Frítt á Selfoss - Breiðablik á morgun
27.05.2016Það eru veisluhöld á Selfossi á morgun í tilefni 80 ára afmælis Umf. Selfoss. Frítt á völlinn. kaffihlaðborð og grillaðar pylsur. Allir Blikar velkomnir.
Leikurinn hefst kl. 16:00.
Það er um að gera að skreppa á Selfoss og taka alla fjölskylduna með til að styðja stelpurnar okkar. Spáin er fín og við verðum að tryggja að við náum að yfirgnæfa sunnlendingana í stúkunni.
Áfram Breiðablik!