BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Róbert Orri til Blika

10.11.2019

Breiðablik og Afturelding hafa komist að samkomulagi um kaup Breiðabliks á varnarmanninum unga Róberti Orra Þorkelssyni frá Aftureldingu.

Róbert Orri er 17 ára gamall en þrátt fyrir ungan aldur á hann að baki 40 leiki með meistaraflokki. Í sumar spilaði Róbert nítján leiki með Aftureldingu 1. deildinni og skoraði í þeim þrjú mörk.

Hann á að baki 23 leiki með yngri landsliðum Íslands en eins og gefur að skilja var mikill áhugi honum meðal stærstu félaga landsins nú í haust.

Það er okkur Blikum mikil ánægjutíðindi að samkomulag hafi náðst milli félaganna og að Róbert Orri skyldi velja Breiðablik þar sem hann mun halda áfram að vaxa og dafna.

Það verður spennandi að fylgjast með Róberti Orra grænu treyjunni.

Hjartanlega velkominn Róbert Orri!

Orri Hlöðversson formaður knattspyrnudeildar, Róbert Orri Þorkelsson og Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari meistarflokks karla. 

Til baka