BREIÐABLIK STUÐNINGSMANNAVEFUR

Ásmundur Arnarsson tekur við meistaraflokki kvenna

02.10.2021

Þjálfarinn reynslumikli Ásmundur Arnarsson tekur við þjálfun meistaraflokks kvenna hjá Breiðabliki og hefur hann skrifað undir þriggja ára samning við Knattspyrnudeild Breiðabliks.

Ásmundur mun vera í þjálfarateyminu í fyrsta leik Breiðabliks í riðlakeppni Meistaradeildar kvenna sem fram fer miðvikudaginn 6.október n.k. þegar Breiðablik tekur á móti PSG. Sá leikur verður jafnframt síðasti leikur Vilhjálms Kára Haraldssonar en hann lætur af störfum eftir þann leik. Vilhjálmur Kári fór þess á leit við stjórn knattspyrnudeildar að nýr þjálfari kæmi strax inn í teymið eftir Bikarúrslitaleikinn og tæki formlega við eftir leikinn gegn PSG. Vilhjálmur mun þó vera nýju þjálfarateymi innan handar út riðlakeppnina.

Ásmundur á langan og farsælan feril að baki bæði sem leikmaður og þjálfari. Hann er uppalinn á Húsavík og hóf meistaraflokksferilinn með Völsungi. Hann lék einnig fyrir Þór, Fram og Breiðablik. Alls lék Ásmundur 268 mótsleiki á ferlinum og skoraði í þeim 90 mörk.

Ásmundur, sem mun á næstu vikum ljúka UEFA Pro Licence námi, hóf þjálfaraferil sinn á Húsavík þar sem hann þjálfaði karlalið Völsungs árin 2003 og 2004 og stýrði hann liðinu upp í 1.deild. Hann þjálfaði meistaraflokk karla hjá Fjölni á árunum 2005-2011. Á þeim tíma kom hann liðinu upp í efstu deild í fyrsta sinn í sögu félagsins og tvisvar sinnum í bikarúrslitaleik. Á árunum 2011-2015 stýrði Ásmundur svo karlaliði Fylkis en liðið var í efstu deild öll árin. Árið 2015 tók Ásmundur við þjálfun karlaliðs ÍBV um mitt tímabil og stýrði liðinu út tímabilið. Ásmundur tók við Fram haustið 2015 og stýrði liðinu til 2017.

Breiðablik réði Ásmund sem þjálfara Augnabliks kvenna um haustið 2017 ásamt því sem hann þjálfaði 2. og 3.flokk kvenna. Gríðarleg ánægja var með störf Ásmundar. Að loknu keppnistímabili árið 2018 tók hann hins vegar aftur við þjálfun meistaraflokks karla hjá Fjölni sem þá léku í 1.deild. Undir stjórn Ásmundar fór Fjönir beint upp í Pepsi Max deildina en liðið féll aftur í 1.deild ári síðar. Í sumar hafnaði Fjölnir svo í þriðja sæti 1.deildar.

Það er mikið fagnaðarefni fyrir okkur Blika að fá svona reynslumikinn og öflugan þjálfara í starfið og ætlar félagið sér áfram að vera leiðandi í íslenskri kvennaknattspyrnu og byggja ofan á þann frábæra árangur sem náðst hefur á undanförnum árum.

Um leið og við þökkum Vilhjálmi Kára fyrir hans frábæra framlag til félagsins bjóðum við Ásmund Arnarsson hjartanlega velkominn til starfa.

Til baka