Golfmót knattspyrnudeildar Breiðabliks 2019
26.07.2019**** Uppselt er í mótið ****
Fjórtánda opna golfmót knattspyrnudeildar Breiðabliks verður haldið föstudaginn 9. ágúst n.k. og hefst kl.13:00. Mótið fer að venju fram á golfvellinum að Efra Seli við Flúðir.
Fyrirkomulag mótsins er með hefðbundnum hætti og mæting í skála er í síðasta lagi kl.12:15.
Ræst verður af af öllum teigum kl.13:00.
Leikinn verður höggleikur og punktakeppni í karla og kvennaflokki og verðlaun verða sem hér segir;
Höggleikur - verðlaun fyrir 3 efstu í karla- og kvennaflokki.
Punktakeppni - verðlaun fyrir 3 efstu í karla- og kvennaflokki.
Nándarverðlaun - á öllum par 3 holum.
Verðlaun - fyrir lengsta teighögg (á braut).
Dregið úr skorkortum.
Hámarksforgjöf í karlaflokki er 24 og hámarksforgjöf í kvennaflokki er 28.
Verðlaunaafhending fer fram yfir málsverði, strax að móti loknu.
Þáttökugjald er kr. 4.700 og er málsverður innifalinn (Pizzahlaðborð)
Skráning er hafin og er tekið á móti skráningum á netfangið olibjoss(hja)gmail.com
Rita skal "Golfmót Breiðabliks 2019" í "efni/subject" og í póstinum þarf að koma fram nafn þátttakanda ásamt kennitölu og símanúmeri og/eða netfangi.
Ennfremur skal taka fram ef fólk óskar eftir skráningum saman í holl.
Mótið er öllum opið og við lofum góðri skemmtun og ákjósanlegu veðri.
Fullbókað var í mótið í fyrra.
Takið daginn frá !
Áfram Breiðablik !
Mótsstjórn