BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Páll Einarsson og Dean Martin þjálfa 2.flokk karla

04.11.2014

Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur gengið frá ráðningu á Páli Einarssyni og Dean Martin sem aðalþjálfarar 2.flokks karla í knattspyrnu.

Páll Einarsson  tók við starfi Arnars Bill með 2.flokk karla í upphafi þessa árs og mun því halda áfram með flokkinn. 

Dean Martin kemur nýr inní þjálfarateymið en hann var á síðustu leiktíð aðstoðarþjálfari hjá ÍBV í Pepsí deild karla auk þess að leika 16 leiki með liðinu.

2.flokkur karla er gríðarlega fjölmennur í ár og munu fleiri þjálfarar vera kynntir í þjálfarateymi flokksins á næstu dögum.

Um leið og við þökkum fráfarandi þjálfurum flokksins þeim Arnari Bill og Jóni Aðalsteini fyrir vel unnin störf bjóðum við nýtt þjálfarateymi velkomið til starfa.

Til baka