BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Knattspyrnudeild ræður félagsfræðing til starfa

16.02.2019

Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur gert samning við Dr. Viðar Halldórsson félagsfræðing um að Viðar verði í ráðgefandi hlutverki fyrir deildina á næstu misserum og komi þar að ; greiningu, fræðslumálum, eflingu innra starfs og þróun- og stefnumörkun knattspyrnudeildar Breiðabliks.

Dr. Viðar er dósent í félagsfræði við Háskóla Íslands og hefur allt fá aldamótum einnig starfað sem ráðgjafi fyrir ýmsar íþróttastofnanir, sérsambönd og mörg af bestu íþróttaliðum landsins - félagslið sem og landslið.

Viðar hefur í rannsóknum sínum, og ráðgjafarvinnu, verið leiðandi í því að beina sjónum að félagslegum forsendum árangurs og skoðað sérstaklega hvernig kúltúr mótar stemningu og árangur liða og hópa á ýmsum sviðum. Hann hefur birt fjölda rannsókna á félagslegri umgjörð árangurs, haldið fyrirlestra víða um heim, og meðal annars skrifað rannsóknarbókina “Sport in Iceland: How Small Nations Achieve International Success.” Meira>

Knattspyrnudeild Breiðabliks býður Viðar Halldórsson velkominn í Blikafjölskylduna. Hann mun hjálpa okkur við að gera gott starf enn betra.

Mynd: HVH

Til baka