BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Öruggur sigur á Fram

12.02.2015

Meistaraflokkur karla átti ekki í miklum erfiðleikum með að leggja mikið breytt Framlið í æfingaleik í Fífunni í gær 3:0. Höskuldur fór mikinn og setti tvö mörk og Svartfellingurinn Dragan gerði eitt. Blikaliðið var skipað blöndu af yngri og svo eldri og reyndari mönnum.

Yngri leikmennirnir spiluðu fyrri hálfleikinn og það var Dragan sem gerði eina mark hálfleiksins eftir ágætan samleik. Í síðari hálfleik komu eldri og reyndari spilarar inn á völlinn. Þá tóku Blikar flest völd á vellinum og Höskuldur gerði tvo ágæt mörk eftir gott samspil við samherja síðan.

Reyndar var leikurinn ekki mikið augnayndi. En það verður gaman sjá hvernig strákarnir okkar koma stemmdir í fyrsta leik Lengjubikarsins á laugardaginn kl.12.00 þegar Víkingarnir frá Ólafsvík koma í heimasókn.

Til baka