BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

N1 og knattspyrnudeild Breiðabliks framlengja samstarf sitt!

14.03.2016

Nú á dögunum var undirritaður nýr þriggja ára samningur milli N1 og knattspyrnudeildar Breiðabliks en N1 hefur verið dyggur stuðningsaðili deildarinnar undarfarin ár.
Stuðningur N1 skiptir knattspyrnudeildina miklu máli og styrkir áfram ölfugt uppeldis- og afreksstarf knattspyrnudeildar sem og að styðja við meistaraflokka félagsins í efstu deild karla og kvenna.

Það voru þau Borghildur Sigurðardóttir formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks og Eysteinn Pétur Lárusson framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar sem undirrituðu samninginn fyrir hönd Breiðabliks og Eggert Þór Kristófersson forstjóri N1 og Þyrí Dröfn Konráðsdóttir markaðsstjóri N1 sem undirrituðu samninginn fyrir hönd N1.

Knattspyrnudeild Breiðabliks

Til baka