BREIÐABLIK STUÐNINGSMANNAVEFUR

Meistaraflokkur kvenna flokkur ársins í Kópavogi

13.01.2016

Meistaraflokkur kvenna í knattspyrnu hjá Blikum var útnefndur ,,flokkur ársins“  í Kópavogi á Íþróttahátíð Kópavogs fyrir skömmu. Hátíðin var mjög græn enda var tilkynnt um útnefningu á Fanndísi Friðríksdóttur sem Íþróttakonu Kópavogs við sama tilefni.

Meistaraflokkurinn var vel að þessari útnefningu komin. Flokkurinn fór taplaus í gegnum Íslandsmótið, sigraði í sextán leikjum og gerði tvö jafntefli. Við stóðum uppi sem öruggir Íslandsmeistarar og var það kærkomið eftir langa bið eftir Íslandsmeistaratitlinum.

Við skoruðum 51 mark og fengum aðeins á okkur fjögur mörk í öllu mótinu sem er frábær árangur!

Til baka