Það var spenna í loftinu á Kópavogsvelli í gærkveldi þegar kvennalið Þróttar kom í heimsókn í opnunarleik Bestu deildarinnar. Flestir hafa spáð Blikum sigri í deildinni þetta árið og Þrótturum í þéttum pakka í sætum 2-5 og ljóst að þetta yrði frábær prófraun fyrir Blikaliðið.
Það var strax ljóst að Þróttarar voru mættar til að eyðileggja partíið í Kópavoginum. Þær pressuðuð Blikana vel og voru með yfirhöndina fyrstu 20 mínútur leiksins, án þess þó að skapa sér enhver afgerandi færi. Leikurinn bar þess skýr merki að vera fyrsti leikur sumarsins, liðin voru frekar varkár og ekki mikið um opnanir.
Blikastelpurnar komust svo smátt og smátt inn í leikinn, og það var á 35 mínútu sem AglaMaría á frábæra sendingu frá miðjum vallarhelmingi Blika fram á Edith sem tók boltan frábærlega með sér og hamraði honum í samskeytin frá vítateigshorninu, frábært mark bæði aðdragandinn og afgreiðslan. Og Blikar þurftu ekki að bíða lengi eftir marki númer tvö því fjórum mínútum seinna var AglaMaría aftur á ferðinni, hún tók stutta hornspyrnu á Líf sem sendi boltan til baka á ÖgluMaríu og hún dansaði framhjá varnarmönnum Þróttara, sendi á Hrafnhildi Ásu, sem lagði boltann snyrtilega í fjærhornið. Aftur alveg frábært mark og staðan orðin 2-0 og þannig var staðan í hálfleik.
Seinni hálfleikur var síðan nokkuð kaflaskiptur, Blikar byrjuðu ágætlega og maður fékk á tilfinninguna að þær myndu sigla þessu auðveldlega í hús, en Þróttarar voru ekki á sama máli og náðu upp góðri baráttu og gerðu sig líklegar til að komast inn í leikinn. Við það opnaðist varnarleikurinn þeirra aðeins og Blikarnir áttu nokkrar álitlegar skyndisóknir en náðu ekki að gera sér mat úr því. Niðurstaðan því 2-0 sigur gegn einu af þeim liðum sem spáð er að geti gert atlögu að tiltlinum þannig að við getum sagt að þetta hafi verið sterkur sigur.
Það voru margir jákvæðir punktar í liði Blika. Það hefur verið mikið talað um að AglaMaría verði besti leikmaður sumarsins og einnig að spennandi verði að fylgjast með Hrafnhildi Ásu og Edith og því búið að setja mikla pressu á þessa leikmenn, sérstaklega náttúrulega hinar ungu Hrafnhildi og Edith. Það var því frábært að sjá að þær stóðust allar pressuna og skiluðu þessum stigum í hús. Það var líka frábært að sjá Bryndísi Örnu koma inn í lok leiks, og verður spennandi að sjá hana þegar hún er komin í 100% stand eftir meiðslin sem hafa hrjáð hana.
En þetta var solid liðsframmistaða og það verður spennandi að fylgjast með liðinu okkar í sumar. Næsti leikur er á miðvikudaginn 29 apríl á Kópavogsvelli og það væri gaman að sjá sem flesta þá!
-B