BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Kristian yngstur stráka til að spila efstu deildar leik fyrir Breiðablik

29.09.2019

Blikinn Kristian Nökkvi Hlynsson setti félagsmet í gær þegar hann kom inn á í efstu deildar leik gegn KR á Kópavogsvelli í Pepsi Max deild karla.

Kristian er yngsti Bliki (15 ára og 248 daga gamall) frá upphafi til að spila efstu deildar leik í knattspyrnu karla með Breiðabliki. 

Þess má geta að bróðir hans Ágúst Hlynsson var yngstur Blika (16 ára og 3 mánaða) til að skora mark í mótsleik fyrir meistaraflokk Breiðabliks þegar hann skoraði í 32-liða úrslitum Bikarkeppni KSÍ árið 2016 og sló þar með met þáverandi þjálfra – Arnars Grétarssonar. Meira>

Eins og gefur að skilja hafa mörg erlend lið augastað á Kristian. Framtíðin er björt og spennandi hjá leikmanninum.

Blikar.is óskar Kristian til hamingju með áfangann.

Til baka