BREIÐABLIK STUÐNINGSMANNAVEFUR

6-0 sigur!

07.06.2025 image

Í dag tóku stelpurnar okkar í Breiðabliki á móti Austfjarðarliðinu og nýliðunum FHL. Frábærar aðstæður til knattspyrnuiðkunar. Byrjunarlið Blikana var: Telma, Elín, Samantha, Agla María (f), Heiða, Andrea, Kristín, Heiðdís, Berglind, Barbára og Birta. Fyrir þessa umferð eru okkar stelpur í öðru sæti með 16 stig, en FHL á botninum án þess að hafa fengið stig.

Leikurinn byrjaði eins og maður bjóst við, miðað við stöðu liðanna í deildinni. Blikar meira með boltann, voru með nokkuð fjólbreyttan sóknarleik, en FHL varðist vel og áttu gott færi eftir skyndisókn, en sem betur fer skutu þær framhjá.

Fyrsta alvöru marktækifæri Blikana kom á mínútu þegar Samantha Smith skallar boltann eftir hornspyrnu naumlega framjá. En fyrsta markið kom svo eftir frábæran sprett hjá einmitt Sammy Smith, hún fékk góða sendingu út á kannt, reif sig fram hjá varnarmanni FHL í vítateignum og smellti honum í netið með góðu skoti.

Á 24. mínútu vildu Blikar fá vítaspyrnu þegar allt leit út fyrir að Agla María hafi verið toguð niður en Stefán dómari var á öðru máli. Korteri síðar fékk Breiðablik sitt fyrsta dauðafæri, þegar Berglind var skyndilega ein á móti markmanni, en var lengi að koma boltanum fyrir sig og því þrengdist skotvínkillinn, en markvörðurinn varði glæsilega í horn. Strax í kjölfarið þurfti Kristín Dís að yfirgefa völlinn og Líf Joostdóttir kom inn á sem nældi sér í gult spjald mínútu síðar.

Undir lok fyrri hálfleiks fór sóknarþungi okkar kvenna að þyngjast, Sammy fékk boltann eftir frábært spil en var rangtstæð, Birta átti gott skot en naumlega framhjá, Það var síðan í blálokin sem Agla María tvöfaldaði forystuna eftir að hafa fylgt eftir skoti Birtu. Svekkjandi fyrir FHL að fara klefann 2-0 undir eftir að hafa barist mjög vel allan hálfleikinn, en Blikar að sama skapi hressar. Blikastelpur þó töluvert betri eins og búast mátti við en FHL hefur alveg sýnt tilburði að gera eitthvað úr skyndisóknum.

Blikarnir mættu í seinni hálfleikinn til að bæta við mörkum, þær fengu aukaspyrnu á stórhættulegum stað sem gekk reyndar ekki upp. En í næstu sókn fékk Barbára sendingu rétt fyrir utan teig og hún smellti honum í hornið og Blikar komnir í 3-0 forystu. Fjórða markið kom síðan tveim mínútum síðar þegar Birta Georgs skoraði af miklu harðfylgni, í gegnum klofið á markmanninum. Töluvert meiri ákefð hjá okkar konum og ekki laust við að þreyta sé kominn í ungt lið FHL. Blikastelpurnar gengu á lagið og Andrea Rut setti inn fimmta markið þrem mínútum síðar með glæsilegu skoti eftir flotta sendingu frá Heiðu. Næsta sókn á Agla María skalla í dauðafæri en það var varið glæsilega. Geggjaðar fimm mínútur!

En okkar konur voru sko ekkert hættar, á 60. mínútu komst markadrottningin, Berglind Björg, loks á blað eftir frábæran undirbúning frá Birtu. Leikurinn róaðist aðeins eftir þetta, Blikar héldu samt áfram sínum heljargreipum á leiknum og voru mun líklegri til að bæta við en FHL að minnka muninn. Til dæmis átti Andrea gott skot, í algjöru dauðafæri, sem var meistaralega vel varið. Varamaðurinn, Edith, átti lika gott skot.

Lítið annað markvert gerðist, gaman að sjá okkar ungu varamenn að fá sviðið og stóðu þær sig allar vel, til dæmis var Hrafnhildur Ása var mjög nálægt því að skora. Þetta var mikill liðssigur, allar á tánum allan leikinn og Nik stóð allan tímann í sínum boðung og lifði sig vel í leikinn. Birta Georgsdóttir var valin maður leiksins. Næsti leikur hjá okkur er í Mjólkurbikarnum, 12. júní þegar HK mætir í sannkölluðum Kópavogsslag.

@breidablikfc

6-0 sigur ????????????‍????

♬ original sound - Breidablik FC

Til baka