Bestadeild kvenna 2025- Roadtrip
14.06.2025Stelpurnar okkar munu fara norður á Akureyri næstkomandi mánudag og spila þar
við heimakonur í Boganum klukkan 17:00. Þór/KA hafa byrjað mótið vel og sitja í 4
sæti 4 stigum á eftir Blikum
Liðin hafa háð margar skemmtilegar rimmur í gengum tíðina, ein sú eftirminnilegasta
er útileikur 2015 þar sem Blikastelpur tryggðu sér íslandsmeistaratitilinn eftir nokkuð
langa bið. En liðin hafa leikið 71 leik frá aldamótum í öllum keppnum þar sem við
höfum unnið 45 leiki, þær 18 og átta sinnum hefur jafntefli verið niðurstaðan. Í
þessum leikjum höfum við skorað 121 mark og norðankonur 56.
Það hafa ekki margir leikmenn spilað með báðum klúbbum í gegnum tíðina en samt
nokkur stór nöfn t.d. Rakel Hönnudóttir og Heiða Ragney sem báðar eru uppaldar á
Akureyri. Af núverandi leikmönnum norðanstúlkna hefur Karen María Sigurgeirsdóttir
leikið með Blikum
Við hvetjum alla Blika sem eru á leiðinni norður að skella sér á spennandi leik og
hvetja okkar konur.
-B