Stelpurnar okkar mættu Víking í Víkinni í gær og unnu góðan 2-4 sigur. Yfirburðir okkar stúlkna voru miklir í fyrri hálfleik. Strax á 3 mínútu leiksins fengu Blikastúlkur aukaspyrnu rétt fyrir utan teig Víkinga eftir gróft brot sem hefði átt að verðskulda rautt spjald en á einhvern ótrúlegar hátt var engu spjaldi lyft. Aglamaría tók spyrnuna og skoraði beint framhjá veggnum og staðan orðin 0-1. Tóninn var því settur snemma í leiknum og héldu okkar konur áfram af krafti en McCellan markvörður Víksings hélt sínum konum inn í leiknum með góðum vörslum. Blikakonur fengu fjölmörg færi en allt kom fyrir ekki og staðan í hálfleik því 0-1 fyrir Breiðablik. Aglamaría, Karítas, Hrafnhildur Ása og Líf voru virkilega sprækar í fyrri hálfleik ásamt Elínu Helenu sem var eins og klettur í vörninni.
Víkingsstúlkur mættu mun ákveðnari til leiks í seinni hálfleik og fóru að sækja meira að marki Blikakvenna sem stóðu vörnina þó vel. Á 53. mínútu átti Jasmín Erla þrumuskot í slánna hjá Blikakonum sem hefði geta breytt stefnu leiksins. Okkar konur svöruðu þessu samt strax á 56. mínútu með marki frá Hrafnhildi Ásu sem fær glæsilega sendingu inn í teig frá Elísu Viðars þar sem hún er ein og skýtur bara í mitt markið og skorar og Blikakonur komnar með tveggja marka forystu og náðu að snúa í leiknum aftur sér í hag.. Á 63. mínútu gera Víkingskonur skiptingu og þær Helena Ósak og Birta fara út fyrir Freyju og Dagný. Við þetta hresstist leikur Víkingskvenna aftur en Freyja var virkilega spræk eftir að hún kom inn á. Það kom þó ekki í veg fyrir nokkur dauðafæri Blikakvenna en á 64. mínútu átti Karitas dauðafæri en áfram hélt McClellan að verja vel og varði annað dauðafæri á 66. mínútu frá Edith.
Blikar gera skiptingu á 67. mínútu þar sem Ólöf Sigríður kom inn á fyrir Líf. Þetta var ánægjuleg skipting fyrir Blikakonur og það er fagnaðarefni að sjá Ollu Siggu aftur á vellinum eftir að hún náði ekkert að spila með okkur síðasta sumar. Strax í kjölfar skiptingarinnar eða á 69. Mínútu skorar svo Barbára Sól eftir að Hrafnhildur Ása hafði keyrt upp vinstri kantin og sendir boltann inn í teig þar sem Barbára klárar færið vel. Á 75. mínútu gera Blikar svo aðra skiptingu, útaf fara þær Aglamaría og Barbára Sól og inn koma Sunna Rún og Bryndís Arna. Strax eftir skiptinguna fengu Blikar á sig mark frá Dagný. Það virkaði eins og Blikakonur væru ekki alveg tilbúnar eftir að skiptingin fór fram og því fyrsta markið sem þær hafa fengið á sig í sumar staðreynd. Blikakonur voru þó ekki lengi að svara og á 77. mínútu skorar Olla Sigga eftir góða sendingu frá Karítas, gott að hún sé strax komin á blað og frábært að allir okkar fremstu leikmenn sem hafa spilað eitthvað að ráði eru búnar að skora í sumar. Víkingskonur sóttu í sig veðrið eftir skiptingu á 82. mínútu og strax á þeirri 83. skorar Freyja eftir mikið harðfylgi í teignum þar sem hún einfaldlega gafst ekki upp. Víkingskonur reyndu allt hvað þær gátu að koma inn öðru marki en allt kom fyrir ekki. Blikar gera skiptingu á 91. mínútu þegar Hrafnhildur Ása og Edith fara af velli fyrir þær Guðrúnu og Mikaelu Nótt. Leikurinn lifði ekki lengi eftir það og lokastaðan því 2-4 fyrir Blikakonur sem eru efstar í deildinni með fullt hús stiga. Flottur sigur hjá okkar konum og efsta sætið í deildinni staðreynd.
-B