BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Lengjubikarinn 2020: Breiðablik - Leiknir R í Fífunni á föstudag kl.18:30

06.02.2020

Næsti leikur okkar manna er í Lengjubikarnum 2020. Leikurinn verður í Fífunni kl.18:30 á föstudaginn. Andstæðingar okkar eru frískir Leiknismenn úr Breiðholtinu. Leikurinn er fyrsti leikur liðanna í mótinu og jafnframt opnunarleikur Deildabikarsins (Lengubikarsins) árið 2020.

Tölfræði

Þeir eru ekki margir innbyrðis mótsleikirnir hjá liðunum. Sjö mótsleikir 1979 til 2020. Nánar!

  • Fyrsti mótsleikur liðanna var í 32-liða úrslitum Bikarkeppni KSÍ 20. júní 1979. Leikið var á Kópavogsvelli og lauk lauk leiknum með öruggum 8-0 sigri heimamanna. Nánar!
  • Næsti mótsleikur var svo ekki fyrr en 17 árum síðar eða árið 1996 þegar liðin mættust í Deildabikar KSÍ. Leikurinn fór fram á Smárahvammsveli. Blikar unnu leikinn 5-1. Nánar!
  • Liðin mætust svo aftur í Deildabikar KSÍ árið 1999. Leikurinn fór fram á Leiknisvelli. Blikar unnu leikinn 3-0. Nánar!
  • Síðasti leikur liðanna í 32-liða úrslitum Bikarkeppni KSÍ fór fram á Leiknisvelli 15. júní árið 2000. Blikar unnu leikinn 0-4. Nánar!
  • Árið 2015 leika liðin tvo leiki í PEPSI deildinni. Fyrri leikurinn fór fram á Leiknisvelli í júní og lauk með 0-2 sigri okkar mana. Nánar! Síðari leiknum á Kópavogsvelli laukl með 0-0 jafntefli. Nánar!
  • Í maí árið 2018 mætust liðin í Bikarkeppni KSÍ og nú aftur í 32-liða úrslitum. Leikið var heimavelli Leiknismanna í Breiðaholtinu. Veðurguðirnir settu þó nokkurn svip á leikinn því hagl og sól skiptust á að slást um athyglina. Völlurinn var því vel sleipur og áttu leikmenn í smá erfiðleikum í byrjun að finna rétta snertingu á boltann. Nánar!

Reyndar eiga liðin að baki einn leik til viðbótar í innanhússmóti 1. deildar karla í nóvember 2006. Leikinn vann Breiðablik 4-0.

Sagan

Ekki er hægt að fjalla hér um Leiknisliðið án þesss að benda á að nokkrir í núverandi leikmannahópi Leiknis koma frá Breiðabliki.

  • Sólon Breki Leifsson. Sólon á að baki 20 leiki í deild & bikar með Blikum.
  • Bakvörðurinn knái Ósvald Jarl Traustason var fyrst hjá Leikninsmönnum 2013 á láni en gerð svo samning við Leiknisliðið árið 2017.
  • Bjarki Aðalsteinsson leikur nú með Leiknisliðinu en hann var hjá Blikum 2010-2012.
  • Ernir Bjarnason. Ernir á 10 deildarleiki með Kópavogsliðinu á árunum 2014-2017.

Og okkar maður Damir Muminovich lék 18 leiki og skorði 2 mörk fyrir Leiknismenn árið 2012.

Leikur Breiðabliks og Leiknis R verður í Fífunni á morgun, föstudag 7.febrúar kl.18:30.

Við hvetjum alla stuðningsmenn til að koma í Fífuna og styðja sína menn til sigurs.

BlikarTV streymir leiknum á YouTube >

Áfram Blikar, alltaf, alls staðar!

Til baka