BREIÐABLIK STUÐNINGSMANNAVEFUR

Bestadeild kvenna 2025 - Grasleikur framundan

22.05.2025 image

Stelpurnar okkar munu fara til Hafnarfjarðar næstkomandi föstudag og spila þar við heimakonur í FH klukkan 18:00. Reikna má með hörkuleik enda hefur FH farið vel af stað í deildinni í sumar og eru þær nú í 3 sæti.

Hingað til hefur Breiðablik haft nokkra yfirburði í innbyrðis leikjum þessara liða frá árinu 2000 í efstu deildum. Liðin hafa att kappi 36 sinnum þar sem Blikakonur hafa farið með sigur úr býtum í 28 skipti - 4 leikir hafa endað með jafntefli og FH unnið 4 sinnum. Í þessum leikjum höfum við skorað 137 mörg og FH konur 29.

Þó að tölfræðin sé okkur í hag höfum við oft átt í basli á útivelli og ekki hægt að ganga að neinu vísu. Eins og áður sagði hafa FH konur byrjað þetta mót af krafti og gerðu meðal annars jafntefli við Val í fyrstu umferð og unnu Þór/KA á útivelli í þeirri 4. Þjálfara FH kvenna eru þeir bræðurnir Guðni og Hlynur Svan Eiríkssynir en Hlynur Svan þjálfaði m.a. meistaraflokk kvenna hjá Breiðabliki á árunum 2012-2014 og er því okkur Blikum kunnur. Þeir hafa yfirleitt líflega framkomu á hliðarlínunni og er vert fyrir áhorfendur að gjóa augunum á þá félaga.

Nokkrir leikmenn hafa spilað með báðum klúbbum og má þar nefna Vigdísi Eddu Friðriksdóttur, Margréti Brynju Kristinsdóttur, Hörpu Helgadóttur, Birnu Kristínu Björnsdóttur, Valgerði Ósk Valsdóttur og Hildi Þóru Hákonardóttur sem allar leika með FH í dag en hafa áður verið leikmenn Breiðabliks. Hjá Breiðabliki hefur leikmaðurinn Birta Georgsdóttir spilað með FH.

Við hvetjum alla blika til að mæta á völlinn og styðja stelpurnar okkar.

-B

image

Til baka