Stelpurnar okkar taka á móti Fram í næsta leik í Bestudeild kvenna á Kópavogsvelli klukkan 19:15.  Framstúlkur töpuðu sínum fyrsta heimaleik í deildinni eftir æsispennandi leik á móti ÍBV 3-4. Okkar stúlkur fóru hins vegar af stað með sigri í fyrsta leik á móti Þrótti.

Fram stúlkur koma með mjög breytt lið til leiks í sumar frá því sem var í fyrra líkt og okkar konur.  10 leikmenn hafa yfirgefið herbúðir Fram þar á meðal Olga Ingibjörg Bliki sem var á láni hjá þeim í fyrra.  Þær hafa líka fengið til sín 10 nýja leikmenn og þar á meðal að láni frá okkur hana Kristínu Magdalenu Barboza og svo skipti Sara Svanhildur Jóhannsdóttir alfarið til Fram úr okkar herbúðum.  Þær eins og við eru með nýjan þjálfara og þó að liðunum sé spáð misjöfnu gengi þá er hvergi á vísan að róa í þessum leik.

Við höfum ekki spilað marga leiki við Fram frá því árið 2000 í meistaraflokki kvenna eða einungis 4 leiki sem við höfum unnið alla. En ekki má gleyma því að þær komu upp í efstu deild í fyrra eftir lang hlé og eru einungi að eflast.

Við hvetjum alla til að mæta á völlinn og styðja við stelpurnar okkar.

-B

Klippur frá síðustu heimsókn Fram á Kópavogsvöll