BREIÐABLIK STUÐNINGSMANNAVEFUR

Karólína Lea skrifar undir

19.11.2020

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Íslandsmeistara Breiðabliks og er nú samningsbundin félaginu út tímabilið 2023.

Þetta eru frábærar fréttir fyrir Blika enda hefur Karólína sannað sig sem einn allra besti leikmaður landsins. Hún hefur unnið sér sæti í A-landsliðinu og var meðal annars í byrjunarliðinu í báðum leikjunum gegn stórliði Svía í haust. Þá skoraði hún sitt fyrsta landsliðsmark gegn Lettum á Laugardalsvelli í September.

Síðan Karólína kom frá FH fyrir þremur árum hefur hún spilað 88 leiki fyrir Blika og skorað 32 mörk. Hún hefur á þeim tíma unnið tvo Íslandsmeistaratitla, bikarmeistaratitil og farið með liðinu í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu.

Karólína á svo sannarlega framtíðina fyrir sér og það er mikill fengur að hafa hana áfram í Kópavoginum.

Til baka