BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Valur-Blikar 8-liða úrslit Lengjubikarsins

13.04.2016

Blikar mæta  Valsmönnum í 8-liða úrslitum Lengjubikarsins á Valsvelli á morgun fimmtudag kl.17.30. Spáin er mjög góð og því verður gaman að sjá knattspyrnuleik úti.

Þetta er tíundi leikur liðanna í þessari keppni og fyrirrennara hennar frá 1997. Til þessa hafa Blikar sigrað í fjórum viðureignum, Valur í þremur og jafnteflin eru tvö. 

Það hefur verið mikið skorað í þessu leikjum. Árið 1997 voru skoruð 7 mörk í 3-4 sigri Valsmanna og 8 mörk í 6-2 sigri Vals árið 2000. Fimm mörk voru skoruð í 3-2 sigri Blika árið 2013. Og fyrir réttu ári síðan voru skoruð sexmörk í 5-1 sigri Blika í 8 liða úrslitum liðanna árið 2015.

Sjáumst öll á Valsvellinum á morgun!

Áfram Blikar, alltaf, alls staðar!

Til baka