BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Meistaraflokkur karla leikmannakynning 2020: Gísli Eyjólfsson

05.04.2020 image

“Hver er maðurinn?” Kynning á leikmönnum meistarflokks karla keppnistímabilið 2020. Miðjusnillingurinn Gísli Eyjólfsson er kynntur hér.

image

Fullt nafn: Gísli Eyjólfsson

Fæðingardagur og ár: 31. maí 1994

Staður: Fossvogi

Staða á velli: Miðjumaður

Treyjunúmer: 11

Gælunafn: Gilli einstakasinnum

Hjúskaparstaða: Sambúð

Börn: 4 mánaða prinsessa

Bíll: Hyundai i20

Uppáhalds….

…Lið í enska: Arsenal

…Fótboltamaður: Jack Grealish

…Tónlist: Queen

…Matur: Þegar ég grilla nautalund

…Leikmaður í mfl.kvk: Allar flottar

…Frægasti vinur þinn: Vinkona systir mömmu er tengdamamma Begga Ólafs, hitti hann stundum.

…Staður í Kópavogi: Kársnesið

Hver í mfl er.…

…Fyndnastur: Ekki Kiddi Steindórs

…Æstastur: Bjarni Hafsteins

…Rólegastur: Kalli

…Mesta kvennagullið: Viktor Örn

…Líklegur í að vinna gettu betur: Benó

…Lengst í pottinum: Guðjón Pétur

…Gengur verst um klefann: Thomas

…Með verstu klippinguna: Binni

…Bestur á æfingu: Höggi

Að lokum, hvað er Breiðablik: Íslandsmeistari 2020

Ekki bara fótboltamaður

Gísli er nýbakaður faðir. Í myndbandinu sýnir hann hvað er hægt að gera á góðum degi með 4 mánaða prinsessu.

Evrópuúrval Gísla Eyjólfs

Við fengum Gísla til að fara í smá leik með okkur þar sem hann velur sitt úrvalslið úr þeim fjölda Blika sem hafa farið til erlendra liða á þeim 40 árum sem liðin eru frá því að Sigurður Grétarsson fór fyrstur Blika í atvinnumensku árið 1980. 

image

Evrópublikar Breiðabliks 1980 - 2020

Um 50 leikmenn meistaraflokks karla hjá Breiðablik hafa farið, verið seldir eða lánaðir til liða erlendis síðustu 40 ár.

image

/POA

Til baka