BREIÐABLIK STUÐNINGSMANNAVEFUR

Eyrún Vala skrifar undir

01.02.2021

Eyrún Vala Harðardóttir hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild Breiðabliks sem gildir út árið 2023.

Eyrún er er eldfljótur bakvörður sem getur einnig leikið á kantinum. Hún er bæði kraftmikil og hörð í horn að taka. Eyrún verður 17 ára í mars.

Þrátt fyrir ungan aldur hefur Eyrún öðlast dýrmæta reynslu í meistaraflokki þar sem hún hefur leikið 25 meistaraflokksleiki með Augnablik í 1.deild og í Bikarkeppni KSÍ. Þá hefur hún þegar leikið þrjá landsleiki með yngri landsliðum Íslands.

Það verður spennandi að fylgjast með þessum efnilega leikmanni halda áfram að taka framförum. Við óskum Eyrúnu Völu til hamingju með samninginn.

Til baka