BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Knattspyrnudeild Breiðabliks semur við Sjúkraþjálfunina í Sporthúsinu

09.01.2015

Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur samið við Sjúkraþjálfunina í Sporthúsinu ehf um að þjónusta deildina næstu þrjú árin.

Stofan er staðsett staðsett á efri hæð Sporthússins-, gegnt aðalinngangi og starfa þar 8 sjúkraþjálfararar. Einkunnarorð stofunnar eru forvarnir og eftirfylgni og verður m.a. lögð sérstök áhersla á þessa þætti í nýjum samning.

Sjúkraþjálfun Kópavogs, sem veitt hafa deildinni þjónustu undanfarin ár, eru þökkuð fyrir vel unnin störf fyrir knattspyrnudeildina.

Til baka