Bestadeild kvenna 2025- Nýliðar í heimsókn
04.06.2025Stelpurnar okkar taka á móti nýliðunum í bestu deild kvenna FHL næstkomandi laugardag klukkan 14:00 á Kópavogsvelli.
Liðin hafa aldrei mæst í efstu deild en spilað 3 leiki í öðrum mótum. 2 leiki í Mjólkurbikar árin 2022 og 2025 og einn leik í Lengjubikar árið 2025. Okkar stelpur hafa farið með sigur af hólmi í öll skiptin og er markatala í þessum viðureignum 14-1.
Nýliðunum hefur ekki gengið sem best í upphafi móts og hafa tapað öllum sínum leikjum en þrátt fyrir það þurfa okkar konur að vera á tánum og spila betri leik en á móti FH í síðustu umferð.
Það eru nokkrir leikmenn sem spilað hafa með báðum félögum og má þar nefna Samantha Rose Smith sem kom til okkar Blika í fyrra, einmitt frá FHL og átti stórkostlegt tímabil með okkur. Einnig eru það leikmennirnir Mikael Nótt Pétursdóttir og María Björg Fjölnisdóttir sem nú spila með FHL, en hafa einnig spilað með okkur Blikum.
Blikar.is bjóða FHL velkomnar í deildina og hrósa þeim fyrir gott og mikið uppbyggingastarf undanfarin ár í kvennaknattspyrnu.
Við hvetjum alla Blika til að mæta á völlinn og styðja stelpurnar okkar.
-B