Loksins er Bestadeild kvenna að fara af stað árið 2026. Okkar konur fara beint í efstu hillu og taka á móti Þrótti í fyrstu umferð á Kópavogsvelli  á föstudagskvöldið klukkan 19:15.  Blikaliðið kemur mjög breytt til leiks frá síðasta ári en þær Andrea Rut, Áslaug Munda, Birta, Heiða Ragney og Smanatha fóru allar erlendis í atvinnumennsku eftir síðasta tímabil.  Heiðdís og Katrín Ásbjörn hættu í fótbolta, Berglind Björg er ófrísk og svo hafa Jakobína, Sara Svanhildur, Kristín Magdalena og Helga farið í önnur lið hér á landi.  Einnig er þjálfarateymið okkar algerlega nýtt fyrir komandi tímabil. 

Við Blikar örvæntum þó ekki því við höfum fengið til okkar þær Taylor og Katelyn frá USA, Mikaela Nótt kom frá FHL,  Olga kom til baka úr Fram þar sem hún var á láni, reynsluboltinn Elísa Viðars kom frá Val og svo Bryndís Arna heim frá Svíþjóð. Allt eru þetta frábærir leikmenn sem eiga eftir að styrkja liðið okkar mikið,  en það má ekki gleyma því að við eigum fullt af ungum stúlkum sem hafa fengið mikla reynslu undnafarin misseru og sem munu fá stærra hlutverk í sumar eins og Hrafnhildur Ása, Edit Kristín, Sunna Rún og Líf sem munu eflaust láta vel til sín taka í sumar og verður spennandi að fylgjast með þeim. 

Nýja þjálfarateymið okkar samanstendur af þeim Ian Jeffs, Stefáni Loga, Hirti og að ógleymdri Ásgerði Stefaníu sem er loksins komin heim aftur. Blikar.is vill bjóða alla leikmenn og starfsfólk velkomið í Kópavoginn og þakka þeim sem fóru frá okkur,  viðkynninguna og óska þeim góðs gengis á nýjum vettvangi. 

Frá Þrótti sem endaði í 3 sæti í deildinni á síðustu leiktíð með jafnmörg stig og FH en verri markamun hafa einnig nokkrir leikmenn farið en þar má helst nefna Katie Cousins sem hefur verið þeirra sterkasti leikmaður undanfarin ár. Þær hafa þó fengið liðstyrk frá FHL í þeim Björg, Rósey og Lexi, Kristrún Ýr kom úr Keflavík Maddie frá USA.  Þær ætla örugglega að gera  betur í ár og mæta tvíefldar til leiks. Þær eru einnig með nýjan þjálfara en reynsluboltinn Jóhann Kristinn tók við þeim í vetur en hann hefur getið sér gott orð meðal annars sem þjálfari Þórs/KA en hann gerði þær að Íslandsmeisturum árið 2012.   

Leikir milli þessara liða eru alla jafna mjög góðir og hvetjum við áhorfendur að flykkjast á völlinn og hvetja okkar konur til sigurs.

-B


 

Myndband frá 3-1 sigri okkar kvenna gegn Þrótti á Kópavogvelli í fyrra

„"