Tap á móti Fram!

11.09.2011

Viðurkenni það að ég hef oft verið spenntari fyrir einhverju verkefni en að skrifa um þessar 90 mínútur í Laugardalnum í dag, svo að vitnað sé í leikmann sem tók þátt þá var þetta skítaleikur. Byrjunarlið Breiðbabliks var þannig skipað. Sigmar Ingi Sigurðarson var í marki. Í vörn voru Guðmundur Kristjánsson, Finnur Orri Margeirsson, Þórður Steinar Hreiðarsson, og Kristinn Jónsson. Rafn Andri Haraldsson og Jökull Elísabetarson voru á miðjunni með Andra Rafn Yeoman í holunni fyrir framan sig. Tómas Óli Garðarsson var á hægri kantinum og á þeim vinstri var Kristinn Steindórsson. Frammi var svo Árni Vilhjálmsson.

Fyrstu tuttugu mínúturnar gerðist nánast ekki neitt í leiknum, Blikar fengu hornspyrnur en  náðu ekki að nýta þær til góðra verka. Þórður Steinar átti skalla í slá eftir hornspyrnu eftir rúmar tuttugu mínútur en það var það fyrsta markverða sem gerðist. Stuttu seinna tóku Frammarar aukaspyrnu snöggt fyrir utan teig Blika, boltinn barst á Lennon sem sendi fyrir á Arnar Gunnlaugsson og hann renndi boltanum í netið. Staðan 1-0 og nú vissi maður að þessi leikur yrði ekki mikið fyrir augað. Fram yfir á heimavelli og tilbúnir að gera allt til halda þeirri forystu. Það sást líka strax á eftir að þeir tóku mikinn tíma í allar sínar aðgerðir og ágætur dómari leiksins Kristinn Jakobsson leyfði þeim að komast upp með það.

Rétt á eftir þá átti Þórður aftur skalla að marki Fram en boltinn fór rétt framhjá og mönnum í stúkinni fannst að þarna hefði verið hægt að gera betur. Árni Vilhjálms komst nokkru sinnum í fín færi en virtist ekki hafa trú á því að hann gæti klárað þau.

Seinni hálfleikur byrjaði svipað og sá fyrri, lítið sem ekkert gerðist fyrstu mínúturnar. Kári Ársælsson kom inn á fyrir Tómas Óla sem hafði ekki náð að setja mark sitt á leikinn frekar en aðrir hvítklæddir Blikar í dag. Blikarnir reyndu áfram að sækja en Fram liðið gerði hvað þeir gátu til að drepa niður alla tilburði um skemmtilegan fótbolta enda eru þeir að berjast fyrir lífi sínu og eru nú óþægilega nálægt Blikum þegar nokkrir leikir eru eftir.

Kristinn Steindórsson var líklegastur á síðustu mínútum leiksins ásamt því að Kári kom á óvart þegar að hann var settur í fremust víglínu. Vann mikið af skallaboltum og náði að láta finna fyrir sér. Þegar leiktíminn var að renna út þá náði Árni Vilhjálms að koma boltanum í netið með flottri hælspyrnu en var réttilega dæmdur rangstæður, því miður fyrir hann og Breiðablik.

Núna er staðan þannig að Breiðablik er 6 stigum frá fallsætinu sem Fram er í, næsti leikur liðsins er á móti Keflavík á fimmtudaginn suður með sjó. Á sunnudaginn mætir liðið síðan Víkingum sem sitja á botni deildarinnar. Næst síðasti leikurinn er út á móti Þór og síðasti leikurinn er heima á móti Stjörnunni.

Mikil umræða hefur verið um stuðning Blika í kjölfar ummæla þjálfarans eftir síðasta leik sem endaði með jafntefli eftir síðbúið mark Valsara. Blikar í stúkunni stóðu sig með prýði í dag, þessir stuningsmenn sem borga sig inn á völlinn hafa bara fullt leyfi til þess að fara fram liðið standi sig betur. Þrátt fyrir vonbrigði í dag þá var klappað fyrir liðinu þegar að það gekk af velli. Menn voru niðurlútir en styðja við bakið á strákunum, mikið væri nú gott ef að allir Blikar gera sitt besta í að leggja sig fram við að komast framhjá svona rifrildi og spennu á milli áhorfanda og þjálfara, starfsmanna eða leikmanna. Ég bjóst við meiri viðbrögðum frá Blikum eftir ummæli þjálfarans eftir síðasta leik en menn nenna kannski ekki að standa í stríði? Hvernig sem við horfum á þetta þá þarf liðið okkar stuðning í næstu leikjum til að tryggja að allt fari vel, sjáumst í Keflavík á Fimmtudaginn!

KIG





<- Til baka