BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

KR – Breiðablik 2015

26.07.2015

Breiðablik og KR hafa mæst 80 sinnum í opinberum leikjum frá upphafi. KR hefur unnið 40 leiki á móti 18 sigrum Blika. Jafnteflin eru 22.

Úrslit liðanna í efstu deild frá árinu 2000 er frekar jöfn. Í 23 leikjum í efstu deild frá árinnu 2000 hafa Blikar sigrað 6 sinnum, KR 8 sinnum og 9 jafntefli. Mörkin eru 70 og skiptast jafnt. Hvort lið hefur skorað 35 mörk í þessum 23 leikjum, eða 3.0 mörk að meðaltali per leik.

Tölfræði úr viðureignum liðanna í Frostaskjólinu frá árinu 2000 er þessi. Árð 2000 vinnur KR 3-2. Ári síðar er niðurstaðan 1-1 jafntefli. Breiðablik fellur svo úr efstu deild en er komið aftur meðal þeirra bestu árið 2006.

Úrslit leikja Breiðabliks á KR-vellinum síðan 2006:

2006:  3 - 2

2007:  1 - 1

2008:  1 - 2

2009:  3 - 2

2010:  1 - 3

2011:  0 - 4

2012:  4 - 0

2013:  1 - 1

2014:  1 - 1

Samtals 9 leikir og jöfn skipti. Liðin vinna 3 leiki hvort og jafnteflin eru 3. Mörkin eru 31.

Fyrri leik liðanna í sumar lauk með 2-2 jafntefli.

Áfram Breiðablik á Alvogen-vellinum annað kvöld kl. 20:00.

Til baka