BREIÐABLIK STUÐNINGSMANNAVEFUR

Taylor Ziemer til Breiðablik

11.05.2021

Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur samið við Taylor Ziemer út keppnistímabilið 2021. Taylor er fædd árið 1998 kemur frá Bandaríkjunum.

Taylor hefur undanfarin tímabil leikið í bandaríska háskólaboltanum bæði með University of Virginia og Texas A&M. Í báðum skólum var hún í lykilhlutverki í öflugum liðum. Árið 2018 lék hún með ADO Den Haag í efstu deild í Hollandi þar sem hún skoraði tvö mörk 16 leikjum.

Taylor er sóknarsinnaður miðjumaður sem getur spilað allar fremstu stöðurnar á vellinum.

Við bjóðum Taylor Ziemer velkomna til Breiðabliks og hlökkum til að sjá hana á vellinum.

Til baka