BREIÐABLIK STUÐNINGSMANNAVEFUR

8 líða úrslit í Mjólkurbikar á fimmtudaginn

10.06.2025 image

Stelpurnar okkar í Breiðabliki taka á móti HK í 8 liða úrslitum Mjólkurbikarskvenna á
fimmtudaginn klukkan 20:00. Það merkilega við leikinn er að þær hafa aldrei mætt
HK kvennaliðinu áður í opinberum keppnisleik en spiluðu 17 sinnum við HK/Víking. Í
þeim viðureignum sigraði Breiðablik 16 sinnum en eitt jafntefli varð á milli liðanna.
Þrátt fyrir þessa staðreynd er ljóst að þetta verður hörkuleikur enda leikir í
bikarkeppnum oft allt öðruvísi en í deildar keppnum.

Leikir milli karlaliða Breiðabliks og HK hafa löngum verið skemmtilegir og mikil
barátta á milli liða. Allt getur gerst í bikar og má þar bara nefna að Lengjudeildarið
ÍBV sló út Bestu deildar lið Tindastóls í fyrsta leik 8 liða umferðarinnar á mánudaginn
var.
Blikar.is hvetja því alla til að mæta á leikinn og hvetja okkar stelpur til sigurs

-B

Til baka