Eftir góðan sigur fyrir norðan gegn Þór/KA halda stelpurnar okkar áfram í Bestu deildinni og nú er komið að stórleik á Kópavogsvelli þegar FH-ingar mæta í heimsókn.
Blikar hafa byrjað mótið af krafti og eru í toppbaráttunni þar sem hvert stig skiptir máli. Það er því ljóst að það má hvergi slaka á gegn öflugu liði FH sem hefur sýnt það að þær geta strítt öllum liðum deildarinnar.
FH liðið er gífurlega sterkt og lentu í öðru sæti í fyrra og ljóst að þær ætla sér lengra í ár, það má því búast við að þær mæti sterkar til leiks frá fyrstu mínutu og þær munu ekki gefa tommu eftir.
Þessi leikur er þó meira en bara fótboltaleikur. Leikurinn er sérstakur styrktarleikur til stuðnings Minningarsjóði Bryndísar Klöru, sem var iðkandi hjá Breiðabliki. Blikar munu leika í bleikum kærleikstreyjum og rennur allur ágóði af miðasölu og treyjusölu óskiptur í sjóðinn. Markmið sjóðsins er að stuðla að öryggi og velferð barna og styðja verkefni sem vinna gegn ofbeldi og efla samkennd.
Leikurinn fer fram á mánudaginn 25. maí á Kópavogsvelli. Upphitun hefst kl. 17:30 þar sem Páll Óskar, Kristmundur Axel og Húbba Búbba mæta og halda uppi stemningunni fyrir leik.
Við hvetjum því alla Blika, Kópavogsbúa, FH-inga og aðra knattspyrnuunnendur til að fjölmenna snemma á völlinn, klæðast bleiku og taka þátt í þessari mikilvægu stund með okkur. Mætum, styðjum stelpurnar okkar og látum kærleikann sigra.
KBH