Kristín Dís Framlengir
09.11.2017Kristín Dís Árnadóttir hefur gert nýjan þriggja ára samning við Breiðablik. Kristín Dís hefur leikið 34 leiki fyrir meistaflokk félagsins og skoraði sitt fyrsta mark í lokaleiknum í haust. Auk þess hefur Kristín Dís spilað 14 leiki fyrir Augnablik og 4 með Fylki þar sem hún var á láni fyrrihluta 2016 tímabilsins. Þá hefur Kristín leikið 24 landsleiki með U17 og U19 og er enn að bæta við þar. Hlutverk Kristínar Dísar hefur farið stöðugt vaxtandi í Blikaliðinu á síðustu misserum og erum við Blikar spenntir að fylgjast með henni halda áfram á þeirri vegferð með okkur næstu árin.
Það eru spennandi tímar framundan í Kópavoginum, Til hamingju Kristín Dís og Breiðablik.