BREIÐABLIK STUÐNINGSMANNAVEFUR

Áslaug Munda semur til 2025

30.01.2023 image

Grafík: Halldór Halldórsson

Góðar fréttir á mánudegi, Áslaug Munda hefur framlengt samning sinn við Breiðablik. Hún á 112 leiki fyrir Breiðablik og hefur skorað í þeim 21 mark.

Áslaug Munda var í landsliðshóp Íslands sem tók þátt á EM sumarið 2022 og hefur spilað 11 landsleiki fyrir Íslands hönd. 

Áslaug Munda er uppalin á Egilsstöðum en steig sín fyrstu skref með meistaraflokki Völsungs á Húsavík.

Á ferli sínum í Kópavoginum hefur Áslaug Munda hjálpað Blikum að vinna tvo Íslandsmeistaratitla og tvo bikarmeistaratitil ásamt því að komast í 16 liða úrslit Meistaradeildar Evrópu árið 2019. Hún hefur sannað sig sem ein allra efnilegasa knattspyrnukona landsins, var fastamaður í yngri landsliðum og spilaði svo sína fyrstu A-landsleiki sumarið 2019. Hún hefur vakið verðskuldaða athygli erlendra liða og meðal annars farið á reynslu til franska stórliðsins PSG.

Áslaug Munda er mikil fyrirmynd jafnt innan sem utan vallar. Það eru sannarlega gleðitíðindi að hún hafi framlengt samning sinn við félagið og það verður gaman að fylgjast með henni halda áfram að leika listir sínar á vellinum með sinn mikla hraða og áræðni.

Knattspyrnudeild Breiðabliks tilkynnir með mikilli ánægju að Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við félagið.

Til baka