S
Breiðablik
2 0
Fram
A-deild 2026 ·2. umferð ·Kópavogsvöllur ·29.04.2026
1
6

Agla María fékk viðurkenningu fyrir leikinn gegn Fram. 250 mótsleikir fyrir Breiðablik! Til hamingju með það Agla María! Flosi Eiríksson formaður knattspyrnudeildar veitti Öglu viðurkenninguna.

Það er stutt á milli leikja í upphafi Íslandsmótsins og eftir góðan sigur á Þrótti á föstudaginn þá var komið að öðrum heimaleik, núna voru það Framstúlkur sem mættu í heimsókn.

Það hafa orðið miklar breytingar hjá Framliðinu og þeim er ekkert spáð sérstöku gengi í sumar en þær voru svo sannarlega mættar í Kópavoginn til að afsanna það.

Fram stillti eins og við var að búast upp varnarsinnuðu liði og þeim gegg ágætlega að halda aftur af sóknarþunga Blika í upphafi leiks. Það er hægt að segja að Blikar hafi sótt án afláts án þess að skapa sér einhver afgerandi færi að viti, og Framstúlkur fengu tvisvar álitlegar stöður eftir skyndisóknir þar sem uppaldi Blikinn, Sara Svanhildur, hefði hæglega tvisvar geta komð þeim í forystu.  En fátt annað markvert gerðist og staðan í hálfleik 0-0.Seinni hálfleikur byrjaði á svipuðum nótum en á 57 mínutu var ÖgluMaríu nóg boðið og hún náði frábærri fyrirgjöf sem rataði á Líf sem átti ekki í neinum vandræðum með að skalla boltan í netið.  1-0 og Blikar komnir á bragðið. 

-B

Tíu mínútum seinna áttu Blikar svo góða sókn sem endaði með því að Barbára Sól fékk boltan á auðum sjó í vítateig Framara og setti hann snirtilega í sammarann.2-0. 

Nú héldu flestir að stíflan væri brostin, en Framarar voru ekki sammála og ekki voru skoruð fleiri mörk.  Sanngjarn 2-0 sigur, og Blikar á toppinn með fullt hús stiga og markatöluna 4-0.

AglaMaría stóð uppúr í liði Blika í leik númer 250 fyrir uppeldisfélagið.  Ef hún heldur áfram á þessari braut þá er ljóst að það er mikil veisla í uppsiglingu fyrir framherjana okkar í sumar.

Það var lika gaman að sjá framistöðu Söru Svanhildar hjá Fram, en hún er ein af fjölmörgum Blikum sem spila með öðrum liðum í Bestu deildinni, sem er góð vitneskja um það frábæra starf sem unnið hefur verið í Kópavoginum á undanförnum árum.

Næsti leikur er svo á miðvikudaginn næstkomandi, 6 maí, þegar við förum í Víkina en Víkingum er spáð góðu gengi og ljóst að þetta verður einn af fjölmörgum úrslitaleikjum sumarsins. Hvetjum alla til að mæta og hvetja okkar stelpur áfram. Leikurinn hefst kl. 18:00