Æfingaleikur á laugardaginn

02.11.2011

Ágætu Blikar, þá eru strákarnir í meistaraflokknum komnir úr fríinu. Til að starta nýja æfingatímabilinu þá verður æfingaleikur við Leikni í Fífunni á laugardaginn kl.11.00.

Eins og flestir vita þá tók gamli félagi okkar, Willum Þór Þórsson, við Leiknisliðinu nú á haustdögum. Gaman verður að sjá hvernig Breiðholtsbúarnir koma stemmdir í þennan leik.

Blikastrákarnir koma úthvíldir og munu sjálfsagt leggja sig fram til að sýna gamalkunna takta.

Blikaklúbburinn





<- Til baka