BREIÐABLIK STUÐNINGSMANNAVEFUR

Natasha Moraa Anasi til Breiðabliks

31.10.2021

Hin gríðarlega öfluga Natasha Moraa Anasi er gengin til liðs við Breiðablik og hefur skrifað undir tveggja ára samning.

Natasha, sem er þrítug, kemur í Kópavoginn frá Keflavík þar sem hún hefur verið fyrirliði síðustu ár. Hún kom fyrst til landsins til að spila með ÍBV árið 2014 og hefur verið hér síðan og fest rætur. Natasha fékk íslenskan ríkisborgararétt fyrir tveimur árum og hefur þegar spilað tvo A-landsleiki fyrir Íslands hönd.

Natasha hefur sannað sig sem mikill leiðtogi jafnt innan sem utan vallar. Hún hefur bæði leikið sem hafsent og sem miðjumaður. Natasha er ógnarsterk í loftinu og þekkt fyrir að láta finna vel fyrir sér í vítateig andstæðingsins þar sem hún hefur komið að ófáum mörkunum. Til að undirstrika það þá hefur hún skorað 50 mörk í 153 leikjum hér á landi þrátt fyrir að spila helst sem hafsent eða miðjumaður.

Natasha er boðin hjartanlega velkomin, það verður gaman að fylgjast með hennar krafti og reynslu á vellinum. Hún er ekki lögleg með Blikum í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í ár, en mun án efa gefa liðsfélögum sínum mikið á æfingum og koma með dýrmæta reynslu í hópinn sem nýtist vel í keppninni.

Til baka