BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Knattspyrnudeild Breiðabliks auglýsir eftir dómarastjóra

19.10.2015

Knattspyrnudeild Breiðabliks auglýsir eftir dómarastjóra í hlutastarf fyrir yngri flokka deildarinnar. Hlutverk dómarastjóra er að sjá um að útvega og raða niður dómurum á heimaleiki yngri flokka knattspyrnudeildar. Dómarastjóri þarf að vera í góðum samskiptum við þá frábæru dómara sem eru þegar hjá félaginu og vinna markvisst í því að fjölga í þeim hópi.

Leitað er að sjálfstæðum og metnaðarfullum einstaklingi. Umsækjendur þurfa að eiga auðvelt með mannleg samskipti og búa yfir getu til að byggja upp og bæta starfið í heild sinni.

Umsókn ásamt ferilskrá sendist á netfagnið: knattspyrna(hjá)breidablik.is Umsóknarfrestur er til 26. október 2015. Nánari upplýsingar veitir Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri knd. Breiðabliks knattspyrna(hjá)breidablik.is

Viðkomandi þyrfti að geta byrjað sem fyrst.

Knattspyrnudeild Breiðabliks

Til baka