Ágætu Blikar, við minnum ykkur á úrslitaleik Stjörnunnar og Breiðabliks í 3. flokki karla í kvöld á Stjörnuvelli kl.19.00. Þessi lið háðu marga rimmuna í sumar en Blikar höfðu alltaf betur. Nú síðast í úrslitaleik í bikarkeppni þessa aldursflokks þar sem okkar drengir unnu 1:0. Það má samt búast við hörkuviðureign í kvöld því Stjörnumenn hyggja á hefndir. Því hvetjum við alla Blika til að mæta til að styðja okkar stráka til sigurs.
Áfram Breiðablik, alltaf, alls staðar!
Blikaklúbburinn