Góð úrslit í sögulegum leik
13.06.2025

Það var boðið uppá tímamótaleik á Kópavogsvelli í 8 liða úrslitum bikarkeppninnar hjá
stelpunum þetta árið. HK stelpur komu í heimsókn en þetta var í fyrsta sinn sem þessi
nágrannafélög mætast í leik í meistaraflokki kvenna. HK efstar í Lengjudeildinni og
Blikastelpur í 2 sæti í Bestu.
Byrjunarlið Blika var þannig skipað: Telma Ívarsdóttir, Elín Helena Karlsdóttir ,Agla María
Albertsdóttir (f),Andrea Rut Bjarnadóttir, Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir, Karitas
Tómasdóttir, Kristín Dís Árnadóttir, Helga Rut Einarsdóttir, Líf Joostdóttir van Bemmel,
Birta Georgsdóttir, Edith Kristín Kristjánsdóttir.
Það dró til tíðinda strax á 12 mínútu þegar Birta komst inn í sendingu frá HK og lék
skemmtilega á markmanninn og skoraði fyrsta markið. Blikarnir héldu áfram að þjarma
að HK og á 22 mínútu léku Birta og Hrafnhildur fagmannlega í gegnum vörn HK, sem
endaði með marki frá Hrafnhildi. Og mínútu síðar þræddi AglaMaría Birtu í gegnum
vörnina og staðan skyndilega orðin 3-0 fyrir okkar konur.
Eftir þetta var eins og það kæmi einhver værukærð yfir stelpurnar, eins og þær héldu að
þetta yrði þæginleg ganga í garðinum, en HK stelpur voru ekki á þeim buxunum og á
24 mínútu leiksins náðu þær að skora gott mark og opna leikinn uppá nýtt.
Það sem eftir lifði hálfleiks var jafnt á með liðunum en Edith Kristín átti reyndar tvær
góðar tilraunir sem hefðu getað komið okkur í þæginlegri stöðu fyrir hálfleik en allt kom
fyrir ekki og staðan í hálfleik var 3-1 fyrir Blika.
Blikastelpur komu ákveðnari út í síðari hálfleik, leikmaður fyrri hálfleiks, Birta fór af velli
og Andrea Rut og inná komu Berglind og Heiða Ragney. Blikar sóttu stíft og á 58
mínútu skoraði AglaMaría gott mark og staðan orðin 4-1.
Á 62 mínútu komu svo Samantha og Írena inná fyrir þær ÖgluMaríu og Líf. Edith hélt
áfram að koma sér í færi en inn vildi boltinn ekki fyrr en á 67 mínútu þegar Hrafnhildur á
góða fyrirgjöf sem endar með því að boltinn dettur fyrir Edith sem skoraði verðskuldað
mark.
Síðari hálfleikur var eign Blika að mestu leiti. Á 82 mínútu kom Lilja Þórdís inná fyrir
Edith Kristínu, og Blikar silgdu sigrinum heim í rólegheitunum og sæti í undanúrslitum
staðreynd.
Síðar um kvöldið var svo dregið í undanúrslitin og við fáum ÍBV í heimsókn á
Kópavogsvöll þann 31 júlí sem er fimmtudagurinn fyrir verslunarmannahelgi, flott að
starta þeirri helgi með að mæta á Kópavogsvöll og styðja liðið.
-B
Elín Helena fékk viðurkenningu fyrir 100 keppnisleiki með Breiðabliki og er hún hér með Flosa formanni Knattspyrnudeildar Breiðabliks