BREIÐABLIK STUÐNINGSMANNAVEFUR

Fjolla Shala framlengir samning sinn

17.10.2017

Fjolla Shala hefur skrifað undir nýjan samning við Breiðablik.  Samningurinn gildir til þriggja ára.

Fjolla kom til félagsins haustið 2011  og hefur því verið hjá okkur í 6 ár.  Á þeim tíma hefur hún spilað 120 leiki fyrir félagið þrátt fyrir að hafa ekkert náð að spila í ár vegna meiðsla.  Fjolla er gríðarlega öflugur leikmaður og hefur leikið lykilhlutverk í þeim þrem titlum sem félagið hefur unnið frá því að hún gekk til liðs við Breiðablik.

Fjolla á 19 U19 landsleiki fyrir Ísland og 12 U17 leiki. Að auki á hún 51 leik með Fylki í meistaraflokki og 6 leiki fyrir Leikni Reykjavík.

Við óskum Fjollu og Blikum til hamingu með þessi tíðindi

Til baka