Breiðablik-Valur sunnudag kl.18.00

26.08.2011

Ágætu Blikar, við vekjum athygli ykkar á leik Breiðabliks og Vals í Pepsí-deild karla á sunnudaginn á Kópavogsvelli kl.18.00. Blikar unnu góðan sigur Fylki í síðustu umferð en þeir rauðklæddu lutu óvænt í gras fyrir bláklæddum Frömurum. Það má því búast við hörkuleik á sunnudaginn.

Bæði lið koma reyndar nokkuð löskuð til leiks. Valsmenn hafa misst þrjá fastamenn í bann; Atla Svein Þórarinsson, Jónas Tór Næs og Arnar Sveinn Geirsson. Blikar missa tvo menn í bann; Guðmund Kristjánsson og Finn Orra Margeirsson og þar að auki er Dylan McAllister farinn til Ástralíu. En það kemur alltaf maður í manns stað. Það verða því ellefu leikmenn sem hefja leikinn á sunnudaginn í báðum liðum smile

Við hvetjum alla Blika nær og fjær að fjölmenna á völlinn og hvetja Blikaliðið til sigurs!

Blikaklúbburinn ætlar að afhenda öllum meðlimum sínum bókina ,, Leiðin að Íslandsmeistaratitlinum 2010". Bókin verður afhent í sölutjaldinu fyrir utan stúkuna á Kópavogsvelli á sunnudaginn. Menn framvísa skírteinu sínu og fá eintak af bókinni.

Áfram Breiðablik, alltaf, alls staðar!





<- Til baka