BREIÐABLIK STUÐNINGSMANNAVEFUR

Agla María snýr heim

28.01.2018

Hin unga og efnilega landsliðskona, Agla María Albertsdóttir, hefur gert tveggja ára samning við Breiðablik. 

Agla María er uppalin Bliki og spilaði í gegnum alla yngri flokka með félaginu. Þrátt fyrir að vera aðeins 18 ára hefur hún  þegar leikið 52 leiki í meistaraflokki og skorað í þeim 13 mörk.  Flesta með Stjörnunni þar sem hún spilaði undanfarin tvö tímabil.  Þá hefur Agla María náð að tryggja sér sæti í  A landsliði Íslands þar sem hún hefur spilað 10 leiki frá vormánuðum 2017.  Auk þess á Agla María 27 landsleiki með yngri landsliðum Íslands.

Agla María hefur spilað einn leik með Blikum en það var þegar hún var 15 ára gömul í Lengjubikarnum á móti ÍBV þar sem hún setti eitt mark. Okkur hlakkar til að fylgjast með Öglu Maríu byggja ofan á þá frábæru tölfræði. 

Við bjóðum Öglu Maríu velkomna í græna búninginn á nýjan leik og óskum henni og Blikum til hamingju með þessa frábæru viðbót í mjög spennandi leikmannahóp liðsins á komandi keppnistímabili

Til baka