BREIÐABLIK STUÐNINGSMANNAVEFUR

Ásta Eir framlengir til 2024

06.10.2022 image

Fyrirliðinn Ásta Eir Árnadóttir hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks.

Ásta Eir lék sinni fyrsta meistaraflokksleik fyrir Breiðablik árið 2009, þá 16 ára gömul. Síðan þá hefur hún leikið 226 keppnisleiki og skorað í þeim 12 mörk. Ásta Eir er þrefaldur Íslandsmeistari með Breiðabliki auk þess að verða bikarmeistari í þrígang, núna síðast árið 2021. Þá á hún að baki 11 A-landsleiki fyrir Íslands hönd. Ásta Eir, sem er fyrirliði meistaraflokks, er gríðarlega öflugur bakvörður og er mikill leiðtogi í Blikaliðinu.

Það er mikið fagnaðarefni fyrir Blika að Ásta Eir sé búin að skrifa undir nýjan samning.

Við hlökkum til að sjá Ástu leiða Blikaliðið út á völlinn á komandi misserum.

Til baka