Það var svakaleg stemmning á Kópavogsvelli í gærkvöld þegar Blikakonur tóku á móti FH í toppslag Bestu deildarinnar. Bleikur litur setti sterkan svip á kvöldið, stúkan var skreytt, Blikar léku í sérhönnuðum bleikum kærleikstreyjum og leikurinn var til styrktar Minningarsjóði Bryndísar Klöru.
Áhorfendur létu sig ekki vanta en 1.232 mættu á völlinn og samkvæmt vallarþul var um áhorfendamet á kvennaleik í Bestu deildinni á Kópavogsvelli að ræða. Umgjörðin var í einu orði sagt glæsileg og stemningin hófst löngu áður en flautað var til leiks.
Inni á vellinum var hart barist frá fyrstu mínútu. Blikar byrjuðu betur og komust yfir á 16. mínútu þegar Elísa Viðarsdóttir átti frábæra fyrirgjöf frá og Agla María Albertsdóttir skallaði boltann í netið. Vel útfært mark og Blikar komnar verðskuldað yfir. Eftir þetta riðlaðist leikur Fh nokkuð og Blikar fengu fínar stöður en náðu ekki að refsa hafnfirðingunum.
En FH náði vopnum sínum á nýog jafnuðu metin á 39. mínútu þegar Ingibjörg Magnúsdóttir lét vaða frá hægri og boltinn endaði í netinu eftir að hafa farið í gegnum vörn Blika. Staðan var því 1-1 í hálfleik eftir líflegan fyrri hálfleik.
Blikar náðu aftur forystunni á 57. mínútu þegar gestirnir töpuðu boltanum á eigin vallarhelmingi. Blikar brunuðu í sókn og Hrafnhildur Ása skoraði af öryggi og kom heimakonum í 2-1.
Það leið ekki langur tími þar til FH svaraði fyrir sig því á 65. mínútu skallaði Deja Jaylyn Sandova boltann í netið eftir hornspyrnu og jafnaði metin í 2-2. Aðeins mínútu síðar munaði litlu að Blikar kæmust yfir á ný þegar Katelyn Duong átti neglu utan teigs sem small í þverslánni. Það hefði verðið ljúft að sjá þann bolta inni.
En FH efldust mjög við jöfnunarmarkið og sóttu stíft og á 75. mínútu fékk FH vítaspyrnu eftir að Barbára braut á Ingibjörgu inni í teig.. Ída Marín Hermannsdóttir steig á punktinn og skoraði af öryggi. Það reyndist sigurmarkið og lokatölur urðu 2-3 fyrir FH.
Svekkjandi niðurstaða fyrir Blika sem töpuðu þar með sínum fyrsta leik í Bestu deildinni í sumar. Liðið er þó áfram á toppi deildarinnar með 15 stig eftir sex umferðir og baráttan heldur áfram. FH minnkaði muninn í toppbaráttunni og er nú skammt undan.
Það er margt jákvætt hægt að taka með úr leiknum, Blikastelpur spiluðu ágætlega og hefðu getað skorað fleiri mörk og í raun hefði leikurinn getað farði hvernig sem er hann var mjög opin og skemmtilegur.
Umgjörðin var frábær, mætingin til fyrirmyndar og Blikafólk sýndi enn og aftur hvað félagið stendur fyrir, bæði innan vallar sem utan. Kvöldið var frábær sýning á hvað er hægt að gera fyrir kvennaboltann með tilliti til umgjarðar.
Nú er verkefnið að rífa sig upp, svara þessu tapi af krafti og mæta enn sterkari til leiks í næsta verkefni.
Halldór