki

Undanfarnar vikur hefur knattspyrnudeildin verið að kynna samninga undirskriftir við þessar ungu og efnilegu framtíðarleikmenn meistaraflokks kvenna.


Tímamót og endurkomur á fallegu vorkvöldi
Tímamót og endurkomur á fallegu vorkvöldi

Stórsigur í sól og blíðu á fallegu vorkvöldi í Vesturbænum. Það var aldrei spurning hvoru megin sigurinn myndi lenda og 4-0 sigur Blika í 4. umferð Bestu-deildarinnar gegn KR var síst of stór.


Alexandra Jóhannsdóttir til Breiðabliks á láni
Alexandra Jóhannsdóttir til Breiðabliks á láni

Alexandra Jóhannsdóttir er komin heim til Breiðabliks á láni frá Eintracht Frankfurt út júní mánuð. Hún mun spila með Blikum fram að Evrópumótinu í sumar en þar verður hún í eldlínunni með íslenska landsliðinu. Eftir Evrópumótið heldur hún svo aftur til Frankfurt.


Markvörðurinn Aníta Dögg til Breiðabliks
Markvörðurinn Aníta Dögg til Breiðabliks

Markvörðurinn knái Aníta Dögg Guðmundsdóttir er gengin til liðs við Breiðablik og hefur skrifað undir samning út keppnistímabilið. Aníta Dögg verður 22 ára á árinu og lék með Víkingi Reykjavík á síðastliðnu keppnistímabili.


Gott veganesti, frábær mörk og jákvæður hausverkur
Gott veganesti, frábær mörk og jákvæður hausverkur

Það var sannarlega tilefni til þess að gleðjast eftir 3-0 sigur Blika á Stjörnunni í þriðju umferð Bestu-deildarinnar í gærkvöld. Ekki aðeins var frammistaðan mjög góð og sigurinn öruggur, heldur voru margir jákvæðir punktar til þess að taka með í næstu leiki. Meira af því hér síðar.


Sárt var það suður með sjó
Sárt var það suður með sjó

Grátlegt var það, svo vægt sé til orða tekið. Eins og í fyrra virðist duglegt Keflavíkurlið ætla að reynast erfitt viðureignar, en það var hreint með ólíkindum að fylgjast með 1-0 tapi suður með sjó. Karitas kom inn í liðið vegna meiðsla Hafrúnar en annars var það óbreytt frá síðasta leik.


Hildur Lilja skrifar undir nýjan þriggja ára samning
Hildur Lilja skrifar undir nýjan þriggja ára samning

Hildur Lilja Ágústsdóttir hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks. Á sama tíma skrifaði hún undir lánssamning við KR þar sem hún mun spila í Bestu deildinni í sumar. Hildur Lilja verður 19 ára gömul á árinu og hefur leikið þrjá mótsleiki fyrir meistsaraflokk Breiðabliks.


Öruggur fyrsti sigur og Blikahjartað slær
Öruggur fyrsti sigur og Blikahjartað slær

Það er alltaf sérstök tilfinning að horfa á liðið sitt ganga út á völlinn í fyrsta deildarleik á nýju tímabili. Markmiðin lögð upp, og komin tími til að sýna sig. Það var ekki síður áhrifamikið að sjá Önnu Petryk í hennar fyrsta leik, gangandi inn á völlinn með þjóðfánann sinn úkraínska vafinn um sig.


Besta deildin 2022: Breiðablik – Þór/KA
Besta deildin 2022: Breiðablik – Þór/KA

Innbyrðisleikir Breiðabliks og Þórs/KA á þessari öld (frá og með árinu 2000) eru 34. Blikar hafa sigrað 18 sinnum, Þór/KA 11 sinnum og 5 sinnum hafa liðin skilið jöfn, síðast á SaltPay vellinum 28. Júlí í fyrra


Elín Helena hefur skrifð undir nýjan þriggja ára samning
Elín Helena hefur skrifð undir nýjan þriggja ára samning

Elín Helena Karlsdóttir hefur skrifð undir nýjan þriggja ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks. Á sama tíma skrifaði hún undir lánssamning við Keflavík þar sem hún mun spila í Bestu deildinni í sumar líkt og hún gerði í fyrra.


Bergþóra Sól skrifar undir nýjan þriggja ára samning
Bergþóra Sól skrifar undir nýjan þriggja ára samning

Bergþóra Sól Ásmundsdóttir skrifar undir nýjan þriggja ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks. Bergþóra Sól sem er 19 ára gömul hefur leikið 34 keppnisleiki fyrir meistaraflokk Breiðabliks og skorað í þeim 2 mörk.


Baráttusumar framundan
Baráttusumar framundan

Það var enginn þykjustuleikur í gangi með pressu okkar kvenna í byrjun leiks. Það liðu fjölmargar mínútur áður en þær rauðklæddu að tengja saman nokkrar sendingar og framan af leiknum sköpuðust fínar stöður eftir flottar sendingar, aðallega upp kantana, hvort sem boltinn vannst á miðjunni eða spilað var frá öftustu konum.


Melina Ayres til Breiðabliks
Melina Ayres til Breiðabliks

Ástralski framherjinn Melina Ayres er kominn til Breiðabliks á láni frá Melbourne Victory út keppnistímabilið.Ayres er 22 ára og hefur verið lykilmaður hjá Melborune Victory undanfarin ár í áströlsku atvinnumannadeildinni en þær urðu ástralskir meistarar annað árið í röð á dögunum


Vigdís Lilja skrifar undir nýjan samning
Vigdís Lilja skrifar undir nýjan samning

Vigdís Lilja var kölluð til baka í meistaraflokk Breiðabliks seinni hluta tímabilsins 2021. Hún lék 4 leiki í deild og bikar með Breiðablik og skoraði eitt mark. Auk þess tók hún þátt í 6 leikjum Breiðabliks í meistaradeild Evrópu og var í byrjunarliðinu þegar Breiðablik mætti PSG í París í lokaleik síðasta keppnistímabils.


Anna Petryk frá Kharkiv til Breiðabliks
Anna Petryk frá Kharkiv til Breiðabliks

Anna Petryk, landsliðskona frá Úkraínu, er gengin til liðs við Breiðablik. Petryk kemur frá úkraínsku meisturunum Zhytlobud-1 Kharkiv, sem Breiðablik mætti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í haust. Eins og allir vita þá er daglegt líf í Úkraínu fjarri því sem það var vegna innrásar Rússa, og fótboltinn er þar engin undantekning


GÓÐUR SIGUR Á FRÍSKUM SELFYSSINGUM
GÓÐUR SIGUR Á FRÍSKUM SELFYSSINGUM

Blikakonur léku þriðja leik sinn í Lengjubikarnum við Selfoss á Kópavogsvelli í roki og rigningu  á laugardaginn síðasta sem mögulega hafði töluverð áhrif á leikinn. Leiknum lauk með sigri okkar kvenna 2-0.


Blikakonur með neyðarsöfnun fyrir konur og stúlkur í Úkraínu
Blikakonur með neyðarsöfnun fyrir konur og stúlkur í Úkraínu

Breiðablik fordæmir stríð og árásir á saklausa borgara og tekur höndum saman með UN women á Íslandi til að styrkja Úkraínskar konur og stúlkur um leið og leikmenn Breiðabliks senda kveðjur til Kharkiv og Úkraínu með von um frið.


SIGUR HJÁ BLIKUM Í MIÐGARÐI
SIGUR HJÁ BLIKUM Í MIÐGARÐI

Blikastelpur léku annan leik sinn í Lengjubikarnum í Miðgarði, hinu spánnýja knatthúsi Garðbæinga, við heimkonur í Stjörnunni. Leiknum lauk með sigri okkar kvenna 2-3.


Sólrún Ósk semur við Breiðablik
Sólrún Ósk semur við Breiðablik

Sólrún Ósk Helgadóttir hefur samið við Knattspyrnudeild Breiðabliks! Sólrún Ósk er öflugur markmaður, hávaxin og sterk. Hún er góð í návígjum og stýrir vörninni fyrir framan sig vel.


Einar Sumarliðason - Kveðja frá Breiðabliki
Einar Sumarliðason - Kveðja frá Breiðabliki

Í dag kveður Ungmennafélagið Breiðablik góðan félaga, Einar Ragnar Sumarliðason, sem lést langt fyrir aldur fram þann 13.febrúar s.l. Leiðir Einars og Breiðabliks hafa legið saman í hartnær 40.


Helena Ósk til Breiðabliks
Helena Ósk til Breiðabliks

Helena Ósk Hálfdánardóttir er gengin í raðir Breiðabliks og hefur skrifað undir tveggja ára samning í Kópavoginum.Helena er 21 árs gömul og er uppalin hjá FH en lék með Fylki í Pepsi Max deildinni síðastliðið sumar.


Ingunn Þóra semur við Knattspyrnudeild Breiðabliks!
Ingunn Þóra semur við Knattspyrnudeild Breiðabliks!

Ingunn Þóra Kristjánsdóttir Sigurz hefur samið við Knattspyrnudeild Breiðabliks.


Taylor og Zandy spila áfram með Breiðabliki
Taylor og Zandy spila áfram með Breiðabliki

Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur samið á ný við þær Taylor Ziemer og Zandy Soree og taka þær slaginn áfram með bikarmeisturunum á komandi leiktíð.


Selma Sól til Noregs
Selma Sól til Noregs

Breiðablik hefur samþykkt tilboð frá Rosenborg í Selmu Sól Magnúsdóttir og hefur hún náð samkomulagi um tveggja ára samning við norska liðið. Selma Sól er 23 ára gömul, Bliki í húð og hár og spilaði sinn fyrsta leik með liðinu í efstu deild árið 2013.


Kristín Dís til Danmerkur
Kristín Dís til Danmerkur

Breiðablik hefur samþykkt tilboð frá Brøndby í Kristínu Dís Árnadóttur og hefur hún náð samkomulagi við danska félagið. Kristín Dís er Bliki í húð og hár. Hún byrjaði feril sinn í meistaraflokki með Augnabliki og spilaði svo sína fyrstu leiki með Breiðabliki fyrir fimm árum, þá 16 ára gömul. Leikirnir með Blikum eru síðan orðnir fleiri en 150 talsins.


Agla María til Svíþjóðar
Agla María til Svíþjóðar

Breiðablik hefur samþykkt tilboð silfurliðs sænsku úrvalsdeildarinnar BK Häcken í Öglu Maríu Albertsdóttur og hefur hún náð samkomulagi við félagið. Yfirgefur hún Kópavoginn eftir afar glæsilegan feril. Agla María sem ung hóf að æfa með meistaraflokki Breiðabliks hefur verið í burðarhlutverki og unnið allt sem hægt er að vinna.


Heiðdís lánuð til Portúgal
Heiðdís lánuð til Portúgal

Heiðdís Lillýardóttir hefur verið lánuð til portúgalska meistaraliðsins Benfica. Samningurinn gildir fram í apríl. Að því loknu munu félögin ræða saman um framhaldið. Heiðdís er 25 ára gömul og hefur spilað með Breiðabliki frá árinu 2017 þar sem hún hefur spilað stórt hlutverk í vörn liðsins.


Heiðdís til Benfica
Heiðdís til Benfica

Varnarmaðurinn sterki Heiðdís Lillýardóttir hefur gert samning við portúgalska stórveldið Benfica. Samningurinn gildir fram á vorið og ef vel tekst til þá mun portúgalska liðið kaupa Heiðdísi af Breiðablik og gera 2 ára samning við hana.


Hátíðarkveðja 2021
Hátíðarkveðja 2021

Óskum öllum Blikum og öðrum landsmönnum gleðilegrar jólahátíðar.


Laufey Harpa skrifar undir
Laufey Harpa skrifar undir

Laufey Harpa er 21 árs gömul, öflugur vinstri bakvörður og kemur frá uppeldisliði sínu Tindastóli. Hún hefur þegar spilað í sex ár með meistaraflokki þrátt fyrir ungan aldur og hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir frammistöðu sína.


Fagrar grænar slaufur
Fagrar grænar slaufur

Þá er síðasti mánuður ársins hafinn – komin aðventa – og það er verið að hnýta síðustu fagurgrænu slaufurnar á árið 2021. Síðasti heimaleikur okkar kvenna í Meistaradeildinni er eftir viku,  miðvikudaginn 8. desember, þegar stelpur úr smáklúbbi í þorpi á miðju hálendi Spánar (kalla sig hina raunverulegu Madrid) koma á Kópavogsvöll.


Clara Sigurðardóttir til Breiðabliks
Clara Sigurðardóttir til Breiðabliks

Miðjumaðurinn Clara Sigurðardóttir er gengin til liðs við Breiðablik og hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið. Clara er 19 ára gömul en er nú þegar afar reynslumikil. Sumarið 2017, þegar hún var aðeins 15 ára, spilaði hún til að mynda 17 leiki í Pepsi-deildinni og hefur frá því verið í stóru hlutverki með uppeldisliði sínu ÍBV.


Natasha Moraa Anasi til Breiðabliks
Natasha Moraa Anasi til Breiðabliks

Hin gríðarlega öfluga Natasha Moraa Anasi er gengin til liðs við Breiðablik og hefur skrifað undir tveggja ára samning.


Kristófer Sigurgeirsson aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna
Kristófer Sigurgeirsson aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna

Kristófer Sigurgeirsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Breiðabliki. Kristófer mun jafnframt vera í þjálfarateymi 3. flokks kvenna, og koma enn frekar að þjálfun yngri flokka.


Erfiður útivöllur
Erfiður útivöllur

Það var ekkert grín að fylgjast með stelpunum okkar keppa á móti Real Madrid útivelli í kvöld. Um hríð hafði ég áhyggjur af kornabarninu á hæðinni fyrir neðan, ég væri að vekja það eða jafnvel að efla með því varanlegan ótta við karlhrúguna á efri hæðinni.


Sagan skrifuð með fagurgrænu bleki
Sagan skrifuð með fagurgrænu bleki

Nýr kafli í íslenskri knattspyrnu hófst í kvöld. Þann 6. október 2021 tók íslenskt félagslið í fyrsta skipti þátt í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Síðustu svona kaflaskil urðu 2016 þegar landsliðsstrákarnir komust í fyrsta skipti á stórmót. Þar á undan árið 2009 þegar stelpurnar komust í fyrsta skipti á stórmót.


Ásmundur Arnarsson tekur við meistaraflokki kvenna
Ásmundur Arnarsson tekur við meistaraflokki kvenna

Þjálfarinn reynslumikli Ásmundur Arnarsson tekur við þjálfun meistaraflokks kvenna hjá Breiðabliki og hefur hann skrifað undir þriggja ára samning við Knattspyrnudeild Breiðabliks.


Þvílíkir meistarar
Þvílíkir meistarar

Breiðablik byrjaði feikivel. Þrýsti þétt upp völlinn fyrstu mínúturnar, bjuggu til stöður, hækkuðu spennuna hjá Þróttarstelpum, lækkuðu sína að virtist, en þetta áhlaup skilaði ekki marki. Þá fékk lægra skrifaða, fríska og pressulausa liðið kjarkinn og gerði sig gildandi um hríð. Okkar grænklæddu voru hinsvegar ekkert láta mikið undan síga og stýrðu leiknum áfram og lengst af. Karitas og Agla María sömdu saman mark um miðjan fyrri hálfleikinn.


Blikar semja við belgíska landsliðskonu
Blikar semja við belgíska landsliðskonu

Belgíska landsliðskonan Alexandra Soree, eða Zandy Soree, hefur skrifað undir samning við Breiðablik og tekur slaginn með liðinu í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu.


Karen María er gengin til liðs við Breiðablik
Karen María er gengin til liðs við Breiðablik

Hin öfluga Karen María Sigurgeirsdóttir er gengin til liðs við Breiðablik.Karen María er tvítug og kemur frá uppeldisfélagi sínu Þór/KA, þar sem hún hefur verið í stóru hlutverki síðustu ár. Hún spilaði alla deildarleiki liðsins á nýafstöðnu tímabili og skoraði fimm mörk. Karen María á að baki þrettán leiki með yngri landsliðum Íslands og var fyrr á árinu valin í æfingahóp A-landsliðsins


Skína ljósin nógu skært?
Skína ljósin nógu skært?

Eigum við að ræða landsliðið? Eigum við að ræða Breiðablik? Eigum við að ræða bikarúrslitin 2021? Eigum við að ræða aukaþing KSÍ 2021? Hilton Nordica, laugardaginn 2. október kl. 11:00. Eigum við að ræða UEFA Champions League 2021? Eigum við að ræða þjálfaramál, félagaskiptamál eða ljósaperur í flóðljósum?