BREIÐABLIK STUÐNINGSMANNAVEFUR

Steini segir frá drauma-Kópavogsvelli!

16.02.2020

Þorsteinn Halldórsson, þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Blikum, er annar viðmælandi Blikahornsins.

Steini fer yfir víðan völl í viðtalinu og fjallar meðal annars um muninn á því að þjálfa stráka og stelpur, stöðuna á Blikaliðinu, mikilvægi Augnabliks sem þjálfunarbúðir fyrir yngri leikmenn Breiðabliks, hvernig nýju leikmenn Blikaliðsins eru að aðlagast andanum í Blikaliðinu. Ameríkudraumur margra leikmanna er einnig til umföllunar. Einnig ræðir hann um stöðu landsliðsins í alþjóðlegu samhengi.

Þorsteinn fjallar um baráttuna framundan í Pepsí-deildinni og hvernig hann metur stöðuna hjá helstu samkeppnisliðunum.

Þorsteinn er mjög hreinskilinn varðandi nýtingu Kópavogsvallar og hvernig hann sér fyrir sér draumaKópavogsvöll líta út í framtíðinni.

Smella HÉR fyrir viðtalið við Steina sem er rúmar 30 mín og er þeim tíma vel varið fyrir knattspyrnuáhugamenn!

-AP

Til baka