Það er söguleg stund í leik Breiðabliks og FH á Kópavogsvelli. Andri Rafn Yeoman er að spila sinn 500. mótsleik fyrir Breiðablik og er þar með aðeins annar leikmaður í íslenskri knattspyrnusögu til að ná slíkum áfanga með einu og sama félaginu.
Það er söguleg stund í leik Breiðabliks og FH á Kópavogsvelli. Andri Rafn Yeoman er að spila sinn 500. mótsleik fyrir Breiðablik og er þar með aðeins annar leikmaður í íslenskri knattspyrnusögu til að ná slíkum áfanga með einu og sama félaginu.
FH er eitt aðeins þriggja liða sem Breiðablik hefur mætt í meira 130 mótsleikjum. Hin liðin eru Keflavík(ÍBK), ÍA og einnig leikir gegn ÍBH(KRH),en FH og Haukar spiluðu undir því samheiti fyrstu árin í Litlu bikarkeppninni sem var æfingarmót haldið á Suðvesturhorninu utan Reykjavíkur frá 1961 til 1995.
Blikar unnu 1:2 seiglusigur á Vestmannaeyingum í Bestu deild karla í gær.
Það er komið að næsta leik okkar manna í Bestu deildinni. Um er að ræða leik við ÍBV. Flautað verður til leiks á Hásteinsvellinum í Vestmannaeyjum kl.16:00 sunnudaginn.
Mætt var í rigningu og roki á Kópavogsvöll. Blikaborgaranum var sporðrennt og svo beðið eftir því hvaða Breiðablikslið myndi mæta á völlinn.
Frábærar fréttir frá Kópavogsvelli. Markmaðurinn Anton Ari Einarsson tilkynnti í gærkvöld um framlengingu samnings við Knattspyrnudeild Breiðabliks út keppnistímabilið 2028.
Innbyrðis keppnisleikir liðanna eru 46 frá fyrsta leik árið 1977. Blikar leiða með 29 sigra gegn 6, jafnteflin eru 11. Leikir í A-deild eru 21 - blika sigar eru 10 gegn 3, jafnteflin eru 3 - heimaleikir okkar manna gegn Þór eru. Blika sigar er 5 gegn 3, jafnteflin er 3.
,,Lok, lok og læs og allt í stáli,“ söng Ómar Ragnarsson svo eftirminnilega árið 1965. Segja má að þau orð Ómars hafi verið viðeigandi umsögn um leik Keflavíkur og Blika í Bestu deildinni í sunny Kef Blikar eru því taplausir eftir þrjár umferðir en stuðningsmenn liðsins voru samt frekar súrir með bitleysi sóknarleiks sinna manna.
Lið Keflavíkur (áður ÍBK) er sá andstæðingur sem Breiðablik hefur oftast leikið gegn frá því að Breiðablik byrjaði að keppa í fótbolta árið 1957 - leikurinn í Keflavík á miðvikudaginn verður 134. mótsleikur liðanna frá upphafi.
Besti dagur sumarsins 2026 kom viku fyrir sumardaginn fyrsta, þann 17. apríl. Kópavogsvöllur skartaði sínu fegursta þegar fólk streymdi í Smárann til að fylgjast með leik Breiðabliks og ÍA í Bestu deildinni. Sól skein í heiði, það var nánast logn og hiti um það bil sjö gráður á Celsíus. Það var bersýnilega hugur í mönnum, fyrsti heimaleikur liðsins á tímabilinu.
Fyrsti heimaleikur tímabilsins er á föstudaginn! Skagamenn koma til okkar í blíðuna á Kópavogsvöll og við ætlum að fylla stúkuna og hvetja strákana til sigurs!
Mér fannst orkan og baráttugleði okkar manna til fyrirmyndar og gefur góð fyrirheit fyrir tímabilið sem ég held að verði gott fótboltasumar. Kannski ég gerist djarfur og spái titlinum í Kópavoginn, því Víkingar vinna deildina kannski á pappír en fótbolti er spilaður í raunheimum.
Kristófer Ingi Kristinsson sóknarmaður Breiðabliks (Knattspyrnudeild Breiðabliks) skoraði fyrsta mark Íslandsmóts karla í knattspyrnu árið 2026 í kvöld. Hann kom Blikum yfir gegn Íslandsmeisturum Víkings strax á 5. mínútu í leik liðanna sem hófst í Fossvoginum klukkan 19.15 og er upphafsleikur tímabilsins.
Blikar.is hefur verið uppfærður í nýtt útlit. Það eldra var komið nokkuð til ára sinna en vefurinn var opnaður í því útliti árið 2012. Nýja útlitið er skalanlegt og verður vefurinn því aðgengilegri í símum og spjaldtölvum en áður. Grunnurinn er sá sami og áður en hresst hefur verið upp á framsetningu á gögnum.
Fjölmiðlar spá Breiðabliki góðu gengi í Bestu deild karla í sumar. Spá þjálfara, fyrirliða og forráðamanna félaga hefur verið kynnt og þar er Blikaliðinu spáð 2. sæti. Áður höfðu Fótbolti.net og 433.is spáðu Blikaliðinu 2. sæti. Íþróttadeildar Vísis og Sýnar spáir Breiðabliki 2. sæti. Stúkan setti Blikliðið í 3. sæti sem ekki var eining um því einn af þremur spámönnum vildi setja Blikana í 1. sæti.
Blikar unnu sannfærandi 1:6 sigur á sameiginlegu liði Kormáks og Hvatar í 32-úrslitum Mjólkurbikarsins í knattspyrnu í gær. Þar sem vellirnir á Hvammstanga og Blönduósi voru ekki tilbúnir svona snemma vors þá fór leikurinn fram á gervigrasvellinum á Sauðárkróki.
Blikar unnu góðan 1:0 sigur á FH í Lengjubikar karla á Kópavogsvelli í gær. Leikurinn var fjörugur og skemmtilegur en gullfallegt mark Viktors Karls Einarsson undir lok leiksins gerði gæfumuninn.
Ungir Blikar lutu í gras 3:0 fyrir Fylki í fyrsta leik Breiðabliks í Lengjubikarnum í ár. Ólafur Ingi og þjálfarateymi hans tefldi fram bráðefnilegu liði gegn fílelfdum Árbæingum.
Sagan 2025 tilbúin. Frá fyrri samantekt er þáttöku í Deildarkeppni Sambandsdeildarinnar lokið, úrslit liggja fyrir í árlegri kosningu á besta, efnilegasta og leikmanni leikmannann, breytingar hafa orðið í þjálfarateyminu og listi yfir 10 mestu lesnu fréttir ársins liggur nú fyrir.
Forsvarsmenn blikar.is senda öllum Blikum og öðrum landsmönnum nær og fjær bestu óskir um farsæld og gleði á nýju ári!
Varnarmaðurinn, tvöfaldi Íslandsmeistarinn og goðsögnin Damir Muminovic hefur ákveðið að elta spennandi tækifæri suður með sjó og reyna fyrir sér hjá vinum okkar í Grindavík.
STUÐNINGSMANNAVEFURINN BLIKAR.IS ÓSKAR ÖLLUM STUÐNINGSMÖNNUM BREIÐABLIKS NÆR OG FJÆR GLEÐILEGRAR JÓLAHÁTÍÐAR.
Arnór Sveinn Aðalsteinsson hefur ákveðið að láta staðar numið, sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla. Arnór Sveinn hefur gegnt starfi aðstoðarþjálfara undanfarið ár og staðið sig með mikilli prýði. Undir hans stjórn ávann liðið sér m.a. þátttökurétt í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar, þar sem liðið stóð sig sem með miklu ágætum.
Stákarnir okkar geta borið höfuðið hátt þrátt fyrir 3:1 tap gegn sterku liði FC Strasbourg í lokaleik Sambandsdeildarinnar í Frakklandi í gær. Þegar upp var staðið þá var tveggja marka sigur Frakkanna staðreynd.
Fjölmiðlar spáðu Breiðabliksliðinu ýmist 1. eða 2. sæti í Bestu deildinni. Sama niðurstaða var í spá þjálfara, fyrirliða og forráðamanna liðanna í Bestu deild karla á kynningarfundi í byrjun apríl. Breiðablik endaði mótið með 42 stig í 4. sæti.
Fréttaritari Breiðabliks með ánægjulegar fréttir frá Frakklandi. Kiddi Jóns framlengir. Kristinn sem er fæddur árið 1990 var einn þessum ungu og efnilegum drengjum sem tók við gunnfánanum í Blikaliðinu árið 2007-2008 þegar efnahagsþrengingar urðu þess valdandi að nánast eingöngu var veðjað á pilta alda upp hjá félaginu.
Sjötti og síðasti leikur Breiðabliks í deildarkeppni Sambandsdeildar UEFA 2025/26 er gegn franska liðinu Strasbourg á þeirra heimavelli, Stade de la Meinau í Strasbourg, næstkomandi fimmtudag kl. 20:00. SÝN Sport sýnir leikinn í beinni. Útsending hefst kl. 19:50.
Er dyrnar að nýju vestari stúku Laugardalsvallar opnuðust sléttum klukkutíma fyrir leik flæddu u.þ.b. 250 hressir, skemmtilegir og umfram allt kurteisir Írskir stuðningsmenn Shamrock Rovers inn.
Fimmti leikur Breiðabliks af sex í deildarkeppni Sambandsdeildar UEFA 2025/26 er gegn Shamrock Rovers frá Írlandi á Laugardalsvelli á fimmtudaginn kl.17:45! Miðasala er á: Stubb.
Andri Rafn Yeoman hefur framlengt samning sinn við Breiðablik. Andri Rafn er, eins og flestum Blikum er kunnugt, leikjahæsti leikmaður í sögu Breiðabliks en leikirnir eru nú orðnir 489 talsins.
Fimmtudagurinn runnin upp og mikil spenna í loftinu hjá fjölskyldunni. Blikar í Evrópu. Blikar í Sambandsdeildinni. Upplifun sem er ekki sjálfgefin og nauðsynlegt að njóta.
Fjórði leikur Breiðabliks af sex í deildarkeppni Sambandsdeildar UEFA 2025 er gegn Samsunspor frá Tyrklandi á Laugardalsvelli á fimmtudaginn kl.20:00! Miðasala er á: Stubb.
Knattspyrnudeild Breiðabliks og Blikaklúbburinn stóðu fyrir opnum fundi með Ólafi Inga Skúlasyni, nýjum þjálfara meistaraflokks karla í Glersalnum í stúkunni á Kópavogsvelli í kvöld.
Blikaliðið varð að sætta sig við 2:0 tap gegn stórliði Shaktar Donetsk frá Úkraínu í Sambandsdeild Evrópu í gær. Leikurinn fór fram á hlutlausum velli í Póllandi vegna stríðsins í Úkraínu.
Þriðji leikur Breiðabliks af sex í deildarkeppni Sambandsdeildar UEFA 2025 er gegn Shakhtar Donetsk frá Úkraínu á Henryk Reyman’s vellinum í Krakow á fimmtudaginn kl.17:45. SÝN Sport Viaplay sýnir leikinn. Útsending hefst kl.17:35!
Langt inní uppbótartíma. Breiðablik vantaði eitt mark til að tryggja sér Evrópusætið. Fyrirliðinn hafði þegar skorað tvö mörk í leiknum. Mikil pressa og vörn Stjörnunnar búin að skjálfa á beinunum um hríð (ekki bara af kulda).
Þann þrítugasta mars árið 2005 sóttu Íslendingar Ítali heim í vináttulandsleik í Padova. Tíðindamaður blikar.is var að sjálfsögðu mættur þarna fyrir tuttugu árum til að fylgjast með hugsanlegum framtíðarþjálfara karlaliðs Breiðbliks.
Hvetjum allt stuðningsfólk Breiðabliks til að fylla stúkuna í Garðabæ og styðja liðið í baráttunni í úrslitaleiknum um Evrópusæti á næsta keppnistímabili. Miðasala á leikinn er á: Stubb. Flautað verður til leiks á Samsungvellinum í Garðabæ á sunnudag kl.14:00!
Annar leikur Breiðabliks af sex í deildarkeppni Sambandsdeildar UEFA 2025 er gegn KuPS Kuopio frá Finnlandi á Laugardalsvelli á fimmtudaginn kl.16:45. Forsala á alla 3 heimaleiki Breiðabliks á Laugardalsvelli er á Stubb. Ath! Forsölunni lýkur í dag, þriðjudaginn 21. október.
Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur gengið frá starfslokum við Halldór Árnason þjálfara meistaraflokks karla.
Árið 1978 gaf bókaútgáfan Iðunn út söguna ,,Þegar vonin ein er eftir“ eftir franska höfundinn Jeanne Cordelie í snilldarþýðingu Sigurðar Pálssonar.
Hvetjum stuðningsfólk Breiðabliks til að fylla stúkuna og styðja liðið í baráttunni um Evrópusæti. Blikasigur í leiknum tryggir okkar mönnum hreinan úrslitaleik um 3. sætið í loka umferðinni sunnudaginn 26. október.
Blikar unnu mjög góðan 3:1 sigur á Fram í úrslitakeppni efri hluta Bestu deildarinnar á Kópavogsvelli í gær. Með þessum sigri settum við góða pressu á liðin fyrir ofan okkur í keppni um Evrópusæti á næsta tímabili.
VARÐARLEIKUR! Frítt er á lekinní í borði Varðar fyrir þá sem mæta í grænu. Annars er miðasala á leikinn á Stubb. Flautað til leiks á Kópavogsvelli kl.19:15 á sunnudaginn.
Enn á ný höfum við hafið leik í lokakeppni Sambandsdeildar Evrópu. Nú er fyrirkomulagið breytt frá því þegar við kepptum seinast á þessu stigi keppninnar árið 2023.
Fyrsti leikur Breiðabliks af sex í deildarkeppni Sambandsdeildar UEFA 2025 er gegn Lausanne-Sport í Lausanne í Sviss á fimmtudaginn kl.16:45! SÝN Sport Viaplay sýnir leikinn. Útsending hefst kl.16:35!
Blikar og FH skildu jöfn 1:1 í efri hluta Bestu deildar á Kaplakrikavelli í dag. Blikaliðið náði sér ekki á strik í þessum leik frekar en flestum leikjum undanfarna tvo mánuði.
Tölfræði liðanna í efstu deild er mjög jöfn. Í 64 leikjum liðanna í A-deild, fyrst 1976, er jafnt á tölum. FH sigar eru 26 gegn 25 sigrum Blika - jafnteflin eru 13.
Það var aðeins á móti landsynningnum sem ég hjólaði vestan af Melum að óðalsbýli Valsmanna á Hlíðarenda síðdegis. Bíllausa deginum var þannig fagnað með umferðina úr miðbænum á vinstri hönd og tilvonandi golfvöll Valsmanna á þá hægri.
Flautað verður til leiks á N1-vellinum á Hlíðarenda á mánudagskvöld kl.19:15! Miðasala er á: Stubbur. Mætum öll í stúkuna á Hlíðarenda og hvetjum okkar menn til sigurs.
„Nú verða léttleikandi Blikar að standa sig. Þú verður að hafa Fram-trefilinn með,“ sagði ónefndur bláklæddur útgáfustjóri með von í brjósti þegar hann kvaddi tíðindamann Blikar.is í lok vinnudags þann 15. september.
20. golfmót knattspyrnudeildar, Breiðablik Open, fór fram á Selsvelli við Flúðir föstudaginn 22. ágúst s.l. Tæplega 90 keppendur tóku þátt og var skv. venju ræst út samtímis á öllum teigum. Ef til er eitthvað sem heitir guðdómlegt golfveður, þá var það þarna og þá.
Leikurinn gegn ÍBV verður spilaður til styrktar Ljóssins en í ár viljum við vekja athygli á starfi ungra karla í Ljósinu. Frítt á völlinn en tekið verður við frjálsum framlögum við inngang. Uppboð á treyjum leikmanna – allur ágóði rennur óskertur til Ljóssins.
Það var á fallegum fimmtudegi sem brunað var upp á Skipaskaga til að horfa á Breiðablik spila við botnlið deildarinnar.
Það er komið að frestaða leiknum gegn ÍA. Flautað verður til leiks ÍA og Breiðabliks upp á Skaga á fimmtudaginn kl.17:00! Miðasala á leikinn er á: Stubb. Mætum í stúkuna á Akranesi og hvetjum okkar menn til sigurs.
Víkingur og Breiðablik gerðu 2:2 jafntefli í háspennuslag í Víkinni í gær. Leikurinn bauð upp á allt það sem hágæðaskemmtun getur boðið upp á. Flotta knattspyrnu, falleg mörk, frábært veður, umdeild atvik og toppmætingu.
Mikilvægasti leikur tímabilsins hingað til skildi fara fram á hinum sögufræga Stadio Olimpico di Serravalle í San Marínó sem var fyrst reistur árið 1969 en mikið endurnýjaður árið 2014. Mótherjarnir voru félagið Virtus sem stofnað var árið 1964.
Skilaboð frá Jöklinum: Sunnudaginn 31. ágúst eru liðnir 91 dagur frá því við mölbrutum Víkinga á Kópavogsvelli og 308 dagar síðan við mættum síðast í Víkina og sóttum þann stóra, sælla minninga.
Síðari umspilsleikur Breiðabliks gegn AC Virtus frá San Marino í Sambandsdeild UEFA 2025/26 fer fram fimmtudaginn 28. ágúst kl.19:00 á San Marino Stadium í Serravalle.
Blikar unnu mikilvægan 2:1 sigur gegn Virtus frá San Marinó í fyrri umspilsleik liðanna um sæti í Sambandsdeild Evrópu í knattspyrnu á Kópavogsvelli í dag.
Það er komið enn einum fimmtudagsleik í Evrópukeppni á Kópavogsvelli. Núna er það umspilsleikur um sæti í deildarkeppni Sambandsdeildar UEFA 2025/26. Andstæðingurinn er AC Virtus frá San Marínó. Flautað verður til leiks klukkan 18:00 á fimmtudaginn. Miðasala á leikinn er á Stubb.
Það er ekki auðvelt að taka stílvopnið sér í hendur eftir 4:5 tap Blika á Kópavogsvelli gegn FH í Bestu deild karla í gærkvöldi.
Það er komið að næsta verkefni þegar frískt lið FH kemur í heimsókn á Kóapvosgvöll í 20. umferð Bestu deildar karla. Flautað verður til leiks á sunnudagskvöld kl.19:15!
Það var mikil spenna í loftinu á stilltu fimmtudagskvöldi þegar liðið Zrinjski frá Mostar, hinni fögru óopinberu höfuðborg Herzegovinu, kom í heimsókn í Kópavoginn.
Knattspyrnudeild Breiðabliks og Halldór Árnason, þjálfari meistaraflokks karla, hafa framlengt samning Halldórs við félagið til ársins 2028. Undir stjórn Halldórs varð liðið Íslandsmeistari 2024. Það er mikil ánægja og gleði með störf hans og þann metnað sem Halldór hefur fyrir meistaraflokki karla og félaginu í heild sinni. Að tryggja áframhaldandi störf hans hjá Breiðabliki er mikilvægur hluti af áframhaldandi framgangi og uppbyggingu Knattspyrnudeildar Breiðabliks.
Evrópukvöld á Kópavogsvelli. Enn einn stórleikur í karlaliðs Breiðabliks í Evrópukeppni UEFA þegar við fáum Zrinjski í heimsókn í síðari umspilsleik liðanna í Evrópudeildinni 2025/26. Flautað verður til leiks kl.17:30. Miðasala á leikinn er á Stubb.
Það vantaði ekki sóllina og blíðuna í stúkunni að Hlíðarenda þegar Blikar mættu heimmönnum í 18.umferð Bestu deildarinnar í gærkveldi. Tæpar 15° í skugganum og sólgleraugun uppi. Notalegt.
Stíf dagskrá hjá Blikaliðinu því að á sunnudaginn er sannkallaður toppslagur við Val á þeirra heimavelli. Valsmenn eru með 34 stig á toppnum - 2 stigum ofar en Breiðablik. Okkar menn þurfa stig á sunnudaginn til að lenda ekki á eftir Hlíðarendaliðinu.
Í gamla íslenska ævintýrinu um Búkollu og strákinn segir frá baráttu sveitapilts og belju við ógurlega tröllskessu. Í einni frægustu setningu sögunnar segir Búkolla við drenginn „Taktu hár úr hala mínum og leggðu það á jörðina“.
Leikurinn við Zrinjski verður 52. viðureign Breiðabliksliðsins í Evrópukeppnum frá fyrsta Evrópuleiknum Fir Park í Skotlandi í júlí 2010. Á þeim þeim 15 árum sem eru liðin hefur Blikaliðið spilað 51 leiki í Evrópukeppnum UEFA við lið frá 27 löndum. Ekkert íslenskt knattspyrnulið hefur spilað jafn marga UEFA leiki og Breiðablik á þessu 15 ára tímabili.
Það voru súrir og svekktir Blikar sem héldu af Kópavogsvelli í gær eftir 1:1 jafntefli gegn baráttuglöðum KA mönnum í gær. Við áttum hins vegar ekki mikið meira skilið en eitt stig í þessum leik því Blikaliðið náði sér ekki á strik í gær.
Keppnisleikir Breiðabliks og KA í öllum mótum eru 56. Liðin hafa mæst þrisvar á þessu ári. Blikar ekki tapað mótsleik gegn KA á Kópavogsvelli síðan í maí 2017.
Blikar urðu að lúta í gras 0:1 gegn sterku meistaraliði Lech Posnan á Kópavogsvelli í gærkvöldi. Spilamennska okkar pilta var góð en heppnina vantaði að þessu sinni til að ná í betri úrslit.
Fjórða viðureign Breiðabliks í undankeppni Meistardeildar UEFA keppnistímabilið 2025/26 er seinni leikurinn gegn pólsku meisturunum Lech Poznan.Flautað verður til leiks á Kópavogsvelli kl.18:30 á miðvikudaginn. Leikurinn við Lech Poznan verður 51. viðureign Breiðabliksliðsins í Evrópukeppnum.
Það var vart óblásinn lúður á suðvesturhorninu í tilefni fyrsta raunverulega heimaleiks KR á tímabilinu. Sjónvarpsfrétt, þjálfaraviðtöl við þá Dóra og Óskar að ógleymdum ofurupphitunarpistli Péturs Ómars á Blikar.is
Breiðabliksliðið er á mjög góðum stað í Bestu deildinni - Blikar eitt þriggja liða með 30 stig á toppi stigatöflunnar. Það eru þrjú stig í boði á nýjum KR velli í Frostaskjólinu á laugardainn. SpáBliki leiksins segir Blika vinna sigur í 9 marka leik.
Á meðal minna kærustu vinnufélaga eru pólskar systur. Sú eldri er í verkeftirliti. Sú yngri byrjaði í skúringum og er núna að læra málmiðn. Hún tekur ekki sumarfrí að ráði með stráknum sínum nú í sumar af því hún þarf að eiga inni daga í vetur til að taka lokapróf á íslensku.
20. Breiðablik Open golfmótið verður haldið föstudaginn 22. ágúst n.k. og hefst kl.11:00. Mótið fer að venju fram á golfvellinum að Efra Seli við Flúðir og má reikna með að uppselt verði í mótið eins og undanfarin ár.
Leikurinn við Lech Poznan verður 50. viðureign Breiðabliksliðsins í Evrópukeppnum frá fyrsta Evrópuleiknum í júlí 2010. Á þeim þeim 15 árum sem eru liðin hefur Blikaliðið spilað 49 leiki í Evrópukeppnum UEFA við lið frá 26 löndum.
Blikar létu sér nægja að skora eitt mark gegn bitlausum Vestramönnum á Kópavogsvelli í gær. Það var Viktor Karl sem setti markið á smekklegan hátt strax á tíundu mínútu leiksins.
Breiðablik - Vestri. Flautað til leiks á Kópavogsvelli á kl.14:00 á laugardaginn. Blikaborgarar á grillinu. Kaffi og góðgæti í Blikasjoppunni. Græna stofan opin.
Blikar unnu frábæran 5:0 sigur á Egnatia frá Albaníu í seinni leik liðanna í forkeppni Meistaradeildar Evrópu á Kópavogsvelli í gær. Blikaliðið var komið upp að vegg eftir eins marks tap í fyrri leik liðanna í Albaníu.
Seinni leikur Blika í einvíginu við FK Egnatia frá Albaníu í undankeppni Meistaradeildar UEFA 2025/26 verður á Kópavogsvelli á þriðjudaginn kl.19.00!
Blikar urðu að sætta sig við það súra epli að tapa 0:1 fyrir Egnatia frá Albaníu í fyrri leik liðanna í undankeppni Evrópukeppni meistaraliða í Albaníu í gær. Tapið var nokkuð svekkjandi því sigurmark Albanana kom í uppbótartíma leiksins.
Fyrsti Evrópuleikur Blika í ár er útileikur gegn Egnatia frá Albaníu í undankeppni Meistaradeildar UEFA keppnistímabilið 2025/26. Flautað verður til leiks á Egnatia Arena í Rrogozhinë á þriðjudaginn kl. 19:00!
Það var sumarkvöld eins og þau gerast best þegar Blikar heimsóttu nýliða Aftureldingar að Varmá í Bestu deildinni. Blikar með góðan sigur á Stjörnunni í síðasta leik en Afturelding laut í gras í Víkinni í hörkuleik þar sem þeir voru síst lakari aðilinn.
Eftir sterkan sigur okkar manna í síðasta leik á erfiðum útivelli gegn Stjörnunni er komið að öðrum erfiðum útivelli. Breiðabliksliðið ferðast upp í Mosfellsbæ til að etja kappi við lið Aftureldinar sem er á mikilli siglingu þessa dagana.
Varnarmaðurinn Daniel Obbekjær hefur fengið félagaskipti yfir í NSÍ Runavík í Færeyjum. Daniel gekk til liðs við Breiðablik í mars á síðasta ári og var hluti af Íslandsmeistaraliði Breiðabliks árið 2024.
Kvöldið var fagurt þegar lið Stjörnunnar og Breiðabliks gengu inn á völlinn í Garðabæ þann 27. júní 2025. Skýjað en bjart, hægur vindur og hiti í þokkalegu meðallagi. Það voru tvö stór skörð höggvin í lið okkar manna, Höskuldur og Tobias báðir í banni, og munar um minna. Mikið var undir því að með sigri kæmist Stjarnan upp fyrir Blika í Bestu deildinni. Blikar myndu aftur á móti senda Víkingum skýr skilaboð með sigri. Jafntefli gerði lítið fyrir liðin.
Kópacabana menn benda á að þetta er eini föstudagsleikurinn hjá okkar mönnum í sumar og því hvetja þeir alla til að leggja leið sína yfir Arnarneshæðina að hvetja strákana og skapa stemningu á Samsung-vellinum sem eingöngu Blikar kunna að gera!
Það var tvöfalt tilefni til að gera sér glaðan dag á Kópavogsvelli mánudaginn 23 júní. Þá voru 50 ár frá því Kópavogsvöllur var tekinn í notkun með frægum 11-0 sigri á Víkingi Ólafsvík 7 júní árið 1975 í næstefstu deild. Mér skilst að það hafi viðrað vel til róðurs þennan dag og því stór hluti Víkingsliðsins verið við veiðar á Breiðafirði.
Breiðablik er í ár að spila sitt tuttugasta tímabil í röð í efstu deild frá því liðið vann sæti þar að nýju með sigri í 1. deildinni 2005. Gengi liðsins í tölum í efstu deild í ár og síðustu 19 ár er mjög góð. Þrisvar hefur liðið unnið Íslandsmeistaratitilinn og strákarnir í Breiðabliki eru ríkjandi meistarar.
,,Við eigum gúmmikurl“ trölluðu kátir Kópakabanaliðar í Vestmannaeyjum í gær þegar Blikaliðið vann góðan 0:2 sigur á liði heimamanna í Bestu deild karla.
Flautað verður til leiks á Þórsvellinum í Vestmannaeyjum kl.16:00 á sunnudaginn. Kópacabana sveitin mætir til Eyja með fulla rútu stuðningsmanna. Upphitunarhittingur er á Tanganum kl.14:00!
Snillingurinn Damir Muminovic hefur skrifað undir samning við Breiðablik og mun því ganga aftur til liðs við Íslandsmeistarana eftir hálfs árs dvöl hjá DPMM FC í Brúnei.
Hálf öld frá fyrsta leik á Kópavogsvelli. Vígsluleikur Kópavogsvallar var fyrir 50 árum, þann 7. júní 1975 kl.14:00, gegn Ólafsvíkur Víkingum í næstefstu deild - sem þá hét 2. deild.
Ánægjuleg tíðindi! Einn okkar ástsælasti og markahæsti leikmaður meistaraflokks karla í efstu deild, Kristinn Steindórsson, hefur ákveðið að framlengja samning sinn við knattspyrnudeild Breiðabliks til loka keppnistímabilsins 2026.
Í kvöld léku Blikar við fjandvini sína úr Smáíbúðahverfinu í 10.umferð Bestu deildarinnar og var það fyrsta viðureign liðanna frá því á október kvöldinu sællar minningar þegar Blikar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn 2024. Sú minning eldist vel.
Stórleikur í Bestu á Kópavogsvelli á sunnudaginn. Breiðablik - Víkingur R. Eftir tvo tapleiki í röð verða okkar menn að gyrða sig í brók og mæta Fossvogspiltum af sömu eða meiri festu en við gerðum í úrslitaleiknum gegn þeim 27. október í fyrra.
Þann 29. maí, á uppstigningardag, heimsóttu Skagamenn Blika á Kópavogsvöll. Hiti ellefu gráður, skýjað með köflum. Viktor Karl leiddi sína menn út á völlinn í fjarveru Höskuldar sem var í banni.
Við fáum Skagamenn í heimsókn á Kópavogsvöll á fimmtudag - Uppstigningardag. Flautað verður til leiks kl.16:15. Miðasala er á: Stubb. Eftir 8 umferðir er Blikaliðið í 3. sæti með 16 - einu stigi frá efsta sæti.
Blikar töpuðu 2:0 fyrir FH í Kaplakrika í gær. Leikurinn var lítið fyrir augað og vilja okkar piltar örugglega gleyma þessum leik sem fyrst.
Fótboltaveisla framundan - þrír leikir á 7 dögum. Blikar mæta í Krikanum á sunnudag kl.19:15! Skagamenn koma í heimsókn á Kópavogsvöll á fimmtudag kl.16:15 og sprækir Reykjavíkur Víkingar mæta á Kópavogsvöll sunnudaginn 1. júní kl.19:15!
Þrátt fyrir að Blikaliðið hafi skriplað á skötu í byrjun leiks tókst liðinu að koma til baka og sigra Valsmenn sanngjarnt 2:1 í Bestu deild karla á Kópavogsvelli í gær.
Heimaleikur í 7. umf Bestu karla á mánudaginn þegar við fáum sprækt lið Vals í heimsókn á Kópavogsvöll. Í 39 viðureignum liðanna í efstu deild á Kópavogsvelli eru Blikar með yfirhöndina.
„Ég er ekki alveg eins brilljant og venjulega,“ á Eggert Stefánsson óperusöngvari að hafa sagt á dánarbeði sínu, þar sem hann lá allt að því „tilbúinn undir tréverk,“ svo gripið sé til orðabókar séra Péturs Þorsteinssonar.
Toppliðin Breiðablik og Vestri mætast í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarkeppni KSÍ á Kópavogsvelli, fimmtudaginn 15. maí kl.19:30! Bæjarins Bestu á svæðinu, Blikasjoppan og Græna stofan opna kl. 18.00! Minnum á að árskort gilda ekki á bikarleiki.
Á fallegum maí sunnudegi skyldi keppt við Knattspyrnufélag Akureyrar. Eftir furðulegheit bráðskemmtilegs síðasta leiks gegn KR yrði fróðlegt að sjá hvort Blikar næðu að skipuleggja sig betur varnarlega í þessum leik.
Annan útileikinn í röð ferðast Blikar með flugi til leiks. Ísafjörður var áfangastaðurinn síðast en núna er það sunnudagsflug til Akureyrar til að etja kappu við KA.
„Þetta verður opinn leikur. Bæði lið munu pressa stíft og við ætlum að vera þroskaðara liðið.“ Þetta sagði Halldór Árnason við okkur stuðningsmenn í Grænu stofunni fyrir leikinn á móti KR. Það gekk aldeilis eftir – að bæði lið pressuðu – og hann hefði alveg getað endað 6-6 eða 8-8.
Tiðindamaður blikar.is hafði samband við Dóra Árna þjálfara og spurði hann um stöðuna fyrir leikinn gegn KR á mánudaginn. "Staðan er góð. Hópurinn heilt yfir í frábæru standi og það styttist með hverjum deginu í örvfættu hersveitina ...
Sóknarmaðurinn Þorleifur Úlfarsson hefur gengið frá samningi við uppeldisfélag sitt, Breiðablik. Þorleifur, sem er 24 ára, á 6 mótsleiki að baki fyrir meistaraflokk Breiðabliks auk 37 mótsleikja sem lánsmaður frá Breiðabliki.
Mikil er gæfa okkar félags að eiga menn eins og Höskuld Gunnlaugsson! Enn einn leikinn stígur hann upp og skorar sigurmark á ögurstundu. Fórnarlambið að þessu sinni var frískt Vestralið sem lét okkur Blika svo sannarlega hafa fyrir hlutunum.
Dagur Örn Fjeldsted hefur verið lánaður til FH. Dagur er fjótur og áræðinn kantmaður sem fær nú spennandi tækifæri til að öðlast enn frekari reynslu með Bestu deildar liði FH.
Tumi Fannar Gunnarsson hefur verið lánaður til Lengjudeildarliðs Fylkis fyrir komandi tímabil.
Okkar menn fljúga vestur á firði um helgina til að etja kappi við topplið Vestra á Kerecisvellinum á Ísafirði. Flautað verður til leiks á kl.14:00 á sunnudag. Leikurinn verður sýndur á BD rás Stöðvar 2.
Ég mætti svo tímanlega í upphitun vel fyrir leik, kannski aðeins of fljótur að kaupa hamborgara, svona af gömlum vana – steikin frá Brasserie Kársnes leit nokkuð vel út og sama gilti um bökurnar frá Arctic Pies. En fínt spjall við Gylfa og fleiri áður en Dóri kom og sagði aðeins frá uppstillingu liðsins.
SpáBliki leiksins gegn Stjörnunni var ein mesta íþróttakona landsins á níunda áratugnum í bæði fótbolta og handbolta. Blikinn var fyrirliði í bæði fótboltalandsliðinu, hjá Breiðablik og handboltalandsliðinu.
Svöl vorgolan blés í bakið á stúkunni við Kópavogsvöll þegar tíðindamaður tyllti sér þar nokkrum mínútum fyrir leik. Hann var fallegur regnboginn sem myndaðist yfir íðilgrænum vellinum í úðanum frá vökvistútnum í þessu glaðasólskini og reyndist fyrirboði þess sem koma skyldi: Breiðabliksmörk í öllum regnbogans litum.
Tumi Fannar Gunnarsson hefur skrifað undir nýjan samning við Breiðablik. Tumi, sem er tvítugur, hefur verið hluti af meistaraflokkshópi Breiðabliks síðan 2022.
Stundvísasti maður Íslands flautaði fyrir utan Digranesheiði 39 kl. 18.27 sunnudaginn 13. apríl. Fimm mínútum fyrir áætlaða brottför. Fyrir vikið gleymdi tíðindamaður Blikar.is að taka með sér ullarteppi í þá langferð sem fyrir höndum var.
Framför. Breiðablik er 2025 að spila sitt 20. tímabil í röð í efstu deild frá því liðið vann sæti þar að nýju með sigri í 1.deildinni 2005. Áður höfðu Blikar lengst leikið 5 ár samfellt í efstu deild 1980 – 1984.
Eins og jafnan áður var tilhlökkun í undirrituðum á leiðinni á völlinn í kvöld á fyrsta alvöru leik ,,sumarsins“. Skrýddur flunkunýrri og fagurgrænni Kyndilbera peysu og tennurnar ný burstaðar.
Afturelding úr Mosfellsbæ er fyrsti andstæðingur okkar á Kópavosgvelli í Bestu deild karla keppnistímabilið 2025 og jafnframt fyrsti leikur Mosfellinga í efstu deild karla í knattspyrnu frá stofnun félagsins árið 1909.
Tvö seigustu lið síðasta tímabils áttust við í Meistarakeppni KSÍ, meisturum meistaranna. Okkar grænu og glöðu Íslandsmeistarar sem seigluðust við toppinn allt mótið í fyrra og kláruðu svo dæmið eftirminnilega af yfirvegun og öryggi í hreinum úrslitaleik í Fossvogsdal.
Í Meistarakeppni KSÍ mætast Íslands- og bikarmeistarar fyrra árs. Ef jafnt verður eftir venjulegan leiktíma er ekki framlengt, heldur farið beint í vítaspyrnukeppni til að ákvarða sigurvegara.
Blikar unnu nauman 2:3 sigur gegn frísku liði Njarðvíkur í Reykjaneshöllinni á fimmtudagskvöldið. Leikurinn var jafn og spennandi en við vorum samt með yfirtökin meirihlutann af leiknum.
Tobias Thomsen hefur skrifað undir samning við Íslandsmeistara Breiðabliks og mun spila með liðinu á komandi leiktíð.
Græna liðið frá Húsavík Völsungur var ekki mikil fyrirstaða fyrir Íslandsmeistaralið Breiðabliks í Lengjubikarnum á Kópavogsvelli í dag.
Blikar unnu mjög góðan 0:5 sigur á KA mönnum í Lengjubikarnum á Akureyri í dag. Aron Bjarna (reyndar skráð sem sjálfsmark KA manna) og Arnór Gauti settu sitt markið hvor í fyrri hálfleik.
Stiklað á stóru í sögu upphafsára meistaraflokka Breiðabliks í knattspyrnu í tilefni 75 ára afmælis félagsins í dag, 12. febrúar 2025.
Blikar urðu að sætta sig við 1:1 jafntefli gegn Fylki í Lengjubikarnum á Kópavogsvelli í dag. Okkar drengir voru sterkari í leiknum en náðu ekki að opna Árbæjarvörnina að neinu viti.
Anton Logi Lúðvíksson er mættur aftur heim til í Kópavoginn eftir dvöl hjá Haugesund í Noregi og hefur leikmaðuinn skrifað undir fjögurra ára samning við Breiðablik.
Nú þegar dag er tekið að lengja og jafnvel farið að hilla í vorið á milli élja er boltinn farinn að rúlla af alvöru, og kannski ekki seinna vænna, því eftir slétta 2 mánuði rúllar Besta deildin af stað á ný. Já, tíminn flýgur.
Eftir 4:2 sigur á Stjörnumönnum í úrslitaleik Þungavigtarbikarsins 2025 er strax komið að fyrsta leik okkar manna í Lengjubikarnum 2025. Þar eiga Íslandsmeistarar Breiðabliks titil að verja.
Blikar unnu góðan 2:4 sigur á Stjörnunni í úrslitaleik Þungavigtarbikarsins í Miðgarði í Garðabænum í kvöld. Leikurinn var markalaus í fyrri hálfleik en allar flóðgáttir opnuðust í þeim síðari.
Blikar unnu ÍA 3:2 í fjörugum og skemmtilegum leik í Þungavigtarbikarnum á Kópavogsvelli í dag.
Ólafur Björnsson hefur komið víða við hjá Blikunum. Hann æfði bæði handknattleik og knattspyrnu hjá félaginu og lék fjölmarga leiki með meistaraflokki í báðum greinum.
Blikar sigruðu Aftureldingu 3:4 í fjörugum leik í hinum svokallaða Þungavigtarbikar í Mosfellsbænum í kvöld.
Andri Rafn Yeoman hefur skrifað undir nýjan samning út árið 2025. Andri Rafn hefur þrisvar orðið Íslandsmestari með Breiðabliksliðinu og einu sinni bikarmeistari. Andri Rafn er lang leikjahæsti leikmaður Breiðabliks frá upphafi með 470 mótsleiki og 22 skoruð mörk.
Forsvarsmenn blikar.is senda öllum Blikum og öðrum landsmönnum nær og fjær bestu óskir um farsæld og gleði á nýju ári!
STUÐNINGSMANNAVEFURINN BLIKAR.IS ÓSKAR ÖLLUM STUÐNINGSMÖNNUM BREIÐABLIKS NÆR OG FJÆR GLEÐILEGRAR JÓLAHÁTÍÐAR
Varnarmaðurinn, tvöfaldi Íslandsmeistarinn og goðsögnin Damir Muminovic hefur ákveðið að elta spennandi tækifæri og reyna fyrir sér í úrvalsdeildinni í Singapúr.
Breiðablik hefur náð samkomulagi við sænska félagið Sirius og Óla Val Ómarsson um að ganga til liðs við Breiðablik. Gerir Óli 4 ára samning við Breiðablik til ársins 2028.
Það er búið að vera partý í stúkunni kæri Oliver. Það hafa komið Íslandsmeistaratitlar, ótal sigrar, magnaðar minningar og sögur sem verða sagðar um ókomin ár. Oliver þú hefur gefið meira en orð fá lýst, allt frá þínum fyrstu árum og til ársins 2024.
Valgeir Valgeirsson skrifar undir við Breiðablik. Það er óhætt að segja að okkur hlakkar til að sjá Valgeir í Blikabúningnum næsta sumar. Valgeir var eftirsóttur af mörgum liðum en valdi Breiðablik, samningur Valgeirs gildir út árið 2028.
Ágúst Orri Þorsteinsson hefur skrifað undir samning við Breiðablik út tímabilið 2028! Hann kemur aftur heim til Breiðabliks frá ítalska liðinu Genoa reynslunni ríkari og tilbúinn í þau spennandi verkefni sem bíða liðsins á næsta tímabili.
Samantekt 2024: Yfirlit - Breytingar á þjálfarateymi - Leikjafjöldi - Mörk - Viðurkenningar - Leikmannasamningar & Félagaskipti - Samantektir & Markasyrpur - SpáBlikar 2024
Íslandsmeistarinn Kristófer Ingi framlengir út árið 2026. Það er óhætt að segja að Kristó hafi verið mikilvægur hlekkur í Íslandsmeistaraliði Breiðabliks, skoraði alls 9 mörk í öllum keppnum sumarið 2024. Alls á Kristófer 38 mótsleiki fyrir Breiðablik.
Benjamin kveðjur Breiðablik sem Íslandsmeistari, var frábær viðbót við hópinn og stóð sig vel í öflugum hópi leikmanna. Skoraði 4 mikilvæg mörk í sumar. Frábær félagi sem lagði sig alltaf.
Patrik Johannesen seldur til KÍ Klaksvik. Patrik kom til Breiðabliks frá Keflavík í nóvember 2022 og varð um liðna helgi Íslandsmeistari með Blæikum.
Okkar maður Alexander Helgi Sigurðarson er genginn til liðs við KR. Lexi skrifaði undir þriggja ára samning við KR. Þessi breyting á högum Alexanders hefur legið fyrir síðan í júlí í sumar.
Loksins fékk stríðsmaðurinn og Íslandsmeistarinn Kristinn Jónsson sigur medalíuna um hálsinn í Blikabúningnum. Ekki nóg með það heldur skrifaði þessi þrefaldi Íslandsmeistari og fyrrverandi bikarmeistari undir eins árs framlengingu á samning við Breiðablik. Hann var einnig kosinn leikmaður leikmanna á lokahófi meistaraflokks karla.
Takk fyrir allt Arnór Sveinn Aðalsteinsson, þú ert einstakur. Um leið og við þökkum fyrir allt sem þú hefur gert þá hlakkar okkur til alls sem þú munt gera fyrir okkur sem þjálfari.
Marvörðurinn og tvöfaldi Íslandsmeistarinn okkar Brynjar Atli Bragason hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Breiðablik. Brynjar, sem er fæddur árið 2000, hefur verið ómetanlegur í verðlauna liði Breiðabliks síðustu ár.
Þegar allt er með felldu hefjast pistlar þessir oftast á almennum dagbókarfærslum um hitastig, skýjahæð og vindafar og jafnvel eitt eða tvö orð um sprengitöflur og gagnsemi þeirra. Og það verður lítil breyting á því nú. Það var nánast logn veðurs, heiðskírt og tekið að rökkva þega undirritaður lagði leið sína í Víkina í gær.
Íslandsmeistaratitill í boði í lokaleik Bestu deildar karla 2024 > Jafnt á öllum tölum í 97 innbyrðisviðureignum liðanna > SpáBliki leiksins er margfaldur Íslandsmeistari frá Keflavík > Mikil dagskrá í Smáranum á sunnudaginn > Liðsmynd 2024 > ...
Við höfum fylgst með mikilli dramatík í íslenskum stjórnmálum undanfarna viku. Allt logar stafna á milli. Innan ríkisstjórnar – sem endaði með stjórnarslitum eftir 7 ára samstarf fór allt á hvolf.
Leikur fjögur í efri hluta Bestu deildar karla á laugardaginn > Vinningshlutfallið gegn Stjörnunni fellur með okkar mönnum > SpáBliki leiksins er Skagfirðingur búsettur í Mosfellsbæ en hefur mjög sterka tengingin við Breiðablik > Dagskrá í samstarfi við Nike > Mætum með læti í stúkuna og hvetjum okkar menn til sigurs!
Arnór Sveinn hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla. Arnór Svein þarf ekki að kynna fyrir Blikum en hann hefur leikið 277 leiki fyrir félagið. Hans fyrsti leikur var árið 2003 og varð hann bikarmeistari með liðinu árið 2009 og Íslandsmeistari 2010.
Eyjólfur Héðinsson, aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla, hefur verið ráðinn sem deildarstjóri meistaraflokka Breiðabliks. Eyjólfur hefur verið hluti af þjálfarateymi meistaraflokks karla frá árinu 2022.
Á leiðinni á Kópavogsvöll sunnudagskvöldið 6. nóvember fann tíðindamaður Blikar.is snjallúrið titra rétt fyrir neðan Digraneskirkju, við lækinn sem kallaður hefur verið ýmsum nöfnum. Skilaboð höfðu borist frá góðum vini úr Garðabæ: „Verði þér að góðu!“ Stjarnan var komin yfir á móti Víkingi sem hentaði Blikum afskaplega vel í toppbaráttunni.
Leikur þrjú í lokaspretti Bestu deildar karla á sunnudaginn > Vinningshlutfallið gegn Val í Kópavogi fellur með okkar mönnum, en við eigum harma að hefna eftir heimaleiknum í sumar > SpáBliki leiksins er alinn upp í Smárahverfinu > Mætum með læti í stúkuna og hvetjum okkar menn til sigurs!
,,Loksins, loksins, loksins..,“ trölluðu stuðningsmenn Blika þegar þeir gengu kampakátir frá Kaplakrika eftir 0:1 sigur á heimamönnum í Bestu deild karla í gær. Ekki að furða því hálf-gerð álög hafa fylgt Blikaliðinu á þessum velli undanfarin ár.
Leikur tvö á lokaspretti Bestu deildar karla á sunnudaginn > Vinningshlutfallið gegn FH í efstu deild hnífjafnt > Blikar eiga harma að hefna í Krikanum > SpáBliki leiksins bjó nokkur ár í Kópavogi en flutti svo upp í Mosó > Mætum með læti í stúkuna í Krikanum og hvetjum okkar menn til sigurs!
Það var bleikur röðull að setjast á vesturloftinu í Kópavogsdalnum í gærkveldi í þann mund að leikur Blika gegn Skagamönnum í 1. umferð úrslitakeppni Bestu deildarinnar hófst.
Lokasprettur hjá strákunum í Bestu deoldinni hefst á mánudaskvöld á Kópavogsvelli > Vinningshlutfallið í efstu deild frá upphafi fellur með Skagamönnum > Blikar með yfirhöndina í síðustu leikjum > SpáBliki leiksins er fæddur í USA en ólst upp í Breiðholtinu > Mætum með læti í stúkuna á Kópavogsvelli og hvetjum okkar menn til sigurs ...
Það var ekki fyrr en það haustaði að sumarið kom. Sól skein í heiði – nema náttúrlega í stúkunni á Kópavogsvelli – það var logn og það var blíða. Kjöraðstæður fyrir grannaslaginn á milli Breiðabliks og HK, síðdegis sunnudaginn 15. september.
Stórleikur á Kópavogsvelli á sunnudaginn > Mikið í húfi fyrir bæði lið > Hnífjöfn tölfræði liðanna > SpáBliki leiksins ólst upp á Kársnesinu > Mætum í stúkuna á Kópavogsvelli og hvetjum okkar menn til sigurs.
Blikar héldu áfram sigurgöngu sinni í Bestu deild karla þegar þeir lögðu KA að velli 2:3 á Greifavellinum á Akureyri í gær. Sigurinn var torsóttur en með mikilli seiglu og krafti náðum við að knýja fram sigur undir lok leiksins, annan leikinn í röð.
Topplið Blika ferðast norður yfir heiðar og mæta frísku liði KA á sunnudaginn > SpáBliki leiksins bjó á Akureyri en flutti suður yfir heiðar > Blikahópurinn > Tölfræðin fellur með okkar mönnum í 28 leikjum í efstu deild
19. golfmót knattspyrnudeildar, Breiðablik Open, fór fram á Selsvelli við Flúðir föstudaginn 23. ágúst s.l. Tæplega 90 keppendur tóku þátt og var skv. venju ræst út samtímis á öllum teigum.
Sól skein í heiði sunnudaginn 25. ágúst á Skipaskaga þegar leikmenn Breiðabliks og ÍA gengu inn á fagurgrænan og skraufþurran völl heimamanna. Samkvæmt vísindalegum mælingum voru tveir metrar á sekúndu og hiti 10,7 gráður þegar flautað var til leiks.
Toppbaráttuleikur á Akranesi - Toppsæti í boði - Vinningshlutfallið í efstu deild frá upphafi fellur með Skagamönnum - Blikar með yfirhöndina í síðustu 5 leikum - Leikmannahópurinn - SpáBliki leiksins er upphaflega úr austurbænum en ....
Þó veðrið sé eitthvað að kólna og það verði heitavatnslaust í Kópavoginum næstu 2 daga þá er að hitna í kolunum í Bestu deildinni.
Varðarleikur > Mætum og sýnum strákunum okkar stuðning þegar Fram mætir á Kópavogsvöll á mánudagskvöld > Tölfræðin síðan 2006 er 7-7-7 > Blikahópurinn 2024 > SpáBliki leiksins er alinn upp í Hlíðunum, mitt á milli Vals og Fram, en búið í 201 Kóp síðastliðin 25 ár ...
Blikar unnu frábæran 0:2 sigur á Valsmönnum á Híðarenda í gær í Bestu deild karla. Þetta var heilsteyptasti leikur liðsins í sumar og var hrein unun að sjá Blikaliðið spila.
Varnarmaðurinn okkar öflugi Damir Muminovic hefur skrifað undir nýjan samning við Breiðablik sem gildir út keppnistímabilið 2025. Damir er 34 ára og hefur spilað 381 mótsleiki og skorað 17 mörk með meistaraflokki Breiðabliks frá því að hann kom til félagsins árið 2014.
Mætum á völlinn og sýnum strákunum okkar stuðning í stórleiknum gegn Val > Tölfræðin fellur nokkuð jöfn > SpáBliki leiksins er alinn upp í Vesturbæ Kópavogs og flutti yfir í Smárann þegar hann fór að byggjast upp.
Okkar strákar urðu að sætta sig við svekkjandi 2:2 jafntefli gegn Stjörnunni á Samsung vellinum í Garðabæ. Við vorum með leikinn í okkar höndum í síðari hálfleik en létum heimapilta jafna leikinn undir lok leiksins.
Mætum á völlinn í Garðabæ og sýnum strákunum okkar stuðning þegar > Tölfræðin fellur með Blikaliðinu > SpáBliki leiksins er alinn í vesturbæ Kópavogs og býr þar enn og hefur aldrei farið yfir brúna.
6. ágúst 2024 átti að vera dagurinn þegar sumarið kæmi í bæinn. Að morgni var blíða og eftir hádegi rjómablíða. Þeir sem létu glepjast af þessu sprelli veðurfræðinga og laumuðust í Leirdalinn síðdegis komust hins vegar að því að æðri máttarvöld höfðu ákveðið að bleyta hressilega í gjörvöllum Kópavogi
Breiðablik og HK hafa komist að samkomulagi um að Dagur Örn leiki með nágrönnum okkar út tímabilið 2024. Dagur hefur leikið alls 19 leiki með meistaraflokki karla og skorað í þeim leikjum 4 mörk.
Mætum og sýnum strákunum okkar stuðning þegar Fylkismenn mæta á Kópavogsvöll á þriðjudagskvöld > Tölfræðin fellur með Blikaliðinu > Blikahópurinn 2024 > SpáBliki leiksins er aldraður bliki gengur og gruflar við getraunaleikinn sinn duflar ...
Alfreð mun bera ábyrgð á knattspyrnulegum málefnum Breiðabliks, móta stefnu um hugmyndafræði félagsins á víðum grunni og bera ábyrgð á faglegu starfi deildarinnar ásamt starfsfólki knattspyrnudeildar.
Blikar héldu galvaskir til Kosovó í seinni leikinn gegn Drita í undankeppni Sambandsdeildarinnar. Eftir neyðarlegt tap í fyrri leiknum á heimavelli var ljóst að það yrði á brattann að sækja fyrir okkar menn.
19. Breiðablik Open golfmót knattspyrnudeildar Breiðabliks verður haldið föstudaginn 23. ágúst n.k. og hefst kl.13:00. Mótið fer að venju fram á golfvellinum að Efra Seli við Flúðir og má reikna með að uppselt verði í mótið eins og undanfarin ár.
Fjórði Evrópuleikur Blika í ár er útileikur gegn FC Drita frá Kósóvó í síðari viðureign liðanna í undankeppni Sambandsdeildar UEFA 2024/25. Flautað verður til leiks á Zahir Pajaziti vellinum í Podujevo á þriðjudag kl.15:00!
Blikar lutu í gras gegn FC Drita 1:2 á heimavelli í fyrri leik liðanna í undankeppni Sambandsdeildar UEFA. Það voru slakar fyrstu 25 mínútur leiksins sem gerðu útslagið.
Þriðji Evrópuleikur Blika í ár er heimaleikur gegn FC Drita frá borginni Gjilan í Kósóvó í fyrri viðureign liðanna í undankeppni Sambandsdeildar UEFA 2024/25. Flautað verður til leiks á Kópavogsvelli á fimmtudaginn kl.19:15!
Breiðablik tók á móti KR í kvöld á Kópavogsvelli. Bæði lið voru í leit að sigri eftir heldur dræma stigasöfnun undanfarið. Blikar ekki unnið í deildinni síðan 20.júní og KR ekki síðan 19. maí.
Mætum og sýnum strákunum okkar stuðning þegar lið KR mætir á Kópavogsvöll á sunnudagskvöld > Tölfræðin fellur með KR > Blikahópurinn 2024 > SpáBliki leiksins er fæddur á fæðingarheimilinu í Reykjavík á lengsta ...
Fréttir úr Smáranum. Davíð Ingavarsson hefur skrifað undir samning við Breiðablik út tímabilið 2026. Þetta eru frábærar fréttir, Davíð er virkilega öflugur leikmaður og styrkir hópinn vel fyrir komandi átök.
Blikar unnu frækinn 3:1 sigur á Tikvesh frá N-Makedóníu í seinni leik liðanna á Kópavogsvelli í gær. Þar með eru Kópavogspiltarnir okkar komnir áfram í undankeppni Sambandsdeildar UEFA og mæta Drita frá Kósóvo í næstu umferð. Fyrri leikurinn fer fram í Kópavogi á fimmtudaginn en útileikurinn viku síðar.
Annar Evrópuleikur Blika í ár er heimaleikur gegn GFK Tikvesh í síðari viðureign liðanna í undankeppni Sambandsdeildar UEFA 2024/25 á Kópavogsvelli á fimmtudaginn kl.19:15!
Eftir lengsta Evrópu ævintýri Íslandssögunnar hjá strákunum í fyrra þá var komið að því að fara aftur af stað, stefnan var tekin á Norður Makedóníu en við könnumst ágætlega við okkur þar.
Fyrsti Evrópuleikur Blika í ár er útileikur í undankeppni Sambandsdeildar UEFA gegn GFK Tikvesh á National Arena Todor Proeski vellinum í N-Makedóníu.
Breiðablik hefur komist að samkomulagið við enska félagið og hefur Jason Daði því spilað sinn síðasta leik í bili fyrir Breiðablik. Hann hefur verið gríðarlega öflugur fyrir okkur Blika.
Blikar urðu að sætta sig við eitt stig i 2:2 jafntefli gegn botnliði Vestra á Ísafirði í gær. Í raun geta Blikar verið þokkalega sáttir við stigið því liðið náði sér enganveginn á strik í leiknum. Fyrir þremur leikjum síðan átti Blikaliðið möguleika að komast á toppinn í Bestu deildinni en síðan hefur liðið ekki unnið leik.
Breiðablik er svo heppið að eiga fjölmarga sjálfboðaliða og fyrirtæki sem eru boðin og búin að aðstoða félagið í smáu og stóru. Dæmi um nýleg velheppnuð sjálfboðaliðsverkefni er pallurinn fyrir utan Grænu stofuna á Kópavogsvelli og hinn nýi og fagurgræni söluskúr sem er kominn á Blikasvæðið.
Komið að leik í 13. umferð Bestu deildarinnar. Okkar menn fljúga til Ísafjarðar til að etja kappi við heimamenn á nýjum heimavelli Vestramanna - flautað verður til leiks á Kerecisvellinum kl.14:00 á laugardaginn.
Frábærar fréttir á föstudegi. Markmaðurinn Anton Ari Einarsson hefur skrifað undir framlengingu á samningi við Knattspyrnudeild Breiðabliks sem tryggir að hann spilar með liðinu út árið 2026.
Blikar lutu í gras 1:0 gegn baráttuglöðum FH-ingum í Hafnarfirði í gærkvöldi. Okkar drengir virkuðu hikandi og óöruggir meirihluta leiksins og voru svo sannarlega ólíkir kraftmiklu Blikaliðinu sem við fengum að kynnast fyrr í sumar.
Mætum í Krikann á föstudagskvöld og sýnum strákunum í Blikaliðinu stuðning > Tölfræðin gegn FH í efstu deild í Krikanum er hnífjöfn > Fyrsti mótsleikur liðanan var 1964 > Blikahópurinn 2024 > SpáBliki leiksins er Blikamamma og amma sem ætlaði aldrei að búa í Kópavogi ...
Blikar byrjuðu leikinn mjög vel og réðu lögum og logum á vellinum í fyrri hálfleik. Stýrðu spilinu gjörsamlega og útlit fyrir að Skagamenn væru komnir til þess að verja það stig sem hafði unnist við upphafsflaut. Blikarnir náðu þó aldrei að brjóta ísinn og allar sóknir enduðu nánast ekki. Það var lítið um afgerandi færi og þau færi sem sköpuðust voru frekar bitlaus.
Mætum á völlinn og sýnum strákunum í Blikaliðinu stuðning þegar frískir Skagamenn mæta á Kópavogsvöll á sunnudagskvöld > KópaCabana Stuðningssveit Breiðabliks mætir > Tölfræðin gegn ÍA frá endurkomu Blikaliðsins upp í efstu deild árið 2006 fellur með Blikum: 13 sigrar, 6 töp og 4 jafntefli í 23 viðureignum > Blikahópurinn 2024 > SpáBliki leiksins er Bliki uppalinn í Vesturbænum í Kópavogi ...
Ánægjuleg tíðindi! Einn okkar ástsælasti og markahæsti leikmaður meistaraflokks karla í efstu deild, Kristinn Steindórsson, hefður ákveðið að framlengja samning sinn við knattspyrnudeild Breiðabliks.
Rúmlega 900 áhorfendur mættu á Kópavogsvöll í gærkvöld og voru flestir þeirra á bandi heimamanna. Veðurguðirnir voru í liði með þeim öllum, hægviðri, hiti í kringum 9 stig og engin rigning, þvert á það sem veðurfræðingar höfðu spáð. Rættist þar hið forkveðna ,,veðurfræðingar ljúga“ eins og Blikinn góðkunni Bogomil Font söng svo eftirminnilega um árið.
Sautján dagar frá síðasta leik okkar manna í Bestu þegar KA mætir á Kópavogsvöll > Tölfræðin gegn KA er Blikum í vil í 51 mótsleikjum > Blikahópurinn 2024 > SpáBliki leiksins er ekki uppalinn Bliki en hefur tengst félaginu síðan 2020
Á morgun, 18. júní klukkan 14:00 (16:00 CET), verður dregið í fyrstu umferð undankeppni Sambandsdeildar UEFA 2024/25. Vegna góðs gengis í Evrópukeppnum síðustu 5 ár er Breiðabliksliðið í efri styrkleikaflokki.
Við Blikar erum þekkt fyrir nærgætni við bæði menn og málleysingja. Það sannaðist enn og aftur í Kórnum í gærkvöldi. Þar létum við tvö mörk nægja gegn vinum okkur í HK þrátt fyrir að eiga miklu oftar möguleika á því að koma knettinum í markið.
Leikurinn er kl.19:15 á sunnudagskvöld > ,,Derby“ slagur af bestu gerð eins og alltaf þegar þessi lið mætast > Tölfræðin: 37. mótsleikur liðanna frá upphafi > Blikahópurinn 2024 > SpáBliki leiksins er fæddur í Bandaríkjunum og er Garðbæingur ...
Einn stærsti leikur sumarsins fór fram á Kópavgosvelli þetta ágæta fimmtudagskvöld er Víkingur Reykjavík kom í heimsókn. Þeir hafa ekki riðið feitum hesti frá Kópavogi og norður til Reykjavíkur síðustu misseri, töpuðu meira að segja gegn HK inn í Kórnum núna í byrjun móts.
Leikurinn er kl.20:15 á fimmtudagskvöld > Enn einn risaleikur okkar manna í Bestu 2024 > Tölfræðin: allt jafnt í 96 mótsleikjum > Mörk í efstu deild 150: Blikar 78 mörk - Víkingar 77 mörk > Blikahópurinn 2024 > SpáBliki leiksins er mikil Blikamamma ...
Það var ágætis knattspyrnuveður í Úlfarsárdalnum sunnudaginn 26. maí þegar Fram tók á móti Breiðabliki í 8. umferð í Bestu deildinni á „Lambhagavellinum“ Aðstæður voru góðar, völlurinn vel bleyttur – smá austanvindur og sól. Hiti 10 stig og áhorfendur 1.247.
Leikur á sunnudaginn við Fram á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal > 73 mótsleikir gegn bláum > Tölfræðin fellur með Blikum síðustu ár > Blikahópurinn 2024 > SpáBliki leiksins er eins gallharður Bliki eins og þeir gerast bestir
Blikar unnu góðan 2:1 sigur á bláklæddum nágrönnum okkar úr Garðabænum í Bestu deild karla í gærkvöldi. Sigurinn var torsóttur en með seiglu og smá heppni náðum við að landa stigunum þremur sem í boði voru.
Garðbæingar mæta á Kópavogsvöll > Tölfræðin er Blikum í vil í 70 mótsleikjum > Markaregn í flestum leikjum > 128 mörk í 39 leikjum í efstu deild > Blikahópurinn 2024 > SpáBliki leiksins kemur frá Siglufirði > Bestu deildar myndirnar ...
Sóknarleikmaðurinn lipri gerir sinn fyrsta samning við Breiðablik. Þorkell Kári er þegar farinn að æfa reglulega með meistaraflokki.
Sunnudagskvöldið 12. maí lögðum við þrír gamlir félagar af stað úr Kópavogi í lautarferð að sjá leik Fylkis og Blika í hinni margrómuðu Bestu deild. Á leiðinni datt upp úr einum (sem nýtur nafnleyndar skv. lögum nr 90/2018 um persónuvernd): „Þið gerið ykkur grein fyrir því að ef við töpum verðum við í neðri helmingi deildarinnar með litla bróður?“
Leikur við Fylkismenn í Árbænum > Uppaldir leikmenn > 65 mótsleikir > Tölfræðin fellur með Blikum > Blikahópurinn 2024 > SpáBlikinn hefur spilað 255 leiki í grænu
Þrátt fyrir að hafa tapað 2:3 fyrir Valsmönnum í Bestu deild karla á Kópavogsvelli í gærkvöldi geta Blikastrákarnir borið höfuðið hátt. Leikurinn hafði allt upp á að bjóða sem prýðir góðan knattspyrnukappleik.
Risaleikur á Kópavogsvelli > CopaCabana boðar mikinn fögnuð > Tölfræðin er með Valsmönnum í 103 mótsleikjum > Markaregn í flestum leikjum > Blikahópurinn 2024 > SpáBliki leiksins er austfirðingur
Sumardagurinn fjórði rann upp fallegur og bjartur, það var búin að vera sól síðan á sumardaginn fyrsta og sumardaginn fjórða var engin breyting. Ég lét kaffivélina mala nokkrar baunir í bollann og rölti út pall í morgunsólinni, leit yfir grasið í garðinum leitandi eftir grænum sprotum og mundi þá að Blikarnir mínir áttu leik fram undan vestur í bæ.
Stórleikur í vesturbæ Reykjavíksur > Fyrsti grasleikur ársins í Bestu 2024 > 102 mótsleikir > Markafæð > Markaregn > Blikahópurinn 2024 > SpáBliki leiksins kemur úr karatedeildinni
Það samræmist ekki góðum bragarhætti að ofstuðla í fyrirsögnum. En 2:1 tapið fyrir Keflavík í bikarnum í gær kallar á sterk viðbrögð.Bæði Halldór þjálfari og Höskuldur fyrirliði viðurkenndu í viðtölum eftir leikinn að frammistaðan í leiknum hefði verið mjög slök.
Keflvíkingar taka á móti okkar mönnum í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarins á gervigrasinu við hliðina á Nettóhöllinni (áður Reykjaneshöllin) í Keflavík á fimmtudagskvöld kl.19:15!
Sunnudagskvöldið 21. apríl sóttu Blikar Íslands- og bikarmeistarana heim í Víkina. Sól skein í heiði og það var vestan gola. Veður var milt og mætti jafnvel kalla þetta drög að vori.
Fyrsti risaleikur okkar manna í Bestu 2024 > Tölfræði: allt jafnt í 95 mótsleikjum > Blikahópurinn 2024 > SpáBliki leiksins er markvörður > Ekki missa af Pigerne (Dollý, Margaretha og Fifi Klein) flytja fyrsta útgefna stuðningslag á Íslandi fyrir knattspyrnulið kvenna.
Dagur Örn framlengir samning sinn við Breiðablik. Dagur er uppalinn Bliki og skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild á dögunum. Lék fyrri hluta síðasta tímabils á láni með Grindavík. Dagur hefur skorað 1 mark í 6 landsleikjum fyrir U19 ára landslið Íslands.
Það er alltaf fiðringur sem fer um okkur stuðningsmenn Breiðabliks þegar Íslandsmótið í knattspyrnu – Besta deildin - fer af stað. Það er kannski óvenju mikil eftirvænting þetta árið fyrir deildinni hér heima og aðsókn að leikjum hefur verið talsvert meiri en undanfarin ár.
Eyþór Aron Wöhler í KR frá Breiðabliki. Hann kom til okkar í október 2022 og hefur spilað 20 leiki fyrir Breiðablik og skorað í þeim 2 mörk. Frábær drengur og við óskum honum alls hins besta hjá KR, takk fyrir okkur Eyþór Aron.
Annar heimaleikur okkar í röð í Bestu 2024 > Gestirnir eru frá Ísafirði > Miðasala er á Stubbur > Tölfræði > Blikahópurinn 2024 > SpáBlikinn er á sínum stað > Dagskráin.
Jæja, þá er veislan hafin og Besta deildin komin í gang. Okkar menn klárir í slaginn eftir stysta undirbúningstímabil í manna minnum. Kunnuglegur og árviss fiðringur lét á sér kræla og greinilegt að undirritaður var ekki einn í þeim báti því hvorki fleiri né færri en 1.823 mættu á þennan fyrsta (heima) leik Breiðabliks.
Fyrsti heimaleikur í Bestu 2024 > Gestirnir eru frá Hafnarfirði > Kvót frá Dóra Árna > Miðasala er á Stubbur > Tölfræði - 59 leikir í efstu deild og allt jafnt > Blikahópurinn 2024 > SpáBliki leiksins á syni í báðum liðum > Dagskráin ...
Frábær tíðindi fyrir stuðningsmenn Breiðavliks. Á Herrakvöldi knattspyrnudeildar Breiðabliks var rétt í þessu verið að tilkynna að Ísak Snær Þorvaldsson mæti aftur í Smárann til að spila aftur í grænu treyjunni. Ísak kemur til okkar á láni frá frá Rosenborg.
Á Herrakvöldi Breiðabliks var rétt í þessu verið að tilkynna að 300 leikja maðurinn okkar og fyrirliði, Höskuldur Gunnlaugsson, hafi skrifaðundir nýjan 4 ára samning í dag. Frábærar fréttir að okkar besti maður og fyrirliði verði áfram í okkar herbúðum næstu fjögur árin.
Tryggið ykkur miða á Blikaleiki sumarið 2024! Fyrsti leikur okkar Blika í Bestu deildinni er á Kópavogsvelli á mánudagskvöldið kl.19.15. Selt verður í númeruð sæti á Kópavogsvelli og taka menn sæti frá um leið og þeir ná í miðann í Stubbnum.
Blikastrákarnir unnu öruggan 4:1 sigur á Skagamönnum í úrslitaleik Lengjubikarsins árið 2024. Þar með tryggðum við okkur þennan titil í þriðja sinn og í fyrsta sinn síðan árið 2015.
Síðasti leikur okkar manna í Lengjubikarnum 2024 er úrslitaleikur mótsins. Flautað verður til leiks gegn ÍA á Kópavogsvelli kl.19:15 á miðvikudaginn. Það ætla auðvitað allir sannir Blikar að mæta! Bikar í boði og veðurspáin er mjög góð.
Blikar náðu 2:2 jafntefli gegn öflugu Bundesliguliði FC Köln frá Þýskalandi í æfingaleik á Spáni í gær. Mörk okkar drengja settu Kristinn Steindórsson í fyrri hálfleik og Norðmaðurinn marksækni Benjamin Stokke jafnaði leikinn í síðari hálfleik með sínu fyrsta marki í græna búningnum.
Í dag er fyrrum leikmaður og formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks, Karl Steingrímsson, borinn til hinstu hvílu. Karl, eða Kalli Steingríms eins og hann var oftast kallaður, gekk til liðs við okkur Blika sem leikmaður árið 1971 frá uppeldisfélaginu sínu KR. Hann lék tólf leiki með okkur næstu þrjú árin. En það var ekki fyrr en tæpum tíu árum síðar sem Karl setti svip sinn á deildina af alvöru þegar hann tók við sem formaður knattspyrnudeildar árið 1982.
Blikaliðið tryggði sér sæti í úrslitaleik Lengjubikarsins með 0:1 sigri á Þórsurum í Boganum á Akureyri. Sigurinn var torsóttur en Aron Bjarnason tryggði okkur sætið dýrmæta með marki í uppbótartíma eftir frábæra sendingu Viktors Karls Einarssonar.
Ásgeir Helgi Orrason er fjölhæfur miðvörður. Hann er rólegur á boltanum og les leikinn vel. Ásgeir hefur reglulega verið valinn í yngri landslið Íslands og hefur spilaði 8 leiki fyrir yngri landslið Íslands.
Næsti leikur okkar manna í Lengjubikarnum 2024 er undanúrslitaleikur gegn Þór. Flautað verður til leiks í Boganum á Akureyri kl.16:30 á fimmtudaginn. Tíðindamaður blikar.is spjallaði við Harald Björnsson markmannsþjálfara meistaraflokks karla.
Breiðablik átti ekki í miklum erfiðleikum með Keflavík í úrslitaleik um sæti í undanúrslitum Lengjubikarsins í knattspyrnu.Strákarnir okkar tóku völdin í leiknum frá fyrstu mínútu og var sigurinn aldrei í hættu.
Fimmti og síðasti leikur okkar manna í riðlakeppni Lengjubikarsins 2024 er heimaleikur gegn Keflvíkingum. Flautað verður til leiks á Kópavogsvelli kl.19:00 á fimmtudaginn. Viðtal við Helga Guðfinnsson stryrktarþjálfara.
Daniel Obbekjær semur við Breiðablik. Danski miðvörðurinn skrifaði undir samning sem gildir út árið 2025. Þessi hávaxni og sterki varnarmaður er fæddur árið 2002 og hefur leikið í Danmörku, Kanada og í Færeyjum
Breiðablik og Vestri gerðu 1:1 jafntefli í Lengjubikarnum á Kópavogsvelli í dag. Vestandrengirnir mættu með hamagangi og látum frá fyrstu mínútu og greinilegt að þetta verður uppleggið hjá þeim í deildinni í sumar.
Norski framherjinn Benjamin Stokke ákvað að semja við Breiðablik í eftir að samningurinn hans við Kristiansund rann út um síðustu áramót. Leikmaðurinn fékk tilboð frá nokkrum erlendum félögum en ákvað að lokum að semja við Breiðablik út árið 2024.
Fjórði mótsleikur okkar manna á árinu er heimaleikur gegn Vestra í Lengjubikarnum 2024. Flautað verður til leiks á Kópavogsvelli kl. 12:00 á sunnudaginn. Viðtal við Eið Eiríksson transition þjálfara meistarflokks.
Blikarstrákarnir unnu öruggan 0:5 sigur gegn Gróttu í Lengjubikarnum á Vivaldivellinum í gærkvöldi. Eins og staðan gefur til kynna þá var sigurinn aldrei í hættu.
Þriðji mótsleikur okkar manna á þessu ári kallar á ferðalag alla leið út á Seltjarnarnes til að mæta liði Gróttu í 3. umferð Lengjubikikarsins 2024. Gróttumenn sitja á botni riðilsins eftir tapleiki gegn Suðurnesja liðunum Grindavík og Keflavík. Flautað verður til leiks á Vivaldivellinum föstudagskvöldið 23. febrúar kl.19:00!
Blikar unnu góðan 4:0 sigur á Grindvíkingum í Lengjubikarnum á Kópavogsvelli í dag. Aron Bjarnason og Dagur Örn Fjeldsted voru í miklum ham í sókninni hjá Blikum og settu báðir tvö mörk í sitt hvorum hálfleiknum.
Annar mótsleikur okkar manna á þessu ári er heimaleikur gegn liði Grindvíkinga í Lengjubikarnum 2024. Flautað verður til leiks á Kópavogsvelli kl.13:00, laugardaginn 17. febrúar.
Blikar urðu að sætta sig 1:3 tap gegn FH í Lengjubikarnum í kaflaskiptum leik. Okkar drengir voru mun betri í fyrri hálfleik og voru með sanngjarna forystu 1:0 þegar liðin gengu til búningsherbergja í leikhléi.
Fyrsti mótsleikur okkar manna er heimaleikur gegn spræku liði FH í Lengjubikarnum 2024. Flautað verður til leiks á Kópavogsvelli kl. 17:30! Leikurinn verður sýndur beinnt á Stöð 2 Sport 5. Útsendingin hefst kl. 17:20.
Öflugur fótbolti og traustur reksturþ. Sveinn Gíslason, fyrrverandi formaður aðalstjórnar Breiðabliks, býður sig fram í stjórn KSÍ sem kosin verður í lok mánaðarins á ársþingi sambandsins.
Þau ánægjulegu tíðindi voru að berast að Arnór Aðalsteinsson hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild Breiðabliks um eitt ár. Þrátt fyrir að vera orðinn 38 ára gamall er Arnór í hörkuformi og er mikilvægur hlekkur í meistaraflokkshópi Breiðabliks.
Knattspyrnukappinn knái, Gísli Eyjólfsson, hefur gert 3 ára samning við sænska úrvalsdeildarliðið Halmstad. Gísli sem verður þrítugur á þessu ári hefur verið algjör lykilmaður í Blikaliðinu undanfarin ár. Halmstad er eitt af þekktari liðum Svíþjóðar. Það hefur fjórum sinnum orðið sænskur meistari, síðast árið 1997, og einu sinni bikarmeistari.
Bakvörðurinn okkar knái Davíð Ingvarsson hefur ákveðið að spreyta sig í atvinnumennsku og hefur skrifað undir samning við danska B-deildarliðið Kolding. Samningur Davíðs við Breiðablik rann út í lok árs 2023 og var vilji hjá leikmanninum að reyna fyrir sér á erlendri grundu.
Danska félagið AB (Akademisk Boldklub) tilkynnti fyrr í dag að okkar maður Ágúst Eðvald Hlynsson væri genginn til liðs við félagið og hafi skrifað undir þriggja ára samning. AB er í dönsku C-deildini og er sem stendur í 6. sæti deildarinnar - en stefnir á sæti í B-deildinni.
Arnór Gauti Jónsson skrifar undir hjá Breiðabliki. Þessi 22 ára gamli leikmaður er mikill fengur fyrir okkur Blika, er miðjumaður en getur leyst aðrar stöður á vellinum. Ásamt því að vera öflugur leikmaður þá er Arnór Gauti virkilega skemmtilegur og lifandi karakter.
Frábær tíðindi úr Smáranum - Aron Bjarnason er mættur aftur í grænu Breiðablisktreyjuna. Aron kemur frá sænska liðinu Sirius og hann hefur skrifað undir samning sem gildir til ársins 2027.
Að vanda stóðu Blikaklúbburinn, meistaraflokksráð kvenna og eldri flokkur Breiðabliks fyrir Gamlársboltamóti laugardaginn 31.12. í Fífunni.
Andri Rafn Yeoman hefur skrifað undir nýjan samning út árið 2025. Það eru mikil gleðitíðindi að Andri Rafn hafi ákveðið að taka annað ár enda gríðarlega mikilvægur Breiðablikliðinu. Hann hefur tvisvar orðið Íslandsmestari með Breiðabliksliðinu og einu sinni bikarmeistari.
Anton Logi Lúðvíksson seldur til FK Haugesund. Þessi ungi og efnilegi leikmaður heldur nú til Noregs og mun þar spila fyrir norska úrvalsdeildarliðið FK Haugesund sem Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfar.
Framundan er nýtt ár með nýjum fyrirheitum, nýjum vonum og það er alltaf pláss fyrir nýtt fólk í sjálfboðastörfin. Árið 2024 er ár drekans í kínversku spekinni og drekar eru mjög oft grænir á litinn. Blikar.is óska lesendum og öllu stuðningsfólki Breiðabliks gleðilegs nýs árs með miklu þakklæti fyrir hið annríka ár 2023.
Það er sko engin tilviljun að jólatréð er grænt í ár. Nú er að baki svakalega langt keppnistímabil þar sem enn á ný reyndi á brautryðjendahlutverk Breiðabliks í íslenskri knattspyrnu. Að komast í gegnum forkeppni og útslátt yfir í riðlakeppni og að klára hana tekur jú tíma. Að taka þátt í Meistaradeild, Evrópudeild og Sambandsdeild á sama árinu kostar þrek. Að keppnisferðast á Balkanskagann, Miðjarðarhafsbotninn og alla leið í Laugardalinn er puð.
Blikar urðu að bíta í það súra epli að tapa 4:0 fyrir Zorya Luhansk í lokaleik riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu í knattspyrnu. Enn og aftur gáfu okkar strákar ódýr mörk í byrjun leik og það kann ekki góðri lukku að stýra.
Næsti Evrópuleikur okkar manna er gegn Zorya Luhansk frá Úkraínu. Leikurinn fer fram í Lublin í Póllandi. Sjötti og síðasti leikurinn í riðlakeppninni - Sextándi Evrópuleikurinn á keppnistímabilinu.
Kristinn á að baki 221 keppnisleiki með Blikaliðinu og hefur skorað 15 mörk fyrir okkur. Hann er 9. leikjahæsti leikmaðurinn í núverandi leikmannahópi Blika. Kristinn hefur spilað 8 A-landsleiki fyrir Íslands hönd og 33 leiki með yngri landsliðum Íslands.
Blikar unnu öruggan 3:1 sigur á Víkingum í úrslitaleik BOSE mótsins í knattspyrnu. Þrátt fyrir að þjálfarateymi Blika hafi gert fimm breytingar frá leiknum gegn Maccabi Tel Aviv þá voru yfirburðir okkar ljósir frá fyrstu mínútu.
Það er við hæfi að næsti leikur, og jafnframt síðasti keppnisleikur Blikaliðsins á Íslandi á þessu ári, sé leikur gegn Reykjavíkur Víkingum í úrslitum BOSE Bikarsins 2023.
Blikar þurftu að bíta í það súra epli að tapa 1:2 fyrir Maccabi TelAviv í síðasta heimaleiknum í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu. Úrslitin voru svekkjandi því Blikaliðið var í raun betra liðið í leiknum.
Næsti Evrópuleikur okkar manna er á Kópavogsvelli. Fimmti leikurinn í riðlakeppninni - Fimmti Evrópuleikurinn á keppnistímabilinu. Fimmtíu Evrópuleikir í sögu meistaraflokka Breiðabliks frá upphafi.
Eftir nokkurt hlé er loksins loksins aftur árgangamót Breiðabliks drengjamegin haldið á ný, en það mun fara fram 9. desember í Fífunni. Nú er loksins hægt að skera úr um hver sé besti árgangur Breiðabliks – eða mögulega hvetja til enn frekari rifrildis milli flokka.
KR-ingar voru ekki mikil fyrirstaða fyrir fríska Blika í BOSE mótinu í gærkvöldi. Lokatölur voru 6:1 fyrir þá grænklæddu og skoruðu bæði Jason Daði og Ágúst Hlyns þrennu í leiknum.
Fyrirkomulag BOSE Bikarsins 2023. Næsti leikur Blikaliðsins í mótinu er á föstudaginn þegar ferskir KR-ingar koma í heimsókn á Kópavogsvöll. Flautað verður til leiks kl.19:00!
Blikar unnu Stjörnuna örugglega 3:0 í fyrsta leiknum á BOSE mótinu. Greinilegt var að annað liðið var góðri leikæfingu en hitt nýbyrjað að æfa eftir frí.
Opnunarleikur mótsins er leikur okkar manna gegn Stjörnumönnum á Kópavogsvelli kl. 12:00 á laugardaginn. Leikurinn um helgina gegn Stjörnunni er kærkomin og nauðsynleg æfing fyrir næstu verkefni okkar manna.
Evrópuævintýri Breiðabliks hélt áfram þann 9. nóvember, dagsetning sem merkir upphafið að endalokum uppstokkunar álfunnar í austan og vestan járntjalds. Í heimsókn komu KAA Gent menn og með þeim heljarinnar gengi af stuðningsmönnum.
Það gladdi Blika í fyrra að lesa frétt um að færeyski framherjinn, fyrirliði og landsliðsmaður Færeyja Klæmint Andrasson Olsen væri búinn að kvitta upp á að spila eitt keppnistímabil með Breiðbliki.
Eiður Benedikt Eiríksson hefur verið ráðinn inn í þjálfarateymi meistaraflokks karla hjá Breiðabliki og hóf hann störf í byrjun þessarar viku.
Næsti Evrópuleikur okkar manna er á Laugardalsvelli. Fjórtándi Evrópuleikurinn á tímabilinu. Evrópusaga meistaraflokka Breiðabliks frá upphafi...
Leikmaðurinn ungi og efnilegi Atli Þór Gunnarsson hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild Breiðabliks út keppnistímabilið 2025. Hlökkum til að sjá þennan öfluga strák vaxa og dafna á komandi árum.
Næsti leikur Blikaliðsins er gegn Gent á Laugardalsvelli fimmtudagskvöldið 9. nóvember kl.20.00. Þar ætla allir sannir Blikar að mæta og styðja okkar drengi til dáða. Við getum lofað að þar verður fjör!
Æfingaleikur við Rangers í Glasgow. Næsti Evrópuleikur í Belgíu á fimmtudaginn. Þrettándi Evrópuleikurinn á keppnistímabilinu.
Samantekt 2023: Evrópukeppnir 2023 - Tölfræði 2023 - Breytingar á þjálfarateymi - Leikjafjöldi - Mörk - Viðurkenningar - Leikmannasamningar & Félagaskipti - Samantektir & Markasyrpur fyrri ára - SpáBlikar 2023
Eyjólfur Héðinsson, hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla. Eyjólfur hefur starfað hjá Breiðabliki síðan 2022 sem þjálfari með sérstaka áherslu á unga leikmenn sem eru að byrja að æfa með meistaraflokki og verið mikilvægur hluti af þjálfarateymi meistaraflokks.
Allt Breiðabliksfólk hefur verið stolt af þessu liði og nú þegar Óskar hverfur til annarra verkefna vill ritstjórn Blikar.is færa honum bestu óskir um velfarnað í starfi og þakkar fyrir vel unnin störf hjá félaginu.
Blikar þurftu að sætta sig 0:2 tap gegn nágrönnum sínum úr Garðabænum á Kópavogsvelli í gær. Leikurinn var í sjálfu sér ekki illa spilaður hjá okkar drengjum en eins og ansi oft í sumar vantaði aðeins meiri gæði upp við mark andstæðinganna.
Halldór Árnason hefur verið ráðinn sem þjálfari meistaraflokk karla hjá Breiðabliki til næstu þriggja ára. Halldór hefur starfað sem aðstoðarþjálfari meistaraflokksins síðan 2019 og verið mikilvægur hluti af teyminu í kringum meistaraflokk karla og þeim árangri sem liðið hefur náð.
Á mánudaginn síðasta óskaði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari meistaraflokks karla hjá Breiðabliki, eftir að láta af störfum um miðjan desember nk. Eftir vandlega íhugun var það mat forsvarsmanna félagsins að hreinlegast væri að ganga frá þessum breytingum strax og lætur því Óskar Hrafn af störfum í dag.
Síðasti leikur okkar manna í Bestu deild karla á þessu ári er gegn spræku liði Stjörnunnar. Flautað verður til leiks á Kópavogsvelli á sunnudaginn.kl.14:00! Miðasala á leikinn er á: Stubbur
Fimmtudagurinn 5. október er stór dagur í íslenskri knattspyrnusögu: fyrsti heimaleikur íslensks karlaliðs í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu. Það sem gerir þetta enn sögulegra er að gestirnir voru FC Zorya Luhansk frá Úkraínu.
Næsti Evrópuleikur okkar manna er á Laugardalsvelli. Tólfti Evrópuleikurinn á keppnistímabilinu. Fyrsti leikur íslensks karlaliðs í riðlakeppni UEFA á Íslandi.
Það voru þrumulostnir áhangendur Blika sem yfirgáfu KR völlinn í gær eftir 4:3 tap fyrir heimamönnum. Það var ekkert sem benti til annars en að Blikaliðið myndi fara sigri hrósandi með þrjú stig í farteskinu heim í Kópavoginn.
Næst síðasti leikur okkar manna í efri hluta úrslitakeppni Bestu deildar karla í ár er gegn KR á þeirra heimavelli í Vesturbæ Reykjavíkur. Við þurfum alvöru mætingu stuðningsmanna í Vesturbæinn á sunnudaginn til að tryggja okkur stigin þrjú í Evrópubaráttunni! Flautað verður til leiks í Frostaskjólinu (nú Meistaravellir) kl.14:00 á sunnudaginn.
Þau ánægjulegu tíðindi voru að berast að miðvörðurinn öflugi, Viktor Örn Margeirsson, hefur skrifað undir nýjan 4 ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks. Samningurinn gildir til ársins 2027 þannig að við Blikar fáum að njóta þjónustu hans í græna búningnum næstu árin.
Ég ætla svo sem ekki að staglast (mikið) á því hvað þetta fyrirkomulag með aukakeppnina fer í taugarnar á mér, það er einfaldlega of mikið af tilgangslausum leikjum og uppsetning keppninnar nokkuð ósanngjörn.
Það er stutt í næsta leik í úrslitakeppninni. Við förum í heimsókn til Valsmanna á fimmtudaginn. Um er að ræða þriðju umferð af fimm í efri hluta úrslitakeppni Bestu deildar karla 2023. Flautað verður verður til leiks á Origo vellinum kl.19:15! Miðasala á Stubbur.
Miðasala mótsmiða á heimaleiki í Europa Conference League hefst klukkan 16:00 fyrir Blikaklúbbinn. Breiðablik spilar sinn fyrsta heimaleik í Sambandsdeildinni á Laugardalsvelli þann 5.október næstkomandi.
Blikaliðiðið mætti með látum gegn nýkrýndum Íslandsmeisturum Víkings á Kópavogsvelli í gær. Úrslitin voru 3:1 þeim grænklæddu í hag. Það má með sanni segja að strákarnir okkar hafi svarað pistlahöfundi frá síðasta leik þegar hann spurði hvar liðið okkar væri!
Eftir hefðbundið 22 leikja mót er komið að öðrum leik Blika í efri hluta úrslitakeppni Bestu deilar karla 2023 þegar Reykjavíkur Víkingar mæta á Kópavogsvöll á mánudaginn. Flautað verður til leiks kl.19:15! Þetta er þriðja heimsókn Fossvogsliðsins til okkar á árinu.
Þrátt fyrir 3:2 tap fyrir Macabi Tel Aviv í fyrsta leik Sambandsdeildar Evrópu í knattspyrnu geta Blikar verið stoltir af frammistöðu sinni. Það blés ekki byrlega því heimapiltar komust í 3:0 en okkar drengir gáfust ekki upp. Tvö mörk frá færeyska töframanninum Klæmint Olsen settu spennu í leikinn.
Næsti Evrópuleikur okkar manna er í Ísrael. Ellefti Evrópuleikurinn á 2023 keppnistímabilinu. Fyrsti leikur íslensks karlaliðs í riðlakeppni UEFA.
Á dögunum færði stjórn UMF Dúdda fyrirliðum meistaraflokka félagsins í knattsspyrnu 2 nuddbyssur að gjöf. Þessi tæki eru að mati sjúkraþjálfara framúrskarandi góð til að meðhöndlunar á verkjum og eymslum í vöðvum.
Það viðraði vel á dýr og menn í dag þegar Blikar og FH mættust í fyrstu umferð úrslitakeppni efri hluta Bestu deildarinnar. Skúraloft en hægur vindur af suðaustri og regnbogar ekki langt undan á austurloftinu. Aðeins 4 stig skildu liðin að fyrir leik.
Staðan í Bestu deildinni fyrir fyrsta leik í efri hluta úrslitakeppni í Bestu. Breiðablik er í þriðja sæti með 38 stig á eftir Valsmönum og þarf sigur gegn FH til að eiga möguleika á að komast upp í annað sætið.
Hvernig væri að skella sér til Belgíu og styðja við bakið á Blikaliðinu? VERDI Travel fer með þig til Ghent dagana 25. - 27. okt 2023.
Núna, næstum áratug síðar hafa aðstæður því miður lítið breyst þrátt fyrir að sá raunveruleiki sem nú blasir við er eitthvað sem menn sáu að gæti verið í kortunum. Við erum enn í of litlum fötum. Breiðablik er eins og fermingardrengur sem vaxinn er upp úr fötunum og lítur í spegil.
18. golfmót knattspyrnudeildar, Breiðablik Open, fór fram á Selsvelli við Flúðir föstudaginn 18. ágúst s.l. Uppselt var í mótið eins og undanfarin ár og var skv. venju ræst út samtímis á öllum teigum. Veður var hið besta þegar blásið var til leiks, hiti um 18°C og skýjað.
Blikaliðið náði sér engan vegin á strik gegn FH á Kópavogsvelli í síðasta leik í hefðbundinni keppni Bestu deildarinnar 2023. Niðurstaðan var 0:2 tap sem var í raun sanngjörn niðurstaða þrátt fyrir að Blikaliðið hafi saumað nokkuð að Fimleikadrengjunum undir lok leiksins.
Eftir stórkostlegt kvöld á Kópavogsvelli í gærkvöld þegar Breiðabliksliðið tryggði sér sæti í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu 2023/2024 er komið að undirbúningi síðasta leiks okkar manna í hefðbundnu 22 leikja móti í Bestu deild karla.
Blikar byrjuðu með boltann og léku honum strax til baka, alla leiða til Antons Ara. Kunnuglegt tilbrigði við stefið ,,höldum boltanum“ o.sv. frv. Og það þurfti ekki að bíða lengi eftir því að Blikar næðu kærkominni forystu. Strax á 3ju mínútu komu Blikar askvaðandi upp hægri vænginn ...
Tíundi Evrópuleikur okkar manna á þessu tímabili er seinni umspilsleikuinn gegn FC Struga frá Norður Makedóníu. Fyrri leiknum lauk með eins marks sigri okkar manna. Sigur eða jafntefli gegn Struga tryggir okkur sæti í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu – fyrst íslenskra liða.
Okkar maður Ágúst Orri Þorsteinsson gekkst í gær undir læknisskoðun hjá Genoa á Ítalíu og skrifaði í framhaldinu undir þriggja ára samning við ítalska félagið Genoa sem kaupir hann frá Breiðabliki. Ágúst Orri er fæddur árið 2005.
Ungt og efnilegt Blikalið varð að sætta sig við 5:3 tap gegn sterku liði Víkinga í Fossvoginum í Bestu deild karla í gærkvöldi.Það verður að hrósa þeim grænklæddu fyrir gríðarlega baráttu og stemmningu en föst leikatriði heimapilta og mistök dómaratríósins urðu Blikaliðinu að falli að þessu sinni.
Ef við skoðum aðeins aðstæðurnar, þá er þetta leikur inni á milli níunda og tíunda Evrópuleikjar okkar manna nú á tímabilinu. Víkingar eru stungnir af í deildinni, eins og við gerðum í fyrra, og eiga almennt hæglátari tíð, nema þegar þeir koma sér í einhver kjánaleg sjálfskaparvíti.
Blikar unnu frábæran 0:1 sigur á FK Struga frá N-Makedóníu í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu í knattspyrnu á útivelli í gær. Það var fyrirliðinn okkar Höskuldur Gunnlaugsson sem tryggði okkur sigurinn með mögnuðu marki í fyrri hálfleik. Sigurinn var nokkuð torsóttur enda vallaraðstæður og veðurskilyrði mjög erfið.
Tveggja leikja umspilseinvígi FC Struga og Breiðabliks hefst á Stadion Biljanini Izvori í Ohrid í Norður Makedóníu fimmtudaginn 24. ágúst. Heimavöllur Struga í Makedóníu Gradska Plaža Stadium er ekki löglegur keppnisvöllur í Evrópukeppnum því er leikurinn spilaður á öðrum velli.
Það voru frábærar aðstæður til að spila fótbolta á Kópavogsvellinum sunnudaginn 20. ágúst þegar Breiðablik tók á móti Keflavík í 19 umferð Bestu deildarinnar 2023. Hitamælirinn sýndi 19 gráður og örlítill andvari úr norðri.
Næsti leikur Blika í Bestu deild karla er við lið Keflvíkinga á sunnudaginn. Flautað verður til leiks á Kópavogsvelli kl.18:00! Miðasala á Stubbur. Stöð 2 Sport sýnir leikinn fyrir þá sem ekki eiga heimangengt.
Blikar unnu flottan 1:0 sigur gegn Zrinjski Mostar frá Bosníu í síðari leik liðanna í undankeppni Evrópudeildarinnar í knattspyrnu. Því miður dugði þessi sigur ekki til að komast áfram í keppninni því Bosníumennirnir unnu öruggan sigur í leik liðanna á heimavelli sínum í síðustu viku.
Þá er komið að 8. Evrópuleik okkar manna á þessu tímabili þegar sprækt liðið Zrinjski (HŠK Zrinjski Mostar) frá Bosníu-Hersegóvínu kemur í heimsókn á Kópavogsvöll. Leikurinn er í 3. umferð undankeppni Evrópudeildar UEFA 2023/24. Almenn miðasala á leikinn hefst á Stubbur klukkan 12:00 í dag, þriðjudag 15. ágúst.
Tíu Blikar létu ekki deigan síga gegn KA á Akureyri í gær. Þrátt fyrir að spila einum færri allan síðari hálfleikinn voru okkar pilta sterkari aðilinn í leiknum. En lukkan var ekki með okkur í liði að þessu sinni og urðum við að sætta okkur við 1:1 jafntefli.
Næsti leikur okkar manna í Bestu deild karla er á sunnudaginn þegar við heimsækjum KA-menn. Flautað verður til leiks á Greifavellinum á Akureyri kl.16:00! Miðasala á Stubbur. Leikurinn verður sýndur á Stöð 2 Sport fyrir þá sem ekki eiga heimangengt.
Þegar maður röltir um miðborg Mostar, svo ekki sé minnst á það þegar farið er í gamla hverfið frá tímum Ottómanveldisins og þaðan yfir brúna frægu fer ekki hjá því að hugurinn leiti aftur til þess tíma þegar Júgóslavía liðaðist í sundur og þjóðir á Balkanskaga háðu hatrammt stríð – Bosníu-stríðið.
Zrinjski og Breiðablik mætast á Gradski vellinum í Mostar 3. umf undankeppni Evrópudeildar UEFA 2023/24, fimmtudaginn 10. ágúst kl.19:00 (GMT) 21:00 (CET). Stefnt er að því að sýna leikinn í Grænu stofunni í stúkunni á Kópavogsvelli. Húsið opnar kl.18.00 en leikurinn sjálfur hefst kl.19.00. Allir Blikar velkomnir!
Ég vil allan daginn og alla daga að liðið mitt spili góðan fótbolta, þó það kosti stöku sinnum að leikir tapist. Ég myndi seint vilja sjá liðið mitt liggja í vörn, dúndra boltanum eitthvað fram og vona það besta. Það skilar stundum árangri en hver nennir að horfa á þannig fótbolta?
Næsti leikur í Bestu deildinni er heimaleikur við KR. Völlurinn opnar kl.13:00, börger á grilli, rjúkandi kaffi og góðmeti í sjoppunni. Flautað verður til leiks á sunnudag kl.14:00! Miðasala á Stubbur.
Kristófer Ingi Kristinsson hefur gert samning við Breiðablik og mun leika með liðinu út árið 2023. Kristófer, fæddur í apríl 1999, kemur til Breiðabliks frá hollenska B-deildarliðinu VVV-Venlo. Leikmaðurinn hélt mjög ungur út í atvinnumennsku eftir að hafa farið upp í gegnum yngri flokka Stjörnunnar.
Það kom flatt upp á okkur tvo þegar við vorum beðnir um rita pistil um leik FCK og Breiðabliks á Parken. Beiðnin kom deginum áður en leikurinn fór fram og því lítill tími til ritæfinga og undirbúnings. Þrátt fyrir að tala gjarnan digurbarkalega og hljóma gáfulega þá höfum við ekki hundsvit á fótbolta og því fannst okkur augljóst að þarna væri verið að falast eftir ferðasögu, en ekki beittri analýsu á leik og taktík liðanna tveggja.
FCK og Breiðablik mætast á Parken í Kaupmannahöfn í 2. umf undankeppni Meistaradeildar UEFA 2023/24, miðvikudaginn 2. ágúst kl.18:00 (GMT) 20:00 (CET). Leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.
Blikar urðu að sætta sig við 1:1 jafntefli gegn Stjörnunni á Kópavogsvelli á laugardagkvöldið. Fyrri hálfleikur var frekar bragðdaufur en seinni hálfleikurinn var eins og besta hasarmynd.
Það er þétt leikjaprógramið hjá karlaliði Breiðabliks þessa dagana. Leikur í undankeppni Meistaradeildarinnar í gær, þriðjudag. Næsti leikur í Bestu deildinni er við Stjörnumenn á laugardagskvöld kl.18:15! Og svo aftur leikur í Meistaradeildinni á miðvikudaginn.
Blikar mættu í kvöld FCK í fyrri viðureign liðanna í undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Það er óhætt að segja að mikil eftirvænting hafi ríkt í aðdraganda þessa leiks enda ekki á hverjum degi sem lið af þessari hlaupvídd kemur í heimsókn í dalinn græna.
Eftir gríðarlega öfluga frammistöðu okkar manna gegn Shamrock Rovers í 1.umf undankeppni Meistaradeildar UEFA er komið að næstu rimmu. Tveir leikir við Danmerkur meistarana F.C. Kaupmannahöfn. Fyrri leikurinn er heimaleikur Blika. Flautað verður til leiks á Kópavogsvelli á þriðjudaginn kl.19:15! Uppselt er á leikinn.
Blikar unnu baráttusigur á Eyjamönnum 3:1 á Kópavogsvelli í Bestu deild karla í kvöld. Sigurinn var nokkuð harðsóttur en góður fyrri hálfleikur tryggði okkur stigin þrjú.
Það er mjög stutt á milli leikja hjá meistarflokki karla. Leikur í Meistaradeildinni á þriðjudaginn var gegn Shamrock Rovers. Leikur við ÍBV á morgun, föstudag kl. 18:00. Og aftur leikur í Meistaradeildinni á þriðjudag gegn F.C. Copenhagen.
Það var sólskin og nokkur vindur þriðjudagskvöldið 18. júlí 2023 og það viðraði vel til knattspyrnuiðkunar. Breiðablik var að fara að spila á Kópavogsvelli.
Eftir 0:1 sigur í öflugri frammistöðu okkar gegn Shamrock Rovers í Dublin í síðustu viku er komið að síðari leik liðanna í 1. umferð undankeppni Meistardeildar Evrópu 2023/24. Nú er síðari viðureignin eftir og Írarnir hyggja á hefndir.
Í dag skein sól, rauluðu leikmenn Breiðabliks fyrir munni sér þegar þeir gengu inn á heimavöll Fram í Úlfarsárdal föstudagskvöldið 14. júlí. Hann hafði hins vegar dregið upp á sig og spurning hvort þetta yrði táknrænt fyrir leik okkar manna eftir frækinn sigur á Shamrock Rovers í Dublin á dögunum.
Eftir mjög árangursríka keppnisferð í Meistaradeildinni til Dublin ferðast Blikar næst upp í Úlfarsárdal og mæta þar liði Fram í 15.umferð Bestu deildar karla.
Þetta var öflug frammistaða hjá Blikum. Margir, og raunar flestir að spila mjög vel, en fyrst og síðast var þetta sigur liðsheildarinnar. Einkum þegar mest á reyndi og liðið átti í vök að verjast í upphafi síðari hálfleiks. Það var vel gert.
Breiðabliksliðið tekur nú þátt í Evrópukeppni fimmta árið í röð. Leikurinn við Shamrock Rovers á þriðjudaginn verður 30. Evrópuleikur Blikaliðsins frá upphafi. Breiðablik hefur tekið þátt í Evrópukeppnum í 9 ár af 13 mögulegum - fyrst 2010.
Blikar unnu öruggan 5:1 sigur á Fylkismönnum á Kópavogsvelli á föstudagskvöldið. Sigurinn var sanngjarn sigurinn er gott veganesti fyrir Írlandsleikinn á þriðjudaginn.
18. Breiðablik Open golfmót knattspyrnudeildar Breiðabliks verður haldið föstudaginn 18. ágúst n.k. og hefst kl.13:00. Mótið fer að venju fram á golfvellinum að Efra Seli við Flúðir og má reikna með að uppselt verði í mótið eins og undanfarin ár.
Leikurinn á föstudag verður 65. mótsleikur liðanna frá upphafi. Blikar hafa yfirhöndina í þessum mótsleikjum með 35 sigra gegn 16 - jafnteflin er 13. Leikir í efstu deild eru 37. Sagan er með Blikum með 19 sigra gegn 10 - jafnteflin eru 8.
Blikar urðu að bíta í það súra epli að detta úr Mjólkurbikarnum í rosalegum knattspyrnuleik gegn KA á Akureyri. Lokatölur urðu 6:4 fyrir heimamenn eftir framlengdan leik og vítaspyrnukeppni.
Eftir tveggja leikja þátttöku okkar manna í forkeppni Meistaradeildarinnar 2023/24 á Kópavogsvelli 27. og 30. júní er komið að næsta verkefni sem er ferðalag norður yfir heiðar til að etja kappi við lið KA-manna í undanúrslitum Mjólkurbikarkeppni KSÍ 2023.
Framherjinn snjalli Stefán Ingi Sigurðarson kvaddi okkur Blika, í bili að minnast kosti, þegar hann lék í Evrópuleiknum gegn Buducnost á Kópavogsvelli á föstudagskvöldið. Leikurinn vannst 5:0 og auðvitað skoraði Stefán Ingi í leiknum.
Blikar mættu í kvöld Buducnost í úrslitaleik forkeppni Meistardeildarinnar sem spilaður var hér á heimaslóð í vikunni sem nú er að líða. Í boði fyrir sigurvegara kvöldsins var þátttaka í undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Andstæðingar kvöldsins unnu öruggan 3-0 sigur á Andorramönnum og Blikar enn öruggari 7-1 sigur á Tre Penne frá San Marinó í undanúrslitum.
Sigurvegarar undanúrslitaleikja forkeppni Meistaradeildar karla á þriðjudaginn var - Budućnost Podgorica og Breiðablik - leika til úrslita í forkeppninni.
Tindaliðið Tre Penne frá San Marinó var ekki mikil fyrirstaða fyrir Blikaliðið í fyrsta leik forkeppni Evrópudeildarinnar í knattspyrnu.
Þegar dregið var í forkeppni Meistaradeildar UEFA 2023/24 kom liðið Tre Penne frá San Marínó upp úr pottinum. Breiðabliksliðið tekur nú þátt í Evrópukeppni fimmta árið í röð. Leikurinn við Tre Penne á Kópavogsvelli á þriðjudaginn verður 28. Evrópuleikur Blikaliðsins frá upphafi.
Föstudagskvöldið 23. júní var heldur lágskýjað yfir Kórnum og það rigndi bæði yfir HK-inga og Blika þegar leið að leik liðanna í Bestu deildinni.
Blikaliðið er í þriðja sæti í töflunni með 23 stig þegar Besta deild karla 2023 er hálfnuð. Okkar menn hafa ekki tapað leik í 2 mánuði (12 leikir: 9 í deild og 2 í bikar) en jafnteflin þrjú í síðustu leikjum höggva í stigasöfnun liðsins í toppbaráttunni.
Blikar urðu að sætta sig við skiptan hlut í 2:2 jafntefli gegn FH á Kaplakrika á laugardaginn. Við byrjuðum af krafti og komust í 0:2. En gáfum svo eftir í síðari hálfleik og gátum verið þokkalega sáttir við þetta eina stig.
SpáBlikinn: "FH- ingar hafa verið að hiksta í vor og ekki alveg sannfærandi á meðan strákarnir okkar eru taplausir í síðustu 8 leikjum í deildinni. Höldum áfram þessari sigurgöngu og í þessum mikilvæga leik trúi ég að okkar menn gefi allt í leikinn og vinni í Kaplakrika."
Blikar unnu harðsóttan 3:1 sigur á FH í Mjólkurbikarnum í gærkvöldi. Leikurinn var mjög kaflaskiptur. Við náðum litlum takti í fyrri hálfleik en komum sterkir til leiks í síðari hálfleikinn og unnum að lokum verðaskuldaðan sigur.
Við fáum Fimleikafélag Hafnarfjarðar í heimsókn í Kópavoginn í 8-liða úrslitum Bikarkeppni KSÍ. Flautað verður til leiks á mánudagskvöld kl. 20:00! Græna stofan verður opin, börger á grilli, rjúkandi kaffi og góðmeti í sjoppunni. Athugið að þetta er bikarleikur þannig að árskort & Blikaklúbbsskírteini gilda ekki á leikinn.
Völlurinn opnaði á slaginu 17:30 föstudaginn 2 júní, Blikar slógu upp veislu. Pöntuðu Fish & chips vagninn frá Grindavík með nýveiddan þorsk. Blikaborgararnir voru komnir snemma á grillið og seldust í bílförmum.
Mikið hefur verið rætt og ritað um erfiðar vallaraðstæður víða í upphafi móts. Breiðabliksliðið byrjaði mótið á heimavelli með tapi gegn HK. Strax í kjölfar þess var ráist í að skipta um yfirborð Kópavogsvallar. Nánar um það > Skyggnst undir yfirborðið.
Blikar urðu að sætta sig við 0:0 jafntefli gegn Keflavík í Bestu deild karla í gærkvöldi. Leikurinn fór fram í roki og rigningu á blautum og þungum grasvelli heimapilta.
SpáBlikinn: "Fyrsti grasleikur Keflavíkur heima og þeir mæta gíraðir eftir gott stig gegn Valsmönnum í síðustu umferð. Við munum hins vegar hafa þetta 1-3 og Kiddi S, Gísli og Stefán Ingi munu skora mörkin."
Blikar mættu Valsmönnum í kvöld í 13.umferð Bestu deildarinnar. Þessi leikur færður til í tímavíddinni vegna komandi leikja i Evrópukeppni.
SpáBliki leiksins er fæddur 1965 þótt það sjáist ekki á honum. Hann flutti í Kópavoginn 16 ára gamall og byrjaði þá að æfa með Breiðabliki í 2. flokki. Leið hans lá síðan til Húsavíkur og kom hann tilbaka til Blikanna á lokaárinu í 2. flokki. Þar gerði hann garðinn frægan ásamt Bonna, Steindóri, Gumma Gumm, Magga Magg, Gunna Gylfa, ofl.
Blikar unnu frábæran 2:0 sigur gegn KA-mönnum á heimavelli í kvöld. Þrátt fyrir að gestirnir hafi pressað nokkuð á okkur í fyrri hálfleik var sigurinn fyllilega sanngjarn.
SpáBlikinn "Sagt er að engin sé spámaður í sínu heimalandi ( hef þess vegna búið mikið erlendis ) en þetta er leikurinn Breiðablik - KA. Sá þætti Baldurs um undirbúnings tímabilið og finnst mikill metnaður hjá báðum liðum, Blikar hafa fram yfir KA að öll aðstaða er mun betri og meistarar síðasta ár, þetta tvennt vegur þungt"
Hvenær ertu á heimavelli og hvenær úti? Hvenær ertu á nýjum heimavelli og hvenær á þeim gamla? Þessar hyldjúpu (en um leið yfirborðskenndu) spurningar sóttu að mér ekki bara eftir sigurinn í níu-marka-heima-leiknum á móti Fram uppi í Árbæ heldur líka ...
Blikar unnu mikilvægan 0:3 sigur gegn 1. deildarliði Þróttar í Mjólkurbikarkeppni karla á hallarflötinni í Laugardalnum í dag. Við erum því komnir áfram í 8-liða úrslit og verður spennandi að sjá á móti hverjum við lendum að þessu sinni.
Við förum í Laugardalinn í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins 2023. Flautað verður til leiks á AVIS vellinum á fimmtudag kl.16:00! Miðasala á Stubbi. Leikurinn verður sýndur í beinni á RÚV fyrir þá sem ekki eiga heimangengt.
Það var stórmannlegt af KR-ingum að kalla gamla leikvanginn sinn „Meistaravelli“ í tilefni af komu Blika laugardaginn 13. maí.
SpáBlikinn segir: Ég er búinn að sjá 4 leiki, það er stígandi hjá liðinu en það á að mínu mati töluvert inni. Liðið hefur alla burði til að vera í toppbaráttu í sumar og markmiðið hlýtur að vera að verja titilinn og taka bikarinn líka. KR-ingar hafa farið illa af stað en við þurfum að passa okkur að vanmeta þá ekki.
Blikar unnu torsóttan en mjög ánægjulegan 1:2 sigur gegn baráttuglöðum Fylkismönnum í Árbænum í gærkvöldi.
SpáBliki 6. umferðar er fæddur árið 1973. Bjó í Víðigrundinni í Snælandshverfinu, þar sem Fossvogsdalurinn var hinn stóri leikvöllur. Byrjaði 6-7 ára að æfa fótbolta með Breiðabliki hjá hinum eina sanna „Sissa“ Lék upp yngri flokka félagsins og lánaðist að spila 270 mótsleiki í meistaraflokki á árunum 1990-2004.
Fótboltinn er skrýtin skepna, það sannaðist enn og aftur í kvöld þegar Blikar sóttu granna okkar í Garðabæ heim í 5 umferð Bestu deildarinnar.
Rafvirkjameistarinn Grétar Kristjánsson er goðsögn í lifanda lífi hjá okkur Breiðabliksmönnum. Ekki er nóg að hann hafi verið einn af snjöllustu leikmönnum félagsins á upphafsárum þess heldur sá hann til þess, ásamt Hildi Jóhannsdóttur konunni sinni, að koma út á knattspyrnuvöllinn þremur úrvalsleikmönnum í meistaraflokki
SpáBliki 5.umferðar kemur af mikilli Breiðabliksfjölskyldu. Hún er Breiðhyltingur að upplagi en byrjaði ung að stunda æfingar hjá Breiðabliki. SpáBlikinn á að baki langan og farsælan feril í grænum treyjum.
Breiðablik og Tumi Fannar Gunnarsson hafa framlengt samning sín í milli til 2025. Tumi sem er fæddur 2005, er leikinn sóknarmaður, sem hefur í vetur æft með meistaraflokki Breiðabliks.
Sól skein í heiði á svölu vorkvöldi þegar lið Blika og Fram gengu inn á óvæntan heimavöll Blika í Árbænum föstudagskvöldið 28. apríl.
Blikar skella sér upp í Árbæ á föstudagskvöld til að spila við Fram. Árskort og Blikaklúbbskort gilda auðvitað enda heimaleikur okkar manna. Allir ná í miðann sinn á Stubb. Flautað verður til leiks föstudaginn 28. apríl á Fylkisvelli í Árbæ kl.20:00!
Ég vissi eiginlega ekki hvernig ég ætti að byrja þessa samantekt ef ég á að vera hreinskilinn. Víti í Vestmannaeyjum, vonbrigði í Vestmannaeyjum, vindur í Vestmannaeyjum eða bara vesen í Vestmannaeyjum.
Þriðji leikur okkar manna í Bestu deild karla 2023 er útileikur gegn Eyjamönnum. Flautað verður til leiks á Hásteinsvelli kl.16:00 sunnudaginn 23. apríl.
Bikarslagur kl.18:00 á miðvikudagskvöld þegar við heimsækjum Fjölnismenn í Egilshöll í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins 2023. Miðasala á Subbur. Liðin hafa aldrei áður keppt innbyrðis í Blikarkeppni KSÍ.
„Vitur maður hefur sagt að næst því að missa móður sína sé fátt hollara úngum börnum en missa föður sinn."
Innbyrðis leikir liðanna í efstu deild, fyrst árið 1971, eru 73. Valsmenn hafa unnið 30 leiki gegn 27 og jafnteflin eru 16. Innbyrðisleikir liðanna eru miklir markaleikir. Samtals skora liðin 223 mörk í þessum 73 leikjum - Valsmenn skora 115 mörk gegn 108 mörkum Blika.
Þá er hún hafin, okkar eigin íslenska Besta deild. Engin deild er eins í heiminum og ég held að engin deild sé jafn heitt elskuð af jafn fáu fólki og Besta deildin.
Breiðabliksliðinu er spáð mikilli velgengni í Bestu deild karla 2023. Allir fjölmiðlar og fyrirliðar, forráðamenn og þjálfarar liðanna í Bestu deild karla spá því að Íslandsmeistarar Breiðabliks verji titil sinn á komandi keppnistímabili.
Tryggðu þér þitt sæti á fjölmennasta heimavelli landsins. Fyrsti heimaleikur karlaliðsins í Bestu deildinni er mánudaginn 10. apríl á móti HK. Þú velur um: Árskort ungir 16-26.ára. Árskort. Stuðningsbliki. Afreksbliki
Íslandsmeistarar Blika og Bikarmeistarar Víkings mættist í kvöld í árlegum leik um Sigurðarbikarinn og nafnbótina Meistarar meistaranna. Sömu lið börðust af sama tilefni í fyrra og þá höfðu Víkingar betur.
Í Meistarakeppni KSÍ mætast alla jafna Íslands- og bikarmeistarar fyrra árs, en sé sama félag í senn Íslandsmeistari og bikarmeistari skulu Íslandsmeistararnir leika gegn liði því sem varð í öðru sæti efstu deildar.
Undanfarna mánuði hefur félagið endurnýjað nokkra samninga og bætt einum nýjum við í hópinn. Við stuðningmenn fögnum því að sjálfsögðu að þessi fyrirtæki sýni félaginu okkar þennan stuðning ár eftir ár. Vel á annan tug fyrirtækja fyllir hóp bakhjarla knattspyrnudeildar Breiðabliks.
Blikar urðu að játa sig sigraða 2:3 í lokaleik riðlakeppni Lengjubikarsins 2023
Blikar lutu í gras 1:2 gegn sænska úrvalsdeildarliðinu Elfsborg í æfingaleik í Portúgal í gær. Þrátt fyrir tapið geta okkar drengir borið höfuðið hátt því leikur liðsins var mjög góður.
Blikaliðið vann góðan og sanngjarnan 2:0 sigur á varaliði úrvalsdeildarliðsins Brentford frá Englandi
Arnar Númi Gíslason hefur verið lánaður úr Breiðabliki í Gróttu fyrir komandi tímabil
Breiðablik og Grótta hafa komist að samkomulagi um að framherjinn stæðilegi Pétur Theodór Árnason muni leika með Gróttu í Lengjudeildinni næsta sumar.
Breiðablik og Grindavík hafa komist að samkomulagi um að miðjumaðurinn efnilegi Tómas Orri Róbertsson muni leika með Grindvíkingum í Lengjudeildinni á komandi tímabili.
Þau ánægjulegu tíðindi voru að berast að einn ástsælasti og markahæsti leikmaður meistaraflokksins, Kristinn Steindórsson, hefður ákveðið að framlengja samning sinn við knattspyrnudeild Breiðabliks til loka keppnistímabilsins 2024.
Framherjinn ungi og efnilegi Stefán Ingi Sigurðarson hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild Breiðabliks út keppnistímabilið 2024.Stefán Ingi er uppalinn Bliki en hefur undanfarin ár dvalið í Bandaríkjunum við nám í Boston College auk þess að spila knattspyrnu fyrir hönd skólans.
Blikar lutu í lægra haldið 2:0 gegn kraftmiklum Leiknismönnum í Breiðholtinu
Blikar unnu öruggan 3:1 sigur á FH í kvöld í Lengjubikarnum.Sigurinn var mjög öruggur og vorum við mun betra liðið allan leikinn. Blikaliðið sýndi gamla Íslandsmeistaratakta í leiknum og lét knöttinn rúlla hratt og örugglega.
Við bjóðum Oliver hjartanlega velkominn, hann er 22 ára gamall og kemur frá Norrköping í Svíþjóð. Hann skrifaði undir við sænska liðið 2019 en hann lék með Skagamönnum á láni síðasta sumar þar sem hann skoraði eitt mark í 23 leikjum í Bestu deildinni.
Blikar unnu Selfyssinga 3:1 í fyrsta leik Lengjubikarsins árið 2023.
Blikar fengu 0:4 skell gegn frískum FH-ingum í úrslitum Þungavigtarbikarsins á Kópavogsvelli.
Undanfarnarið hefur knattspyrnudeildin verið að kynna samninga við þessa fimm ungu og efnilegu leikmenn - framtíðina okkar!
Knattspyrnudeild Breiðabliks leitar nú að öflugum einstaklingi til að verða deildarstjóri afrekssviðs deildarinnar. Hér áður fyrr hét starfið framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar en með auknum umsvifum þá er komin meiri sérhæfing í félagið okkar.
Það var í október 2021 sem að Dagur Dan gekk í raðir Breiðabliks frá Fylki sem hafði haft Dag að láni frá Mjøndalen. Núna 45 leikjum seinna, 11 mörkum, ótal viðurkenningum og ekki síst Íslandsmeistaratitli er Dagur búinn að gera samning við Orlando City Soccer Club í Bandaríkjunum.
Miðjumaðurinn snjalli Benedikt Warén hefur fengið félagaskipti yfir til Vestra á Ísafirði. Benedikt er ekki alveg ókunnugur á þeim slóðum en hann lék þar sem lánsmaður frá okkur Blikum sumarið 2021.
Undanfarnarið hefur knattspyrnudeildin verið að kynna samninga við þessa ungu og efnilega leikmenn - framtíðina okkar:
Blikar lögðu nágranna sína í HK með öruggum hætti 4:1 í öðrum leik í Þungavigtarbikarnum árið 2023. Það voru þeir Tómas Orri Róbertsson og Patrik Johannesson sem tryggðu sigurinn í síðari hálfleik með tveimur mörkum hvor.
Blikar unnu sanngjarnan en hugsanlega of stóran 1:5 sigur á Stjörnunni á ísköldum Samsung vellinum í Garðabænum í gær.
Ágúst Orri Þorsteinsson sem Malmö FF keypti af Breiðablik fyrir ári er búinn að skrifa undir 3ja ára samning við Breiðablik eftir að félagið keypti hann til baka frá Malmö FF fyrir sömu fjárhæð og hann var seldur á.
Það var mikið fjör í Fífunni á Gamlársdag þegar rúmlega sextíu knattspyrnumenn og konur spreyttu sig í þessari skemmtilegustu íþrótt í heimi.
Forsvarsmenn blikar.is senda öllum Blikum og öðrum landsmönnum nær og fjær bestu óskir um farsæld og gleði á nýju ári.
Ágætu Blikar, eftir tvö mögur ár vegna Covid19 þá verður Gamlársboltinn ómissandi á sínum stað í Fífunni á Gamlársdag frá 9.30-11.30
STUÐNINGSMANNAVEFURINN BLIKAR.IS ÓSKAR ÖLLUM BLIKUM NÆR OG FJÆR GLEÐILEGRAR JÓLAHÁTÍÐAR.
Íslensk knattspyrna 2022. Hafinn er sala á bókinni Íslensk Knattspyrna. Kápan er sérgerð fyrir Breiðablik og tilvalin í jólapakkann fyrir alla Blika.
Breiðablik og NSI Runavík hafa gert með sér samkomulag um að færeyski framherjinn Klæmint Andrasson Olsen muni leika með Breiðabliki á komandi keppnistímabili 2023
Blikar töpuðu öðrum leiknum sínum á BOSE mótinu á svipaðan hátt og þeim fyrsta. Eini munurinn var sá að andstæðingarnir núna voru KR-ingar. Gestirnir skoruðu fjögur mörk en við þrjú.
Ágúst Eðvald Hlynsson er kominn heim til Breiðabliks. Breiðablik og danska félagið Horsens komust að samkomulagi um félagaskiptin og kjölfarið skrifaði Ágúst undir þriggja ára samning við Breiðablik.
Eyþór Aron Wöhler setti tvö mörk og opnaði þar með markareikning sinn með Blikaliðinu í 3:2 tapi í BOSE mótinu á frosnum Framvellinum í dag. Bæði lið tefldu fram ungum leikmönnum í leiknum enda liðin nýfarin að æfa á nýjan leik eftir langt keppnistímabil.
Elfar Freyrveður félagið sem Íslandsmeistari og vill félagið þakka honum fyrir frábæra þjónustu undanfarin ár og óskar honum velfarnaðar hjá nýju félagi.
Varnarmaðurinn snjalli Arnór Sveinn Aðalsteinsson er kominn aftur heim í Kópavoginn. Arnór Sveinn sem er fæddur og uppalinn Bliki og á að baki 252 leiki með meistaraflokki Breiðabliks sem hann lék á árunum 2003 til 2016.
Breiðablik og Keflavík hafa gert með sér samkomulagi þess efnis að færeyski landsliðsmaðurinn Patrik Johannesen gangi til liðs við Breiðablik. Í kjölfarið hefur Patrik skrifað undir þriggja ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks.
Eyjólfur Héðinsson hefur verið ráðinn sem afreksþjálfari hjá elstu flokkum karla í Breiðabliki. Hann kemur til með að hafa yfirumsjón með skipulagningu, utanumhaldi og þjálfun einstaklinga í elstu flokkum karla.
Sumarið 2022 sveif Breiðablik líkt og á töfrateppi öðrum liðum ofar í Bestu deild karla, allt frá fyrsta leik til þess síðasta. (Reyndar var Breiðablik líka í fyrsta sæti deildarinnar áður en keppnin byrjaði, en stafrófsröðin réði því.)
Þvílík veisla framan af móti. Við vorum með heitasta lið deildarinnar og heitasta markaskorara deildarinnar. Rétt eins og önnur lið einbeittu sér að því að ná einhverju út úr leikjum gegn Breiðabliki, einbeittu varnarmenn um gervalla Bestu deildina sér að því að stoppa Ísak Snæ.
Breiðablik hefur fengið sóknarmanninn Eyþór Aron Wöhler til liðs við sig og gert við hann 2 ára samning. Eyþór Aron kemur til Breiðabliks frá ÍA, þar sem hann hefur leikið undangengin tvö leiktímabi en samningur hans við ÍA rann út eftir að tímabilinu lauk.
Alex Freyr hefur skrifað undir þriggja ára samning við Breiðablik. Alex Freyr er uppalinn hjá Fram og hefur leikið allan sinn meistaraflokksferil þar. Alex Feyr var einn besti hægri bakvörður deildarinnar á liðnu keppnistímabili og hefur vakið athygli fyrir góðan varnarleik og öflugan sóknarleik.
Tuttugasti og sjöundi og síðasti leikur okkar manna í Bestu karla 2022 > Yfirlit 22 leikja > Úrslitakeppnin > Blikar Íslandsmeistarar með 10 stiga forskot á næsta lið > Fáum Reykjavíkur Víkinga í heimsókn á Kóapvogsvöll > Miðasala á Stubbur > Kópacabana mætir að venju > Sagan: 90 mótsleikir > Blikahópurinn 2022 > Blaz Roca er SpáBliki leiksins > Hátíð í Smáranum á laugardaginn - takið daginn frá > Gefðu kost á þér í blikar.is liðið!
Blikar unnu mjög góðan 2:5 sigur á Valsmönnum á Hlíðarenda í úrslitakeppni Bestu deildar karla í gærkvöldi. Fremstur meðal jafningja var Dagur Dan Þórhallsson sem setti þrennu í leiknum. Þar af tvö mörk úr nánast alveg eins aukaspyrnum.
Tuttugasti og sjötti leikur okkar manna í Bestu karla 2022 > Yfirlit 22 leikja > Úrslitakeppnin er hafin > Blikar Íslandsmeistarar með 10 stiga forskot á næstu lið > Heimsækjum Val á Origo-völlinn > 100. mótsleikur liðanna > Miðasala á Stubbur > Kópacabana mætir að venju > Sagan: 99 mótsleikir > Blikahópurinn 2022 > SpáBliki leiksins er Arnar Ingi Ingason > Dagskrá > Gefðu kost á þér í blikar.is liðið!
Huldunælan er viðurkenning sem Blikar.is - stuðningasmannavefur meistarflokka Breiðabliks í knattspyrnu og Blikaklúbburinn standa sameiginlega að og veita árlega þegar líður að lokum keppnistímabilsinsins í knattspyrnu.
Það var blásið til sannkallaðrar sigurhátíðar á Kópavogsvelli í kvöld. „Blásið“ er lykilorð í þessu samhengi. Norðanáttin var býsna hvöss, það var hrollkalt í stúkunni og aðstæður til knattspyrnuiðkunar vondar. Engu að síður var fjöldi gesta mættur í báðar stúkur og allar brekkur fullar.
Tuttugasti og fimmti leikur okkar manna í Bestu karla 2022 er Varðarleikur > Yfirlit 22 leikja > Úrslitakeppnin er hafin > Blikar Íslandsmeistarar með 11 stiga forskot á næstu lið > Fáum KR í heimsókn á Kópavogsvöll > Miðasala á Stubbur > Kópacabana blæs til veislu > Sagan: 72 mótsleikir > Blikahópurinn 2022 > SpáBliki leiksins er Herra Hnetusmör > Dagskráin fyrir leik > Gefðu kost á þér í blikar.is liðið!
Breiðablik tryggði sér í gær Íslandsmeistaratitilinn í Bestu deild karla þegar Stjarnan gerði sér lítið fyrir og lagði Víkinga að velli 2:1 í Garðabænum.Þar með var ljóst að ekkert lið gæti náð Blikum að stigum þrátt fyrir að þrjár umferðir séu eftir af úrslitakeppninni
Blikar unnu sannkallaðan karaktersigur á KA mönnum á Akureyri í dag. Blikar tóku forystuna mjög sanngjarnt í fyrri hálfleikleik með snilldarmarki frá Kristni Steindórssyni. Við stýrðum síðan leiknum í síðari hálfleik en undir lok leiksins tók dómari leiksins þá furðuákvörðun að dæma víti á okkur.
Tuttugasti og fjórði leikur okkar manna í Bestu karla 2022 > Yfirlit 22 leikja > Úrslitakeppnin hafin > Blikar eru með 8 stiga forskot á næstu lið > Heimsækjum KA menn til Akureyrar > Miðasala á Stubbur > Sagan: 47 mótsleikir > Blikahópurinn 2022 > Árni Páll Árnason er SpáBliki leiksins > Dagskráin fyrir leik > Gefðu kost á þér í blikar.is liðið!
Breiðablik og norska stórliðið Rosenborg hafa komist að samkomulagi um félagaskipti Ísaks Snæs Þorvaldssonar frá Breiðablik til Rosenborg. Blikinn Ísak Snær Þorvaldsson gengur til liðs við norska stórliðið Rosenborg 1. janúar 2023.
Leikurinn hófst með miklum látum. Gestirnir tóku öll völd á vellinum í um það bil 30 sekúndur og sköpuðu mikla hættu við mark Blika, hefur tíðindamðurinn punktað hjá sér þegar tvær og hálf mínúta stóðu á klukkunni. Má segja að þar með hafi sóknarmenn Stjörnunnar lokið leik á Kópavogsvelli í kvöld og er sjálfsagt að þakka þeim fyrir komuna.
Leikurinn gegn Stjörnunni í hinni nýju úrslitakeppni Bestu deildarinnar var leikur Andra Rafns númer 400 í grænu treyjunni. Þessi leikjafjöldi kemur Andra Rafni í afar fámenna sveit fótboltaspilara á Íslandi. Fyrir utan okkar mann eru þeir eru ekki nema þrír, að okkur telst til, sem hafa afrekað að spila 400 leiki fyrir eitt og sama félagið.
Tuttugasti og þriðji leikur okkar manna í Bestu karla 2022 > Venjulegu móti lokið > Úrslitakeppnin að hefjast > Blikar eru með 8 stiga forskot á toppnum > Stjörnumenn koma í heimsókn á Kópavogsvöll > Miðasala á Stubbur > Sagan: 66 mótsleikir > Blikahópurinn 2022 > Hildur Einarsdóttir er SpáBliki leiksins > Dagskráin fyrir leik > Gefðu kost á þér í blikar.is liðið!
Í dag spilar ungmennalandslið okkar U-21 árs í knattspyrnu mjög mikilvægan umspilsleik við Tékka um laust sæti í úrslitakeppni EM. Þetta er fyrri leikur liðanna en sá seinni verður í Tékklandi í næstu viku. Það skiptir því miklu máli að ná í góð úrslit hér heima.
Knattspyrnumaðurinn fjölhæfi, og fyrirliðinn okkar, Höskuldur Gunnlaugsson hefur verið valinn í íslenska landsliðið sem mætir Venesúela í vináttuleik á fimmtudaginn og Albaníu á þriðjudaginn í næstu viku. Höskuldur er eini leikmaður landsliðsins sem spilar á Íslandi og er þetta mikil viðurkenning fyrir Höskuld sem hefur átt frábært tímabil með Blikaliðinu í sumar.
Þessi sigur þýðir að Breiðablik jók forystu sína á toppnum um 2 stig þar sem önnur lið náðu ekki að sigra sína leiki. Þetta var góður dagur. Fram undan eru 5 úrslitaleikir í október og forystan er 8 stig!
Tuttugasti og annar leikur okkar manna í Bestu deild karla 2022 > Blikar með 6 stiga forskot á toppnum > Fáum Eyjamenn í heimsókn > Miðasala á Stubbur > Sagan: 100. mótsleikur liðanna > Gamli leikurinn: Breiðablik - ÍBV 1980 > Blikahópurinn 2022 > Willum Þór er SpáBliki leiksins > Dagskrá fyrir leik > Gefðu kost á þér í blikar.is liðið!
Við erum enn með 6 stiga forskot fyrir síðasta leik í hefðbundinni deildarkeppni sem verður gegn ÍBV á Kópavogsvelli næsta laugardag. Þar verða strákarnir okkar mættir í hefndarhug. Og ef áhorfendur fjölmenna þá mun knötturinn svo sannarlega fara í stöngina og inn!
Tuttugasti og fyrsti leikur okkar manna í Bestu deild karla 2022 > Blikar með 9 stiga forskot á toppnum > Heimsækjum KA á nýjan heimavöll á Akureyri > Miðasala á Stubbur > Sagan: 46 mótsleikir > Gamli leikurinn KA - Breiðablik 2017 > Blikahópurinn 2022 > Hannes Friðbjarnarson er SpáBliki leiksins > Dagskráin fyrir leik > Gefðu kost á þér í blikar.is liðið!
Það eru 2 leikir eftir, aðrir en Blikar eru með allskonar fullyrðingar um hvað það þýðir ef að að liðið missir niður núverandi forystu eða ef að liðið tapar stigum eða næsta leik. Liðið og þjálfarinn virðast ekki vera að láta þessa froðu á sig fá og taka bara einn leik í einu.
Tuttugasti leikur okkar manna í Bestu deild karla 2022 > Blikar með 9 stiga forskot á toppnum > Fáum Valsmenn í heimsókn á Kópavogsvöll > Miðasala á Stubbur > Sagan: 98 mótsleikir > Gamli leikurinn Breiðablik - Valur 2010 > Blikahópurinn 2022 > Helgi Seljan er SpáBliki leiksins > Dagskráin fyrir leik > Gefðu kost á þér í blikar.is liðið!
17. golfmót knattspyrnudeildar, Breiðablik Open, fór fram á Selsvelli við Flúðir föstudaginn 12. ágúst s.l. Uppselt var í mótið eins og undanfarin ár og var ræst út á öllum teigum.
Það er þó algerlega óboðlegt að mæta svona ótrúlega soft til leiks. 2-0 undir eftir sjö mínútna leik á heimavelli er eitthvað sem við höfum ekki séð í ótrúlega langan tíma og viljum ekki sjá aftur í mjög langan tíma.
Þá er komið að einum mikilvægasta leik okkar manna í sumar - undanúrslitaleikur í Mjólkurbikarnum gegn Reykjavíkur Víkingum á Kópavogsvelli á miðvikudaginn kl.19:45! Hvort liðið kemst áfram í úrslit? Þetta verður frábær skemmtun, mætum á völlinn og styðjum Blikana okkar til sigurs.
En að leiknum. Viktor og Viktor voru í leikbanni, Andri Rafn, sem verið hefur mjög öflugur í síðustu leikjum var í bakverðinum og Höskuldur færður yfir á miðjuna. Blikar byrjuðu vel, ég bjóst við marki hvað úr hverju fyrsta korterið, Gísli með frábært skot í slá og (að ég er viss um) inn.. en ekki dæmt mark.
Nítjándi leikur okkar manna í Bestu deild karla 2022 > Blikar með 6 stiga forskot á toppnum > Fáum Leiknismenn í heimsókn á Kópavogsvöll > Miðasala á Stubbur > Sagan: 13 mótsleikir > Blikahópurinn 2022 > Jón Orri Guðmundsson er SpáBliki leiksins > Dagskráin fyrir leik > Gefðu kost á þér í blikar.is liðið!
Það var fallegt ágústkvöld í Úlfarsárdalnum. Það er virkilega mikil fegurð í þessu umhverfi sem áður fyrr var nánast í óbyggðum. Hinn stórglæsilegi nýi heimavöllur Fram er mannvirki sem Framarar eru – og eiga að vera – stoltir af.
Átjándi leikur okkar manna í Bestu karla 2022 > Blikar með 6 stiga forskot á toppnum > Fyrsta heimsókn okkar til Fram í Úlfarsárdal > Miðasala á Stubbur > Sagan: 70 mótsleikir frá 1961 > Gamli leikurinn: Fram – Breiðablik 1977 > Blikahópurinn 2022 > Ólafur Kristjánsson er SpáBliki leiksins > Dagskrá fyrir leik > Gefðu kost á þér í blikar.is liðið!
Þrátt fyrir að vera í sitthvorri deildinni þá átti það sér stað að HK og Breiðablik mættust, þökk sé Mjólkurbikarnum en 8 liða úrslitin kláruðust í kvöld. Síðast þegar að þessi lið mættust þá var það á Kópavogsvelli þegar að Blikar sendu HK niður í 1 deildina.
Kópavogsslagur í Kórnum kl. 20:00 á föstudagskvöld þegar við heimsækjum frændur okkar í efri byggðum Kópavogs í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins 2022. Þetta verður ,,Derby“ slagur af bestu gerð eins og alltaf þegar þessi lið mætast. Það má búast við hörkuleik. Síðasti stórslagur liðanna í Kórnum var sigurleikur okkar manna í Pepsi Max deildinni í júní í fyrra.
Mánudagskvöldið 15. ágúst. Stórleikur Íslandsmótsins í Smáranum. Víkingar í heimsókn, átta stigum á eftir Blikum á toppnum en með leik inni. Allt undir. Ekki einungis baráttan um Fossvogslækinn. Sérfræðingar sögðu að færu Blikar með sigur af hólmi væri mótið búið.
Sautjándi leikur okkar manna í Bestu karla 2022 > Blikar með 8 stiga forskot á toppnum > Fáum Reykjavíkur Víkinga í heimsókn á Kópavogsvöll > Miðasala á Stubbur > Sagan: 88 mótsleikir > Gamli leikurinn: Breiðblik - Víkingur 1976 > Blikahópurinn 2022 > Sverrir D. Hauksson er SpáBliki leiksins > Dagskráin fyrir leik > Gefðu kost á þér í blikar.is liðið!
Ísak var meiddur og ferðaðist ekki með, Mikkel, Omar, Andri Rafn og Dagur Dan komu inn. En leikurinn byrjaði svo sem ekki illa og liðið hélt boltanum ágætlega og vann strax aftur ef hann tapaðist.
Þrátt fyrir einn besta leik sem tíðindamaður blikar.is hefur séð til Breiðabliks á Kópvogsvelli eru okkar menn 1:3 undir í rimmunni við Istanbul Basaksehir í Sambandsdeild Evrópu.
Með seiglu tókst þó að brjótast út úr því og ná öllum tökum á leiknum án þess þó að við virtumst vera með það alveg á hreinu hvernig við ætluðum að skora. Það var umsátur um mark Stjörnumanna, eins og um Tróju forðum, en rétt eins og þá var erfitt að komast í gegnum múrinn og ég sá nú alveg fyrir mér að við færum að fylla tréhross af Breiðabliksmönnum og smeygja þarna inn fyrir til að koma á þá marki.
Sextándi leikur okkar manna í Bestu karla 2022 > Blikar eru á toppnum > Heimsækjum Stjörnumenn í Garðabæinn > Miðasala á Stubbur > Sagan: 65 mótsleikir > Gamli leikurinn: Stjarnan - Breiðablik 1994 > Blikahópurinn 2022 > Sveinbjörn Strandberg er SpáBliki leiksins > Dagskráin fyrir leik > Gefðu kost á þér í blikar.is liðið!
Hafa verður í huga að þetta tyrkneska lið er stórveldi. Það er í 65. sæti yfir sterkustu lið í Evrópu en til samanburðar er Breiðablik í 285. sæti. Blikastrákarnir eiga hrós skilið fyrir þennan leik í gær. Leikmennirnir lögðu líf og sál í leikinn og hlupu gríðarlega allan leikinn.
Eftir samanlagðan 3:2 sigur á FK Buducnost Podgorica í 2. umferð Sambandsdeildarinnar eru Blikamenn komnir áfram í 3. umferð keppninnar. Hið fyrnasterka lið Istanbul Basaksehir frá Tyrklandi er næsti andstæðingur okkar manna í 3. umferð undankeppni Sambandsdeildar UEFA 2022/2023.
Sumarið 2022 skartaði sínu skásta á mánudagskvöldið 1. ágúst að lokinni verslunarmannahelgi. Norðan garri, sól með köflum og hitinn sló í 10 stig eða svo þegar lið Breiðabliks og ÍA gengu inn á Kópavogsvöll. Og ekki farið að gjósa á ný á Reykjanesskaga.
Fimmtándi leikur okkar manna í Bestu karla 2022 > Blikar á toppnum > Fáum Skagamenn í heimsókn á Kópavogsvöll > Miðasala á Stubbur > Sagan: 123 mótsleikir > Gamli leikurinn: Breiðablik - ÍA 1972 > Blikahópurinn 2022 > SpáBliki leiksins er Kristrún Lilja Daðadóttir > Dagskráin fyrir leik > Gefðu kost á þér í blikar.is liðið!
Þrátt fyrir að tapa 2:1 fyrir Buducnost í seinni leik liðanna í forkeppni Sambandsdeildar í Evrópu eru strákarnir okkar komnir áfram í keppninni. Mörkin tvö sem við settum á Svartfellinga undir lok leiksins í Kópavogi voru svo sannarlega að skila sér.
Blikamenn ferðast til Svartfjallalands til að etja kappi við FK Buducnost Podgorica á þeirra heimavelli, Gradski Stadion, í Podgorica á fimmtudag í seinn leik liðanna í 2. umferð undankeppni Sambandsdeildar UEFA 2022/2023. Þetta verður krefjandi verkefni en við höfum trú á að okkar menn klári verkefnið og láti ekki hótanir og djöfulgang Buducnost manna slá sig útaf laginu.
Það var fátt tíðinda í þessum leik fyrr en á 9. mínútu þegar laus bolti lak í átt að hliðarlínunn vinstra megin hjá Blikum, Davíð Ingvars ákvað að henda sér í tæklingu við FH-ing sem kom aðvífandi og þó Davíð ynni boltann varð úr þessu hvellur sem lauk með því að Davíð fékk að sjá rauða spjaldið hjá slökum dómara þessa leiks eftir að sá hafði ráðfært sig við aðstoðardómarann sem var nær meintu broti.
Fjórtánda umferð í Bestu karla 2022 > Blikar með 6 stiga forskot á toppnum > Förum í Krikann > Miðasala á Stubbur > Sagan: 117 mótsleikir > Gamli leikurinn: FH - Breiðablik 1995 > Blikahópurinn 2022 > Ásthildur Helgadóttir er SpáBliki leiksins > Dagskráin > Gefðu kost á þér í blikar.is liðið!
Okkar menn fóru vel af stað. Fundu betri stöður til að gefa fyrir úr en eins og fyrri hálfleiknum vantaði annað hvort ákafa inn í teiginn eða gæði í að tía upp fyrir skot eða skalla úr teignum eða rétt utan hans – eða hvort tveggja.
Blikamenn taka á móti FK Buducnost á Kópavogsvelli á fimmtudaginn í fyrri leik liðanna í 2. umferð undankeppni Sambandsdeildar UEFA 2022/2023. Flautað verður til leiks kl.19:15! Miðasala á Stubbur. Bæði almennir miðar og Betri stúka til sölu. Græna stofan opnar 18:15, börger á grilli, rjúkandi kaffi og góðmeti í sjoppunni.
Blikar unnu 2:3 karaktersigur á kraftmiklum Keflavíkingum í Bestu deild karla í gærkvöldi. Þeir grænklæddu tryggðu sér sigurinnn með tveimur mörkum frá fyrirliðanum Höskuldi Gunnlaugssyni á síðustu tíu mínútum leiksins. Þar með hefndum við fyrir tvö töp á þessum velli í fyrra og getum horft björtum augum til framtíðarleikja suður með sjó.
Uppselt er í sautjánda opna golfmót knattspyrnudeildar Breiðabliks sem verður haldið föstudaginn 12. ágúst og hefst kl.13:00. Mótið fer að venju fram á golfvellinum að Efra Seli við Flúðir.
Þrettándi leikur okkar manna í Bestu deild karla 2022 > Blikar með 6 stiga forskot á toppnum > Förum suður með sjó > Miðasala á Stubbur > Sagan: 128 mótsleikir > Gamli leikurinn: Keflavík - Breiðablik 1972 > Blikahópurinn 2022 > Lísa Kristín er SpáBliki leiksins > Dagskráin fyrir leik > Gefðu kost á þér í blikar.is liðið!
Blikahraðlestin er komin áfram í Sambandsdeild Evrópu eftir góðan 4:1 sigur á liði Santa Coloma frá Andorra á Kópavogsvelli í gær. Sigurinn var nokkuð torsóttur enda börðust fjallaljónin frá Andorra hetjulega gegn Blikaliðinu framan af leik. En getumunur liðann var töluverður og að lokum tryggðum við okkur öruggan sigur.
Miðasala á Stubbur. Bæði Almennir miðar og Betri stúka. Græna stofan opnar klukkutím fyrir leik, börger á grilli, rjúkandi kaffi og góðmeti í sjoppunni. Sparkvellir verða á sínum stað fyrir krakkana. Blikaklúbburinn verður með sérmerktan varning til sölu: treyjur og trefla. Kópacabana menn byrja á Spot kl.16:00 og munu svo keyra upp stemninguna í stúkunni frá 18:15.
Leikurinn varð aldrei mikið fyrir augað. Framan af var stöðubarátta þar sem Blikarnir reyndu að spila sinn leik en náðu ekki alveg taktinum. Skiljanlegt að mörgu leyti. Á 16. mínútu dró til tíðinda. Hápressa okkar manna (lykilatriði i góðum árangri okkar í ár að mínu mati) skilaði okkur forystu.
Breiðablik mætir U.E. Santa Coloma á þeirra heimavelli Estadi Nacional í Andorra la Vella á fimmtudag í fyrri leik liðanna í undankeppni Sambandsdeildar UEFA 2022/2023. Flautað verður til leiks kl.15:00 að staðartíma hér heima.
Við fengum færi til að klára þennan leik en það var stöngin út að þessu sinni. En það vantaði sannarlega hvorki vilja né baráttu hjá okkar mönnum í þessum leik, og á meðan svo er þarf engu að kvíða. Gæðin skila sér svo næstum alltaf.
Í pistli dagsins: 11. umferð en tólfti leikur okkar manna í Bestu karla 2022 > Blikar með 11 stiga forskot á toppnum > Förum til Eyja > Miðasala á Stubbur > Sagan: 98 mótsleikir > Gamli leikurinn: ÍBV - Breiðablik 1981 > Blikahópurinn 2022 > Tryggvi Hübner er SpáBliki leiksins > Dagskráin > Gefðu kost á þér í blikar.is liðið!
Gísli Eyjólfsson kom, sá og sigraði líkt og Júlíus Sesar í orustunni um Zela forðum. Blikinn kom inn á sem varamaður á 72. mínútu og á síðustu mínútu leiksins setti hann knöttinn í net þeirra gulklæddu með þéttingsföstu skoti óverjandi í hornið og tryggði þar með sæti okkar í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarkeppninnar 2022
Níu sinnum hafa liðin dregist saman í 62 ára sögu Bikarkepnni KSÍ. Fjórir leikir í 16-liða úrslitum. Þrir leikir í 8-liða úrslitum og tveir leikir í undanúrslitum.
Fjölmiðlar spurðu fyrir leik kvöldsins á Kópavogsvelli hvort Blikar myndu kveða KR-Grýluna í kútinn. Síðasta liðið til að vinna Breiðablik í Smáranum var einmitt gamla Vesturbæjarstórveldið. Það var eftirminnilegur leikur í fyrra – en miður skemmtilegur. Þá mættu KR-ingar okkar mönnum af hörku og gáfu þeim engin færi á að spila sinn leik.
Ellefti leikur okkar manna í Bestu karla 2022 > Blikar með 8 stiga forskot á toppnum > Fáum KR-inga í heimsókn á Kópavogsvöll > Miðasala á Stubbur > Sagan: 71 mótsleikir > Gamli leikurinn: Breiðablik - KR 1971 > Blikahópurinn 2022 > Einar Þórhalls er SpáBliki leiksins > BlikaLjósið: Oliver Sigurjónsson > Dagskráin fyrir leik > Gefðu kost á þér í blikar.is liðið!
4-1 urðu því lokatölur og við megum vel við þau úrslit una þó auðvitað hefði 4-0 verið betra. Það er skammt stórra högga á milli hjá okkar mönnum því næsti leikur er á fimmtudaginn. Þá mæta KR ingar í dalinn og það verður örugglega hörkuleikur. Blikar eiga harma að hefna frá í fyrra þegar þeir röndóttu unnu okkur heima í fyrsta leik mótsins.
Tíundi leikur okkar manna í Bestu karla 2022 > Blikar á toppnum í Bestu 2022 > Fáum KA í heimsókn á Kópavogsvöll > Kópacabana menn keyra upp stemninguna í stúkunni > Miðasala á Stubbur > Sagan: 45 mótsleikir > Gamli leikurinn: Breiðablik - KA 1981 > Blikahópurinn 2022 > BlikaLjós leiksins er Elfar Freyr > SpáBliki leiksins er okkar eini sanni: Hilmar Jökull > Dagskráin fyrir leik > Gefðu kost á þér í blikar.is liðið!
Og svo hófst síðari hálfleikur og það var ekki lognmollan þar. Hraustlega tekist á og návígin ófá en dómarinn hafði ágæt tök og leyfði leiknum að fljóta að mestu en lyfti svo spjaldinu loks þegar Höskuldur var felldur á leið í hraðaupphlaup.
Níundi leikur okkar manna í Bestu karla 2022 > Blikar eru taplausir á toppnum > Förum í heimsókn á Origo völlinn > Kópacabana menn keyra upp stemninguna > Miðasala á Stubbur > Sagan: 97 mótsleikir > Gamli leikurinn: Valur - Breiðablik 1995 > Blikahópurinn 2022 > Ásgeir Baldurs er SpáBliki leiksins > Dagskráin fyrir leik > Gefðu kost á þér í blikar.is liðið!
Þau ánægjulegu tíðindi voru að berast að miðjumaðurinn öflugi Oliver Sigurjónsson hefur skrifað undir nýjan samning við Breiðablik sem gildir út keppnistímabilið 2024.
Markvörðurinn knái Brynjar Atli Bragason hefur skrifað undir nýjan samning við knattspyrnudeild Breiðabliks sem gildir út keppnistímabilið 2024. Brynjar Atli er 22 ára að aldri og kom til Breiðabliks fyrir keppnistímabilið 2020 frá uppeldisfélagi sínu Njarðvík.
Ósigraðir Blikar heldu í kvöld til efstu byggðra bóla Reykjavíkurprófastsdæmis, og hösluðu sér völl þar sem heitir Fella – og Hólahverfi og nánar tiltekið þann völl sem í daglegu tali heimamanna er nefndur Gettógránd en Domusnova völlurinn í munni ókunnra aðkomupésa, og er þar vígi og varnarþing Leiknisljónanna.
Þau ánægjulegu tíðindi voru að berast að Andri Rafn Yeoman hefur skrifað undir nýjan samning við Breiðablik sem gildir út keppnistímabilið 2023. Andri Rafn er leikjahæsti leikmaður í sögu Breiðabliks með 384 leiki og hefur skorað í þeim 21 mark.
Áttundi leikur okkar manna í Bestu karla 2022 > Blikar enn taplausir á toppnum > Skellum okkur í Breiðholtið > Miðasala á Stubbur > Sagan: 12 mótsleikir > Blikahópurinn 2022 > SpáBlikinn er Örn Örlygsson > Dagskráin fyrir leik > Jafntefli 2021 í 6 marka leik > Gefðu kost á þér í Blikar.is liðið!
Blikar buðu upp á eina flottustu flugeldasýningu sem sést hefur á Kópavogsvelli þeir lögðu Valsmenn að velli 6:2 í 32-liða úrslitum í Mjólkurbikarnum. Pistlahöfundur er tilbúinn að fullyrða að síðari hálfleikur er sá besti sem Blikaliðið hefur nokkurn tíma sýnt frá upphafi knattspyrnu í Kópavoginum!
Níu sinnum hafa liðin dregist saman í 62 ára sögu Bikarkepnni KSÍ. Reyndar eru leikirnir 10 því fyrstu árin voru reglur þær að annan leik, eða leiki, þurfti til að fá hrein úrslit. Þessi þurfti í undanúrslitum 1976. Liðin gera þá 0:0 jafntefli á heimavelli Valsmanna í Laugardalnum ...
Blikar mættu nýliðum Fram í 7.umferð Bestu deildarinnar. Blikar á toppnum fyrir umferðina með fullt hús stiga. Framarar á neðri hluta töflunnar en frammistaða þeirra þó verið með ágætum í sumar.
Sjöundi leikur okkar manna í Bestu karla 2022 > Blikar eru taplausir á toppnum > Fáum Framara í heimsókn á Kópavogsvöll > Miðasala á Stubbur > Sagan: 69 mótsleikir > Gamli leikurinn: Breiðablik - Fram 1971 > Blikahópurinn 2022 > BlikaLjósið í umsjón Arons Páls Gylfasonar > Páll Þór Ármann er SpáBliki leiksins > Dagskráin fyrir leik > Gefðu kost á þér í blikar.is liðið!
Kópavogsbúum gekk alveg prýðilega að mynda meirihluta í kvöld. Líklega var meirihluti áhorfenda á Víkingsvellinum á bandi okkar fólks. Það veitti ekkert af. Nú voru það tvöföldu meistararnir frá fyrra sumri sem tóku á móti okkur grænklæddum og vissu það alveg að þetta var tækifæri þeirra til yfirlýsingar um að ætla að vera í toppbaráttunni.
Sjötti leikur okkar manna í Bestu karla 2022 > Blikar eru taplausir á toppnum > Skellum okkur í Fossvoginn > Miðasala á Stubbur > Sagan: 87 mótsleikir > Gamli leikurinn: Víkingur - Breiðablik 1980 > Blikahópurinn 2022 > SpáBlikinn er Helgi "Basli" Helgason > Dagskráin fyrir leik > Blikasigur 2021 í 4 marka leik > Gefðu kost á þér í Blikar.is liðið!
Blikar voru bersýnilega í afmælisskapi á þessum hátíðisdegi bæjarins í sínum grænu búningum. Óskar Hrafn varð að gera eina breytingu á liði sínu frá því sem verið hefur.
Fimmti leikur okkar manna í Bestu karla 2022. Blikar eru á toppnum. Fáum Stjörnumenn í heimsókn á Kópavogsvöll. Miðasala á Stubbur. Sagan: 64 mótsleikir. Gamli leikurinn: Breiðablik - Stjarnan 2010. Blikahópurinn 2022. BlikaLjósið í umsjón Arons Páls Gylfasonar. Ásta B. Gunnlaugs er SpáBliki leiksins. Dagskráin fyrir leik. Blikasigur 2021 í 4 marka leik. Gefðu kost á þér í blikar.is liðið!
ÍA og Breiðablik mættust í 4.umferð Bestu deildar karla. Það er alveg óhætt að segja að það hafi verið mikill spenningur fyrir leiknum. Fjölmiðlar, og þessir svokölluðu sérfræðingar, voru búnir að teikna leikinn upp sem enn eitt prófið fyrir Blikaliðið.
Fjórði leikur okkar manna í Bestu karla 2022. Skellum okkur í smá ferðalag upp á Skaga. Miðasala á Stubbur. Sagan: 122 leikir. Gamli leikurinn: ÍA - Breiðablik 1971. Blikahópurinn 2022. Helgi Hjálmars er SpáBliki leiksins. Dagskráin. Blikasigur 2021 í 5 marka leik. Gefðu kost á þér í blikar.is liðið!
Það var vorangan í lofti á Kópavogsvelli sunnudaginn 1. maí 2022 – á alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins og stemningin eins og hún gerist best á knattspyrnu á Íslandi. „Hleragrillið“ heppnaðist vel og er sennilega komið til að vera. Það er ekki oft sem yfir 2.000 manns mæta á deildaleik á Íslandi.
Annar heimaleikur okkar manna í Bestu 2022 > Fáum FH-inga í heimsók > Miðasala á Stubbur > Sagan: 116 leikir > Gamli leikurinn: Breiðablik - FH 2007 > Blikahópurinn 2022 > Deddi litli markmaður er SpáBliki 3. umferðar > BlikaLjósið > Dagskráin > Kópacabana sveitin mætir > Hleragrill í anda Tailgate í USA > Gefðu kost á þér í liðið!
Og þetta var svolítið eins og svart og hvítt, munurinn á leikstíl Breiðabliks í fyrsta leiknum og þessum í kvöld og svo á fyrri hálfleiknum og seinni hálfleiknum. Eins og svart og hvítt – en endaði grænt
Fyrsti útileikur okkar manna í Bestu 2022 > Heimsækjum KR-inga í Frostaskjólið> Miðasala á Stubbur > Sagan > Gamli leikurinn: KR-Breiðablik 2012> Blikahópurinn 2022 > Stuðningsmaðurinn Aron Páll Gylfason er SpáBliki 2. umferðar> Dagskráin > Gefðu kost á þér í liðið!
Gísli Eyjólfsson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Knattspyrnudeild Breiðabliks. Gísli er 27 ára og hefur leikið 183 mótsleiki fyrir Breiðablik og skorað í þeim 48 mörk.
Áhorfendur streymdu á Kópavogsvöll í vorblíðunni þriðjudagskvöldið 19. apríl. Blíða er kannski heldur djúpt í árinni tekið, enda hitinn ekki beinlínis kæfandi. Það var engu að síður eftirvænting og spenna í loftinu, Besta deildin að fara í gang eftir langan og umhleypingasaman vetur. Keflvíkingar voru mættir til að etja kappi við Blika
Fyrsti heimaleikur í Bestu deild karla 2022. Gestirnir eru frá Keflavík. Miðasala er á Stubbur. Stuðningsmaðurinn Flosi Eiríksson er SpáBliki 1. umferðar. Blikaljós leiksins(nýtt): Framherjinn Ísak? Gefðu kost á þér í Blikar.is liðið. Heimaleikir meistaraflokka Breiðabliks 2022.
Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði meistaraflokks Breiðabliks, hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Knattspyrnudeild Breiðabliks. Höskuldur kom heim til Breiðabliks árið 2019 eftir að hafa leikið sem atvinnumaður með Halmstad í Svíþjóð og hefur síðan þá verið lykilmaður og leiðtogi í sterku Blikaliði.
Blikar urðu að bíta í það súra epli að tapa 0:1 fyrir Víkingum í leiknum ,,Meistarar meistaranna“ í gær á Víkingsvellinum. Leikurinn var eins og svart og hvítt þar sem heimapiltar voru mun betri í fyrri hálfleik en við í þeim síðari.
Í Meistarakeppni KSÍ mætast alla jafna Íslands- og bikarmeistarar fyrra árs, en sé sama félag í senn Íslandsmeistari og bikarmeistari skulu Íslandsmeistararnir leika gegn liði því sem varð í öðru sæti efstu deildar.
Viktor Karl Einarsson hefur skrifað undir nýjan fjögurra ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks. Viktor Karl er 25 ára gamall og hefur leikið 96 leiki með meistaraflokki Breiðabliks skorað í þeim 21 mark.
Markvörðurinn snjalli, Anton Ari Einarsson, hefur skrifað undir nýjan 3 ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks. Anton Ari sem er 27 ára gamall er uppalinn í Mosfellsbænum en kom til okkar árið 2020 frá Val.
Bakvörðurinn snjalli Adam Örn Arnarson hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild Breiðabliks. Adam Örn sem er fæddur árið 1995 er uppalinn Bliki en hefur undanfarin átta ár leikið erlendis með liðum í Hollandi, Danmörku, Póllandi og Noregi.
Blikar unnu 3:0 sigur á KV í síðasta leik í riðlakeppni deildarbikarsins 2022. Okkar drengjum gekk afskaplega illa að nýta færin framan af leik og það var ekki fyrr en Jason Daði Svanþórsson kom inn á sem varamaður í síðari hálfleik að varnir Vesturbæjarliðsins brustu.
Síðasti leikur Blikamanna í riðlakeppni Lengjubikarsins 2022 er gegn KV. Leikið verður á Kópavogsvelli á sunnudaginn kl.15:00 - áður auglýstur leiktími var á mánudagskvöld. Veðurspáin fyrir mánudag er mjög slæm þannig að leiknum var flýtt til sunnudags.
Anton Logi Lúðvíksson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Knattspyrnudeild Breiðabliks. Anton Logi heldur upp á 19 ára afmæli sitt í dag og óskum við honum til hamingju með daginn.
Benedikt V. Warén hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Knattspyrnudeild Breiðabliks. Benedikt eða Benó eins og hann er jafnan kallaður verður 21 árs á árinu.
Varnarmaðurinn öflugi Damir Muminovic hefur skrifað undir nýjan 3 ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks. Damir er 31 árs og á að baki 270 mótsleiki með meistaraflokki Breiðabliks frá því að hann kom til félagsins árið 2014.
Þetta var sérstakur leikur og Blikar voru í gjafastuði en eftir hálftíma leik var Stjarnan búin að ná þriggja marka forystu og þannig fóru liðin inn í hálfleik.
New York Red Bulls og Breiðablik hafa náð samkomulagi um að framherjinn Omar Sowe komi á láni til Breiðabliks á komandi keppnistímabili.
Fjórði leikur Blikamanna í Lengjubikarnum 2022 er gegn Stjörnumönnum á þeirra heimavelli - Samsungvellinum í Garðabæ, fimmtudaginn 10. mars kl.19:00! Veðurspá fyrir fimmtudagskvöld er ágæt - hálfskýjað, 6° hiti og smá vindur.
Blikar unnu 1:2 sigur á Þórsurum í Lengjubikarnum á Akureyri í dag. Blikar hafa oft spilað betur en sem betur fer dugði það samt til sigurs. Þar með stefnir í hörkuúrslitaleik gegn Stjörnunni á fimmtudaginn á Stjörnuvellinum.
Þriðji leikur Blikamanna í Lengjubikarnum 2022 er gegn Þórsurum. Leikið verður í Boganum á Akureyri á sunnudaginn kl.16:00. Stöð 2 Sport sýnir leikinn í beinni.
Enn einn ungi Blikinn er nú á leið í atvinnumennsku. Ágúst Orri Þorsteinsson, ungur og efnilegur sóknarsinnaður miðjumaður, hefur verið seldur til sænska stórliðsins Malmö.Hann gerir þriggja ára samning við sænska liðið og hleypir strax heimdraganum.
Blikar unnu baráttuglatt Fjölnislið 4:2 í Lengjubikarnum í kvöld. Sigurinn var nokkuð torsóttur enda vorum við gjafmildir í vörninni og flækjufótar í sókninni framan af leik. En með seiglu skoruðum við tvö mörk á síðustu mínútum leiksins og innsigluðum sanngjarnan sigur.
Áfram rúllar Lengjubikarinn. Strax komið að næsta leik. Annar leikur okkar mann í Lengjubikarnum 2022 er gegn Fjölnismönnum á Kópavogsvelli á morgun, þriðjudag kl.19:00.
Framherjinn ungi og efnilegi Galdur Guðmundsson hefur verið seldur til danska stórliðsins FC Köbenhavn. Galdur sem fæddur er 14. apríl 2006 er því ennþá 15 ára gamall. Þrátt fyrir þennan unga aldur hefur Galdur spilað fimm leiki fyrir meistaraflokk Breiðabliks og skorað 1 mark.
Blikar mættu í kvöld Skagamönnum í fyrsta leik sínum í Lengjubikarnum 2022. Það var sannarlega talsverð tilhlökkun eftir linnulausan snjómokstur og endurteknar tilfæringar á ruslatunnum og útigrillum, miili illviðra síðustu vikna að skella sér í Smárann og horfa fótboltaleik utandyra við fínar aðstæður.
Fyrsti leikur okkar mann í Lengjubikarnum 2022 er gegn spræku liði Skagamanna sem hafa þegar spilað tvo leiki í mótinu til þessa og unnið þá báða. Okkar menn eru hinsvegar að hefja keppni enda nýkomnir heim eftir vel heppnaða þáttöku í Atlantic Cup í Portúgal.
Fréttatilkynning frá Breiðabliki.
Í dag kveður Ungmennafélagið Breiðablik góðan félaga, Einar Ragnar Sumarliðason, sem lést langt fyrir aldur fram þann 13.febrúar s.l. Leiðir Einars og Breiðabliks hafa legið saman í hartnær 40 ár.
Blikar þurftu að sætta sig við 4:3 gegn stórliði FCK frá Kaupmannahöfn í lokaleik Atlantic Cup mótsins. Fyrri hálfleikur var nánast gallalaus hjá þeim grænklæddu. Liðið spilaði fasta og örugga vörn og sótti svo hratt þegar tækifærið gafst. Mikil ákefð einkenndi strákanna og greinilegt að þeim leið vel inn á vellinum.
Undanfarnar vikur hefur knattspyrnudeildin verið að kynna samninga undirskriftir við þessa ungu og efnilega leikmenn - framtíðina okkar.
Blikar unnu ótrúlegan 5:4 sigur gegn dönsku meisturum í Mydtjylland á Atlantic Cup keppninni í gær eftir vítaspyrnukeppni. Leikurinn var mjög kaflaskiptur. Fyrri hálfleikur var frekar slakur hjá okkar drengjum enda staðan orðin 0:3 Dönunum í vil í leikhléi.
Blikar unnu flottan 2:1 sigur gegn ungu og frísku liði Brentford pilta frá Englandi í fyrsta leik á Atlantic Cup mótinu 2022. Sigur Blikaliðsins var sanngjarn en tæpur undir lok leiks. Anton Ari varði þá eins og berserkur og kom í veg fyrir að enskurinn næði að jafna.
Meistaraflokkur karla heldur á morgun til Portúgal til að taka þátt í sterku æfingamóti ,,Atlantic Cup 2022“. Andstæðingar okkar eru ekki af verri endanum. Brentford frá Englandi, Mydtjylland og FC Köbenhavn frá Danmörku
Blikar urðu að bíta í það súra epli að tapa úrslitaleiknum í fotbolti.net mótinu 3:1 fyrir Stjörnunni í Garðabænum í gær. Leikurinn var jafn og spennandi en sóknarleikur heimapilta var beittari og því fór sem fór.
Knattspyrnumaðurinn knái Finnur Orri Margeirsson er á leið í Hafnarfjörðinn. Knattspyrnudeildir Breiðabliks og FH hafa náð samkomulagi um þau félagaskipti. Finnur Orri sem er einn leikjahæsti maður Breiðabliks frá upphafi með 262 leiki og 7 mörk.
Breiðablik hefur fengið til liðs við sig dansk-kólumbíska varnarmanninn Mikkel Qvist en hann kemur frá Horsens í Danmörku. Mikkel hefur undanfarin tvö sumur leikið með KA mönnum í Pepsi Max deildinni á láni frá danska félaginu.
Síðasti leikur meistaraflokks karla í Fótbolta.net mótinu 2022 verður á Samsung vellinum í Garðabæ kl.19:00 á fimmtudag. Þá mætum við nágrönnum okkar í Garðabæ í úrslitaleik Fótbolta.net mótsins 2022.
Blikar unnu öruggan 2:0 sigur á HK-ingum í síðasta leik riðilsins í fotbolti.net mótinu. Leikurinn átti að fara fram á Kópavogsvelli en var færður inn í Kórinn til að sleppa við vindstrengi sem buldu á höfuðborgarsvæðinu. Því miður máttu engir áhorfendur mæta á leikinn en spiidieo kerfið gerði áhugasömum Blikum fært að berja leikinn augum.
Síðasti leikur Blikamanna í riðlakeppni FótboltaNet mótsins 2022 er gegn nágrönnum okkar frá efri byggðum Kópavogs. Leikið verður í Kórnum og hefst leikurinn kl.13:00 á laugardaginn. Það er áhorfendabann en HK sýnir leikinn á Spiideo Play.
Blikar unnu 1:3 seiglusigur á Leiknismönnum í Breiðholti. Sigurinn var erfiður enda börðust heimapiltar eins og ljón allan tímann. En það var Jason Daði Svanþórsson sem gerði gæfumuninn þegar hann kom inn á í síðari hálfleik
Næsti andtæðingur okkar manna í Fótbolta.net mótinu er lið Leiknismanna í Breiðholti. Leikið verður á þeirra heimavelli og hefst leikurinn kl.18:00 á föstudaginn.
Mikið breytt Blikaliðið vann nokkuð öruggan 5:2 sigur á Keflavík í fyrsta leik á FotboltaNet mótinu árið 2022. Sigurinn var sanngjarn en hugsanlega aðeins of stór miðað við gang leiksins því gestirnir áttu nokkur góð færi sem þeir ekki nýttu.
Fyrsti mótsleikur Blikamanna á árinu 2022 er í Fótbolta.net mótinu. Andstæðingur okkar manna er lið Keflvíkinga frá Reykjanesbæ. Flautað verður til leiks á Kópavogsvelli kl.13:00 á laugardaginn.
Knattspyrnumaðurinn sterki Ísak Snær Þorvaldsson hefur skrifað undir 3 ára samning við Breiðablik. Ísak Snær sem er rúmlega tvítugur að aldri er fjölhæfur leikmaður sem leikur samt oftast sem miðjumaður.
Blikar.is - stuðningsmannavefur meistaraflokka Breiðabliks í knattspyrnu – óskar öllum Blikum og öðrum landsmönnum farsældar og gleði á nýju ári.
Óskum öllum Blikum og öðrum landsmönnum gleðilegrar jólahátíðar
Blikar sýndu það og sönnuðu að þeir eru besta lið landsins með því að leggja Íslands- og bikarmeistara Víkings að velli 5:1 í úrslitum BOSE bikarsins 2021. Leikurinn var fjörugur og sýndu bæði lið skemmtilega takta.
Næsti leikur okkar manna í BOSE bikarnum 2021 er á morgun, föstudag 10.desember kl.19:00. Við fáum Reykjavíkur Víkinga í heimsókn á Kópavogsvöll. Um er að ræða úrslitaleik BOSE bikarsins 2021.
Blikar eru komnir í úrslit BOSE bikarsins 2021 eftir 3:2 sigur á Stjörnunni nágrönnum okkar úr Garðabæ. Leikurinn var nokkuð fjörugur á köldum og hálum Kópavogsvellinum.
Næsti leikur okkar manna í BOSE Bikarnum 2021 er í dag, laugardaginn 4. desember kl.13:00. Þá fáum við Stjörnumenn í heimsókn á Kópavogsvöll. Þetta er úrslitaleikur í riðlinum því bæði lið lögðu KR að velli í fyrri leik liðanna í A riðli.
Breiðablik og Víkingur hafa náð samkomulagi um félagaskipti Davíðs Arnar Atlasonar yfir í Fossvoginn aftur. Davíð Örn sem kom til okkar Blika frá Víkingum fyrir síðasta tímabil.
Breiðablik og Víkingur hafa náð samkomulagi um varanleg félagaskipti Karls Friðleifs Gunnarssonar í Fossvoginn. Karl, sem spilaði sem lánsmaður hjá Víkingum síðastaliðið sumar, átti afbragðssumar með Fossvogsliðinu.
Blikar áttu ekki í erfiðleikum með þunga KR-inga í fyrsta leik BOSE Bikarsins 2021. Lokatölur voru 5:1 eftir að þeir grænklæddu höfðu verið 3:0 yfir þegar flautað var til leikhlés.
Blikamenn taka á móti KR-ingum á Kópavogsvelli á morgun, laugardag, kl.13.00 í BOSE Bikarnum 2021. Okkar menn eru eru líka í riðli með Stjörnunni og verður spilað á hverjum laugardegi næstu vikur. Úrslitaleikir um sæti fara fram laugardaginn 11. desember.
Miðjumaðurinn öflugi Juan Camilo Pérez hefur gert tveggja ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks. Juan Camilo, sem er 22 ára gamall, er örvfættur leikmaður sem getur leikið margar stöður á vellinum.
Orri Hlöðversson gefur ekki kost á sér til endurkjörs - Flosi Eiríksson býður sig fram til formanns.
Miðjumaðurinn efnilegi Dagur Dan Þórhallsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við Knattspyrnudeild Breiðabliks.
Við getum því þrátt fyrir allt verið ánægð með okkar menn í sumar. Við fengum blússandi sóknarbolta, mikið af mörkum en vorum auðvitað grátlega nærri því að ná Íslandsmeistaratitlinum.
“Huldunælan” er kennd við Huldu Pétursdóttur eða sem um áratuga skeið var einstakur bakhjarl og stuðningsmaður Breiðabliks og margir. Það muna margir Breiðabliksfélagar eftir Huldu.
Það var mikið undir þegar erkifjendurnir úr Kópavogi mættu á Kópavogsvöll, staðan þannig að eftir 90 mínútur þá gátu Blikar orðið Íslandsmeistarar og HK fallið í 1. deild.
Vígið okkar í Smáranum stóð sannarlega undir nafni í sumar. Við unnum 10 heimaleiki í röð í Pepsi Max deildinni 2021 með markatöluna 32-1. Ef við teljum Evrópuleiki með eru sigrarnir 12 talsins.Þetta mikla vígi hefur skilað 19 sigrum af 20 mögulegum á öllum mótum ársins. Fimm leikjum lauk með 4-0 sigri, tveir fóru 3-0 og tveir 2-0. Aðeins Skagamönnum tókst að troða inn marki þegar við sigruðum þá 2-1.
Knattspyrnudeild Breiðabliks gjörir kunnugt: Óskar Hrafn Þorvaldsson, aðalþjálfarari meistaraflokks karla, hefur í dag skrifað undir nýjan fjögurra ára samning við félagið.
Þá er komið að lokaleik Blika í Pepsi Max deild karla 2021. Andstæðingarnir eru nágrannar okkar úr efri byggðum HK-ingar. Mikið er í húfi fyrir bæði lið og gæti leikurinn ráðið úrslitum á toppi og botni deildarinnar.
Það voru þung spor fyrir leikmenn og stuðningsmenn Blika út af Kaplakrika eftir 1:0 tap gegn heimamönnum. Úrslitin þýða að við eigum litla möguleika á Íslandsmeistaratitlinum í ár þrátt fyrir að ein umferð sé eftir. Við náðum okkur engan vegin á strik í fyrri hálfleik og var engu líkara en ákveðið stress væri í gangi hjá mörgum leikmönnum liðsins.
Þá er komið að síðasta útileiknum hjá okkar mönnum í Pepsi Max 2021. Næsta viðureign er gegn margföldum Íslandsmeisturum FH á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði. Flautað verður til leiks kl.16:15. Leikurinn verður sýndur á Stöð 2 Sport fyrir þá sem ekki geta mætt í Krikann.
Þegar Breiðablik trónir á toppnum í deildinni með þrjá leiki eftir og spilað er á móti ríkjandi Íslandsmeisturum í toppbaráttunni á laugardagskvöldi klukkan tuttugu þá eru fyrirpartý um allan bæ.
Eftir góða hvíld er komið að lokahrinu okkar manna í Pepsi Max 2021. Næsta viðureign - og mögulega ein sú mikilvægasta í sumar - er gegn sjóðheitu liði Íslandsmeistara Vals. Leikið verður á Kópavogsvelli kl. 20:00 laugardalskvöldið 11. september. Leikurinn verður sýndur á Stöð 2 Sport.
16. golfmót knattspyrnudeildar, Breiðablik Open, fór fram á Selsvelli við Flúðir föstudaginn 2. ágúst s.l. Þrátt fyrir sóttkví hjá nokkrum fastagestum voru rúmlega 70 kylfingar mættir til leiks.
Við eigum alls konar fagurlitaða mánuði. Blár apríl, sem minnir okkur á þau sem eru utan meðalmennskunnar vegna einhverfu, er til dæmis flottur mánuður. Nýliðinn ágúst var grænn mánuður, iðjagrænn.
Blikar.is er sjálfstætt starfandi stuðningsmannavefur meistaraflokka Breiðabliks í knattspyrnu. Við á blikar.is vitum að það er talsvert horft til Breiðabliks og við eigum að ganga fram fyrir skjöldu í þessum efnum. Breiðablik hefur tekist að samtvinna grasrótarstarf og afreksstefnu svo eftir hefur verið tekið og getum orðið leiðandi í þeirri stefnumótun sem framundan er. Skilaboðin frá blikar.is eru skýr: "Fokk ofbeldi".
Blikinn Galdur Guðmundsson setti met í gær þegar hann kom inn á í efstu deildar leik gegn Fylki í Árbænum í gær í Pepsi Max deild karla. Ásgeir Galdur er yngsti Bliki (15 ára og 137 daga gamall) frá upphafi til að spila efstu deildar leik í knattspyrnu karla með Breiðabliki.
Það er óhætt að segja það að leikmenn hafi náð, hingað til, að faðma, umvefja og elska pressuna. Haustkvíðinn varði ekki lengi. Elsku Blikarnir mínir sáu um það. Kvíðinn minnkaði allverulega á 12. mín þegar Kiddi Steindórs skoraði fyrsta mark okkar manna.
Grótta og Breiðablik hafa náð samkomulagi að framherjinn stóri og stæðilegi Pétur Theodór Árnason gangi til liðs við Blika fyrir næsta keppnistímabil.
Eftir stutta hvíld er komið að næstu viðureign okkar manna sem heimsækja Árbæinn á sunnudagskvöld. Þar mætum við frísku liði Fylkismanna í 19. umferð Pepsi Max deildar karla kl.19:15. Leikurinn verður sýndur á www.stod2is
Það var eins og að koma í annað land að lenda síðdegis miðvikudaginn 25. ágúst á Akureyri „sem er öðrum meiri, með útgerð, dráttarbraut og Sjallans paradís,“ eins og Kristján frá Djúpalæk kvað forðum og hljómsveit Ingimars Eydal flutti svo eftirminnilega.
Frestaður leikur úr 7. umferð Pepsi MAX karla 2021. Okkar menn leggja land undir fót og ferðast norður yfir heiðar til að etja kappi við lið KA manna - lið Arnars Grétarssonar. Flautað verður til leiks Greifavellinum á Akureyri kl.18:00 á miðvikudaginn. Leikurinn verður sýndur á Stöð 2 Sport.
Knattspyrnumaðurinn fjölhæfi Kristinn Steindórsson hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild Breiðbliks til loka ársins 2023. Kristinn sem er uppalinn Bliki hóf að leika með meistaraflokki Blika árið 2007 þá aðeins 17 ára gamall.
Varnarmaðurinn sterki Viktor Örn Margeirsson hefur skrifað undir nýjan samning við Blika sem gildir til loka ársins 2023.
Annars voru Blikar einfaldlega miklu betri, sem skilaði sér í úrvals marki þar sem Gísli stal boltanum og lagði upp á Viktor Karl sem skoraði af öryggi. Ég hefði verið til í að sjá svona afgreiðslu oftar í góðum og hálf góðum færum.
18. umferð Pepsi MAX karla 2021 fer fram um helgina. Okkar menn fá verðugt verkefni þegar Arnar Grétarsson kemur með sjóðheit lið KA í heimsókn á Kópavogsvöll. Flautað verður til leiks kl.18:00 á laugardaginn. Leikurinn verður sýndur á Stöð 2 Sport.
Blikaliðið lét slæma byrjun hins vegar ekki slá sig út af laginu og sótti stíft að marki gestanna. Það skilaði árangri þegar Viktor Karl jafnaði metin með góðu skoti eftir frábæran undirbúning Árna Vilhjálmssonar á 24 mínútu. Kiddi Steindórs átti þá skemmtilega utanfótarsendingu á Árna sem plataði varnarmann Skagamanna.
Okkar menn fá Skagamenn í heimsókn í Pepsi Max 2021 á mánudagskvöld. Flautað verður til leiks kl.19:15. Leikurinn verður sýndur í vefsjónvarpi Stöðvar 2 Sport.
Frammistaða Breiðabliks í Sambandsdeild Evrópu er búinn að vera stórkostleg. Ísland er nr 47 af 54 liðum í UEFA sem taka þátt í Evrópukeppnum Liðin sem við lékum við eru frá Luxembourg (35), Austurríki (10) og Skotland (11).
Evrópuævintýriið heldur áfram. Á fimmtudaginn mætum við Abredeen FC í þriðju umferð undankeppni Sambandsdeildar UEFA 2021/2022 á Pittodrie Stadium í Aberdeen. Leikurinn verður sýndur á Stöð 2 Sport. Útsending heft kl.18:35. Flautað verður til leiks kl.18:45!
Liðin komu inn í leikinn í kvöld hafandi bæði unnið síðustu leiki sína 4-0. Eftir leikinn erum við í þriðja sætinu með leik á móti KA til góða og getum með sigri í inneigininni komist einu stigi á eftir Val. Það er svo leikur á móti Val eftir á dagatalinu, heimaleikur mánudaginn 13. september. Taktu daginn frá.
Blikar eru með sterkan og breiðan hóp og því ætti þreyta eftir Aberdeen leikinn ekki að hafa mikil áhrif á liðið. Svo verður spennandi að sjá hvort Thomas fái tækifæri til að slútta Íslandsdvölinni með marki gegn besta vini sínum, Daníel Laxdal. Enginn Íslendingur hefur faðmað Thomas jafn oft og Daníel.
Þessi leikur var frábær skemmtun en honum lauk með óverðskulduðu eins marks tapi okkar manna og ljóst að það bíður þungur róður ytra eftir viku.Blikar þurfa hinsvegar ekki að kvíða þeim leik. Skotarnir munu þurfa að verja þetta eina mark.
Fréttatilkynning. Breiðablik hefur orðið við beiðni Thomas Mikkelsen um að ljúka samningi sínum við félagið.
Einn okkar manna er mjög vel kunnugur Skoska boltanum - sér í lagi Dundee United. Þegar Thomas Mikkelsen kom til okkar frá Skotlandi um mitt ár 2018 kom hann frá Dunde United þar sem hann spilaði sem lánsmaður frá Ross County.
Sigurinn í kvöld var kröftug yfirlýsing um hvað Breiðablikslið strákanna getur í fótbolta. Við höfum séð þær nokkrar upp á síðkastið þar sem rúllað er yfir hvert þýskumælandi liðið á fætur öðru – genau – og nú bíður Aberdeen.
Á mánudag - a frídegi verslunarmanna - fáum við Reykjavíkur Víkinga í heimsókn á Kópavogsvöll í 15. umferð Pepsi Max deildar karla. Þetta er fyrsta heimsókn Fossvogsliðsins á Kópavogsvöll í 3 ár eða síðan 23. maí 2018. Ástæða þessa er að árið 2019 spiluðu Blikar heimaleikinn gegn þeim á Fylkisvelli. Og í fyrra var enginn heimaleikur út af svoltilu.
Tíðindamaður hins virta miðils blikar.is hafði áhyggjur af því að máttarvöldin hefðu óþarflega mikla samúð með gestunum í aðdraganda Evrópuleiks Breiðabliks og Austria Wien á Kópavogsvelli þann 28. júlí. Hvar var rokið og hvar var rigningin sem hafa gælt við vangann í hinu svokallaða sumri sunnan heiða?
Við vekjum athygli á breyttum leiktíma en leikurinn hefst kl.17:30 fimmtudaginn 29.júlí á Kópavogsvelli (klukkan 19:30 að staðartíma í Austurríki). Miðasala á leik Breiðabliks og Austria Wien er á Tix.is
Blikar spiluðu með sterkan vind í bakið í fyrri hálfleik og hófu leikinn á stórsókn. Hver sóknin á fætur annarri buldi á marki Keflvíkinga. Það var reyndar með ólíkindum að við skyldum ekki skora 3-4 mörk í hálfleiknum. Jason Daði, Árni Vill, Viktor Karl, Gísli og Thomas áttu allir ágæt færi en annað hvort fór boltinn rétt framhjá, rétt yfir, í hliðarnetið eða að Sindri í marki heimapilta varði vel.
Það eru 50 ár síðan Breiblik lék fyrst í efstu deild. Árið 1971 voru Keflvíkingar með fyrnasterk lið og urðu Íslandsmeistarar það ár eftir úrslitaleik við ÍBV en lið ÍBV og ÍBK voru jöfn að stigum eftir 14 leiki (8-liða deild). Breiðabliksliðið (UBK) lenti í 7. sæti með 10 stig - einu stigi meira en ÍBA.
Breiðablik gerði frábært 1:1 jafntefli gegn austurríska stórliðinu Austria Wien á útivelli í fyrri leik liðanna Sambandsdeild Evrópu í dag. Mark Blika gerði miðjumaðurinn knái Alexander Helgi snemma í seinni hálfleik eftir góða stoðsendingu frá Árna Vilhjálmssyni.
Breiðablik mætir FK Austria Vín á þeirra heimavelli Viola Park í Vínarborg á fimmtudaginn í fyrri leik liðanna í undankeppni Sambandsdeildar UEFA 2021/2022 (Europe Conference League). Leikurinn er klukkan 16:00 að staðartíma hér heima (klukkan 18:00 að staðartíma í Austurríki).
Símamótið er ekki eins og hvert annað knattspyrnumót. Það er hið stærsta sinnar tegundar sem haldið er á Íslandi ár hvert. Í ár voru þátttakendur frá 42 félagsliðum sem skiptust niður á 420 keppnislið! Skráðir þátttakendur voru um 3.000 talsins og fjöldi leikja sem fram fóru voru 1.635.
Eftir markið kviknaði svolítið í okkar mönnum en leikurinn opnaðist ekki mikið, skiljanlega. Það tókst ágætlega að spila upp miðjuna og tvær aukaspyrnur fengust. Hafandi í huga að í gervallri Evrópukeppninni í fótbolta kom aðeins eitt mark beint úr aukaspyrnu, var maður ekkert bjartsýnn.
Pepsi MAX deild karla 2021. KR – Breiðablik á KR vellinum í Frostaskjóli sunnudagskvöld kl.19:15!
Evrópuleikur á Kópavogsvelli, Breiðablik v Racing FC. Það er önnur stemmning þegar starfsfólk UEFA mætir á svæðið. Það myndast líka alltaf eftirvænting eftir evrópubúningum og hann var óvenju stílhreinn í ár. Blikar elska líka að fara til Austurríkis að leika evrópuleiki þannig að það var von um að eiga ferð inni í næstu viku.
Breiðablik mætir Racing Union á Kópavogselli á fimmtudaginn í síðari leik liðanna í undankeppni sambandsdeildar UEFA 2021/2022 (Europe Conference League). Flautað verður til leikls kl.19:00!
16. opna golfmót Knattspyrnudeildar Breiðabliks verður haldið föstudaginn 20. ágúst n.k. Leikið verður á Selsvellli á Flúðum. Ræst verður af af öllum teigum kl.13:00. Leikinn verður höggleikur og punktakeppni í karla og kvennaflokki.
Blikar unnu frábæran 2:3 karaktersigur á Racing Union frá Lúxemborg á útivelli í fyrstu umferð Sambandsdeildar UEFA í dag. Þrátt fyrir að lenda 2:0 undir í fyrri hálfleik gáfust okkar piltar ekki upp og lönduðu að lokum dýrmætum útivallarsigri.
Breiðablik mætir Racing FC á þeirra heimavelli í Lúxemborg í undankeppni sambandsdeildar UEFA 2021/2022. Flautað verður til leikls kl. 17:00 að íslenskum tíma.
Blikar unnu góðan sigur á Leiknispiltum úr Breiðholtinu 4:0 á Kópavogsvellinum á laugardag. Stolt Breiðholtsins veitti reyndar góða mótspyrnu í fyrri hálfleik en eftir annað markið þá var sigurinn vís.
Við megum nú taka við áhorfendum í öll sæti á vellinum okkar og áhorfendur þurfa ekki lengur að bera grímur á leikjum. Þeir sem eiga árskort geta nú notað þau til að komast á völlinn. Fyrir aðra fer miðasala fram í gegnum miðasöluappið Stubb. Sömuleiðis verður hægt að kaupa miða í miðasölunni við völlinn.
Þetta var frábær sigur – og bráðnauðsynlegur til að halda dampi og Blikum í toppbaráttunni. Það sem stendur upp úr er framgangur Andra Rafn Yeoman í leiknum. Andri Rafn hefur sérstakan sess hjá Breiðablik. Hann er leikjahæsti leikmaður félagsins með 355 leiki.
Pepsi MAX deild karla 2021. HK – Breiðablik í Kórnum sunnudagskvöld kl.19:15!
Blikar töpuðu 2:0 fyrir Keflvíkingum í framlengdum leik í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarkeppni KSÍ í gærkvöldi. Tapið var svekkjandi því við vorum meira með boltann og sköpuðum okkur töluvert af færum.
Keflvíkingar taka á móti okkar mönnum í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarins á HS Orku vellinum í Keflavík á miðvikudagskvöld kl.20:00!
Kópavogsdalur skartaði sínu fegursta sunnudagskvöldið 20. júní. Sól skein í heiði, það var vestan gola, völlurinn fagurgrænn að venju og vel vökvaður. FH-ingar voru mættir eftir dapurt gengi að undanförnu – Blikar særðir eftir að hafa tapað fyrir Val.
Það er þétt spilað í Pepsi MAX þessa dagana. Strákarnir okkar spiluðu á miðvikudaginn og næsti leikur er strax á sunnudaginn. Eftir mjög svekkjandi tap í stórleiknum á miðvikudaginn var er annar stórleikur framundan þegar við fáum piltana í Fimleikafélagi Hafnarfjarðar í heimsókn á Kópavogsvöll á sunnudagskvöld.
Síðari hálfleikur fór rólega af stað. Blikar mikið með boltann en náðu ekki að opna vörn Valsmanna sem lágu nú alveg til baka og biðu, enda með góða forystu. Í tvígang munaði samt litlu að við næðum að brjóta ísinn.
Aftur og nýbúnir. Næsti leikur er strax á miðvikudaginn. Eftir góðan sigur okkar mann á Fylkismönnum í kaflaskiptum leik á laugardaginn er komið að smá ferðalagi á Origo völlinn til að etja kappi við Íslandsmeistara Vals.
Það tók tæpar 43 mínútur í fyrri hálfleik að koma skoti á mark en í þeim síðari tók það 43 sekúndur að skjóta á markið – og skora. Árni Vill afgreiddi netta stungusendingu Kidda smekklega og ykkur að segja þá var maður þá þegar viss um að þessi leikur myndi vinnast.
Áttunda umferð Pepsi MAX karla 2021 verður leikinn um helgina og á miðvikudaginn. Á laugardaginn fáum við Fylkismenn í heimsókn á Kópavogsvöll.
Blikaliðið hélt undir Rúbikon (Hvalfjörðinn) í gær og kom sigrihrósandi til baka með þrjú stig í farteskinu eftir 2:3 sigur á heimapiltum á Skipaskaga. Sigurinn var kærkominn og sanngjarn en óþarflega tæpur. Okkar drengir voru mun sterkari í leiknum og áttu í raun að vera búnir að klára leikinn í fyrri hálfleik.
Það er stutt á milli leikja í “hraðmótinu”. Sjötta umferð Pepsi MAX karla 2021 fer fram á mánudags-og þriðjudagskvöld. Okkar menn heimsækja Skagamenn á mánudagskvöld.
Við byrjuðum leikinn nokkuð sterkt og ógnuðum ágætlega. Takturinn datt þó smá úr liðinu þegar að Thomas Mikkelsen fór meiddur útaf á 9. mínútu leiksins, líklega nárameiðsli. Skila góðri batakveðju á Thomas.
Áfram rúllar Pepsi MAX deildin 2021. Fimmta umferð Pepsi MAX karla 2021 fer fram á föstudagskvöld og lýkur á laugardag með einum leik. Á föstudagskvöld fáum við nágranna okkar úr Garðabæ í heimsókn á Kópavogsvöll.
Fossvogurinn ilmaði af nýútsprungnum greinum og grilllykt þegar ég, Freyr Snorrason, í föruneyti með stemningsmanninum mikla Breka Barkarsyni leikmanni Augnabliks tylltum okkur í hólf B, röð I, sæti 63 og 65 í Víkinni í kvöld.
Það er þétt spilað. Fjórða umferð Pepsi MAX karla 2021 fer fram á sunnudag og mánudag. Á sunnudagskvöld heimsækir Blikaliðið nágranna okkar í Fossvoginum. Flautað verður til leiks kl.19:15 á Víkingsvelli. Leikurinn verður sýndur í beinni á Stöð 2 Sport.
Þannig lönduðu okkar menn sínum fyrsta sigri á Íslandsmótinu í ár. Hann var í raun aldrei í hættu. Allir áttu skínandi fínan leik og var gaman að sjá samspil Blika á löngum köflum.
Þriðja umferð Pepsi MAX karla 2021 fer fram miðvikudag og fimmtudag í þessari viku. Á fimmtudagskvöld fá Blikar nýliða Keflvíkinga í heimsókn.
Sölvi Snær Guðbjargarson hefur skrifað undir 3 ára samning við Breiðablik. Hann kemur til félagsins frá Stjörnunni í Garðabæ.
Ársmiðakort og Blikaklúbbskort á Kópavogsvöll fyrir árið 2021 eru nú komin í sölu. Salan er unnin í samvinnu við Blikaklúbbinn.
Blikar sýndu mikinn karakter þegar þeir skoruðu tvo mörk á lokamínútum leiksins gegn Leiknismönnum og tryggðu sér þannig eitt stig í Breiðholtinu.
Pepsi MAX deild karla 2021. Leiknir – Breiðablik á Domusnova vellinum í Breiðaholti.
Það er ekki á hverju ári að dómbært fólk spáir Breiðabliki Íslandsmeistaratitli karla. Sú er raunin árið 2021 og hafi það híft einhverja stuðningsmenn upp til skýjanna tók það um það bil 15 mínútur að fá fast land undir fætur.
Pepsi MAX deild karla 2021. KR – Breiðablik – KR á Kópavogsvelli sunnudag kl.19:15!
Þau ánægjulegu tíðindi voru að berast að Andri Rafn Yeoman, miðjumaðurinn óþreytandi, hefur framlengt samning sinn við Blika til loka ársins 2022.
Knattspyrnudeild Breiðabliks og Eyjamenn hafa náð samkomulagi að miðjumaðurinn snjalli Guðjón Pétur Lýðsson muni hafa félagaskipti yfir í ÍBV.
Leiknir R. og Breiðablik hafa komist að samkomulagi um félagaskipti Sævars Atla Magnússonar frá Leikni til Breiðabliks.
Á dögunum kynnti Davíð Snorri Jónasson, landsliðsþjálfari, 23ja manna hóp til ferðarinnar. Rúmlega þriðjungur hópsins, eða átta gaurar, hefur komið við sögu hjá Breiðabliki.
Blikaliðið er komið í undanúrslit Lengjubikarsins með 2:1 sigri á gulklæddum KA-mönnum.
Þær frábæru fréttir voru að berast að framherjinn snjalli Árni Vilhjálmsson hefur ákveðið að koma heim og gera tveggja ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks.
Strákarnir okkar fá mjög verðugt verkefni þegar við mætum sprækum KA-mönnum í 8-liða úrslitum Lengjubikarsins á Kópavogsvelli á laugardaginn.
Blikar unnu 2:1 seiglusigur á Fylki á rennisléttum Kópavogsvellinum í lokaleik riðlakeppni Lengjubikarsins 2021
Lengjubikarinn 2021: Breiðablik - Fylkir á Kóapvogsvelli laugardag kl.13:00!
Knattspyrnudeild Breiðabliks og norska liðið Kristiansund hafa náð samkomulagi um kaup Norðmannanna á framherjanum öfluga Brynjólfi Andersen Willumssyni.
Gott gengi okkar manna hélt áfram eftir 3-1 sigur Blika gegn Fjölnismönnum í kvöld.
Blikaliðið heimsækir á morgun, föstudag, Fjölnismenn á þeirra heimavöll í Egilshöll. Flautað verður til leiks kl. 20:00. BlikarTV mun streyma leiknum.
Þau ánægulegu tíðindi voru að berast að knattspyrnumaðurinn öflugi, Viktor Karl Einarsson, hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild Breiðabliks til loka ársins 2023.
Blikar unnu þolinmæðissigur á baráttuglöðum Eyjamönnum 2:0 í Lengjubikarnum á Kópavogsvelli í dag.
Áfram rúllar boltinn í Lengjubikarnum. Okkar menn fá Eyjamenn í heimsókn á Kópavogsvöll í dag, fimmtudag, kl. 15:30!
Blikar unnu öruggan 0:5 sigur á Þrótti í Lengjubikarnum 2021 á Eimskipsvellinum. Blikar settu í fluggírinn í bæði fyrri og seinni hálfleikinn og kláruðu leikinn með stuttu millibili í hvorum hálfleik fyrir sig.
Annar leikur okkar manna í Lengjubikarnum 2021 á Eimskipsvellinum í Laugardal á föstudagskvöld kl.18:00!
Blikar lögðu Leikni örugglega 4:0 í fyrsta leik Lengjubikarsins árið 2021.
Ólafur Guðmundsson hefur skrifað undir lánssamning við Grindavík þar sem hann mun leika í Lengjudeildinni í sumar.
Fyrsti leikur okkar manna í Lengjubikarnum 2021 er á föstudaginn.
Blikar unnu öruggan 5:1 sigur á Skagamönnum í úrslitum Fótbolta.net mótsins í knattspyrnu árið 2021.
Annað árið í röð mætir Breiðablik ÍA í úrslitaleik Fótbolta.net Mótsins
Vilhjálmur Kári Haraldsson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Breiðabliks í knattspyrnu þar sem hann mun fara fyrir öflugu starfsteymi.
Knattspyrnumaðurinn efnilegi Karl Friðleifur Gunnarsson hefur verið lánaður í Víking R. út þessa leiktíð
Það var pýrðilegt fóboltaveður í boði þegar flautað var til leiks hjá liðunum á Kópavogsvelli, grasið og aðstæður á vellinum bjóða upp á nýja möguleika fyrir Blika á undirbúningstímabilinu og gerir það að verkum að upplifun áhorfenda verður einhvernveginn stærri en að horfa á þetta í t.d Fífunni eins stundum hefur verið.
Næsti leikur Blika í Fótbolta.net mótinu 2021 er gegn FH á Kópavogsvelli á laugardaginn kl.13:30!
Blikahraðlestin hrökk heldur betur í gang í öðrum leik Fótbolta.net mótsins 2021. Fórnarlambið voru nýliðar Keflavíkur og voru lokatölur 1:6 okkar drengjum í vil.
Næsti leikur Blika í Fótbolta.net mótinu 2021 verður gegn Keflvíkingum í Reykjaneshöllinni á laugardaginn kl.12:00!
Breiðablik hefur fest kaup á bakverðinum öfluga Davíð Erni Atlasyni frá Víkingi Reykjavík.
Keppnistímabilið 2021 hófst með ágætum 3:0 sigri strákanna okkar á baráttuglöðum Grindvíkingum á Kópavogsvelli í Fótbolta.net mótinu.
Undirbúningstímabilið hjá meistaraflokki karla hjá Breiðabliki fer af stað á morgun (laugardag) á Kópavogsvelli kl.13:30!
Næsta kynslóð efnilegra Blika er farinn að banka á dyr meistaraflokksins. Til að tryggja þjónustu þeirra næstu árin hefur knattspyrnudeildin gert samning við nokkurra þessara leikmanna.
Í dag kveðjum við Blikar Svein Skúlason fyrrverandi leikmann okkar sem lést sunnudaginn 20.desember s.l. á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Óskum öllum Blikum og öðrum landsmönnum farsældar og gleði á nýju ári !
Óskum öllum Blikum og öðrum landsmönnum gleðilegrar jólahátíðar
Framherjinn stóri og stæðilegi, Stefán Ingi Sigurðarson, hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Blika.
Framherjinn knái, Brynjólfur Andersen Willumsson, hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks.
Bakvörðurinn knái, Davíð Ingvarsson, hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild Breiðabliks um þrjú ár.
Anton Logi Lúðvíksson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks.
Tvenn stór tímamót eru í útgáfu bókarinnar, annars vegar er þetta 40. bókin frá upphafi og síðan geta lesendur nú fengið rafrænan aðgang að öllum eldri bókunum. Þær eru semsagt allar komnar á netið.
Eftir ágætt tímabil 2019, þegar liðið endaði í 2. sæti Pepsi MAX annað árið í röð, mættu Blikar ferskir til leiks 13. júní 2020 eftir 7 vikna bið - upphaflegur leikdagur var 23. apríl, en það plan fór í skrúfuna vegna Covid-19.
Varnarmaðurinn öflugi Elfar Freyr Helgason hefur skrifað undir nýjan 3 ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks.
Ólafur Pétursson hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild Breiðablik til næstu tveggja ára. Ólafur mun áfram vera markmannsþjálfari meistaraflokks karla og kvenna ásamt því að vera aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna.
Nokkrir leikmenn U-21 árs landslið Íslands hafa verið færðir upp í A-landsliðið sem mætir Englendingum í Englandi á miðvikudaginn.
Finnur Orri kominn heim! Finnur Orri Margeirsson er kominn heim í Kópavoginn eftir sex ára fjarveru. Leikmaðurinn hefur spilað með KR undanfarin ár en hefur nú ákveðið að spila í græna búningnum á nýjan leik.
Blikar eru sáttir með árangurinn að loknu sögulegu keppnistímabili 2020
Hinn ungi og efnilegi Arnar Númi Gíslason, fæddur 2004, hefur gengið til liðs við Breiðablik frá Haukum. Arnar Númi er sóknarsinnaður leikmaður. Hann er áræðinn, býr yfir góðum hraða og er leikinn með boltann.
Það væri mikil lygi að segja að leikurinn hafi farið rólega af stað. Þvert á móti var alveg blússandi fart frá fyrstu mínútu og ritara gafst ekki ráðrúm til að hripa hjá sér nema það allra markverðasta.
Keppt í vínrauðum afmælistreyjum í tilefni 70 ára afmælis Breiðabliks.
Pepsi Max deild karla 2020. Breiðablik - Fylkir á Kópavogsvelli sunnudag kl.19:15.
Blikar urðu að bíta í það súra epli að sætta sig við 1:1 jafntefli gegn KA-mönnum á Kópavogsvelli í gær.
Breiðablik hefur samþykkt tilboð Bologna á Ítalíu um lán og kauprétt á hinum ungu og efnilegu Hlyn Frey Karlssyni og Gísla Gottskálk Þórðarsyni en þeir eru báðir fæddir árið 2004.
Pepsi MAX deild karla 2020. Breiðablik – KA á Kópavogsvelli fimmtudag kl.18:00
Trúum aðstoðardómurum – Fótboltafélag KFUM rændu vel spilandi Blika
Pepsi MAX deild karla 2020. Valur - Breiðablik á Origo vellinum sunnudag kl.19:15!
„Norðanáttin er nöpur,“ orti Megas fyrir margt löngu og bætti við: „hún næðir um veröldina alla / innan jafnt sem utan / og ekkert sést til fjalla.“
Pepsi MAX deild karla 2020. Breiðablik - Stjarnan á Kópavogsvelli fimmtudag kl.19:15!
Það eru átta leikir eftir af mótinu og tveir af þeim leikjum eru á móti Stjörnunni. Ef að Breiðablik ætlar sér að gera eitthvað í sumar þá kemur ekkert annað til greina en sigur á grönnum okkar í Garðabænum
Pepsi MAX deild karla 2020. Breiðablik - KR á Kópavogsvelli mánudag kl.19:15!
Það var rigningarsuddi í Firðinum þennan sunnudaginn. Blikar gerðu sér ferð yfir lækinn í þeirri von um að ná í 5. sigurinn í röð í deildinni.
Pepsi MAX deild karla 2020. FH – Breiðablik í Kaplakrika sunnudag kl.16:30!
„Sögð orð gleymast en ósögð ekki.“ Spjaldið sem aldrei var sýnt.
Breiðablik tekur á móti KR í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarins á Kópavogsvelli á fimmtudaginn 10. september kl.19:15
Færri komust að en vildu í haustblíðunni á laugardag. Höskuldur var í fararbroddi gestanna í sínum hundraðasta efstudeildarleik hér á landi, en alla hefur hann spilað fyrir Breiðablik.
Pepsi MAX deild karla 2020. Fjölnir - Breiðablik á Extra vellinum laugardag kl.13:00!
Kantmaðurinn Kwame Quee hefur verið lánaður til Víkinga í Reykjavík.
Að vanda eru margir núverandi og fyrrverandi Blikar í landsliðsverkefnum nú á haustdögum. Bæði í A-landsliði karla og U21 árs landsliðinu.
Minni menn en Blikar hefðu látið deigan síga og gefist upp eftir fyrri hálfleikinn en uppgjöf er greinilega ekki til í orðaforða okkar manna.
Breiðablik mætir norska stórliðinu Rosenborg frá Þrándheimi í undankeppni Evrópudeildarinnar í knattspyrnu. Leikurinn fer fram fimmtudaginn 27. ágúst 2020 og verður sýndur kl.17.00 beint á Stöð 2 Sport og er aðgengilegur þeim sem eru með Sport Ísland áskrift.
Blikar unnu þolinmæðissigur 0:1 gegn baráttuglöðum Gróttumönnum á Vivaldi vellinum á Seltjarnarnesi í kvöld. Blikaliðið spilaði mjög vel í leiknum en mörkin hefðu mátt verða fleiri.
Pepsi MAX deild karla 2020. Grótta - Breiðablik á Vivaldivellinum föstudagskvöld kl.19:15!
Eftir að hafa komist tveimur mörkum yfir tókum við öll völd á vellinum. Brynjólfur hefði hæglega geta bætt tveimur mörkum við en Ingvar át hann í tvígang.
Pepsi MAX deild karla 2020. Víkingur - Breiðablik á Víkingsvelli sunnudagskvöld kl.19:15!
Blikar hafa kallað framherjann Stefán Inga Sigurðarson og varnarmanninn Ólaf Guðmundsson til baka úr láni.
Breiðablik hefur keypt miðjumanninn Atla Hrafn Andrason af Víkingi Reykjavík
Breiðablik dróst gegn norska liðinu Rosenborg í forkeppni Evrópudeildarinnar í knattspyrnu. Okkar drengir fá útileik og verður leikurinn í Þrándheimi fimmtudaginn 27. ágúst.
Á morgun (mánudag) kemur í ljós hvaða mótherja Blikar fá í Evrópudeildinni 2020/2021. Dregið verður í Nyon í Sviss kl.13:00 CEST
Pepsi MAX deild karla 2020. Breiðablik - Fylkir á Kópavogsvelli mánudagskvöld kl.19:15!
Af ástæðum sem flestum ættu að vera ljósar hefur verið ákveðið að fresta Breiðablik OPEN golfmótinu þetta árið.
StórBlikinn og heiðursmaðurinn Guðmundur Þórðarson er 75 ára í dag.
Blikar unnu 3:0 sigur á Gróttumönnum í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarkeppninnar í gær. Leikurinn var spilaður í skugga nýrrar bylgju Covid veirunnar og engir áhorfendur því leyfðir á Kópavogsvelli.
Rétt í þessu gaf KSÍ út tilkynningu þess efnis að engir áhorfendur verða leyfðir á leikjum kvöldsins. Við viljum hinsvegar minna á að BlikarTV munu streyma beint frá leiknum.
Blika beið verðugt verkefni í PepsiMax deildinni í kvöld gegn Skagamönnum. Bæði lið búin að vera að ströggla að undanförnu og uppskeran eftir því rýr. Gestirnir með 10 stig og okkar menn með 11 fyrir leikinn.
Pepsi MAX deild karla 2020. Breiðablik - ÍA á Kópavogsvelli sunnudagskvöld kl.19:15!
Blikar lutu í gras 1:0 gegn nágrönnum sínum HK í fyrri leik liðanna í Pepsi MAX deild karla. Þrátt fyrir að vera með boltann stóran hluta leikins fundum við engin svör gegn sterkum varnarleik heimapilta.
Framherjinn Jason Daði Svanþórsson mun ganga til liðs við Breiðablik eftir lok núverandi tímabils þegar samningi hans við Afturerldingu lýkur í haust
Pepsi MAX deild karla 2020. HK – Breiðablik í Kórnum fimmtudagskvöld kl.20:15!
Það mætti segja að pressan hafi verið áþreifanleg í kvöld í Kópavoginum, Valur að koma í heimsókn og mikið undir hjá báðum liðum. Breiðablik komið niður í 4 sætið og Valur í 5 sæti.
Pepsi MAX deild karla 2020. Breiðablik - Valur á Kópavogsvelli sunnudagskvöld kl.20:00!
Kristinn Steindórsson hefur skrifað undir nýjan samning sem gildir út keppnistímabilið 2022.
Símamót Breiðabliks í knattspyrnu var haldið á félagssvæðum Breiðabliks dagana 9. – 12. júlí 2020. Mótið var haldið í fyrsta sinn árið 1985 og hefur afar sérstakan sess í hugum þeirra sem eru velunnarar kvennaknattspyrnunnar á Íslandi.
Það var blíðskaparveður í Vesturbæ Reykjavíkur þegar Blikar sóttu KR heim mánudagskvöldið 13. júlí. Aðstæður voru eins og best verður á kosið.
Pepsi MAX deild karla 2020. KR - Breiðablik á KR-vellinum mánudag kl.19:15!
Við byrjuðum leikinn nokkuð hægt og FH var ógnandi í fyrri hluta fyrri hálfleiksins.
Pepsi MAX deild karla 2020. Breiðablik – FH á Kópavogsvelli miðvikudag kl.20:15!
Jónas Hallgrímsson, albesta skáld okkar Íslendinga yrkir þannig í ljóðinu Ísland - sem hefst á þeim frægu orðum Ísland farsældar frón - og allir þekkja.
Pepsi MAX deild karla 2020. KA - Breiðablik á Akureyri sunnudag kl.16:00
Hvorki fleiri né færri en þrír leikmenn meistaraflokks karla voru lánaðir og einn fékk að fara án skuldbindinga.
Kópavogsdalur skartaði sínu fegursta mánudagskvöldið 29. júní þegar Fjölnismenn sóttu Blika heim. „Skein yfir landi sól á sumarvegi,“ 17 stiga hiti og þoka í grennd frá hamborgagrillunum.
Pepsi MAX deild karla 2020. Breiðablik – Fjölnir á Kópavogsvelli mánudagskvöld kl.19:15.
Þetta árið fór Kjartan Einarsson slagurinn fram í Mjólkurbikarnum þar sem Keflavík leikur í ár í Lengjudeildinni líkt og í fyrra, þá kennd við fyrirtækið Inkasso.
Breiðablik tekur á móti Keflavík í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarins á Kópavogsvelli i rjómablíðu fimmtudaginn 25. júní. Flautað verður til leiks kl.19:15
Það var líflegt í Lautinni þetta sunnudagskvöld þar sem fram fór 2. umferð í Pepsi Max deildinni. Karakterinn og þolinmæðin var klárlega til staðar hjá Blikum sem þyrftu að hafa fyrir þessum sigri á móti Fylkismönnum.
Pepsi Max deild karla 2020. Fylkir- Breiðablik á Würth-vellinum sunnudagskvöld kl. 19:15.
Semsagt 8 uppaldir hófu leikinn. Ekki að það skipti öllu máli, aðalatriði er að þeir sem spila í grænu treyjunni séu góðir í fótbolta. Það er hinsvegar ákveðinn gæðastimpill á starf deildarinnar þegar þetta fer saman í þeim mæli sem nú er og vert að geta þess.
Pepsi MAX deild karla 2020. Breiðablik – Grótta á Kópavogsvelli sunnudagskvöld kl. 20:15.
Þau ánægjulegu tíðindi voru að berast að miðjumaðurinn öflugi, Gísli Eyjólfsson, hefur framlengt samning sinn við knattspyrndeild Breiðablik út árið 2022.
Viðmælandi okkar í Blikahorninu að þessu sinni er Halldór Árnason aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla.
Blikar tóku öll völd frá fyrstu mínútu. Boltinn gekk greiðlega manna á milli, spilið – með Anton Ara sem aftasta mann – gekk ljómandi vel og gestirnir úr efri byggðum náðu varla boltanum og ef það tókst misstu þeir hann jafn harðan aftur.
Ljóst er að færri komast að en vilja á þessa leiki vegna samkomutakmarkanna og því hvetjum við alla Blika til þess að ganga frá kaupum og tryggja sér miða á fyrstu leikina.
Næstkomandi sunnudag, þann 7.júní, munu Breiðablik og HK mætast í góðgerðarleik á Kópavogsvelli kl.12:00.
Áskriftarátak! Áskrift að Pepsi MAX 2020 á Stöð 2 Sport framlengt til 11. júní
Tónlistarmaðurinn Herra Hnetusmjör, sem er bæjarlistamaður Kópavogs 2020, hefur gefið út nýtt stuðningsmannalag fyrir Breiðablik. Lagið ber heitið 'Eitt fyrir klúbbinn'.
Blikar og Valsmenn skildu jafnir 3:3 í hörkuvinuáttuleik á Kópavogsvell í gær. Þetta er í fyrsta skipti sem blikar.is vita um að selt hafi verið inn á æfingaleik enda var þetta styrktarleikur fyrir Pieta samtökin á Íslandi.
Næstkomandi sunnudag, þann 31.maí, munu meistaraflokkar karla hjá Breiðabliki og Val mætast á Kópavogsvelli í góðgerðarleik til styrktar Píeta samtakanna á Íslandi.
Það er ferlega skemmtilegt að sjá hvernig Evrópuúrval Breiðabliksstrákanna lítur út. Gömlu brýnin eru gleymd og við blasa gaurar sem eru að gera frekar góða hluti víðsvegar um evrópska efnahagssvæðið og jaðar þess.
Viðmælandi Blikahornsins að þessu sinni er járnkarlinn Logi Kristjánsson, fyrrum formaður aðalstjórnar Breiðabliks.
Willum Þór Willumsson varð í gær bikarmeistari í Hvíta-Rússlandi með liði sínu Bate Borisov. Bate sigraði lið Minsk 1:0 í hörkuleik eftir framlengdan leik.
“Hver er maðurinn?” Kynning á leikmönnum meistarflokks karla fyrir keppnistímabilið 2020. Kynnum til leiks leikjahæsta knattspyrnumann í deildakeppni á Íslandi, snillinginn Gunnleif Gunnleifsson markvörð með meiru.
Breiðablik hefur lánað leikmanninn Aron Kára Aðalsteinsson til 1. deildar liðs Fram út keppnistímabilið 2020. Aron Kári hefur skrifað undir nýjan samning við Breiðablik sem gildir út tímabilið 2022.
Grótta hefur náð samkomulagi við Breiðablik um að fá Karl Friðleif Gunnarsson að láni fyrir átökin í Pepsi max deildinni í sumar.
“Hver er maðurinn?” Kynning á leikmönnum meistarflokks karla keppnistímabilið 2020. Kynnum til leiks miðjusnillinginn Alexander Helga Sigurðarson
“Hver er maðurinn?” Kynning á leikmönnum meistarflokks karla keppnistímabilið 2020. Kynnum til leiks danska markahrókurinn Thomas Mikkelesen. Blikar.is kynnir 2 -3 leikmenn vikulega næstu vikur.
“Hver er maðurinn?” Kynning á leikmönnum meistarflokks karla keppnistímabilið 2020. Kynnum til leiks miðjusnillinginn Andra Rafn Yeaoman - leikjahæsta leikmann Breiðabliks frá upphafi með 331 mótsleiki. Blikar.is kynnir 2 -3 leikmenn vikulega næstu vikur.
“Hver er maðurinn?” Kynning á leikmönnum meistarflokks karla keppnistímabilið 2020. Kynnum til leiks framherjann unga Stefán Inga Sigurðarson. Blikar.is kynnir 2 -3 leikmenn vikulega næstu vikur.
“Hver er maðurinn?” Kynning á leikmönnum meistarflokks karla keppnistímabilið 2020. Kynnum varnarmanninn sterka Damir Muminovic í upphafi maí mánaðar. Blikar.is kynnir 2 -3 leikmenn vikulega næstu vikur.
“Hver er maðurinn?” Kynning á leikmönnum meistarflokks karla keppnistímabilið 2020. Við kynnum markvörðinn Anton Ara Einarsson til leiks. Blikar.is kynnir 2 -3 leikmenn vikulega næstu vikur.
“Hver er maðurinn?” Kynning á leikmönnum meistarflokks karla keppnistímabilið 2020. Karl Friðleifur Gunnarsson á sviðið að þessu sinni. Blikar.is kynnir 2 -3 leikmenn vikulega næstu vikur.
“Hver er maðurinn?” Kynning á leikmönnum meistarflokks karla keppnistímabilið 2020. Kynnum varnarmanninn Ólaf Guðmundsson til leiks í fyrstu viku sumars.
Viðmælandi Blikarhornins er að þessu sinni Einar Kristján Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks á árunum 2006-2013
“Hver er maðurinn?” Kynning á leikmönnum meistarflokks karla keppnistímabilið 2020. Miðjumaðurinn og gleðigjafinn Oliver Sigurjóns kyntur í upphafi sumars. Blikar.is kynnir 2 -3 leikmenn vikulega næstu vikur.
“Hver er maðurinn?” Kynning á leikmönnum meistarflokks karla keppnistímabilið 2020. Varnar- og miðjumaðurinn Róbert Orri Þorkelsson er kynntur til leiks. Blikar.is kynnir 2 -3 leikmenn vikulega næstu vikur.
“Hver er maðurinn?” Kynning á leikmönnum meistarflokks karla keppnistímabilið 2020. Bakvörðurinn Arnar Sveinn Geirsson kynntur á þessum sunnudegi. Blikar.is kynnir 2 -3 leikmenn vikulega næstu vikur.
“Hver er maðurinn?” Kynning á leikmönnum meistarflokks karla keppnistímabilið 2020. Kynnum í dag kantmanninn okkar knáa Kwame Quee. Blikar.is kynnir 2 -3 leikmenn vikulega næstu vikur.
Borghildur Sigurðardóttir er viðmælandi Blikahornsins að þessu sinni. Borghildur var formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks á árunum 2013-2017
“Hver er maðurinn?” Kynning á leikmönnum meistarflokks karla keppnistímabilið 2020. Kynnum vinstri bakvörðinn knáa Davíð Ingvarsson til leiks. Blikar.is kynnir 2 -3 leikmenn vikulega næstu vikur.
“Hver er maðurinn?” Kynning á leikmönnum meistarflokks karla keppnistímabilið 2020. Framherjinn og Pöndu vinurinn mikli Brynjólfur Andresen Willumsson kynntur til leiks. Stuðningsmannavefurinn blikar.is kynnir 2 -3 leikmenn vikulega næstu vikur.
“Hver er maðurinn?” Kynning á leikmönnum meistarflokks karla keppnistímabilið 2020. Sókndjarfi miðjumaðurinn Viktor Karl ýtir páskahelginni úr vör. Stuðningsmannavefur blikar.is kynnir 2 -3 leikmenn vikulega næstu vikur.
“Hver er maðurinn?” Kynning á leikmönnum meistarflokks karla keppnistímabilið 2020. Fókusinn nú er á Kristinn Steindórsson - markahæsta leikmann Blika frá upphafi í efstu deild. Stuðningsmannavefur blikar.is kynnir 2 -3 leikmenn vikulega næstu vikur.
“Hver er maðurinn?” Kynning á leikmönnum meistarflokks karla keppnistímabilið 2020. Miðjumaðurinn sterki Gísli Eyjólfsson er kynntur hér. Stuðningsmannavefur blikar.is kynnir 2 -3 leikmenn vikulega næstu vikur.
“Hver er maðurinn?” Kynning á leikmönnum meistarflokks karla keppnistímabilið 2020. Hinn eini sanni GPL10 á sviðið. Stuðningsmannavefur blikar.is kynnir 2 -3 leikmenn vikulega næstu vikur.
“Hver er maðurinn?” Kynning á leikmönnum meistarflokks karla keppnistímabilið 2020. Miðjumaðurinn knái Benedikt Warén kynntur til leiks. Stuðningsmannavefur blikar.is stefnir á að kynna 2 -3 leikmenn vikulega næstu vikur.
,,Þetta er ekki staða sem ég ætlaði mér að vera í,“ sagði þessi geðþekki Bliki í samtali við tíðindamann blikar.is ,,
“Hver er maðurinn?” Kynning á leikmönnum meistarflokks karla keppnistímabilið 2020. Varnar-og miðjutröllið Viktor Örn Margeirsson tekinn fyrir. Stuðningsmannavefur blikar.is stefnir á að kynna 2 -3 leikmenn vikulega næstu vikur.
“Hver er maðurinn?” Kynning á leikmönnum meistarflokks karla keppnistímabilið 2020. Fyrirliðinn Höskuldur Gunnlaugsson ríður á vaðið. Stefnum á að kynna 2 -3 leikmenn vikulega næstu vikur.
Viðmælandi Blikahornsins er að þessu sinni þjálfarinn geðþekki Ólafur Pétursson. Það eru ekki margir sem gera sér grein fyrir því að Ólafur er einn sigursælasti þjálfari landsins.
Meistaraflokkar Breiðabliks þurfa að hætta æfingum í samræmi við beiðni sóttvarnarlæknis til ÍSÍ/UMFÍ og tilmælum KSÍ um að knattspyrnuhreyfingin fari að þessum afgerandi tilmælum og að allt íþróttastarf falli tímabundið niður.
Blikamiðlarnir öflugu, BlikarTV og blikar.is, sameinuðu krafta sína í dag til að taka púlsinn á félaginu okkar vegna stöðunnar sem komin er upp vegna COVID-19 veirunnar.
Guðmundur Þórðarson framherjinn snjalli er fjórði viðmælandi viðtalsins við Blikahornið á blikar.is. Það er fátt sem Guðmundur hefur ekki komið að í sögu knattspyrnudeildar Breiðabliks.
Framhaldsaðalfundur knattspyrnudeildar Breiðabliks fór fram þann 12. mars 2020. Þar var lagður fram ársreikningur deildarinnar fyrir árið 2019.
Samkvæmt leikjaplani KSÍ er næsti leikur strákanna við KR-inga í Lengjubikarnum 2020 á sunnudagskvöld kl.19:15 á Kópavogsvelli. Frítt er inn á leikinn og nóg pláss í stúkunni. Liðin hafa mæst 13 sinnum innbyrðis í Lengjubikarnum (Deildabikar KSÍ). Tölfræðin fellur með KR: 6 sigar þeirra röndóttu, 4 sigrar Blikamanna og jafnteflin eru 3. Þrisvar hafa liðin leikið til úrslita í keppninni. Fyrst árið 2010 en þá vinnur KR 2.1 sigur. Liðin mætast aftur í úrslitaleik 2012. KRingar vinna þann leik 2:0. Árið eftir mætast liðin aftur í úrslitaleik sem Blikamenn sigra 3:1.
Framhaldsaðalfundur knattspyrnudeildar Breiðabliks fyrir árið 2019 fór fram í dag þar sem ársreikningur deildarinnar var afgreiddur.
Blikar unnu öruggan 1:4 sigur á Leikni frá Fáskrúðsfirði í Lengjubikarnum í dag. Leikurinn fór fram í Alcoa höllinni á Reyðarfirði og var sigur Blika aldrei í hættu. Thomas Mikkelsen er óstöðvandi og setti þrennu í leiknum.
Strákarnir okkar ætla að ferðast austur á land um helgina þar sem þeir munu mæta Leiknismönnum frá Fáskrúðsfirði í Fjarðabyggðarhöllinni á sunnudaginn kl.13:00!
Óskar Hrafn var gestur í hlaðvarpsþættinum Fantasy Gandalf þar sem hann ræddi meðal annars um stöðu leikmannahóps Breiðabliks
Blikinn Gylfi Steinn Gunnarsson er þriðji viðmælandi Blikahornsins á blikar.is. Hann starfar sem vefhönnuður og er aðalsprautan bakvið tæknilega hlið blikar.is - stuðningsmannasíðu meistaraflokka Breiðabliks í knattspyrnu.
Þrátt fyrir að engin tilmæli hafi komið frá landlækni eða almannavörnum um að fresta slíkum viðburðum hefur félagið samt sem áður ákveðið að grípa til þeirra varúðarráðstafana að fresta herrakvöldinu til 15. maí 2020.
Þau ánægjulegu tíðindi voru að berast að Damir Muminovic hefur skrifað undir nýjan samning við Breiðablik sem gildir út keppnistímabilið 2022.
Karl Friðleifur Gunnarsson hefur framlengt samning sinn við Breiðablik út keppnistímabilið 2022.
Breiðablik spilaði frábærlega mest allan leikinn. Vörnin var þétt allan tímann og áður er minnst á Guðjón Pétur á miðjunni. Á góðum degi eru það ekki margir betri miðjumenn sem leika á Íslandi.
Brot úr sögu upphafsára meistaraflokka Breiðabliks í knattspyrnu í tilefni 70 ára afmælis Breiðabliks 12. febrúar 2020.
Næsti leikur strákanna í Lengjubikarnum 2020 er við sjóðheita Skagamenn á föstudagskvöld kl.19:15 á Kópavogsvelli. Frítt er inn á leikinn.
Miðjumaðurinn efnilegi Benedikt V. Warén hefur framlengt samning sinn við Breiðablik út keppnistímabilið 2022. Benedikt hefur staðið sig afar vel með meistaraflokki Breiðabliks á undirbúningstímabilinu. Við hlökkum til að fylgjast með þessum efnilega leikmanni á næstu misserum.
Blikar unnu nokkuð öruggan 1:3 sigur á félögum okkar í ungmennafélagshreyfingunni í Mosó. Leikurinn var annar leikur okkar í Lengjubikarnum 2020. Við sýndum lítinn drengskap í fyrri hálfleik, völtuðum yfir áttavilta Mosfellinga þannig að þeir vissu varla hvort þeir væru að koma eða fara.
Uppfærsla í gangi á blikar.is
Næsti leikur okkar manna í Lengjubikarnum 2020 er á föstudaginn kl.19:00 á Varmárvelli í Mosfellsbæ. Andstæðingar okkar er frískt lið Aftureldingar í Mosfellsbæ. Leikurinn er annar leikur liðanna í mótinu.
Það verður ekki af okkur Blikum tekið að við erum gjafmildir með afbrigðum! Í æfingaleik gegn sænska úrvalsdeildarliðinu Norrköping gáfum við fjögur mörk sem urðu þess valdandi að við töpuðum leiknum 2:4. Samt sem áður var margt gott í leik okkar stráka.
Strákarnir okkar eru farnir í æfingaferð til Svíþjóðar og mæta sænska úrvalsdeildarliðinu Norrköping á morgun föstudag. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á morgun föstudag kl.13.00 að íslenskum tíma (kl.14.00 að sænskum tíma).
Ungmennafélagið Breiðablik var stofnað í Kópavogi þann 12. febrúar 1950. Félagið fagnar því 70 ára afmæli um þessar mundir. Félagsmenn ætla að fagna stórafmælinu með göngu um söguslóðir Breiðabliks sunnudaginn 16. febrúar. Að henni lokinni verður samkoma í íþróttahúsinu Smáranum.
Tveir leikmenn léku sinn fyrsta leik fyrir Blikaliðið. Það var markmaðurinn Brynjar Atli Bragason sem er nýkominn frá Njarðvík og varnarmaðurinn úr Mosfellsbænum Róbert Orri Þorkelsson. Báðir stóðu vel fyrir sínu.
Knattspyrnumaðurinn snjalli Kristinn Steindórsson hefur ákveðið að klæðast grænu treyjunni á nýjan leik. Kristinn sem varð bikarmeistari með Blikum árið 2009 og Íslandsmeistari árið 2010 á að baki 132 mótsleiki með meistaraflokki Breiðabliks
Næsti leikur okkar manna er í Lengjubikarnum 2020. Leikurinn verður í Fífunni kl.18:30 á morgun, föstudag. Andstæðingar okkar eru frískir Leiknismenn úr Breiðholtinu. Leikurinn er fyrsti leikur liðanna í mótinu og jafnframt opnunarleikur Deildabikarsins (Lengubikarsins) árið 2020.
Miðjumaðurinn ungi og efnilegi Anton Logi Lúðvíksson hefur verið lánaður með forkaupsrétti til ítalska úrvalsdeildarliðsins SPAL fram á sumar. SPAL getur gengið frá kaupunum á meðan lánssamningnum stendur.
Fótboltinn er er skrýtið fyrirbæri og úrslit stundum alveg út úr kú. Það á svo sannarlega við úrslitaleik Fotbolta.net-mótsins árið 2020. Blikar voru betri á flestum sviðum en töpuðu samt 2:5.
Breiðablik mætir sprækum Skagamönnum í úrslitaleik Fótbolta.net-mótsin 2020 á Kópavogsvelli á fimmtudaginn kl.18:00! Frítt er inn á leikinn.
Markvörðurinn ungi og efnilegi, Brynjar Atli Bragason, hefur gengið til liðs við Breiðablik frá uppeldisfélaginu sínu Njarðvík.
Þetta var flottur sigur hjá Blikaliðinu. Eftir smá basl að opna FH vörnina í fyrri hálfleik þá kom flæði í spil þeirra grænklæddu í síðari hálfleik og sigurinn síst of stór. Spilamennskunni fer fram með hverjum leik og greinilegt að mönnum er farið að líða vel með þessa nálægð við knöttinn!
Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari meistaraflokks karla í beinskeittu viðtali á blikar.is
Blikum nægir jafntefli í leiknum til að komast í úrslit á mótinu. En það er ljóst að okkar piltar mæta ekki í Hafnarfjörðinn fyrir minna en 3 stig!
Koma Höskuldar eru frábærar fréttir fyrir stuðningsmenn og Blikaliðiðið en frammistaða hans skilaði sér í sæti í íslenska A-landsliðinu á dögunum þar sem hann átti mjög góðan leik.
Blikar unnu öruggan 2:0 sigur gegn ÍBV í Fotbolta.net mótinu á köldum en fallegum vetrardegi á Kópavogsvelli í dag. Leikurinn var okkar frá fyrstu mínútu og áttu gestirnir ekki roð við fríska Blika í leiknum.
Breiðabliksliðið mætir liði ÍBV í 2. umferð Fótbolta.net mótsins 2020 á Kópavogsvelli á laugardaginn kl.12.00.
Þau ánægjulega tíðindi voru að berast að miðjumaðurinn snjalli, Oliver Sigurjónsson, er kominn heim aftur eftir 2 ára dvöl í Noregi. Hann gerir þriggja ára samning við Breiðablik.
Breiðablik vann stórsigur 1:6 á grönnum sínum HK í fyrsta leik liðanna Fótbolta.net mótinu 2020. Leikurinn var jafnframt styrkatarleikur til minningar um Bjarka Má Sigvaldsson sem lést á síðasta ári. Félögin ákváðu að nefna viðureignina "Bjarkaleik" og styrkja Ljónshjarta-fyrir ungt fólk sem misst hefur maka og börn þeirra, með frjálsum framlögum við innganginn.
HK og Breiðablik spila í Fótbolta.net mótinu á laugardag 11 jan kl.11.15 í Kórnum. Félögin hafa ákveðið að kalla þetta Bjarkaleik í minningu Bjarka Sigvaldasonar.
Knattspyrnudeild Breiðabliks og hollenska stórliðið Ajax hafa komist að samkomulagi um vistaskipti hins unga og efnilega Kristians Nökkva Hlynssonar til Hollands.
Að vanda fjölmenntu Blikar í áramótabolta knattspyrnudeildar á síðasta degi ársins. Rúmlega 50 frískir knattspyrnumenn rifu sig upp á þessum gamlársdegi og spiluðu eins og engin væri morgundagurinn.
Blikar.is óska Blikum og öllum landsmönnum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs.
Það fá margir ,,gamlir" Blikar tækifæri með íslenska A-landsliðinu sem spilar tvo leiki í Bandaríkjunum um miðjan janúar.
Blikinn Höskuldur Gunnlaugsson hefur verið valinn í íslenska landsliðið sem spilar tvo æfingaleiki í Los Angeles um miðjan janúar. Höskuldur á að baki 7 landsleiki með U-21árs liði Íslands en hefur ekki spilað með A landsliðinu áður.
Kveikt verður í brenunni klukkan 20:30 og hefst flugeldasýning Hjálparsveit skáta í Kópavogi klukkan 21:10. Ásgeir Páll sér um að halda uppi fjörinu með söng og hljóðfæraleik.
Blikar hafa notað marga leikmenn í mótinu og ljóst að það er góður efniviður fyrir þjálfarana til að moða úr. Ungir leikmenn sem við sáum glitta í í sumar eru nú farnir að gera sig gildandi og fá meiri spiltíma.
Síðasti leikur okkar manna í Bose mótinu 2019 er á laugardaginn kl.12.00 á Kópavogsvelli gegn nágrönnum okkar í Stjörnunni frá Garðabæ.
Breiðablik og Fram hafa komist að samkomulagi um vistaskipti framherjans knáa Þóris Guðjónssonar yfir til þeirra bláu.
Blikar náðu tveggja marka forskoti á fyrstu 20 mínútum leiksins. Það voru þeir Guðjón Pétur og Höskuldur sem settu mörkin. Þá gáfum við eftir og Valsmenn minnkuðu muninn verðskuldað rétt fyrir leikhlé.
Næsti leikur okkar manna er á fimmtudaginn kl.17.00 á Kópavogsvelli gegn Valsmönnum. Það verður athyglisverður leikur en Valsmenn unnu Stjörnuna 3:2 í sínum fyrsta leik á Bose mótinu.
Blikar urðu að sætta sig við 2:3 tap gegn KA í fyrsta leik Bose mótsins. Léleg færanýting og klaufaskapur í vörninni urðu þess valdandi að stigin þrjú fóru norður að þessu sinni. Mörk þeirra Höskuldar Gunnlaugssonar og Bjarna Þórs Hafstein voru hins vegar falleg og glöddu töluvert marga áhorfendur á Kópavogsvelli.
Breiðablik og KA spila í Bose-mótinu 2019 á Kópavogsvelli á laugardaginn kl.14.00.
Það er okkur Blikum mikil ánægjutíðindi að samkomulag hafi náðst milli félaganna og að Róbert Orri skyldi velja Breiðablik þar sem hann mun halda áfram að vaxa og dafna.
Breiðablik er í riðli 1 með KA, Valsmönnum og Stjörnunni. Fyrsti leikur okkar manna um næstu helgi þegar við fáum KA-menn í heimsókn á Kópavogsvöll kl.14:00, laugardaginn 16. nóvember.
Blikar mættu ferskir til leiks 2019 eftir gott tímabil í fyrra. Liðið endaði í öðru sæti í deildarinnar annað árið í röð og komst í undanúrslit í Mjólkurbikarkeppni KSÍ en tapaði fyrir spræku liði Víkings. FC Vaduz frá Liechtenstein var andstæðingur í Evrópudeild UEFA. Liðin gerðu 0:0 jafntefli á Kópavogsvelli. Blikar töpuðu svo 2:1 fyrir Vaduz á þeirra heimavelli, Rheinpark Stadion í Liechtenstein.
Það er Blikum sannur heiður að fá að veita Hákoni gullmerki Breiðabliks fyrir óþreytandi starf í þágu félagsins.
Markvörðurinn knái Ólafur Íshólm hefur ákveðið að nýta sér uppsagnarákvæði í samningum sínum og yfirgefa herbúðir Blika. Ólafur kom til okkar frá Fylki árið 2017 og hefur leikið 5 leiki með meistaraflokknum
Halldór Árnason hefur skrifað undir samning sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá Blikum. Halldór hefur verið aðstoðarþjálfari Óskars Hrafn Þorvaldssonar hjá Gróttu undanfarin tvö ár.
Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur ráðið Óskar Hrafn Þorvaldsson sem þjálfara meistaraflokks karla til næstu fjögurra ára.
Blikinn Kristian Nökkvi Hlynsson setti félagsmet í gær þegar hann kom inn á í efstu deildar leik gegn KR á Kópavogsvelli í Pepsi Max deild karla.
Okkar menn byrjuðu af nokkrum krafti, þó að maður saknaði þess að þeir fylgdu eftir endasprettinum í Stjörnu-leiknum á dögunum þar sem hrein unun var að fylgjast með hröðu spilinu. Það var eins og vantaði aðeins upp á kraftinn. KR-ingar voru heldur ekkert að æsa sig. Ég hef punktað hjá mér ýmislegt um fínt spil, næstum-því-færi af og til en það skapaðist svo sem engin sérstök hætta. Manni fannst samt eins og Blikar væru með full tök á leiknum.
Það er auðvitað markmiðið að fara í síðasta leikinn á heimavelli og leggja nýkrýnda Íslandsmeistara KR að velli. Það myndi lina sársaukann yfir þessu súrsæta silfri sem Blikaliðið gulltryggði sér í Eyjum um síðustu helgi. Sigur myndi fleyta okkar mönnum í 41 stig sem er fínn stigaárangur.
Strákarnir í 2. flokki karla gerðu sér lítið fyrir í gær og urðu Bikarmeistarar í sínum flokki. Liðið lagði Íslandsmeistara Skagamanna 3:4 í frábærum knattspyrnuleik í Akraneshöllinni.
Knattspyrnumaðurinn Guðmundur Böðvar Guðjónsson hefur ákveðið að söðla um og hætta í herbúðum okkar Blika.
Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur nýtt sér uppsagnarákvæði í samningi milli Ágústar Gylfasonar og knattspyrnudeildar Breiðabliks.
Það þarf í sjálfu sér ekki að eyða mörgum orðum í leikinn. Kári í jötunmóð var í aðalhlutverki og ekki er hægt að ætlast til að leikmenn geti spilað alvöru knattspyrnu við þær aðstæður. Höskuldur gerði reyndar fínt mark eftir frábæran undirbúning Thomasar Mikkelsen.
Staða liðanna í deildinni fyrir leikinn er mjög ólík. Eyjaliðið er í neðsta sæti deildarinnar með 9 stig og fallið úr Pepsi MAX deildinni. Breiðabliksliðið er í 2. sæti deildarinnar með 37 stig. Sigur okkar manna gegn ÍBV á sunnudaginn svo gott sem tryggir Breiðabliki 2. sætið annað árið í röð.
Andri Rafn Yeoman mun í vetur stunda nám í Róm á Ítalíu og mun því missa af tveimur síðustu leikjum Breiðabliks í Pepsi Max deildinni.
Tilfinningin eftir leik var nokkuð sérstök. Breiðablik lék afar vel lengst af í þessum leik og sigur hefði verið sanngjarn. En fótboltinn er undarleg íþrótt – og það fer ekki alltaf saman hvað er réttlátt og hvað ekki. afnteflið í kvöld tryggði okkur Evrópusæti að ári en við þurfum a.m.k. 3 stig til að enda í 2. sæti deildarinnar sem hlýtur að vera markmið okkar úr því sem komið er.
Nágrannaslagur Breiðabliks og Stjörnunnar er uppskrift að frábærri skemmtun, enda stórleikur tveggja góðra liða þar sem Evrópusæti á næsta ári er í boði, en hagstæð úrslit á mánudagskvöld og Blikar tryggja sér rétt til þátttöku í Evrópudeild UEFA 2020.
Kristian Nökkvi Hlynsson hefur skrifað undir samning við Breiðablik. Kristian hefur reglulega verið á æfingum með meistaraflokki Breiðabliks síðan um mitt sumar.
Við Blikar minnumst Atla Eðvaldssonar knattspyrnumanns og þjálfara sem jarðsunginn verður í dag.
Miðjumaðurinn efnilegi Anton Logi Lúðvíksson hefur skrifað undir samning við Breiðablik. Anton sem er fæddur árið 2003 er á eldra ári 3.flokks hefur þegar verið boðaður á æfingar hjá meistaraflokki karla.
Það var ekki fyrir taugaveiklaða né hjartveika að fylgjast með lokamínútum leiks Blika og Fylkis í Pepsi MAX deild karla í gær. Eftir að okkar drengir höfðu yfirspilað Árbæjarliðið nánast allan leikinn og komist í 4:0 hikstaði Blikavélin heldur betur.
Framundan er hörku leikur á sunnudaginn þar sem mikið er undir og bæði lið munu láta sverfa til stáls. Það er að losna um takið sem Fylkir hefur haft á okkar mönnum á Kópavogsvelli í gegnum tíðina. Sigur okkar manna á Fylki á Kópavogsvelli í fyrra var kærkominn eftir 5 mögur ár í stigaöflun gegn Árbæjarliðinu á Kópavogsvelli.
Okkar menn byrjuðu af miklum krafti. Elfar var nánast eins og framliggjandi miðjumaður, Guðjón Pétur tók aukaspyrnu hratt á miðjum velli, stakk inn á Höskuld sem hitti boltann illa og allt að gerast hjá Blikum.
Blikar heimsækja svart/hvíta FH-inga á Kaplakrikavöll kl.18:00 á mánudaginn í leik sem verður að teljast stórleikur umferðarinnar enda um að ræða innbyrðis leik liðanna sem eru í 2. og 3. sæti deildarinnar eftir 17 umferðir.
Við bjóðum Anton Ara hjartanlega velkominn í Kópavoginn um leið og við óskum honum góðs gengis í baráttunni það sem eftir er af núverandi timabili með Hlíðarendafélaginu.
Blikar fengu Valsmenn í heimsókn í 17. umferð Pepsi Max deildarinnar í kvöld. Bæði lið töpuðu síðasta leik. Blikar enn að jafna sig eftir vonbrigðin í Víkinni, og Valsmenn sömuleiðis fúlir eftir tap gegn FH í skrautlegum leik. Veður var eins og svo oft í sumar hið besta, hæg breytileg átt og síðan suðaustan kaldi en heiðskírt og hiti um 15 gráður sem telst þokkalega hlýtt á ágústkvöldi.
Fjórtánda golfmót knattspyrnudeildar, Breiðablik Open, fór fram á Selsvelli við Flúðir föstudaginn 9. ágúst s.l. Uppselt var í mótið að þessu sinni og komust færri að en vildu.
Sautjánda umferð Pepsi MAX deildar karla verður leikin á sunnudag og mánudag. Við Blikar fáum Íslandsmeistarar Vals í heimsókn á Kópavogsvöll á mánudagskvöld. Flautað verður til leiks kl.19:15 á flóðlýstum Kópavogsvelli.
Það er ekki hægt að biðja um betri aðstæður til að leika knattspyrnu en þegar Víkingur tók á móti Breiðablik í undanúrslitum Mjólkurbikarkeppninnar 2019 fimmtudagskvöldið 15. ágúst. Nánast blankalogn og hitastigið 13 gráður.
Þá er komið að einum mikilvægasta leik sumarsins. Undanúrslitaleiknum gegn Víkingum í Mjólkurbikarkeppni KSÍ 2019. Stutt er á milli heimsókna Blikamanna í Víkina þetta árið. Það eru ekki nema 2 vikur rúmar síðan við spiluðum við Reykjavíkur Víkinga í Pepsi Max deildinni.
Blikar unnu mjög góðan 1:2 sigur á Skagamönnum á Akranesvelli í gær. Okkar drengir lögðu grunninn að sigrinum með frábærum fyrri hálfleik. Heimamenn sóttu nokkuð hart að okkur í síðari hálfleik án þess þó að skapa sér verulega hættuleg færi. Þrjú stig í Kópavoginn og enn möguleiki að berjast um Íslandsmeistaratitilinn.
Sextánda umferð Pepsi MAX deildar karla hefst á sunnudaginn með 5 leikjum og lýkur á mánudagskvöld. Blikamenn heimsækja Skagamenn á sunnudaginn. Leikið verður á Norðurálsvelli og hefst leikurinn kl.16:00!
Miðjumaðurinn ungi og efnilegi Andri Fannar fór á láni til Bologna í janúar á þessu ári. Á meðan lánstímanum stóð átti Bologna forkaupsrétt á leikmanninum. Andri Fannar stóð sig afar vel á lánstímanum og hefur ítalska félagið nú fest kaup á leikmanninum.
Yfirburðir Blika voru algjörir á öllum sviðum í kvöld og var hvergi veikan hlekk að finna. Sérstaklega var gaman að sjá Alfons aftur í Blikabúningnum. Þá var ekki síður gleðilegt að fylgjast með framgöngu Davíðs í vinstri bakverðinum, að ógleymdum danska stormsenternum.
Strákarnir okkar fá mjög verðugt verkefni á miðvikudaginn þegar KA-menn koma í heimsókn í Kópavoginn. Leikurinn hefst kl.18:00!
Eins og blikar.is var búið að segja frá var knattspyrnudeild Breiðabliks búin að samþykkja tilboð Belganna í þennan unga og efnilega miðjumann.
Bakvörðurinn ungi og efnilegi Davíð Ingvarsson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks. Davíð sem er tvítugur hefur leikið 22 mótsleiki fyrir Blikaliðið.
Breiðablik og Norrköping hafa náð samkomulag um að Alfons Sampsted komi á lán til Breiðabliks og spili í Pepsi Max deildinni út tímabilið. Að láni loknu mun Alfons aftur fara til Norrköping þar sem hann er samningsbundin út árið 2020.
Blikar urðu að lúta í gras 3:2 gegn Víkingum í Víkinni í Pepsi Max deild karla í gærkvöldi. Úrslitin eru mikil vonbrigði fyrir okkur því Blikaliðið stjórnaði leiknum og var með boltann mun meira en heimaliðið. En það eru mörkin sem telja í leiknum og einbeitingarleysi og einstaklingsmistök urðu þess valdandi að við fórum tómhentir heim.
Viðræður hafa staðið yfir í töluverðan tíma á milli belgíska 1. deildarliðsins Lommel og Breiðabliks um kaup fyrrnefnda liðsina á miðjumanninum öfluga Kolbeini Þórðarsyni.
Fjórtánda umferð Pepsi MAX deildar karla verður leikinn á sunnudag og mánudag. Verkefni okkar manna er að sækja 3 stig í Víkina á mánudagskvöld. Punktur! Flautað verður til leiks í Víkinni kl.19:15!
Fjórtánda opna golfmót knattspyrnudeildar Breiðabliks verður haldið föstudaginn 9. ágúst n.k. og hefst kl.13:00. Mótið fer að venju fram á golfvellinum að Efra Seli við Flúðir. **** Uppselt er í mótið ****
Eins og deildin er að spilast erum við kannski stálheppnir að vera enn í öðru sæti og enn með möguleika á Íslandsmeistaratitlinum og að sjálfsögðu Bikarnum líka.
Fyrsti leikur strákanna í Pepsi MAX eftir Evrópuleikina við FC Vaduz er á Kópavogsvelli á mánudaginn kl.19:15 þegar Tufa og hans menn í Grindavík koma í heimsókn á Kópavogsvöll. Staða liðanna í Pepsi MAX deildinni er þannig ...
Leikurinn í Lichtenstein fór á margan hátt svipað af stað og leikurinn í Kópavogi. Bæði lið spiluðu sterkan varnarleik og vörðust með mörgum mönnum. Þó var aðeins meiri sóknarþungi í leik Blikaliðsins en samt var Thomas oft einmana upp á toppinum.
Þetta er seinni leikur liðanna. Fyrri leikurinn fór fram á Kópavogsvelli á fimmtudaginn var. KIG, tíðindamaður blikar.is á leiknum, komst svona að orði í umfjöllun um leikinn ....
Það var mikið um að vera á félagssvæði okkar Blika um helgina. Þá fór fram Símamótið í knattspyrnu en þarna er framtíð íslenskrar kvennaknattspyrnu saman komin. Þarna etja kappi ungar knattspyrnukonur í 5., 6. og 7. flokki hvaðanæva að af landinu og skemmta sér saman.
Gunnleifur Gunnleifsson markvörður hélt upp á 44 ára afmæli sitt í dag á hefðubundinn hátt með því að skrifa undir nýjan árssamning við knattspyrnudeild Breiðabliks!
Ég viðurkenni fúslega að það hefði verið þakklátt að fá seinni leikinn á okkar heimavelli, þessi 2 leikja einvígi gera það að verkum að fyrri leikurinn verður stundum spes. Bæði lið gefa lítil færi á sér og verið að passa upp á að gera ekki mistök. Þessi leikur einkenndist af því.
Næsti andstæðingur okkar Blika á Kópavogsvelli er Vaduz frá Liechtenstein í Evrópudeild UEFA á fimmtudaginn kl. 20:00! Vaduz leikur í svissnesku B deildinni sem er firnasterk.
Markvörðurinn Hlynur Örn Hlöðversson hefur gengið til liðs við Fram í Inkasso-deildinni. Hlynur þekkir til hjá félaginu en hann lék með Safamýrarliðinu sumarið 2017.
Það voru stórkostlegar aðstæður til að leika knattspyrnu í Kópavogsslagnum í Pepsi-Max deildinni sunnudagskvöldið 8. maí þegar við Blikar tókum á móti HK í síðari leik liðanna í Íslandsmótinu. Það var miklu tjaldað til enda eru þessi félög flaggskip íþrótta í Kópavogsbæ. Breiðablik hefur 1.600 iðkendur innan sinna vébanda í knattspyrnu (fjölmennastir félaga í KSÍ) og HK er með 1.100.
Aron Bjarnason hefur skrifað undir samning við ungverska úrvalsdeildarliðið Újpest. Újpest hafnaði í fimmta sæti ungversku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili.
Blikar þurfa að taka öll 3 stigin á sunnudaginn annars er hætta á því að KR auki forskot sitt á toppnum. HK á möguleka á að lyfta sér úr fallsæti með sigri á okkar mönnum.
Breiðablik hefur kallað markvörðinn Ólaf Íshólm heim úr láni frá 1. deildarliði Fram. Mikið leikjaálag er á Blikaliðinu næstu vikurnar og því mikilvægt að hafa þessa stöðu vel mannaða.
Miðjumaðurinn snjalli Óskar Jónsson hefur fengið félagsskipti í 1. deildarlið Gróttu. Óskar sem er 22 ára gamall, á að baki 18 leiki með meistaraflokki Breiðabliks.
Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur samþykkt tilboð ungverska úrvalsdeildarfélagsins Újpest í Aron Bjarnason.
Blikar fóru ekki frægðarför á KR völlinn í gær í toppslag deildarinnar í PepsíMax deildinni. Niðurstaðan var 2:0 tap og voru það líklegast sanngjörn úrslit. Mörk heimapilta voru reyndar af ódýrari gerðinni en við áttum samt ekkert skilið úr þessum leik í gær.
Þetta verður hörkuleikur tveggja vel mannaðra og jafnra liða. Ef sagan endurtekur sig, mun leiknum ljúka með 1:1 jafntefli. Allir 6 leikir liðanna í Frostaskjólinu frá 2012 hafa endað með 1:1 jafntefli nema árið 2015 þegar liðin gerðu 0:0 jafntefli. Blikar hafa ekki tapað deildarleik á KR-vellinum síðan 2011 eða í 8 ár.
Breiðablik hefur lánað Kwame Quee til Víkings út keppnistímabilið. Kwame lék mikið á undirbúningstímabilinu og sýndi oft á tíðum frábær tilþrif.
Í framlengingu kláruðum við leikinn með tveimur góðum mörkum frá Höskuldi Gunnlaugssyni. Nokkrir Árbæingar hafa vælt um um að fyrra markið hafi verið ólöglegt en svona er fótboltinn. Höskuldur gerði vel og kláraði færið á frábæran hátt. Á sama hátt slúttaði hann vel í síðara markinu eftir að Thomas hafði fíflað vörn og Aron Snæ markvörð Árbæinga.
Breiðabliksliðið mætir liði Fylkismanna í annað sinn á tveimur vikum. Blikum er í fersku minni 4:3tapleikurinn gegn þeim í 8.umferð Pepsi MAX í Árbænum föstudagskvöldið 14. júní. Blikar þurfa að kvitta fyrir það með sigri á fimmtudaginn og tryggja þannig að Breiðablik verði í pottinum þegar dregið verður í undanúrslit Mjólkurbikarsins 2019.
Miðjumaðurinn snjalli Gísli Eyjólfsson mun snúa aftur til Breiðabliks eftir rúmlega hálfs árs dvöl á láni hjá sænska 1. deildarliðinu Mjallby.
Síðari hálfleikur hófst á keimlíkum nótum og sá fyrri. Eyjamenn komu á fljúgandi ferð og settu okkar menn strax undir pressu og hún hélt í nokkrar mínútur eða allt þar til Davíð Ingvarsson tók til sinna ráða og réðist á þá nánast einn síns liðs.
Áfram rúllar Pepsi MAX boltinn. Það er þétt leikið þessa dagana. Eftir mjög góða og árangursríka ferð í Garðabæinn á þriðjudagskvöld fáum við Blikar Eyjamenn í heimsókn í Kópavoginn á laugardaginn. Flautað verður til leiks kl.14:00!
Það var allt annað að sjá til liðsins í kvöld heldur en gegn Fylki á föstudaginn. Gulli var öryggið uppmálað í markinu og vörnin traust. Kolbeinn og Guðjón náðu miklum tökum á miðjunni í síðari hálfleik og allir börðust vel.
Nágrannaslagur Stjörnunnar og Breiðabliks er uppskrift að frábærri skemmtun, enda stórleikur tveggja góðra liða þar sem toppsætið er í boði fyrir okkar menn. Stjörnumenn eru fyrir umferðina í 7. sæti en geta með sigri fært sig upp í 4. sæti.
Viðvörunarbjöllurnar glumdu í Árbænum frá fyrstu mínútu og eftir að heimamenn höfðu skallað í stöngina og síðan hirt frákastið fyrir opnu marki og brennt af hugsaði maður sem svo að þetta yrði sennilega bara í lagi. Lið sem ekki nýta svona tapa yfirleitt leikjunum. En annað kom á daginn.
Eftir 12 daga árangursríkt landsleikjahlé rúllar Pepsi MAX deild karla áfram um helgina. Áttunda umferð deildarinnar fer fram á föstudag og laugardag. Topplið Breiðabliks heimsækir Fylkismenn í Árbæinn á föstudagskvöld. Flautað verður til leiks kl.19:15.
Breiðablik hefur samþykkt tilboð frá belgíska 1.deildarliðinu Lommel í bakvörðinn okkar Jonathan Hendrickx. Johnathan mun yfirgefa Breiðablik í félagaskiptaglugganum í júlí.
Það tók á móti manni bongó blíða og brosandi Blikar þegar gengið var inn á Kópavogsvöllinn, það er búið að vera bjart yfir alla vikuna og óvenju sólríkt. Úrslitin hafa líka fallið með Blikum sem náðu að sigra Íslandsmeistara Vals með frábærum fótbolta og kláruðu svo erkifjendurna i HK sannfærandi í bikarkeppninni.
Innbyrðis viðureignir liðanna í efstu deild eru 48. Jafnt er á öllum tölum. Bæði liða hafa unnið í 19 skipi og 10 sinnum skilja liðin jöfn. Blikar hafa skorað 71 mark gegn 70 mörkum Fimleikafélagsins.
Blikar höfðu allan leikinn verið eins og þessi maður sem heldur dýrinu í greip sinni, þótt markmiðið hafi kannski ekki verið að kyrkja gestina í eiginlegum skilningi. En því verður ekki á móti mælt að okkar menn voru með tögl og hagldir allan leikinn og þeir þreyttust ekki að halda takinu á gestinum.
Annar í Kópavogsslagnum mikla er á fimmtudaginn á Kópavogsvelli þegar við Blikar tökum á móti frændum okkar úr efri byggðum Kópavogs í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins 2019. Þetta verður ,,derby“ slagur af bestu gerð eins og alltaf þegar þessi lið mætast. Það má búast við hörkuleik.
Blikar léku nú sinn besta leik í sumar og voru grimmir og beittir. Það hefði ekki gert til þó mörkin hefðu verið fleiri og komið fyrr, en menn gáfust ekki upp þó mörkin létu á sér standa, heldur héldu áfram og pressuðu Valsarana um allan völl, meira og minna allan leikinn.
Það er mikið undir í þessum leik milli Vals og Blika. Ljóst er að framundan er afar spennandi leikur þar sem mikið er undir og bæði liðin munu láta sverfa til stáls. Það er rík ástæða fyrir okkur Blika að fjölmenna á Origo völlinn og hvetja okkar menn til sigurs.
Sjaldan hef ég upplifað þetta alræmda lögmál jafn hræðilega og þetta vorkvöld á Kópavogsvellinum. Á 3. mínútu uppbótartíma fá Skagamenn sína 6. hornspyrnu (Blikar fengu líka 6 slíkar í leiknum). Boltinn er skallaður frá - en þeir eiga skot á markið sem fer í varnarmanninn Einar Loga Einarsson og boltinn lekur framhjá Gunnleifi í hornið fjær.
Fimmta umferð Pepsi MAX-deildar karla 2019 verður leikin á sunnudag og mánudag. Toppslagur umferðarinnar verður á sunnudagskvöld þegar Blikar fá lið Skagamanna í heimsókn á Kópavogsvöll. Leikurinn er jafnframt vígsluleikur nýja gervigrassins á Kópavogsvelli.
Höfuðstaður Norðurlands tók vel á móti Blikum miðvikudaginn 15. maí. Sól skein í heiði, það var 16 stiga hiti, logn eins og það gerist ljúfast, vor í lofti, jafnvel sumar, grasið fagurblikagrænt á Greifavellinum og hugur í mönnum eftir frækinn sigur á frísku liði Víkings í síðasta leik.
Blikaliðið fær mjög verðugt verkefni þegar við mætum sprækum KA-mönnum á Geifavellinum á Akureyri klukkan 19:15 á miðvikudaginn.
Leikurinn hófst á slaginu 20:00 á þessu föstudagskvöldi. Maður lifandi að fá að mæta á knattspyrnuleik á föstudagskvöldi er eitthvað sem maður gæti vanist.
Blikar skella sér upp í Árbæ á föstudagskvöld til að spila við Reykjavíkur Víkinga á heimavelli Fylkismanna í Pepsi MAX-deildinni 2019.
Varnarmaðurinn stóri og stæðilegi Skúli Kristjánsson Sigurz hefur skipt yfir í 1. deildarlið Aftureldingar. Skúli sem er tvítugur að aldri er uppalinn Bliki og hefur verið viðriðinn meistaraflokkinn undanfarin ár.
Leikur Breiðabliks og Víkings í Pepsi Max-deildinni á föstudaginn verður á Fylkisvellinum í Árbæ - Würth vellinum.
Var ég spenntur fyrir leik HK og Breiðabliks laugardaginn 4. maí? Við getum orðað það svo að ég var mættur í miðasöluna í Kórnum fimm mínútum eftir að hún var opnuð þann 1. maí.
Kópavogsslagurinn mikli í Kórnum á laugardaginn verður eitthvað. Þetta verður ,,derby“ slagur af bestu gerð þegar HK og Breiðablik mætast í 2. umferð Pepsi MAX deildarinnar í Kórnum í Kópavogi á laugardaginn kl.16:00. Það má búast við hörkuleik.
Blikar unnu ótrúlega stóran 1:10 sigur á Magna í fyrsta leik liðsins í Mjólkurbikarkeppni KSÍ á þessu keppnistímabili. Þeir grænklæddu byrjuðu leikinn með miklum látum og eftir tæplega fimm mínútna leik var staðan orðin 0:2 fyrir okkar drengi.
Næsti leikur meistaraflokks karla er í Boganum á Akureyri í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins 2019. Andstæðingar okkar eru Magnamenn sem hafa löngum verið þekktir fyrir mikla baráttu og keppnisskap. Flautað verður til leiks kl. 16:00.
Blikar mættu til leiks í Pepsi Max deildinni í dag þegar þeir mættu heimamönnum í Grindavík. Það var talsverð spenna í stuðningsmönnum Blika fyrir þennan leik og menn mátulega bjartsýnir eftir misjafnt gengi í vor og talsverðar breytingar á leikmannahópnum fram á síðustu stundu og sér kannski ekki fyrir endann á því dæmi enn.
Knattspyrnudeildin í samvinnu við Blikaklúbbinn hefur hafið sölu á árskortum á Kópavogsvöll á leiki í Pepsi Max deildunum sumarið 2019.
Eftir frekar rýrar heimtur í æfingaleikjum undafarið eru strákarnir ákveðnir að sýna sitt rétta andlit í Grindavík á laugardaginn og trygga sér útisigur og 3 stig strax í fyrstu umferð Pepsi MAX 2019 enda er Blikum loksins að takast að safna stigum í Grindavík. Fjórir sigrar, tvö töp og tvö jafntefli í síðustu átta leikjum í Grindavík.
Breiðablik hefur fengið sóknarmanninn Höskuld Gunnlaugsson lánaðan frá sænska félaginu Halmstad BK út þetta tímabil. Höskuldur er 24 ára gamall uppalinn Bliki og á að baki 113 leiki með félaginu en í þeim skoraði hann 19 mörk.
Þau ánægjulegu tíðindi voru að berast að Breiðablik hefur tryggt sér þjónustu varnarmannsins Arnars Sveins Geirssonar. Hann hefur undanfarin ár leikið með Valsmönnum en lék um tíma með Fram og Víkingum í Ólafsvík.
Blikar lutu í gras gegn Skagamönnum 3:1 í æfingaleik á Akranesi í dag. Sigur heimapilta var sanngjarn en hugsanlega of stór miðað við gang leiksins. En tap er tap og við verðum að fá meira úr Blikaliðinu í Grindavík á laugardaginn ef ekki á illa að fara í fyrsta leik.
Framherjinn knái Aron Bjarnason hefur skrifað undir nýjan 3 ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks. Aron sem er 23 ára gamall hefur spilað 61 mótsleik fyrir okkur og skorað í þeim 14 mörk
Þau ánægjulegu tíðindi voru að berast að miðjumaðurinn snjalli Guðjón Pétur Lýðsson mun ganga til liðs við Blikaliðið á nýjan leik. Hann gerir þriggja ára samning við Breiðablik. Guðjón Pétur Lýðsson sem er 31 ára lék með Blikaliðinu árið 2007 og aftur frá 2013 til 2016. Hann skoraði 25 mörk fyrir okkur í 108 mótsleikjum á þeim tíma.
Þau frábæru tíðindi voru að berast að danska dýnamítið Thomas Mikkelsen hefur skrifað undir nýjan 3 ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks. Daninn kom eins og hvítur stormsveipur inn í Pepsí-deildina í fyrra og skoraði 11 mörk í 13 leikjum fyrir Blikaliðið.
Yngri landslið Íslands hafa verið í eldlínunni að undanförnu. U-17 ára landslið karla náði frábærum árangri þegar það komst upp úr riðlinum og er komið í úrslit á EM í fyrsta skipti í sautján ár! Og hvorki fleiri né færri en sex Blikar léku með U-21 árs landsliðinu sem stóð sig vel í tveimur æfingaleikjum að undanförnu.
Varnarmaðurinn ungi og efnilegi Aron Kári Aðalsteinsson hefur verið lánaður til nágranna okkar í HK. Aron Kári verður tvítugur í sumar og hefur spilað 11 leiki með meistaraflokki Breiðabliks.
Franskur blaðamaður gróf upp gamla mynd af Gylfa og Alfreð: Þarna voru þeir efnilegir í Breiðabliki
Varnarmaðurinn öflugi Viktor Örn Margeirsson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks. Viktor Örn sem er 24 ára gamall á að baki 74 leiki með Blikum og hefur skorað 5 mörk.
Blikar urðu að sætta sig við 1:2 tap gegn FH í síðasta leik Lengjubikarsins á þessu ári. Blikar voru mun sterkari í fyrri hálfleik en náðu ekki að nýta nokkur þokkaleg færi sem þeir fengu í hálfleiknum.
Síðasti leikur meistaraflokks karla í riðlakeppni Lengjubikarsins 2019 verður gegn FH í Fífunni á laugardaginn kl.12:15. Leikurinn er úrslitaleikur í riðlinum. Bæði lið eru með 10 stig á toppi riðilsins. Blikamenn þurfa að vinna leikinn til að komast í úrslitakeppni Lengjubikarsins.
Blikar urðu að sætta sig við eitt stig í miklum rokleik á Ásvöllum gegn Haukum í dag. Lokastaðan var 1:1 eftir að heimamenn komust yfir úr vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks. Þrátt fyrir þunga sókn meirihluta seinni hálfleiks tókst okkur ekki að skora nema einu sinni. Þar var að verki Aron Bjarnason með laglegu marki á 72. mínútu.
Blikar eru efstir í riðli 4 með fullt hús stiga eftir þrjá sigra: 3:0 sigur á Gróttumönnum í 1. Umf, 2:0 sigur á Reykjavíkur Víkingum í 2. umf og 3:4 sigur á Keflvíkingum í 3. umf.
Brynjar Óli er fæddur árið 1998 og var hluti af sterkum árgangi sem varð meðal annars Íslandsmeistari í 2. flokki árin 2016 og 2017. Brynjar Óli var lánaður í ÍR í fyrra en hefur nú ákveðið að spila í Færeyjum.
Blikar unnu Keflavíkinga 3:4 í hörkuleik í Lengjubikarnum í Reykjaneshöllinni í dag. Sigurinn var verðskuldaður en heimapiltar eiga hrós skilið fyrir mikla baráttu og létu okkur svo sannarlega hafa fyrir stigunum þremur.
Strákarnir okkar eru í efsta sæti riðils #4 með sex stig eftir 3:0 sigur á Gróttumönnum og 2:0 sigur á Reykjavíkur Víkingum. Lið Keflvíkinga er með fjögur stig í öðru sæti riðilsins eftir 2:0 sigur á Haukum og 2:2 jafntefli við FH.
Danijel Dejan Djuric semur við dönsku meistarana. Breiðablik og FC Midtjylland hafa komist að samkomulagi um að Danijel Dejan Djuric gangi til liðs við dönsku meistarana.
Blikar unnu góðan 2:0 vinnusigur á Víkingum í öðrum leik Lengjubikarsins.Við byrjuðum leikinn ágætlega og höfðum strax frá fyrstu mínútu nokkuð góð tök á gestunum. Þeir lágu nokkuð aftarlega og reyndu að sækja með skyndisóknum.
Strákarnir byrja laugardaginn í Fífunni með leik gegn Reykjavíkur Víkingum í 2. umferð Lengjubikarsins 2019. Leikurinn hefst kl.11:00 og verður sýndur á Stöð 2 Sport fyrir þá sem ekki eiga heimangengt.
Ólafur Guðmundsson hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild Breiðabliks. Ólafur er fæddur árið 2002 og er afar fjölhæfur leikmaður. Ólafur er örvfættur og hefur í gegnum yngri flokkana yfirleitt leikið sem miðjumaður.
Miðjumaðurinn snjalli Alexander Helgi Sigurðarson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks. Alexander Helgi sem er 22 ára gamall fór ungur að árum í atvinnumennsku. Þrálát meiðsli settu hins vegar strik í reikninginn hjá þessum öfluga leikmanni. En með mikilli vinnu og þrautseigju er hann smám saman að ná fyrri styrk.
Blikar unnu góðan 3:0 sigur á Gróttu í fyrsta leik Lengjubikarsins árið 2019. Alexander Helgi hélt upp á nýjan þriggja ára samning og setti tuðruna tvisvar í netið. Þriðja markið gerði Brynjólfur Darri eftir hrikaleg varnarmistök þeirra bláklæddu.
Blikar hefja keppni í Lengjubikarnum 2019 þegar við tökum á móti svölum Seltirningum í Fífunni á morgun, laugardag 16. febrúar kl.10.15.
Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur gert samning við Dr. Viðar Halldórsson félagsfræðing um að Viðar verði í ráðgefandi hlutverki fyrir deildina á næstu misserum og komi þar að ; greiningu, fræðslumálum, eflingu innra starfs og þróun- og stefnumörkun knattspyrnudeildar Breiðabliks.
Willum Þór Willumsson hefur náð samkomulagi við BATE Borisov og gerir 3 og ½ árs samning við liðið. Willum heimsótti liðið í vikunni til að skoða aðstæður og fara yfir persónuleg kjör.
Landsliðsbakvörðurinn Davíð Kristján Ólafsson hefur verið seldur til norska liðsins Álasunds. Forráðamenn norska liðsins hafa fylgst með Davíð í töluverðan tíma og ekki minnkaði áhuginn þegar leikmaðurinn var valinn í íslenska landsliðið fyrir skömmu.
Miðjumaðurinn óþreytandi Andri Rafn Yeoman hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks. Þetta eru góðar fréttir fyrir Blika því þrátt fyrir að vera ekki nema 26 ára gamall er Andri Rafn leikjahæstur núverandi leikmanna Breiðabliks með 302 mótsleiki.
Miðjumaðurinn ungi og efnilegi Willum Þór Willumsson er að öllum líkindum á leið til hvít-rússneska liðsins BATE Borisov. Hvít-Rússarnir hafa gert tilboð í þennan efnilegasta leikmann Pepsí-deildarinnar á síðasta keppnistímabili. Liðið er eitt af sterkari liðum Evrópu og hefur reglulega keppt í Meistaradeild Evrópu á undanförnum árum
Hvorki fleiri né færri en fimm Blikar eru í úrtakshóp fyrir U21 árs landslið Ísland.
Þetta var góður leikur hjá okkar mönnum lengst af og eftir erfiða byrjan náðu menn fínum takti. Gunnleifur hélt okkur á floti með því að verja vítið og ekki gott að segja hvernig farið hefði ef og hefði. Það var líka gaman að sjá þegar okkar menn einhentu sér í að taka á andstæðingnum og fara í þá af fullum krafti. Það er það sem þarf á móti Stjörnunni.
Síðasti leikur meistaraflokks karla í Fótbolta.net mótinu 2019 verður í Fífunni kl. 18:30 á sunnudaginn. Búast má við hörkuleik enda líta bæði lið á nágranna sína sem sinn aðalkeppinaut
Framherjinn knái Brynjólfur Darri Willumsson hefur skrifað undir nýjan 3 ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks. Brynjólfur Darri er fæddur árið 2000 og hefur farið gríðarlega fram á undanförnum misserum.
Knattspyrnudeild Breiðabliks og knattspyrnudeild Fylkis hafa komist að samkomulagi um félagaskipti Arnórs Gauta Ragnarssonar yfir í Árbæjarliðið. Arnór Gauti sem er 21 árs kraftmikill og áræðinn framherji hefur staðið sig einstaklega vel í græna búningnum. Arnór Gauti á að baki 36 leiki með Blikaliðinu og hefur skorað 9 mörk í þessum leikjum. Hann skoraði þrennu gegn ÍBV i Fótbolta.net mótinu fyrir skömmu. Og eftirminnilegt er sigurmark hans í uppbótartíma gegn Valsmönnum í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar í sumar.
Miðjumaðurinn ungi og efnilegi Andri Fannar Baldursson hefur verið lánaður til ítalska úrvalsdeildarliðsins Bologna. Lánssamningurinn gildir til 30.6.2019 og eftir það á ítalska liðið forkaupsrétt á honum.
Knattspyrnumaðurinn öflugi Kolbeinn Þórðarson hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild Breiðabliks og er nú samningsbundinn til næstu tveggja ára. Kolbeinn er mjög leikinn, áræðinn og útsjónarsamur miðjumaður og er þegar kominn 33 leiki fyrir meistaraflokk Breiðabliks þrátt fyrir að vera einungis 18 ára
Blikar lögðu Grindavík 5:0 að velli í síðasta leik í riðlinum á fobolti.net mótinu 2019. Eins og tölurnar gefa til kynna vorum við miklu sterkari í leiknum og spilum því til úrslita á mótinu gegn Stjörnunni eða Skagamönnum eftir viku.
Breiðablik og HK hafa komist að samkomulagi um vistaskipti Arnþórs Ara Atlasonar. Arnþór Ari hefur skrifað undir þriggja ára samning við HK.
Breiðablik og Grindavík leika til úrslita um efsta sætið í riðli 2 í A deild Fótbolta.net mótsins 2019 í Fífunni á laugardaginn kl.12:00.
Blikar og HK gerðu 1:1 jafntefli i fótbolti.net mótinu í Kórnum í kvöld. Jonathan Hendrickx kom okkur yfir með glæsilegu skoti í fyrri hálfleik. Heimapiltar náðu að jafna með eina færinu sínu í leiknum í síðari hálfleik en það dugði þeim til að ná í stig í leiknum.
,,Derby“ slagur vinaliðanna HK og Breiðabliks í meistaraflokki karla fer fram í Kórnum á morgun föstudag kl.18.15.
Í gær var stór dagur fyrir Blikana ungu, Davíð Kristján Ólafsson og Willum Þór Willumsson. Þeir spiluðu báðir sinn fyrsta A-landsleik.
Blikar unnu öruggan 4:0 sigur á Eyjamönnum í Fífunni í fyrsta leik Blika í Fótbolta.net mótinu árið 2019. Viktor Karl Einarsson og Arnór Gauti Ragnarsson(3) sáu um markaskorunina.
Breiðabliksliðið mætir liði ÍBV í 1. umferð Fótbolta.nets mótsins 2019 í Fífunni á sunnudaginn kl. 14.15. Þetta er fyrsti opinberi leikur beggja liða í móti árið 2019.
Blikar.is óskar þessum Blikum til hamingju með þessa frjósemi og við hlökkum til að sjá þetta ungu Blika koma heim að lokum og spila í græna búningnum!
Frískir fótboltamenn á öllum aldri flyktust í Fífuna og Smárann á gamlársmorgunn og spiluðu knattspyrnu eins og engin væri morgundagurinn. Meistaraflokkur karla og skyldir aðilar spiluðu léttan innanhúsbolta á meðan eldri flokkur og yngri viðhengi hlupu úr sér lungun í Fífunni.
Stuðningsmannavefur meistarflokk Breiðabliks óskar öllum Blikum nær og fjær gleðilegrar jólahátíðar með kærri þökk fyrir stuðninginn á árinu sem er að líða.
Breiðablik og Hjálparsveit Skáta í Kópavogi eru í samstarfi um flugeldasölu og hægt er að styrkja bæði félög með því að kaupa flugeldaávísanir í afgreiðslu Smárans. Hin árlega áramótabrenna Kópavogs verður við Smárahvammsvöll fyrir neðan Digransekirkju á sama stað og undanfarin ár á gamlárskvöld.
Hinn árlegi Gamlársbolti verður spilaður í Fífunni á gamlársdag frá 10.00 til rúmlega 11.30. Allir mega mæta og spila! Blikaklúbbsmeðlimir spila án endurgjalds en aðrir greiða 1.000 krónur í keppnisgjald.
Miðjumaðurinn snjalli Viktor Karl Einarsson hefur ákveðið að snúa aftur heim í Kópavoginn eftir nokkur ár erlendis. Hann gerir 3 ára samning við uppeldisfélagið sitt. Viktor Karl, sem er 21 árs gamall, er uppalinn í Breiðabliki, en hefur síðan 2013 spilað með varaliði AZ Alkmaar. Hann var 16 ára gamall þegar hann skipti frá Breiðabliki til hollenska liðsins haustið 2013.
Kantmaðurinn Kwame Quee gerir 2 ára samning við Breiðablik. Hann leikur með FC Johansen í heimalandi sínu Sierra Leone en hefur nú ákveðið og söðla um og gerir nú 2 ára samning við Breiðablik.
Það var sannkallað ,,útlenskt" þema á æfingu meistaraflokks Breiðabliks í dag. Nánast öll útlendingahersveit Breiðabliks mætti á æfingu og setti skemmtilegan svip á Fífuna.
Miðjumaðurinn kappsfulli Kolbeinn Þórðarson hefur framlengt samning sinn við Blika til ársins XX.
Blikinn snjalli Alexander Helgi Sigurðarson hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild Breiðabliks til ársins 2019.
Vörður tryggingar og Knattspyrnudeild Breiðabliks hafa endurnýjað samning sín á milli um að Vörður verði áfram aðalstyrktaraðili deildarinnar til næstu fjögurra ára. Við undirskriftina voru nýjir búningar Knattspyrnudeildar Breiðabliks frá Errea kynntir.
Skötuveisla Breiðabliks að hætti Hauks Valdimarssonar matreiðslumeistara verður í Smáranum (stúkubyggingunni) föstudaginn 21. desember milli kl.11:00 - 14:00. Ekki gleyma að skrá ykkur.
Námskeiðið er í boði fyrir iðkendur í 3.flokki kvenna og karla ('03-'04) og stendur yfir frá fimmtudegi til sunnudags milli jóla og nýárs, 27.-30. desember.
Páll Bjarnason fyrrum formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks er látinn 91 árs að aldri. Páll var formaður knattspyrnudeildar þegar Breiðablik tryggði sér sæti í efstu deild í fyrsta skipti árið 1971. Páll var mikill félagsmálamaður og átti sæti í ýmsum ráðum og nefndum á vegum Kópavogsbæjar einkum varðandi íþrótta- og æskulýðsmál.
Hvernig Blikum reiddi af gegn KR í úrslitaleik BOSE mótsins 2018.
Miðjumaðurinn snjalli Gísli Eyjólfsson hefur verið lánaður til sænska 1. deildarliðsins Mjallby AIF. Samningurinn gildir frá 1. janúar 2019 og til loka ársins. Mjallby hefur síðan forkaupsrétt að Gísla að loknu lánstímabilinu.
Breiðablik tekur á móti KR í úrslitaleik Bose mótsins 2018 í Fífunni laugardaginn 8. desember kl. 11.00. Bæði lið fóru taplaust í gegnum sína riðla og mætast því í úrslitum þetta árið. Blikar sigruðu mótið í fyrra og hafa því titil að verja.
Breiðablik og Fram hafa komist að samkomulagi um að markvörðurinn Ólafur Íshólm spili á lánssamningi með liði Framara í Inkasso-deildinni keppnistímabilið 2019. Á sama tíma skrifaði hann undir nýjan samning við Breiðablik til loka ársins 2020.
Blikar unnu HK 2:5 í fjörugum leik í síðasta leik riðlakeppni BOSE mótsins í Kórnum í gærkvöldi. En úrslitin voru ekki aðalatriðið því samstaðan og samheldnin sem menn sýndu til að standa við bakið á Bjarka Má Sigvaldasyni og fjölskyldu hans var það sem skipti megin máli. Um 800 manns mættu í Kórinn til að styðja við bakið á þessu unga hugrakka fólki en eins og flestir vita þá glímir Bjarki Má við illvígt krabbamein. Knattspyrnan sýnir hér enn og aftur hve mikið sameiningartákn hún er!
HK og Breiðablik mætast í Bose mótinu 2018 í Kórnum á fimmtudagskvöld kl.20:00. Leikurinn verður tileinkaður Bjarka Má Sigvaldasyni og fjölskyldu en Bjarki glímir við illvígt krabbamein.
Blikaliðið tryggði sér silfurverðlaun í bæði deild og bikar. Liðið fékk 44 stig sem er sami stigafjöldi og þegar liðið varð Íslandsmeistari árið 2010 en tveim stigum minna en stigamet liðsins frá 2015.