BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Siggi Víðis ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks

25.10.2016

Sigurður Víðisson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá Breiðablik. Sigurður hefur mikla reynslu af þjálfun og hefur meðal annars þjálfað meistaraflokka kvenna hjá HK/Víkingi, FH og Fjölni  og var spilandi þjálfari hjá Huginn á Seyðisfirði. Undanfarin ár hefur hann þjálfað yngri flokka hjá Breiðablik. Sigurður sem er 51 árs gamall var snjall varnarmaður og spilaði 127 leiki með meistaraflokki Blika á árunum 1986-1992 og skoraði í þeim 4 mörk. 

Sigurður hefur einnig spilaði með eldri flokki Breiðabliks undanfarin ár og er margfaldur Íslandsmeistari í þeim flokki. Blikar fagna þessari ráðningu og senda þeim Arnari og Sigurði baráttukveðjur fyrir komandi keppnistímabil.

Áfram Breiðablik, alltaf, alls staðar!

Til baka