BREIÐABLIK STUÐNINGSMANNAVEFUR

Helena Ósk til Breiðabliks

17.02.2022 image

Helena Ósk Hálfdánardóttir er gengin í raðir Breiðabliks og hefur skrifað undir tveggja ára samning í Kópavoginum.

Helena er 21 árs gömul og er uppalin hjá FH en lék með Fylki í Pepsi Max deildinni síðastliðið sumar.

Helena er sóknarsinnaður leikmaður sem þrátt fyrir ungan aldur á að baki 72 leiki í efstu deild og hefur skorað í þeim níu mörk.

Hún hefur leikið 23 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands og hefur skorað í þeim fjögur mörk.

Það verður spennandi að fylgjast með þessum efnilega leikmanni í grænu treyjunni í sumar.

Velkomin í Breiðabliksfjölskylduna Helena Ósk.

image

Hér handsala Ásmundur Árnason og Helena Ósk samniginn.

Til baka