Bestadeild kvenna 2025- Síðasti leikur fyrir EM pásu
20.06.2025Stelpurnar okkar eiga leik á morgun klukkan 14:00 á Stjörnuvelli. Leikir okkar á móti
Stjörnunni hafa í gegnum tíðina verið spennandi. Liðin hafa leikið 52 leiki í efstudeild
þar sem Blikakonur hafa unnið 30 leiki, 7 leikir hafa endað i jafntefli og Stjarnan unnið 14.
Blikakonur eru efstar í Bestu deildinni ásamt FH og Þrótti en Stjörnustúlkur eru í 6.
sæti. Það má þó alls ekki vanmeta Störnustelpurnar en þær gerðu sér lítið fyrir og
unnu Þrótt í síðustu umferð 2-0. Nokkrir leikmenn hafa spilað með báðum liðum og
má þar nefna Jakobínu Hjörvars, Örnu Dís Arnþórsdóttir og Margréti Leu Gísladóttir
sem allar spila núna með Stjörnunni en hafa áður leikið með Breiðablik. Í liði okkar
Blika hafa þær Birta Georgsdóttir, Heiða Ragney Viðarsdóttir og Aglamaría Albertsdóttir spilað með Stjörnunni.
Eins og áður segir er þetta síðasti leikur liðsins fyrir EM pásu svo við hvetjum alla til
að mæta á Stjörnuvöll og hvetja stelpurnar okkar. Það var virkilega gaman að heyra
hversu margir voru að hvetja liðið í síðasta leik á Akureyri og ættu við að geta gert enn betur núna.
-B