BREIÐABLIK STUÐNINGSMANNAVEFUR

Agla María heim til Breiðabliks

25.07.2022 image

Breiðablik og sænska félagið BK Häcken hafa komist að samkomulagi um að Agla María Albertsdóttir komi á láni til Blika fram að áramótum.

Sænska félagið keypti Öglu Maríu í vetur og hefur hún komið við sögu í átta leikjum í sænsku úrvalsdeildinni það sem af er tímabil, en áður hafði hún skorað 97 mörk í 126 leikjum með Breiðabliki. Hún tekur nú slaginn með Blikum næstu mánuði enda mikið fram undan í deild, bikar og Meistaradeild.

Agla María er nú nýkomin frá Englandi þar sem hún tók þátt í öllum leikjum Íslands á EM, og var meðal annars í byrjunarliðinu gegn Frakklandi þar sem hún spilaði jafnframt sinn 50. A-landsleik.

Það segir sig sjálft hversu stórt það er fyrir Breiðablik og fótboltann hér heima að fá leikmann á borð við Öglu Maríu aftur. Hún er ekki aðeins frábær leikmaður og þrautreynd landsliðskona, heldur er hún einnig mikil fyrirmynd fyrir unga iðkendur.

Velkomin aftur í Kópavoginn, Agla María!

image

Ásmundur Arnarson þjálfari og Agla María handsala hér samkomulagið.

Til baka