BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Gummi Bö kveður Blika

26.09.2019

Knattspyrnumaðurinn Guðmundur Böðvar Guðjónsson hefur ákveðið að söðla um og hætta í herbúðum okkar Blika.

Guðmundur Böðvar eða Gummi Bö eins og hann er yfirleitt kallaður kom til okkar frá Skagamönnum í fyrra og hefur leikið 21 leik fyrir meistaraflokk Breiðabliks.

Þótt Gummi Bö hafi ekki leikið marga leiki fyrir meistaraflokkinn þá spilaði hann mikilvægt hlutverk í halda saman keppnisandanum í liðinu. Hann er leiðtogatýpa og var sífellt hvetjandi hvort sem hann var inn á vellinum eða utan hans. Einnig var Gummi ætíð fremstur í flokki þegar eitthvað þurfti að gera félagslega eins og fjáraflanir og skipulagning utanlandsferða.

Takk fyrir góða viðkynningu og gangi þér vel í komandi verkefnum.

Til baka